Morgunblaðið - 17.03.1974, Side 2

Morgunblaðið - 17.03.1974, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 Myndin er tekin inni við Skeiðarvog og má þar sjá, hversu illa umferðareyjan er leikin. (Ljósm. IVIbl. Sv. Þorm.). • • Okumenn spilla grœnu blettunum GEYSILEG spjöll hafa verið unnin síðustu daga á ýmsum grænum svæðum borgarinnar og umferðareyjum af völdum umferðar, sem er í þvf fólgin, að ökumenn hirða ekki að taka á sig smá krók heldur fara beint af augum yfir þessa gróð- urbletti. Að sögn Jóhanns Kristjánssonar yfirverkstjóra hjá Reykjavfkurborg eru sum svæðin mjög illa farin af þess- um sökum og taldi hann tjónið skipta tugum ef ekki hundruð- um þúsunda króna. ,,Mér er það óskiljanlegt, að menn, sem hafa svona gaman af því að aka, skuli ekki nenna að taka á sig smá krók,“ sagði Jó- hann. Hann sagði, að einna verst væri ástandið f Skeiðar- vogi gegnt Njörvasundi og eins við Kringlumýrarbraut, þar sem Laugarnesveginum hefur verið lokað. Einnig ber á skemmdum inni við Skeifu við Miklubraut og við Sundlaug- arnar í Laugardal. Við Kringlumýrarbrautina er augljdst, að þar hafa menn komið á bílum sínum eftir augarnesveginum og hitt á hii.drunina, þar sem honum er lokað við Kringlumýrarbraut. Þeir hafa þá ekki verið að hafa fyrir því að taka á sig krók heldur ekið yfir grasblettinn þar og út á Kringlumýrarbraut- ina. Eru skemmdirnar þar svo miklar, að vinna verður allt svæðið upp á nýjan leik. Inni við Skeiðarvog háttar svo til, að þeir, sem koma út úr Njörvasundi, verða að fara upp á Langholtsveg og krækja þar fyrir eyjuna ef þeir ætla niður f Elliðaárvoginn. Þetta hafa menn ekki nennt að leggja á sig, heldur fara beint yfir eyjuna, stytztu leið. Þá ber mik- ið á því, að vélhjólapiltar geri sér að leik að spæna upp gras- flatir víða í bænum. Jóhann sagði, að þessi grænu svæði væru einmitt viðkvæm- ust á þessum tima árs — frostið væri á 10—20 sm dýpi og mjög votur jarðvegur þar ofan á — þess vegna væru skemmdirnar jafn miklar og raun ber vitni. Trjágarður opnaður við rafstöðina Hráefnisskortur í plastiðnaði ekki verulegur, en miklar verðhækkanir STRAX í vor hyggst Rafmagns- veita Reykjavíkur byrja að hreinsa til og fegra í samræmi við áætlun um skipulag við Elliðaár. þa'r sem Arbæjarsvæðið á að ganga fyrir um framkvæmdir. Á árbakkanum milli varastöðvar- innar og oliugeymis hefur verið mikið geymslusvæði fyrir rafveit- una, sem nú verður fjarlægt, og árbakkinn verður þar auður og aðgengiiegur. Þá kom það fram hjá Hafliða Samninga- viðræður við flugmenn o.fl. SAMNINGAVIÐRÆÐUR við flugmenn, flugvélstjóra og flug- virkja eru nú að hefjast.en samn- Jónssyni garðyrkjustjóra á blaða- mannafundi nýlega, að Rafmagns- veitan ætlaði að leggja til sem trjágarð fyrir almenning neðri hlutana af fallegum trjágörðum, sem ræktaðir hafa verið við þrjú starfsmannahús Rafveitunnar of- an við rafstöðvarhúsið, en þeir liggja að veginum upp að Arbæ. Þarna eiga að koma göngustígar inn eftir, samkvæmt áætlun, og myndar þá þessi fallegi trjágarð- urfagran útivistarreit. ingar þeirra, sem gerðir voru í maf f fyrra eru runnir út. Þá fengu flugmenn um 50% kaup- hækkun og nú krefjast þeir um 30% til 40% kauphækkunar. Flugvirkjar krefjast svipaðra launahækkana og járniðnaðar- menn gerðu kröfur um í heildar- kjarasamningum ASÍ og virðast þeir taka hliðstæðu af þeim. Hugsanlega eru nú einnig að hefjast samningaviðræður við flugumsjónarmenn. ÁSTANDIf) í olíumálum í heim- inum