Morgunblaðið - 17.03.1974, Page 3

Morgunblaðið - 17.03.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 3 úr verinu EFTIR EINAR SIGURÐSSON Tíðin Gæftir voru fremur góðar síðustu vlku, yfirleitt hæg átt. Aflabrögð Heldur er dauft yfir aflabrögð- unum, og sérstaklega er það áber- andi, hve lítið er af þorski. 3 bátar róa með net frá Reykja- vík, og hafa þeir verið að fá 5—10 lestir eftir nóttina. I trollið hefur aflinn verið 7—10 lestir. I Grindavík hefur aflinn komist upp í 25 lestir í netin, 2ja nátta, en almennt hefur aflinn verið 8—10 lestir eftir nóttina, og fór aflinn minnkandi síðari hluta vik- unnar. Linubátur úr Keflavík landaði einn daginn 14 lestum. Hafði hann beitt loðnu. Trollbát- ur kom með 20 lestir, mest ufsa, en litlu bátarnir fá lítið á heima- miðum. I Þorlákshöfn hefur afli verið misjafn í net og yfirleitt tregur, 10 lestir eftir nóttina og þaðan af minna. Einn bátur komst þó upp í 20 lestir, aflinn var mjög ufsabor- inn. Tregt er í trollið. Þrátt fyrir það að mönnum finnist litill afli, er samt komið 1000 lestum meira á land af fiski í Þorlákshöfn en á sama tíma í fyrra. Einn bátur, Brynjólfur, er búinn að fá um 550 lestir, sem er trúlega 12 millj. krónur að aflaverðmæti eða sem svarar til 3000 lesta af loðnu, sem er meðalafli á loðnubát, en þeir eru yfirleitt stórir bátar, en þetta er 150 lesta bátur. í Vestmannaeyjum er dauft yfir aflabrögðunum sem stendur, rétt einn og einn bátur er að fá sæmilegan afla i net, um 10 lestir eftir nóttina. Loðnu hefur litil- lega orðið vart út af Jökli og eins við Skaftárós. Togararnir. Skipin hafa verið fyrir vestan eins og áður, vestur af Halanum og út af Bjargi. Tveir togarar lönduðu í Reykjavik í vikunni, Ingólfur Arnason 230 lestum og Freyja 80 lestum. Einn togari seldi erlendis í vik- unni, Karlsefni, 115 lestir fyrir 5.700.000 krónur, og var meðal- verð 50 krónur kg. Erlendur gjaldeyrir hefur held- ur hækkað síðustu daga gagnvart íslenskri krónu, og hefur það bætt stöðu útflutningsins, hvort heldur það eru isfisksölur eða annað, þó að lítið sé. Talið er, að einhverjir samning- ar fari nú fram við Þjóðverja um landhelgismálið, og eins og vitað er, ef samið verður lækkar tollur á ísfiski um 6%, úr 15% í 9%. Það hallast ekki á um landanir heima og erlendis og er einkenni- lega dauft yfir togaraútgerðinni, enda mörg skip í lamasessi, og 3 af 4 togurum Tryggva Ófeigsson- ar hefur verið lagt, auk gömlu togara Bæjarútgerðarinnar. Togararekstur er afar erfiður í dag, hvort sem siglt er með aflann eða landað heima. Það er enginn hægðarleikur að stöðva útgerð togara eða hvaða atvinnufyrir- tæki sem er; þó er það betra en halda áfram taprekstri. Auðugustu miðin Wallstreet í New York er þekkt um allan heim fyrir hinar risa- stóru bankabyggingar sínar. Stundum er Austurstræti í Reykjavík kallað í skopi Wall- street, þó að spaugarinn viti, að enginn kannist við það utan síns heimalands. En þrátt fyrir glæsileik Tjarnargötunnar og Miklubraut- ar er Austurstræti virðulegasta og rómantískasta gata höfuð- borgarinnar, að minnsta kosti i augum þeirra, sem eiga einhverja peninga eða þurfa á þeim að halda, og svo þeirra, sem eru með hjartað fullt af ást og kærleika eða tómt og biða eftir fyllingu tímans. Þarna er enn til húsa æruverð- ugasti banki landsins, Seðlabank- inn, elsti bankinn, Landsbankinn, arftaki fyrsta einkabankans, Is- landbanka h.f., Útvegsbankinn, banki bændanna Búnaðarbank- inn, stærsti fjárfestingarsjóður- inn, Fiskveiðasjóður.aðalpósthús landsins, og svo mætti lengi telja fremstu og mikilvirtustu peninga- stofnanir íslands. í áratugi, heilan mannsaldur, hafa menn sótt fjárhagsfyrir- greiðslu í Austurstræti. Þau spor voru