Morgunblaðið - 24.02.1974, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.02.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1974 15 Er popp-topp- urinn óvinn- andi vígi? Það er eftirtektarvert þegar lit- ið er á popptónlistarlíf hér á ís- landi, að hverfandi llti 1 endurnýj- un hefur átt sér stað í hópi þeirra. sem fremst hafa staðið í þessari tegund tónlistar. Vinsælustu hljömsveitir okkar í dag eru skip- aðar mönnum, sem byrjuðu að hasla sér völl í poppinu um svipað leyti og Bítlarnir eða á næstu árum þar á eftir þ.e.a.s. flestir þeirra voru byrjaðir að spila fyrir árið 1967. Menn hafa velt því fyr- ir sér hvað valdi þessari þróun, — hvort hin raunverulega skýring sé sú, að þeir sem reynt hafa að brjótast í gegn eftir 1970 séu hreinlega ekki nógu góðir til að standast hinum reyndari snúning eða hvort hér megi um kenna fhaldssemi þeirra sem njóta tón- listarinnar. Það er vissulega eðlilegt að álykta, að menn sem fengist hafa við popptónlist um nokkurra ára skeið hafi með árunum og reynsl- unni náð að þróa tónlist sfna til þeirrar fullkomnunar sem hæfi- leikar þeirra gefa tilefni tiL En það er heldur ekki fráleitt að leiða hugann að þeirri hættu sem þessi þróun kann að hafa í för með sér, hættunni á stöðnun, og það sem meira er, hættunni á því að hæfileikamenn glatist vegna þessa múrveggjar, sem virðist einangra toppinn. Staðreyndin er nefnilega sú, að margir ágætir hæfileikamenn hafa staðið í skugganum um árabil vegna þess- arar þróunar og aðrir hafa hrein- lega lagt árár í bát áður en hæfi- leikar þeirra voru ful Ireyndir. Sú hugsun hefur hvarflað að mér, að ef til vill eigi fjölmiðlar hér töluverða sök á. Poppsíður dagblaða og tímarita eru jafnan fullar af fréttum af þekktum nöfnum, sem ekki er óeðlilegt þar sem vitað er, að fólk hefur meiri áhuga á að lesa um þekkta menn en óþekkta, og þegar talað er um hræringar í poppheiminum er undantekningarlaust átt við til- færslur manna úr topphljóm- sveitum í aðrar sem áður voru á toppnum eða þá að meðlimir tveggja slíkra hljómsveita stokka upp og stofna tvær nýjar, — mennirnir eru þeir sömu, aðeins er skipt um nöfn. En á poppsíðun- um gleymist oftast að geta nýrra hljómsveita hvað þá að nokkuð sé fylgst með þeim sem reyna við illan leik að krafsa I bakkann, enda gufa flestar þessara hljóm- sveita upp, þegjandi og hljóða- laust. En hvað er til ráða? Er hugsan- legt að þessi þróun kynni að breytast ef nýjum nöfnum yrði gert hærra undir höfði á poppsíð unum, —eða er núverandi ástand fullkomlega eðlilegt og ofan- greindar hugleiðingar því út í hött? — Rúm það sem poppskrif- arar fá til umráða er af skornum skammti og enn sem fyrr hljóta skrif þeirra að mótast að miklu ieyti af því sem hinar þekktari hljómsveitir eru að gera, a.m.k. á meðan þeim er áfram um að ein- hverjir lesi skrif sín. Hvað segja lesendur SLAGSÍÐ- UNNAR? Er þetta allt í lagi? — Ef ekki hvað er þá til ráða. Sendið okkur línu um þessi mál og ekki þarf að taka það fram, að álit hljóðfæraleikara sjálfra yrði mjög kærkomið. Sv. G. Ösk spyr: Hvernig á að skrifa „að- dáandi" á ensku? Svar: Enska orðið fyrir ,,að- dáanda“ er ,,fan“ — sem líka þýðir vifta og má segja, að þetta tvennt snúist hraðar en auga á festir. Einar spyr: Er ekki hægt að koma í fram- kvæmd kosningum um hver sé vinsælasta hljómsveitin, söng- vari'nn o.s.frv.? Svar: Heldur er SLAGSÍÐ -AN mótfai lin því að standa fyr- ir slíkum kosningum — og eru ýmsar ástæður fyrir því. Aðal- ástæðan er þó sú, að slíkar kosningar, þegar þær hafa ver- ið haldnar hérlendis, hafa kostað mikla vinnu, en árang- urinn nánast undantekningar- laust verið lítilfjörlegur, því að úrslitin hafa augljóslega ekki gefið rétta mynd af vinsældum listafólksins. Ræður þar mestu sú aðferð, sem notuð er við atkvæðagreiðslu, en hún býður heim alls kyns hættum, m.a. fölsunarhættu o.fl. — Hins vegar er vel athugandi að birta helztu úrslit úr slíkum kosn- ingum erlendis frá — sem mark er á takandi vegna þess, að þátttakan i þeim er svo gífurleg, að enginn heilvita maður myndi freista þess að hafa áhrif á þær með fölsunum atkvæðaseðla — það væri svo brjálæðislega mikil vinna. Sigrfður spyr: Þarf fullt nafn og heimilis- fang að fylgja bréfunum til þess