hefur komið illa niður á plastiðnaðinum hér heima fyrir, en plast er sem kunnugt er unnið úr olíu. Ekki er þó að ráði farið að bera á hráefnisskorti til plast- iðnaðar hér, en hins vegar hefur olíukreppan haft í för með sér mjög miklar verðhækkanir á öll- um plastvörum. I samtali við Morgunblaðið sagði Jón Þórðarson verksmiðju- stjóri á Reykjalundi, að ástandið þar væri ekki sem verst. Þd væri farið að bera á skorti á vissum tegundum hráefna, mikil óvissa SUNNUDAGINN 24. marz n.k., verður haldinn hátíðlegur Al- þjóðadagur fatlaðra. Sjálfsbjörg, l.s.f., mun af því tilefni fá hingað til lands hr. Thor-Albert Henni, formann landssambands fatlaðra í Noregi, til þess að flytja erindi um foreldrafræðslu vegna fatl- aðra og fjölfatlaðra barna. Landssamband fatlaðra í Nor- egi hefur um margra ára skeið gefið þessu nauðsynjamáli mik- inn gaum. Það hefur efnt til nám- skeiða um alltlandið og skipulagt sumarbúðir, þangað sem foreldr- ar hafa komið með fötluð börn sín og notið fræðslu um meðferð þeirra og uppeldi. Samtfmis eru börnin f eigin búðum í umsjá kennara, sálfræðistúdenta, félags- fræðinema og annarra hæfra manna. Þá er það að sjálfsögðu mikil- vægt, að aðstandendur fatlaðra Málverkasýning Hafsteins I FRÉTT hér í blaðinu í gær um málverkasýningu þá, sem Haf- steinn Austmann listmálari hefur nú opnað á Kjarvalsstöðum, var vegna fhlutunar prentvillu- púkans þannig komizt að orði, að verk Hafsteins á sýningunni hefðu flest áður komið fyrir augu almennings. Hér átti auðvitað að standa fæst verkanna, en þau eru yfirleitt það ný, að þau voru ekki á siðustu málverkasýningu Haf- steins, sem var fyrir f jórum árum. Æfðu mót- töku vegna hópslyss BORGARSPÍTALINN og Al- mannavarnir ríkisins gengust í gærmorgun fyrir æfingu á skipu- lagi móttöku hópslysa í Reykja- vík. Var þetta liður í æfingum í sjúkrahúsum borgarinnar á mót- töku hópslysa og verða sams kon- ar æfingar haldnar á næstunni í öðrum sjúkrahúsum. Slík innköli- un var sfðast framkvæmd, þegar eldsumbrotin hófust í Vest- mannaeyjum. Innköllunin í gærmorgun tókst mjög vel og má geta þess, að fyrsti starfsmaðurinn var kominn á vettvang þremur mínútum eftir kvaðningu. Allt að 100% mæting var hjá sumum deildunum. Nokkrir vankantar komu þó í ljós og verður unnið að lagfæringu á þeim á næstunni. Reynt er að haga þessum inn- köllunum þannig, aðþær fari sem hljóðlegast fram og almenníngur verði þeirra lítt var. A æfingunni f gærmorgun tóku lögreglumenn sér stöðu við allar dyr spítalans og lögreglumenn önnuðust umferð- arstjórn á aðliggjandi götum. Ef um raunverulegt slys væri að ræða myndu margir borgarbúar verða þess varir vegna sírenuvæls og annars viðbúnaðar. væri ríkjandi, og erfitt að fá ský- laus svör varðandi afgreiðslu- pantanir. Jón sagði, að i aðalefnis- flokkum verksmiðjunnar væri enn ekki farið að bera á veruleg- um skorti, en ekkert væri hægt að fullyrða um, hvernig þau mál þróuðust. „Viðskiptamenn okkar eru búnir að tilkynna um niður- skurð á þeim rammasamningi, sem við höfum gert við þá, en við vitum ekki ennþá, hvort þeir muni beita honum gagnvart okk- ur. Fari svo verðum við augsýni- lega að draga talsvert saman segl- in.