Morgunblaðið - 07.03.1974, Síða 2

Morgunblaðið - 07.03.1974, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 Nýtt slökkviefni að góðum notum þegar eldur kom upp í hreyfli Loftleiðaþotu 1 gærmorgun ELDUR kom upp f einum hreyfli Loftleiðaþotu skömmu eftir að hún hafði hafið sig á loft frá Keflaukurflugvel li í gærmorgun. Flugmenn urðu varir við, að aðvörunarljós kviknaði í mæla- borði, er gaf til kvnna, að eldur væri kominn upp I einum hreyfl- inum og var þá þegar snúið við og lent aftur. 1 vélinni voru 95 far- þegar, þar af þrír Islendingar auk áhafnar og voru þeir teknir út úr vélinni um neyðarútganga — á uppblásnum rennibrautum. Engan sakaði nema hvað einn maður hlaut skrámur í andliti við að komast út úr vélinni. Engar skemmdir urðu heldur á þotunni utan það, að hreyfillinn er ónýt- ur. Rannsókn hófst þegar í gær og voru teknar skýrslur af áhöfn og farþegum. I fréttatilkynningu fráLoftleið- um iim þetta óhapp s'egir svo: Aætlunarflugvél Loftleiða LL-200 frá New York varð fyrir nokkrum töfum á Keflavíkurflugvelli, er hún hóf sig til flugs kl. 08.13 í morgun á leið til Luxemborgar. Það atvikaðist þannig, að skömmu eftir að flugvélin var komin í loftið, eða u.þ.b. er hjólin voru tekin upp, sáu flugmenmrnir fugla framundan og skipti þá eng- um togum, að vélin varð fyrir höggi og kviknaði á viðvörunar- Ijósi, er gaf til kynna, að eldur væri i yzta hreyfli hægra megin. Ahöfmn gerði umsvifalaust við- eigandi ráðstafanir til að kæfa eldinn — flugvélinni var jafn- skjótt flogið inn til lendinga’’ aftur og lent sjö mínútum eftir flugtak. Þegar lent var, var eldur ennþá í hreyflinum. en slökkvilíð flugvallarins brá skjótt við, var komið að flugvélinni um leið og hún stöðvaðist og réð niðurlögum eldsins. Öryggisbúnaður flugvélarinnar var notaður strax og hún stöðvað- ist og farþegum hjálpað við að komast út um neyðarútganga á uppblásnum rennibrautum. Eng- inn slasaðist nema einn maður, sem skrámaðist lítillega í andliti. Með flugvélinni voru 95 farþegar og héldu þeir áfram ferð sinni með annarri vél til Luxemborgar um 12 leytið i dag. Flugstjóri var Hilmar Leósson og flugáhöfn auk hans, aðstoðarflugmaður, flugvél- stjóri ag sex flugfreyjur. Flugstjörinn Hilmar Leósson hefur flogið hjá Loftleiðum í 18 ár og hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að það væri sem betur fer afar sjaldgæft að svona nokkuð kæmi fyrir, kvaðst aldrei hafa orðið fyrir því fyrr. „Þegar svona hlutir gerast gengur þetta í rauninni alveg sjálfkrafa fyrir sig,“ sagði hann, ,,um leið og við fáum aðvörun um, að eldur sé í hreyflinum eigum við að gera ákveðna hluti, við eigum að slökkva á hreyflinum, skrúfa fyrir oliuna og setja slökkvitækin Framhald á bls. 18 GOÐ FRYSTILOÐNA ÖLLUM A ÓVART TUTTUGU og tvö loðnuveiðiskip höfðu f gær fengið 3.775 tonn af loðnu og var obba þess magns landað á höfnum við Faxaflóa. Gott veður var á miðunum við Suðvesturland, en hins vegar var slæmt veður eystra og fréttist þaðan ekkert. Steinar Gunnarsson hjá loðnu- nefnd sagði í gær, að sú loðna, sem hér hefði