að þið svarið þeim? Svar: Já, það er regla, sem SLAGSIÐAN hefur sett — en sjálf brotið nokkrum sinnum, aðallega þegar um hefur verið að ræða bréf, sem hafa að geyma ósköp saklausar spurn- ingar, sem auðvelt hefur verið að svara. SLAGSÍÐAN er nefnilega dálítið góð sál. EN — stórt EN — héðan í frá — sfð- asta aðvörun — verður ekki reynt að leita svara við öðrum spurningum en þeim, sem fullt nafn og heimilisfang fylgir. Hins vegar eru spurningarnar birtar með dulnefni, ef óskað er sérstaklega — nema þegar sérstök ástæða þykir til að birta nafn bréfritara. Anonymus X spyr: Hver syngur lagið „Drift away“? Svar: Hann heitir Dobie Gray og er bandarískur — og okkur minnir að hann sé svart- ur. Einn forvitinn úr Tungun- um spyr: Svarar SLAGSÍÐAN öllum spurningum, sem hún veit svör við? Svar: J á, það var nú hug- myndin — en það getur tekið tíma að finna svörin. Á rit- stjórnarskrifstofum SLAG- SÍÐUNNAR er mikið af alls kyns uppsláttarritum og heimildarritum og alls kyns gögnum, en aðalvinnan er að fletta í gegnum þetta allt. Og sá úr Tungunum heldur áf ram: Hví er ekki stækkað bréfá- plássið á SLAGSÍÐUNNI? Svar: Það hefur lengi staðið til, til að grynnka á bréfabunk- anum, en okkur hefur legið svo margt annað á hjarta, að bréfadálkarnir hafa mætt af- gangi — því miður. Og áfram heldur Tungólfur: Getur SLAGSÍÐ AN ekki birt enska og bandaríska vinsælda- listann i hverri viku? Svar: Eiginlega hefur SLAG- SÍÐAN ekki lagt út f það, vegna þess að það hefur reynzt afar tilviljanakennt, hvort list- arnir hafa borizt henni á rétt- um tíma eða ekki og stundum — og það er oftar en hitt — hafa þeir alls ekki komið. En vissulega verður þetta atriði haft í huga. Akureyringur, Birgette Elegant frá Selfossi og Þórunn í Kópavogi biðja um upp- lýsingar um hljómsveitina Nazareth: Upphaflega voru þeir allir félagarnir, Dan McCafferty, söngvari, Manuel Charlton, gítar, Pete Agnew, bassi, og Darrell Sweet, trommur, i hljómsveit í heimalandi þeirra Skotlandi, sem hét The Shadettes. Síðan var Nazareth stofnuð árið 1969 (nafnið á sér engar trúræknislegar rætur) og hafa þeir nú sent frá sér einar sex — sjö litlar plötur. Sú fyrsta, sem komst á lista, var „Broken Down Angel“. Stórar plötur munu vera 4 — 5 talsins. Persónulegar upplýsingar: Fæðingardagar: Dan — 14. október 1946, Manuel — 25. júlí 1941, Pete — 14. september 1946, Darrell 16. maí 1947. Fýrri atvinna: Dan — verk- fræðistörf, Manuel — raf- magnsfræðistörf, Pete — að- stoðarmaður arkitekts, Darrell — bókhaldari. Tónlistarlegir lærimeistarar: Dan— fólk, sem hann hittir, sjónvarpið, Manuel — Elvis Presley, Buddy Holly, Beatles, Cream, Pete — Little Richard, Ernie Ford, Darrell — hinir og þessir trommarar. Uppáhaldsalbúm: Dan — „Crazy Horse" með Crazy Horse, Manuel — „Live at the Fillmore East“ með Allman Brothers Band, Pete — „Little Feát“ með Little Feat, Darrell — „Superlungs“ með Terry Reed. Arnar Petersens aðdáandi, Þorsteinn Ingimarsson og Þórunn biðja um upplýsingar um brezku hljómsveitina Mud: Hljómsveitina skipa Ray Stiles, bassi og flauta, Dave Mount, trommur, Les Gray, söngur og trompet og Rob Davies, gitar. Þeir hafa allir þekkzt síðan i barnæsku, gengu í sömu skóla í bænum Mitcham í Surrey, og Dave og Rob byrjuðu að leika saman þegar þeir voru tveggja ára. Fyrir átta árum stofnuðu þeirfélagar svo hljómsveitina Mud, og gáfu út einar fimm litlar plötur áður en lagið „Crazy“ sló í gegn i febrúar í fyrra. Síðan komu ,Jlypnsis“, og „Dynamite '. Og svo persönulegar upplýsingar fyrir þá, sem vilja: Fæðingar- dagar: Ray — 20. nóvember 1946, Dave — 3. marz 1947, Les — 9. april 1946, Rob — 1. októ- ber 1947. Hára- og augnalitur: Ray — dökkbrúnt, blá, Dave — dökkbrúnt, hnotubrún, Les — dökkbrúnt, blá, Rob — jarpt, blá. Fyrri atvinna: Ray — aðstoðarmaður arkitekts, Dave — rafvirkjanemi, Les — höf- undur sjónvarpsauglýsinga, herrafatasali, Rob — bókhaldari. Áhugamál: Ray — kvikmyndun, plötusöfnun, Dave — matreiðsla, sjónvarps- gláp, Les — söfnun eldspýtna- stokka, stuðningur við Leeds United, Rob — nám i klassisk- um gitarleik, Yoga. Það allra helgasta: Ray — kvæntur, Dave — ókvæntur, Les — skilinn, Rob — ökvæntur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.