“ barna hittist og geti borið saman bækur sínar. Erindi Thor-AIbert Hennis verður haldið að Hótel Loftleið- um (ráðstefnusalnum) sunnudag- inn 24. marz og hefst kl. 16.00. Að því loknu svarar Thor-Albert Henni fyrirspurnum. Hitaveituverk- takar í Hafnar- firði og Kópavogi AKVEÐIÐ hefur verið að semja við lægstbjóðanda, Aðalbraut h.f., um lagningu hitaveitu í Hafnar- fjörð, fyrsta áfanga. Fimm tilboð bárust í þennan fyrsta áfanga hitaveitufram- kvæmdanna í Hafnarfirði. Þá hefur borgarráð samþykkt að heimila samninga við Svein Skaftason um lögn dreifikerfis fyrir Hitaveituna i Kópavog, annan áfanga. Tilboð í þriðja áfanga dreifi- kerfis í Köpavogi átti að opna 19. febrúar, en ekkert tilboð hafði borizt. Jón sagði, að verðið á plasti hefði hækkað verulega á sama tíma, og þar af leiðandi hækkuðu allar framleiðsluvörur verk- smiðjunnar. Á móti kæmu þó tollalækkanir á hráefninu um síð- ustu áramót og hagstæðara gengi. Þannig kæmu vatnsrörin, ein helzta framleiðsluvara verk- smiðjunnar, ekki til með að hækka nema um 28%, en hefðu hækkað mun meira ef tollalækk- unin hefði ekki komið til. Hann sagði ennfremur, að verk- smiðjan þyrfti um 2 þúsund tonn af plasti til framleiðslu sinnar á ári. Hins vegar hefðu hráefnis- framleiðendurnir tilkynnt um allt að 40% niðurskurð á vissum efnisflokkum, um 25% niður- skurð á öðrum og um suma efnis- flokkana hefðu ekki borizt neinar upplýsingar. Jón kvað Reykjalund nú nýver- ið hafa flutt verksmiðjustarfsemi sína í nýtt verksmiðjuhús, sem einkum væri ætlað fyrir tvo meginframleiðsluflokkana — vatnsrörin og umbúðafilmuna. Framleiðslan hefði því legið niðri um tíma meðan verksmiðjan var að flytjast í nýja húsið og á sama tíma hefði hún því safnað nokkru hráefni í sarpinn. Taldi Jón því, að nóg hráefni væri fyrir hendi — í rörframleiðsluna að minnsta kosti — fram á mitt árið. Þá hafði blaðið samband við Knud Kaaberm framkvæmda- stjóra Sigurplasts og spurði hann um ástandið þar, en fyrirtækið framleiðir einkum ýmsar plast- umbúðir, svo sem flöskur og dós- ir. Knud sagði, að fyrirtækið hefði yfirleitt fengið það, sem það hefði þurft af hráefni, en verðið hefði stórhækkað.Tók hann sem dæmi, að ein tegund hráefnis sem hér er mikið notað, hefði frá ára- mótum hækkað um 75% og önnur um 130%. Hann sagði hins vegar, að umbúðaiðnaðurinn væri ekki lengur háður verðlagseftirliti og fyrirtækin á þessu sviði hefðu þvi fengið að hækka framleiðslu sína eins og þörf hefði verið á vegna hinna erlendu hráefnishækkana. Forsvarsmenn Lionsklúbbsins Búa, f.v. Snorri Gunnlaugsson gjaldkeri, Ferdinant Ferdinantsson ráðunautur og Oddur Andrésson formaður. (Ljósm. Mbl.ÓI. K. M.) BLÓMAÁBVRÐUR ÚR KÚAMYKJU AÐ tilhlutan Lionsklúhbsins Búa hefur graskögglaverk- smiðjan f Brautarholti hafið framleiðslu á blómaáburði úr þurrkarðri og kögglaðri kúa- mykju. Framleiðslan er tilbúin f handhægum og aðgengilegum umbúðum en Sölufélag garð- yrkjumanna annasl dreifingu áburðarins. Eins og kunnugt er, er Lions- félagsskapurinn þjónustufé- lagsskapur, sem hefur að aðal markmiðl að safna fé til líknar- og annarra menningarmála. Starfssvið Lionsklúbbsins Búa er sveitirnar Kjalarnes og Kjós og eru fjáröflunarleiðir ekki margar nema í samkeppni við önnur félagasamtök á félags- svæðinu. Kom þá upp sú hug- mynd að nýta hráefni, sem til fellur hjá bændum með kúabú og framleiða vöru, sem góður markaður ætti að vera fyrir, þ.e. Iffrænan og handhægan áburð á blóm og aðra ræktun í smáum stíl. Þess má geta, að venjulega fylgja búfjáráburði flugur og illgresisfræ en þessi áburður er laus við slíkan ófögnuð. Foreldrafræðsla á vegum Sjálfsbjargar .WAVAVAV.VAVéAV.V.VAVAV»V.WAVAVAVAV.ViVA*AVAVAVAVtóWA*>M*» v,> UA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.