Morgunblaðið - 07.03.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974
31
Tékkinn Leo Skoda sigraði I stökkkeppni af lægri palli I Lathis
og varð þriðji í stökkkeppninni af hærri palli.
Lathis-leikarnir
HIÐ árlega skfðamót í Lathis I
Finnlandi fór fram um sfðustu
helgi. Þátttaka i mótinu var mjög
góð og keppni skemmtileg í öllum
greinum.
t 10 km göngu kvenna sigraði
Galina Kulakova frá Sovétríkj-
unum í 34:17,6 mín. Önnur varð
landa hennar Sinaida Amosova á
34:28,4 mín. og þriðja Alena Bato-
sova frá Tékkóslóvakíu á 34:53,1
mín.
í 50 km göngu karla sigraði
Finninn Juhani Repo á 2:45,31,2
klst. Sigurvegarinn- í þessari
grein frá Olympíuleikunum í
Sapporo, PálTyldum frá Noregi,
varð i öðru sæti á 2:46,47,4 klst. og
þriðji varð Edi Hauser frá Sviss á
2:47,53,3 klst.
í stökkkeppninní bar Leo
Skoda frá Tékkóslóvakíu sigur úr
Islandsmót
ÍSLANDSMEISTARAMÓT ungl-
inga í borðtennis fer fram I Laug-
ardalshöllinni dagana 16. og 17.
marz n.k. Keppt verður í einliða-
leik pilta og stúlkna. Skráningu
skal lokið og þátttökuti lkynn-
ingar að hafa borizt fyrir 12. marz
n.k., til íslandsmótsnefndar Borð-
tennissambandsins, pósthólf 864,
eða á skrifstofu ÍSÍ.
býtum. Hann stökk 101,0 metra og
106.5 metra og hlaut fyrir það
225.3 stig. Í öðru sæti varð Finn
Halvorsen frá Noregi með 223,2
stig og þriðji varð Karel Kodejska
frá Tékkóslóvakíu með 217,9 stig.
I stökki af hærri palli sigraði
hins vegar Sovétmaðurinn Alexj
Borovitin, sem stökk 107 metra og
99.5 metra og hlaut 219,4 stig.
Johan Satre frá Noregi varð
annar með 211,6 stig og Leo
Skoda varð þriðji með 211,6 stig.
i 15 km göngu sigraði Vasilij
Rotjev frá Sovétríkjunum á
45.56.3 min. Ivar Formo frá
Noregi varð annar á 46:25,0 mín.
og þriðji varð Svend-Ake
Lundbáck frá Sviþjóð á 46:31,2
min.
Sveit Tékkóslóvakíu sigraði í
3x5 km boðgöngu kvenna, sveit
Noregs varð önnur og sveitFinn-
lands þriðja.
I norrænni tvíkeppni sigraði
s\'o Raimo Manninen frá Finn-
landi, hlaut 59,368 stig. Annar
varð Erik Aikala frá Finnlandi
með 59,658 stig og þriðji varð
Matti Leppánen, einnig frá Finn-
landi með 59,845 stig.
Hinn gífurlegi áhugi Finna á
skiðaíþróttinni kom greinilega
fram á móti þessu, þar sem um 90
þúsund manns fylgdust með
keppninni.
Liðakeppni í badminton
LIÐAKEPPNI f badminton hefst
8. marz n.k., en þarna er um nýj-
ung í badm intonstarfinu hér-
lendis að ræða. Keppt verður í
meistaraflokki karla, og A-flokki
karla og er þátttaka í mótinu góð.
í meistaraflokki keppa tvö lið
frá TBR og eitt lið frá KR, en í
A-flokki, keppa lið frá KR, TBR,
Val, Akranesi, Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Selfossi, Siglufirði og Ung-
menna- og íþröttasambandi Aust-
urlands.
Sem fyrr greinir hefst mótið 8.
marz með leik i 1. riðli í A-flokki
milli Vals og TBR. í meistara-
flokki hefst keppnin hins vegar
ÍSLANIXSMOTIÐ í knattspyrnu
innanhúss verður haldið í Laug-
ardalshöllinni í Reykjavík um
páskana, þ.e. dagana 11., 13., og
15. apríl. Keppt verður að venju í
karla- og kvennaflokki. Til-
kynningarfrestur er til 20. marz
nJk. og verður þátttökutilkynning
ekki tekin gild, nema þátttöku-
gjald fylgi, en það er kr. 1000,00
fyrir hvern flokk.
(Frétt frá mótanefnd KSl).