veiðzt út af suð- vesturhorninu, værí mjög góð frystiloðna — hin bezta, sem sézt hefði á vertíðinni nú. Sagði Stein- ar, að enginn hefði átt von á svo góðri loðnu, sem enn væri ekki komin að hrygningu og væru hrognin föst og góð í fiskinum. Mestallt það magn, sem veiddist í gær, mun hafa farið í frystingu, en sums staðar mun það hafa loðnunnar, að enginn átti von á svo góðri frystiloðnu nú. Erþessi loðna góð búbót, sagði Steinar Gunnarsson. Unnið við að slökkva í hrevflinum. Flugfreyjur ræða við manninn, sem slasaðist f andliti við að kom- ast út úr vélinni. (Ljósm. Mbl. Heimir Stfgsson). Bartok-konsert hjá Sinfóníunni í kvöld SINFÓNÍUHLJÖMSVEIT Is- lands heldur 11. reglulegu tónleika sfna í Háskólabíói f kvöld kl. 8.30. Stjórnandi er Páll P. Pálsson, en einleikari með hljóms veitinni er ungverski píanóleikarinn Laszlo Simin. Flutt verður Vatnasvita eftir Handel/Harty, píanókonsert nr. 3 eftirBartok, Till Eulenspiel eftir Richard Strauss og frumflutt verður nýtt verk eftir stjórn- andann, sem hann nefnirDialoge. Gífurlegt kaupæði hefur gripið um sig meðal fólksins GlFURLEGT kaupæði hefur gripið um sig meðal fólks og hafa verzlanir, sem verzla með heimilistæki, kæliskápa, þvotta- vélar, frystikistur, uppþvotta- vélar o.s.frv., svo tiltæmzt undan- farna daga. I samtölum, sem Mbl. átti I gær við nokkra verzlunar- st jóra, kom fram, að orsakir kaup- æðisins eru aðallega ótti við Hafnarverkamenn felldu sérsamninga við Eimskip ER almennir kjarasamningar verkalýðsfélaganna voru undir- ritaðir á dögunum, var einnig undirritaður af hálfu Dagsbrúnar og Eimskipafélagsins sérsamn- ingur um breytta vinnuti Ihögon við uppskipunarvinnu úr skipum Eimskipafélagsins í Reykjavík. Er samningur þessi var borinn undir atkvæði á sérstökum fundi hafnarverkamanna, sem starfa hjá E.í., á þriðjudag, var hann felldur með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða, um 170 atkvæðum gegn rúmlega 50. Helztu atriðin i sérsamningnum voru þessi: Komið yrði á sérþjálf- Aldraður maður varð fyrir bíl UMFERÐARSLYS varð á mótum Nesvegar og Kaplaskjólsvegar rétt fyrir hádegið á miðvikudag. Maður á 84. aldursári varð fyrir bifreið, er hann var að ganga yfir Nesveginn. Var hann fluttur í sjúkrahús og reyndist hafa farið úr mjaðmarlið. un verkamanna við þessa vinnu og fyrir slíka sérþjálfun yrði greiddur kaupauki, 8% við upp-. haf þjálfunar og 16% við lok hennar. Eldri starfsmenn, sem hefðu hlotið slika þjálfun í starfi, væru ekki skyldaðir til að gangast undir slika þjálfun sérstaklega. Fjöldi starfsmanna við hvert verk gæti verið breytilegur, allt eftir mati yfirverkstjóra hverju sinni, en ekki fastbundinn við 8 manna „gengi“ eins og verið hefur. Felldur yrði niður kaffitíminn á morgnana, en fyrir hann greitt sérstaklega og verkamönnunum væri heimilt að drekka morgun- kaffi í starfi, þegar færi gæfist. Síðdegiskaffitími yrði einungis, ef um eftirvínnu væri að ræða, en ef ekki væri unnin eftirvinna, hættu verkamenn störfum fyrr, sem næmi kaffitímanum. Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar sagði í samtali við Mbl. í gær, að þessi sérsamningur hefði komið til vegna þeirrar tækniþróunar, sem hefði orðið í flutningamálum að undanförnu og væri fyrirsjáanleg. Henni fylgdi breytt vinnutilhögun og röskun á venjum verkamann- anna, en þeir væru vanafastir „og skilja ekki alveg alltaf, hvað hlýt- Framhald á bls. 18 hækkun söluskatts, en einnig óttast fólk mjög, að gengi krón- unnar fari að falla. Verzlanir eru ekki viðbúnar þessari miklu eftir- spurn nú, þar sem þessi árstími er alla jafna mjiig rólegur sölu- tími. Því voru engar birgðir til af heimilistækjum. Fái fólk hins vegar ekki þann hlut, sem það spyr um, þegar það kemur í verzlunina, kaupir það eitthvað annað, sem til er. Viðar Kornerup-Hansen, verzl- unarstjóri hjá Fönix, sagði að t.d. væri litil sala í frystikistum, nema á haustin. Nú fást ekki frysti- kistur í Reykjavík, þær eru alls staðar uppseldar. Viðar sagði, að þessi aukna eftirspurn hefði fyrst gert vart við sig á fyrstu dögum verkfalls verzlunarmanna. Væri salan i heimilistækjum eins og hún væri bezt á haustín. Fólk óttaðist mjög söluskatts- hækkunina, en einnig hefði hækkun flutningsgjalda sín áhrif, þar sem hún hefði á síðustu mánuðum hækkað um tæplega 40%. Getur f lutningsgjalda- hækkunin ein numið á þriðja þúsund kröna á meðalstórum ísskáp. Þá hefði einnig heyrzt á fólki hina síðustu daga, að það óttaðist gengislækkun. William Gunnarsson, verzlunar- Framhald á bls. 18 SUF krefst nýs aða fundar í FUF í Rví SERSTÖK rannsóknanefnd, sem Sem kunnugt er, urðu harðar þvi leiddar, að svo haf SERSTÖK rannsöknanefnd, sem stjórn Sambands ungra fram- sóknarmanna setti á stofn í nóv ember sl. í kjölfar deilna á aðal- fundi Félags ungra framsóknar- manna í Reykjavfk, hefur sakað forráðamenn félagsins um brot á liigum þess við undirbúning og framkvæmd aðalfundarins. I fregn á síðu SUF í Tímanum í gær er birtur úrskurður rann- sóknanefridar þessarar, þar sem þessi ásökun kemur fram, og sagt, að skoða verði aðalfund FUF ólögmætan og efna beri til nýs aðalf’-’.idar þegar ístað. Sem kunnugt er, urðu harðar deilur á aðalfundi FUF sl. haust og lyktaði þeim á þann hátt, að hluti fundarmanna hvarf af fundi og efndi til annars fundar og voru kosnar tvær stjórnir fyrir félagið. í svonefndum úrskurði rann- sóknanefndar SUFsegir: „Samkvæmt framansögðu telur nefndin, að ekki verði hjá því komizt að leggja eftirtalin atriði til grundvallar niðurstöðu sinni: 1) Það telst sannað, að á spjald- skrá félagsins voru færð nöfn a.m.k. fimm manna, sem ekki voru félagsmenn, og likur eru að því leiddar, að svo hafi og ve um allt að 116 menn aðra. 2) Það telst sannað, að á aí fundinn mættu 10 menn, s ekki voru á spjaldskrá félagsi Ekki er ennþá vitað, hvort sa máli gegnir um einhverja úr h 80 félagsmanna til viðbótar. 3) Það telst sannað, að li%m um félagsmönnum var meinað neita félagsréttinda sinna á ai fundinum, ýmist með þvf meina þeim aðgang að fundin eða með því að meina þeim neyta atkvæðaréttar. Framhald á bls.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.