ekki alltaf létt, og stundum fóru menn bónleiðir til búðar, þó að rósrauðan himin bjartsýni hillti uppi við sjóndeildarhring- inn. En einnig hefði mörg fram- kvæmdin mátt dragast von úr viti ef bíða hefði átt eftir því, að öngl að hefði verið saman í hana. Ein lítil 25 ára gömul saga um bjartsýnina: Danival Danivalsson, Keflavík, kom á nýsköpunarárun- um í Landsbánkann og bað Jón Árnason bankastjóra um lán handa bænum til togarakaupa og bætti svo við: ,,Og svo ætluðum við að láta bankann sitja fyrir útgerðarláninu." Ekki segir af viðbrögðum bankastjórnas, en til Keflavíkur kom togarinn. Menn misstu heldur ekki alltaf móðinn, þó að þeir fengju upp- slátt. Svo var um Jón Sturluson, landskunnan sjósóknara og for- mann á Stokkseyri. Hann kom eins og margur einhverju sinni i banka við Austurstræti. Greinir sagan ekki, hvaða banki það var. Það var í upphafi vertíðar. Jón átti þá orðið vélbát, þótt ekki væri hann stór frekar en aðrir i byrjun vélbátaaldarinnar. Jón bað um út- gerðarlán og fékk neitun. Þá segir Jón Sturlaugsson um leið og hann ris á fætur og býst til farar: „Ég fer þá i hinn bank- ann.“ Bankastjóranum lék forvitni á - að vita, hvað Jón ætlaðist fyrir og innti hann eftir, hvað bankinn héti, sem hann ætlaði að leita til, Víkingurinn svarar stuttur í spuna, um leið og hann vindur sér út úr dyrunum: „Selvogsbankinn". Nú er Austurstræti, þessi auðugustu peningamið landsins, i umbyltingu nýrra tima. Þar stendur nú ekki steinn yfir steini, og senn verður þar fyrsta friðar- gata i bæ á íslandi, einn þáttur i umhverfisvernd þjóðarinnar. Það er ánægjuleg tilhugsun vegfar- endahvortsemþeireru á leið til Amors eða Mammons að mega spásséra eftir steinlögðu strætinu og ef svo ber undir, tylla sér í þægilegt hægindi, áður en sagt er já eða nei. Framhald á bls. 47 FEBÐAALMAWAK UTSYNAR 1974 ALLIR FARSEÐLAR Á LÆGSTA VERÐI EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: TJÆREBORG REJSER Hwers vegna skyldu allir farseðlar í Útsýnarferð- ir seljast upp löngu fyrirfram? Marz: c 16., 23., 30., ENGLAND: LONDON — 7 dagar 15.. 0g 29. SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar 14. KANARlEYJAR — Í2 dagar. Apríl: 4., og 18. KiVNAKÍEYJAR — 15 dagar 12., og 26. SKOTLAND: GLASGOW — 3dagar 6. AUSTURRÍKI: SkfSaferð til Zell MA SEE — 16dagar 6. og 9. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl 7.. 21..28, ENGLAND: London — 7 dagar 7. SPANN: COSTA DEL SOL — 15 dagar— PASKAFERÐ 21. SPANN: COSTA DELSOL —22 dagar— VORFERÐ Maí: 2. 3. 7. 7. 11. 14. 14. 15. 16. 17. 18. 21. 24. 25. 26. 29. 30. 31. 6. 7. 8. 2. KANARlEYJAR — 19 dagar 5., 12., 19., 26. ENGLAND: LöNDON —7 dagar 10.. 0g 24. SKOTLAND: GLASGÖW — 3 dagar 12. SPANN: COSTA DELSOL — 22 dagar — BLÓMAFERÐ 30. NORÐURLÖND: KAUPiVIANNAHÖFN — vikudvöl — 31. ÍTALlA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 16dagar Júní: 8. 10. 11. 11. 11. 11. 6. 9. og 16. 9. og 23. 15. 19. 23. 23. 29. 30. SPANN: COSTA DEL SOL — 19 dagar NORÐURLÖND: K/VUPMANNAHÖFN — vikudvöl — ( má fran ENGLAND: LONDON —vikudvdl (má framlengja) ÍTALlA: LIGNANO —GULLNASTRÖNDIN — 18dagar SPANN: COSTA DELSON — 15—29 dagar NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN —vikudvöl — (MáfrL) ÞYZKALAND: MOSEL/RÍN—vi kuferð með bíl + vikudvöl I Kaupmannahöfn (má framlegnja) (TJÆREBORG) SPANN: COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN —vikudvöl — (máfrL) 14. 15. 15. 19. 19. 