16. marz með leik milli A-Iiðs TBR
og KR. Áætlað er að keppni í
meistaraflokki ljúki 27. apríl en
öákveðið er hvenær keppninni í
A-flokki lýkur.
r
Armann
vann Þór
EINS OG frá var skýrt i blaðinu í
gær, kom kvennalið Þórs í hand-
knattleik suður um siðustu helgi,
en liðið lék þá hér þrjá leiki en
ekki tvo, eins og kom fram í blað-
inu í gær. Þriðji leikur Þórs-
stúlknanna var við Armann og
vann Ármann þann leik 9:8, eftir
að hafa náð yfirburðastöðu í hálf-
leik, 6:0.
Þá var rangt farið með stöðu
Ármanns i deildinni i gær. Liðið
hefur leikið 9 leiki, unnið 5, gert 2
jafntefli og tapað 2 leikjum.
Markaskorunin er 105:97 og
hefur liðið 12 stig og er þar með í
þriðja sæti í deildinni á eftir
Fram og Val.
' ■ , ' ' v 0
Nær og fjær . . . .
Anderlecht
í forystu
URSLIT leikja i belgísku 1.
deildinni i knattspyrnu um síð-
ustu helgi urðu þessi:
Anderlecht—Berchem 5:1
Antwerpen—St.Tuiden 3:1
Standard Liega—Beveren 0:0
GlubBrugge—Lierse 3:0
Beerschot—LiegeFC 3:0
Waregem—RacingWhite 1:1
Mechelen—Cercle Brúgge 2:2
Diest—Beringen 1:1
Anderlecht hefur forystu i
deildinni og er með 34 stig að
loknum 22 leikjum. Racing
White er í öðru sæti með 28
stig, en siðan koma Antwerpen
með 28 stig, Mechelen með 26
stig, Blub Brúgge með 23 stig,
Liege FC með 23 stig, Standard
Liega með 22 stig, Waregem
með 22 stig, Berchem með 22
stig, Cercle Brúgge með 20 stig,
Beveren með 19 stig, Diest með
18 stig, Lierse með 18 stig,
Beerschot með 16 stig, St.
Tuiden með 14 stig og á botnin-
um er Beringen með 13 stig.
HILL SETTI
HEIMSMET
BANDARÍ KJAMAÐURINN
Tom Hill setti nýtt heimsmet í
60 metra grindahlaupi, er hann
hljóp vegalengdina á 7,3 sek. í
innanhússlandskeppni Sovét-
manna og Bandaríkjámanna i
frjálsum fþróttum, sem fram
fór í Moskvu nýlega. Sovét-
menn unnu landskeppnina
158—124 stig.
Miklar deilur urðu vegna
hoðhlaups kvenna í keppninni,
en þar hljóp ein sovézku
stúlknanna fvrir hina 15 ára
Mary Decker, sem hefur sett
hvert heimsmetið af öðru að
undanförnu. Sovézka sveitin
var dæmd úr leik, og sú banda-
ríska líka, þar sem hún mót-
mælti framkomu Sovétstúlk-
unnar.
Nadesjda Tsjisjova frá Sovét-
rfkjunum kastaði kúlunni 20,40
metra í keppni þessari en það
er fjórum sentimetrum lengra
en heimsmet Helenu
Fibingerovu frá Tékkósló-
vakíu. Hins vegar er ekki talið
víst, að heimsmet Sovétstúlk-
unnar fáist staðfest, þar sem
kúluna vantaði nokkur grömm
upp á rétta þyngd.
Vestur-þýzka
knattspyrnan
URSLIT í vestur-þýzku knatt-
spyrnunni um helgina urðu
þessi:
Frankfurt—Offenback 2—2
Bremen — Bayern
Múnchen Hannover 96 — 1—1
Mönchengladbach 0—2
FC Köln — Hamburger SV 1—2 Schalke 04 — Fortuna,
Köln Kaiserslautern — 6—1
Stuttgart Dússeldorf — Hertha, 4—0
Berlín 1—1
Duisburg — Bochum 0—0
Staðan í deildinni er nú sú, að
Bayern Múnchen hefur tekið
forystu og er með 34 stig eftir
24 leiki. í öðru sæti er Borus-
sia Mönchengladbach með 32
stig, en síðan koma Frankfurt
með 31 stig, Dússeldorf með 30
stig, Köln með 28 stig, Kaiser-
lautern með 25 stig, Stuttgart
með 24 stig, Hamburger SV
með 24 stig, Hertha Berlín með
24 stig og Offenbach með 24
stig. Á botninum eru Hannover
96 með 16 stig og Fortuna frá
Köln með 16 stig.
MONA-LÍSA
Á 7,2 SEK.
MIKIÐ frjálsíþróttamót var
nýlega haldið innanhúss í
Genua á ítaliu. Meðal afreka,
sem þar voru unnin, má nefna,
að finnska stúlkan Mona-Lisa
Pursiainen hljóp 60 metra
hlaup á 7,2 sek., en önnur varð
Cecilia Molinari frá Ítalíu á 7,5
sek. 1 langstökki karla sigraði
Maurizio Sega frá Italíu. sem
stökk 7,59 metra. Frakkinn
Dominique Chauvelot sigraði í
60 metra hlaupi karla á 6,7 sek.,
Charles Foster frá Bandaríkj-
unum I 60 metra grindahlaupi
á 7,70 sek. og italinn Enzo dal
Forno sigraði í hástökki. stökk
2,20 metra.
