Morgunblaðið - 07.03.1974, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.03.1974, Blaðsíða 17
Fjórir urðu efstir og jafnir í Hastings Á HINU árlega jólaskák- móti í Hastings var keppnin nú meira spenn- andi en nokkru sinni fyrr og lauk svo, að fjórir urðu efstir og jafnir. Sigurvegararnir, sem allir hlutu 10 vinn- inga, voru þeir Mikhail Tal og Gennady Kusmin frá Sovétríkjunum, ung- verski stórmeistarinn Szabó og Hollendingur- inn Jan Timman. Önnur úrslit urðu sem hér segir: 5. Gligoric (Júgósl) 9(4 v., 6. Keene Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR (Engl.) 9 v., 7. Adorjan (Ungv.l.) 8(4, 8.—9. Benkö (U.S.A.) og Hartston (Engl.) 7(4, 10. Basman (Engl) 7 v., 11. Suttles (Kanada) 6(4, 12. Pytel (Pólland) 6 v., 13. Miles (Engl.) 5(4, 14.—15. Garcia (Kúbu) og Stean (Engl.) 5 v., 16. Rellstab (V.-Þýzkal.) 3 v. Stórmeistararnir drógust saman í fyrstu umferðunum og eftir 7 umferðir höfðu þeir teflt saman 22 skákir og þar af hafði 20 lokið með jafntefli í færri leikjum en 20! Hollendingurinn Timman hafði þá foryst- una með 6 v. og ýtti það heldur betur við þeim stóru. í 10. umferð tap- aði Timman fyrir Keene MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 17 og í þeirri 12. tókst Glig- oric að sigra Kusmin með svörtu. Eftir 12 um- ferðir voru þeir Kusmin, Szabó og Tal í efstu sæt- unum og virtust öruggir um sigur. En Englend- ingurinn Miles var hetja lokaumferðanna. I næst- síðustu umferðinni sigr- aði hann Kusmin og í þeirri síðustu gerði hann jafntefli við Tal. Miles hefur nú teflt sjö skákir gegn sovézkum stór- meisturum, hann hefur unnið tvær, en orðið að sætta sig við jafntefli í hinumfimm. Hér kemur nú ein skemmti- leg skák frá mótinu: Hvítt:G. Kusmin (Sovétríkin) Svart: K. Pytel (Pólland) Sikileyjarvörn I. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 — Rc6, (Með þessum leik beinir svartur skákinni inn i farveg Rauzerafbrigðisins. Með 6. — a6 gat hann haldið sig við af- brigði Najdorfs). 7. Dd2 — e6, 8. 0-0-0 — Bd7, 9. f4 — Be7, 10. Rf3 (Hvítur hótar nú að leika e5 og því verður svartur að svara með mótsókn á drottningar- væng). 10. — b5, 11. Bxf6 (í skákinni Kestler — Spassky, Dortmund 1973, varð áframhaldið: 11. e5 — b4, 12. exf6 — bxc3, 13. Dxc3 — gxf6, 14. Bh4 — d5 og svartur náði vinningsstöðu). II. — gxf6, 12. f5 (í 18. skák heimsmeistara- einvígisins lék Fischer hér 12. Bd3, en hafði heldur lítið upp- úr krafsinu). 12. — Db6, 13. fxe6 — fxe6, 14. Re2! (Byrjunin á skemmtilegum liðsflutningum, sem miða að sókn gegn peðinu á e6). 14. — Re5, 15. Rf4 — Rc4, 16. Bxc4 — bxc4, 17. Dc3! (Hér stendur drottningin bezt, eins og síðar kemur í ljós). 17.— 0 0, 18. Rd4 —d5, (Ekki 18. — e5 vegna 19. Rd5 og ef nú 19. — exd4 þá 20. Dg3 +) 19. exd5 — e5, 20. Rfe6 — exd4, 21. Dg3+ — Kf7, 22. Dg7 + — Ke8, 23. Hhel (Sterkara en 23. Rxf8). 23. — c3, (Hér kom e.t.v. ekki síður til álita að leika 23. — Hb8). 