20. Júlí: IT.VLÍA: LICNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15— 29dagar SPANN: COSTA DEL SOL — 15 —22 —29 dagar NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN —vikudvöl — (má framlengja) ENGLAND: LONDON —vikudröl (má framlengja) NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja) ÞYZKALAND: Mosel / Rín 6 vikuferð með bfl + vi kudvöl f Kaupmanna- höfn (má framlengja) TJÆREBORG) NORÐURLOND: KAUPMANNAHOFN — vikudvöl — (má framlengja) SPANN: COSTA DEL SOL 15—29 dagar ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar SP.'VNN: COSTA DELSOL — 15 —22 —29 dagar NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — ( má framlengja) ENGLAND: LONDON —vikudvöt (iná framlengja) SPANN: COSTA DEI, SOL — 15 —22 —29 dagar NORÐURLÖND: Kaupmannahöfn 6 vikudvöl — (má f ram lengja) OSLO —vikudvöl (má framlengja) SPANN: COSTA CEL SON — 15—29 dagar ITALIA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29dagar SPANN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar Agúst: NORDURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — ( má f ramleng ja) MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja) SPANN: COSTA DEL SOL — 15 —22—29 dagar NORÐURLÖND: KAUPM.ANNAHöFN —vikudvöl — (má framlengja) ÍTALlA: GARDAVATN — 14 daga bilferð + 3 dagar f Kaupmannahöfn (má fremlengja) (TJÆREBORG) SPANN: CO.STA BRAVA — LONDON — 18 dagar ÞVZKALAND MOSEL/RlN — vikuferð með bll +vikudvöl íKaupmanna höfn (má f ramlengja) (TJÆREBORG) NORÐURLÖND: KAUPMANNAHöFN — vikudvöl — (niá framlengja) ENGLAND: LONDON —vikudvöl (má framlengja) ITALIA: GARDAVATN — 1 —2 vikur — f lugferð + vikudvöl íKaup- mannahöfn (má framlengja) (TJÆREBORG) SPANN: COSTA DEL SOL — 15—29 dagar iTALlA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29dagar SPANN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar AUSTURRlKI: ZILLERTAL — 14 daga bilferð. Kaupmannahöfn. (TJÆREBORG) NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikúdvöl — (má framlengja) GRIKKLAND: AÞENA/LOUTRAKI — 15 dagar — Kaupmannahöfn (TJÆREBORG) NORÐURLÖND: KAUPMA NNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja) MALLORCA — LONDON — 17 dagar— (má framlengja) 21. SPANN: COSTA DEL SON —15 —22 —29 dagar 22. ÍTALlA: GARDAVATN — 14 daga bilferð—3 dagar f Kaupmannahöfn (má framlengja) (TJÆREBORG) 22. NORÐURLÖND: K.VUPMANNAHÖFN — vikudvöl — ( má framlengja) 24. SPANN: COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar 26. England: LONDON —vikudvöl (má framlengja) 26. SPANN: COSTA DEL SOL — 15—29 dagar 27. MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja) 27. ÍTALIA: LIGNANO — GULL.NA STRÖNDIN 15—29 dagar 28. SPANN: COSTA DEL SOL — 15 —22—29 dagar September: 1. Grikkland: RHODOS — 14 dagar— Kaupmannahöfn (TJÆREBORG) 1. GRIKKLAND: AÞENA/LOUTRAKI — 14 dagar — Kaupmannah. (TJÆREBORG) I. NORÐURLÖND: KVUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja) 3. MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja) 4. SPANN: COST.V DEL SOL — 15—22 —29 dagar 8. ENGLAND: LONDON —vikudvöl (má framlengja) 8. NORDliRLÖND: KVUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja) 9. SPANN: COSTA DEL SOL — 15—29 dagar 10 iTALlA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15 dauar II. SPANN: COSTA DEL SOL — 15 22—29 dagar. 15. ENGLAND: LONDON — vikudvol (má framlengja). 15. NORÐURLÖND: K.YUPMANNAHÖFN — vikudvöl (má framlengja) 15. GRIKKLAND: AÞENA/LOUTR.YKI — Kaupmannahöfn — 18dagar (má framlengja) (TJÆREBORG) 18. SPANN: OOST.Y DEL SOL 15—29dagar. 22. England: LONDON —vikudvöl (má framlengja) 23. COSTA DELSOL— 15 dagar. , 25. SP.YNN: COST.Y DEL SOL — LONDON — 18 dagar Október; 2. SP.YNN: COST.Y DELSOL — 15 dagar 2. COSTA DEL SOL — U)NDON 18—30 dagar. 6. 13., 20., 27. ENGL.YND: LONDON —7 dagar 16. SPANN: COST.Y DEL SOL — LONDON —21dagur FERÐASKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 1 7 (SILLA OG VALDA) SÍMAR 26611 20100.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.