VORU ORÐNIR
FRISKIR!
— SUMIR Íslendinganna urðu
svolítið slappir af innflúensu,
en þeim var alveg batnað, er
þeir léku við okkur. Þannig
segja dönsku blöðin frá leik
Dana og íslendinga í heims-
meistarakeppninni, en að von-
um voru þau í sjöunda himni
yfir frammistöðu sinna manna.
Um leikinn við Island segja
þau, að þetta hafi verið heldur
slakur leikur þegar á heildina
er litið. Hinn fyrrverandi lands-
liðsþjálfari Dana, John Björk-
lund, sem skrifar um hand-
knattleik í eitt danska blaðið,
segir m.a. svo frá leik islenzka
liðsins:
„Við hefðum heldur ekki
unnið þennan leik, hefðu
íslenzku markverðirnir ekki
verið svona óheyrilega slakir.
Það var stundum aumkunar-
vert að sjá hvernig hin mjög
svo auðveldu skot lentu í mark-
inu framhjá islenzku markvörð-
unum.
Það voru einnig mikil mistök
hjá íslenzka landsliðsþjálfaran-
um Karli Benediktssyni, þegar
hann í seinni hálfleik lét taka
Jörgen Vodsgaard úr umferð.
Það gaf Anders Dahl aukið
rými á vellinum, og hann gat
næstum því gert það, sem hann
vildi.“
Southampton
náði stigi
Í FYRRAKVÖLD fór fram eimi
leikur í ensku 1. deildar keppn-
inni i knattspyrnu og tveir í 2.
deild. 1 1. deildinni gerðuSout-
hampton og Derby jafntefli,
1—1, og var annað stigið mjög
mikilvægt fyrir Southampton,
sem nú er mjög neðarlega i
dei Idinni.
1 2. deildar keppninni vann
Fulham Luton Town 2—1, og
komu þau úrslit nokkuð á
óvart, þar sem Luton Town er
nú í öðru sæti I deildinni, en
Fulham hins vegar inun neðar.
Þá sigraði Sunderland Ports-
mouth í Sunderiand 3—0.
SIGURGANGA
BARCELONA
LIÐ Johans Cruyff, hollenzka
knattspyrnusnillingsins, hefur
stöðugt forystuna i spænsku 1.
deildarkeppninni í knatt-
spyrnu. Um síðustu helgi vann
liðið Castellon með fimm mörk-
um gegn engu. Barcelona er
með 35 stig eftir 23 leiki, en
Atletico Madrid er i öðru sæti
með 30 stig eftir 24 leiki.
Sænsk stjarna
SÆNSKAR sfðaíþróttir hafa
nú eignazt nýja stjörnu. Sá
heitir Ingemar Stenmark og er
aðeins 17 ára. Stenmark kom
mjög á óvart í keppni þeirri,
sem fram fór í Voss i i Noregi
um siðustu helgi, en hún var
liður f heimsbikarkeppninni.
Stenmark varð þriðji í stórsvig-
inu á eftir Gustavo Thoeni frá
Italíu og Hans Hinterseer frá
Austurríki. Má geta þess, að
Svíinn hafði hcztan brautar-
tíma í seinni umferðinni. í
svigkeppninni varð svo Sten-
mark annar á eftir Ítalanum
Piero Gros
STÓRSIGUR
BAYERN
VESTUR-þýzku meistararnir
Bayern Múnchen unnu stórsig-
ur yfir búlgarska liðinu CSKA
frá Sofia I fyrri leik liðanna i
átta liða úrslitum Evrópubikar-
keppni meistaraliða, en
Búlgararnir unnu sér það til
frægðar að slá hina margföldu
meistara Ajax úr í 16-liða úrslit-
unum.
í leiknum í Múnchen hafði
heimaliðið töglin og hagldirnar
í leiknum frá upphafi. Það var
Svíinn Thorstei nsson, sem
skoraði fyrsta markið þegar á 8.
mín., Maraschieff jafnaði fyrir
CSKA á 24 mín. A 33. mín. var
Beckenbauer á ferðinni og
skoraði, þannig að I hálfleik var
2:1. I seinni hálfleik bættu þeir
Múller og Thorsteinsson mörk-
um við, þannig að úrslitin urðu
4:1 fyrirBayern Múnchen.
Borussia Mönchengladbach
var einnig í keppni i fyrra-
kvöld, mætti Glentoran frá
Norður-írlandi i Belfast og sigr-
aði 2:0.