24. b3 — Bxe6, 25. Hxe6 — Dc5, 26. Hdel — Ha7, 27. Kdl — Kd8, (Eða 27. — Hf7, 28. Dg8+ — Hf8, 29. Dxh7 — Kd8, 30. Dg7! og hvítur vinnur. Annar möguleiki var 27. — d3, t.d. 28. d6 — dxc2+, 29. Kcl! — Da3+, 30. Kxc2 — Db2+, 31. Kd3 — Dd2 + , 32. Kc4 — Df4+, 33. Kc5 — Df5 +, 34. Kb6 — Db5 +, 35. Kxa7 — Dc5+, 36. Kxa6 — Dc6+, 37. Ka5 — Dc5+, 38. Ka4 — Da7 + , 39. Kb5 og hviti kóngurinn sleppur úi'þráskák- inni. Nú vinnur hvítur þving- að). 28. Ilxe7 — Hxe7, 29. Dxf8+ — Kd7, 30. Hxe7 + — Dxe7, 31. Dxe7+ — Kxe7, 32. Ke2 — Kd6, 33. Kd3 — Kxd5, 34. b4 og svartur gafst upp. Jón Þ. Þór. Erlendar bækxtr Handlingens dag Þessi bók er eftir þýzka konu, Hiltgunt Zassenhaus, og mun vera rituð á ensku og ber þá titilinn „Walis“. Hiltgunt Zassenhaus var kölluð „engill- inn í fengelsum" meðal noskra fanga í fangabúðum Hitlers á stríðsárunum. Hún vann þar fórn fúst og áhættusamt starf til að reyna að bæta aðbúnað fanganna og hefur í Noregi ver- ið heiðruð fyrir frammistöðu sína. I bókinni segir Hiltgunt frá æsku sinni i Þýzkalandi, þegar nasisminn er að ryðja sér braut, allt frá þvf hún sem 17 ára gamall menntaskólanemi neit- ar að heilsa með Hitlerskveðj- unni og þangað til Þýzkaland gefst upp 1945. Hún segir frá þeim tvöfalda leik, sem hún neyddist til að leika til að halda lífi og í bókinni kemur fram, að iðulega mátti litlu muna, að hún væri ekki grunuð um græsku. Raunar virðist svo sem yfirmenn hennar hafi oft af ráðnum hug séð í gegnum fing- ur við hana, og vi 11 hún þar með sennilega gefa til kynna, að ekki hafi allir Þjóðverjar verið jafn blindir af Hitler og þeir létu. Bókin er ákaflega lipurlega skrifuð og laus við alla væmni. Skynja má óttann, 'sem fólkið hrærðist í, hvarvetna í þessari bók. í formála segir höfundurinn frá ferð, sem hún fór til Austur- Berlínar, þar sem forlag þar hafði sýnt áhuga á að gefa bók hennar út. Aftur á móti er minnzt á guð nokkrum sinnum 1 bókinni. Það þarf að strika út. Þegar hún fæst ekki til að gera umbeðnar breytingar verður ekki af útgáfu. Eftir styrjöldina fluttist Hilt- gunt Zassenhaus tilDanmerkur og lauk þar embættisprófi 1 læknisfræði. Hún fluttist til Bandarikjanna árið 1951 og hefur búið þar siðan. Það er norska forlagið Asche- Hiltgunt Zassenhaus. houg & Co. i Osló, sem gefur bókina út og er hún þýdd, lík- lega úr ensku, af Reidar Gjör- ven. Þetta er í heild hin læsileg- asta bók og áhrifamikil aflestr- ar á sinn hreina og einfalda hátt. „Konurnar í lífi Mussolinis” Bókin er eftir Vittorio Mussolini, elzta son italska einræðisherrans og heitir á ensku „Mussolini — the tragic women in his life“. Bókin ber þess merki eins og eðlilegt verður að teljast, að sonur Mussolinis leggur sig fram um að draga fram í dagsljósið hinar menneskjulegri hliðar föður sins. Stríðið er yfirleitt heldur fjarlægt í bókinni: fjölskyldulifið situr i fyrir- rúmi. Um afleiðingar er þó fjallað, m.a. greint frá því, er hann lét lífláta tengdason sinn fyrir að sitja á svikráðum við sig, ásamt nokkrum fleirum. Á bókarkápu er gefið í skyn, að fjallað sé um ástasamband Mussolinis og hjákonu hans, Clöru Petacci, sem var drepin um leið og Mussolini. Aftur á móti kemur í ljós við lestur, að Vittorio vill sem minnst tala um það sam- band, en hann er mildari i umtali sínu um Clöru Petacci en almennt hefði mátt ætla. Þessi bók veldur nokkrum vonbrigðum. Hún er sjálfsagt skrifuð í þeim tilgangi, sem að framan getur: að sýna manneskjuna, en ekki þá stríðsóðu ófreskju, sem margir hafa stimplað hann. Vegna þess hve viðkvæmni sonarins er mikil gagnvart föður sinum, vegna þess hann hefur ekki hugrekki til að sýna fulla hreinskilni og vegna þess að kannski skortir á það um- burðarlyndi, sem lesandinn telur Vittorio ætla að sýna, þá missir bókin marks. Hún er þekkileg aflestrar og hvergi leiðinleg. En hún breytir engu, skýrir hvorki né afsakar Mussolini, vekur ekki samúð með honum og við erum að lestri loknumekki miklu nær. Bókin kom út á ensku og ítölsku á sl. ári. I Bretlandi kom hún út áforlaginu: New Engilish Library. „EITTHVAÐ, SEM ÞÚ EI FÆRÐ HÖNDLAД „EITTHVAÐ, sem þú ei færð höndlað" gæti bókin „Det er noe du ikke kan fá“ heitið á íslenzku. Höfundur er ungur maður, Bernt Vestre, sem sendi frá sér árið 1972 bókina „En hane til Asklepios" og gat sér mikið orð fyrir. ,J)et er noe du ikke kan fá“ mun sennilega flokkast undir að vera saka- málasaga, en hún sver sig dá- lítið í átt við bækur Georges Simenon að þvi leyti, aðlesand- ann skiptir ekki meginmáli hver endalokin verða, heldur hvernig sögunni vindur fram. Söguþráðurinn í þessari bók er sá, að ungur auglýsingatexta- höfundur, Peter Kessel, sem er nýskilinn við eiginkonu sína, ætlar að koma í heimsókn til Frede, fornvinar síns frá því að báðir voru ungir og róttækir stúdentar. Hann hittir fyrir á heimilinu föður Frede, málar- ann Hanner, og Lenu, unga stúlku, sem hann getur ekki alls kostar áttað sig á hver er, Bernt Vestre né hver er staða hennar á heim- ilinu. Frede er aftur á móti horfinn, eins og jörðin hafi gléypt hann. Enginn virðist geta eða vilja upplýsa, hvað fyrir hann hefur komið. En smám saman er ýmislegt dregið fram um gerðir Frede, sem verður til glöggvunar á stöðu hans og gerðum. Kannski var það hann, sem kom sprengj- unni fynr f sendiráðið. Kannski var það ekki hann heldur ein- hver allt annar. Það skiptir ekki meginmáli, en eitthvað óhreint er á samvizkunni hans. Bókinni lýkur á þann veg, að lögreglan og þremenningarnir, faðirinn, vinurinn og Lena, hafa upp á felustað Frede en um endalokin er óþarfi að tjá sig. Vel er skiljanlegt, að þessi höfundur hafi fengið góða dóma því að bókin er með afbrigðum spennandi og erfitt að leggja hana frá sér fyrr en að lestri loknum. Og þó er manni sama um þokupersón- una Frede. Kannski er bókin enn meira afrek einmitt sakir þessa. Forlagið Aschehong & Co i Noregi gefur bókina út. h.k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.