Morgunblaðið - 17.03.1974, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974
DAGBÖK
ÁRNAD
HEILLA
Níræður er f dag Alexander Jó-
hannesson, fyrrum skipstjóri,
Grettisgötu 26, Reykjavík.
Blöð og tímarit
Ut er komið tímaritið Morgunn,
2. tölublað 54. árgangs.
Meðal efnis í ritinu er viðtal við
Jónínu Magnúsdóttur, lækninga-
miðil, frásögn af brezkum dá-
miðli, Horace Hambling, grein
eftir Ævar R. Kvaran, sem nefnist
„Hver var Fást?“ og ritgerð eftir
Martinus. Utgefandi Morguns er
Sálarrannsóknafélag Islands, en
i itstjóri þess er Ævar R. Kvaran.
Fréttabréf um heilhrigðismál
1 íbl. 22. árg. er komið út. Þar er
að finna ýmsan fróðleik um
heilsufar og sjúkdóma. Utgefandi
er Krabbameinsfélag íslands, en
ritstjóri er Bjarni Bjarnason
læknir.
Ægir, rit Fiskifélags tslands, 4.
tbl. 67. árg. er komið út. Þar er
sagt frá nýrri tækni við saltfisk-
þurrkun, grein er eftir Má Elís-
son, ritstjóra Ægis, um rannsókn-
ir í þágu sjávarútvegsins, skrá
yfir aflabrögð í júnímánuði 1972
og 1973 o.fl.
IMVIR BORGARAR
A Fæðingarheimili Reykjavík-
ur fæddist:
Aslaugu Agústsdóttur og Svani
Halldörssyni, Hátúni 45, Reykja-
vík dóttir 7. marz kl. 17.43. Hún
vó 14'á mörk og var 52 sm að
lengd.
Ragnheiði Björgu Guðnadóttur
og Guðmundi Grétari Hafsteins-
syni, Holtsgötu 41, Reykjavfk,
dóttir 7. marz kl. 19.00. Hún vó 16
merkur og var 52 sm að lengd.
Björgu Gunnlaugsdöttur og
Sverri Ólafssyni, Skipholti 54,
Reykjavík, dóttir 10. marz kl.
21.25. Hún vó 14Vé mörk og var 52
sm að lengd.
Kolbrúnu Guðmundsdóttur og
Kristjáni Guðmundssyni, Kópa-
vogsbraut 5, Kópavogi, sonur 10.
marz kl. 02.55. Hann var 12 merk-
ur og var 50 sm að lengd.
Hrefnu Kjartansdóttur og IVfar-
teini Sverrissyni, Dúfnahólum 6
Reykjavík, dóttir 10. marz kl.
13.30. Hún vó 13 merkur og var 52
sm að lengd.
Pennavinir
tsland
Asrún Reynisdóttir,
Reynisbrekku,
Mýrdal,
Vestur-Skaftafellssýslu.
Hún óskar eftir bréfaskiptum
við krakka á aldrinum 12—14 ára.
Margrét Liija Reynisdóttir
Reynisbrekku
Mýrdal
Vestur-Skaftafellssýslu.
Hún óskar eftir að skrifast á við
14—16 ára stráka á ísafirði. Hef-
ur áhuga á ferðalögum, tónlist
o.f 1.
Vikuna 15.—21. marz
verður kvöld-, helgar- og
næturþjónusta apóteka í
Revkjavík í Apóteki
Austurbæjar, en auk
þess verður Lyfjabúðin
Iðunn opin utan venju-
legs afgreiðslutíma til
kl. 22 alla daga vaktvik-
unnar nema sunnudag.
KRDSSGÁTA ~I
Lárétt: 1. rispa 5. vökvi 7. á
lítinn 9. ósamstæðir 10. möglaði
12. klukka 13. svelgurinn 14.
keyra 15. athuga
Lóðrétt: 1. kyrtill 2. dýr 3. freka 4.
tímabil 6. stælta 8. for 9. vitskerta
11. skelin 14. ósamstæðir.
Lausn á síðustu Krossgátu
Lárétt: 1. gorts 6. ára 7. skúr 9. ká
10. aulunum 12. ÐL 13. súta 14. ati
15. ratar
Lóðrétt: 1. gaul 2. orrusta 3. rá 4.
stamar 5. ósaðir 8. kul 9. kút 11.
núir 14. át
Kattaeigendur!
Munið að
merkja kettina!
Heimsóknartími
sjúkrahúsa
Barnaspítali Hringsins: kl.
15—16, virka daga, kl. 15—17
laugard. og kl. 10—11.30 sunnud.
Borgarspítalinn: Mánud.
—-föstud. kl. 18.30—19.30. Laug-
ard. og sunnud. kl. 13.30—14.30
og kl. 18.30—19.
Flókadeild Kleppsspítala: Dag-
legakl. 15.30—17.
Fæðingardeildin: Daglega kl.
15—16 og kl. 19 — 19.30
Fæðingarheimili Reykjavíkur:
Daglega kl. 15.30—16.30.
lleilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 19—19.30 daglega.
Hvítabandið: kl. 19—19.30,
mánud.—föstud. laugard. og
sunnud. kl. 15—16 og 19 —19.30.
Kleppsspítalinn: Ðagiega kl.
15—16 og 18.30—19.
Kópavogshælið: Eftir umtali og
kl. 15—17 á helgidögum.
Landakotsspítali: Mánud.—
laugard. kl. 18.30—19.30. Sunnud.
ki. 15—16. Heimsóknartími á
barnadeild er kl. 15—16 daglega.
Landspftalinn: Daglega kl.
15—16 og 19—19.30.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánu-
dag—laugard. kl. 15—16 og kl.
19.30—20. Sunnudaga og aðra
helgidagakl. 15—16.30.
Vífilsstaðir: Daglega kl. 15—16
og ki. 19.30—20.
Landspítalinn: Daglega kl.
15—16 og 19—19.30.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mán-
ud.—laugard. kl. 15—16 og kl.
19.30—20. Sunnudaga og aðra
helgidaga kl. 15—16.30.
Vífilsstaðir: Daglega kl. 15—16
og kl. 19.30—20.
I dag er sunnudagurinn 17. marz, sem er 76. dagur ársins 1974. 3.
sunnudagur í föstu. Geirþrúðardagur.
Ardegisflóð er í Reykjavík kl. 01.12, sfðdegisflóð kl. 13.57.
Sólarupprás á Akureyri er kl. 07.25, sólarlag kl. 19.18.
Sólarupprás í Reykjavfk er kl. 07.40, sólarlag kl. 19.34.
(Heimild: íslandsalmanakið).
Og hann rak úr mállausan, illan anda, oger illi andinn var farinn út,
þá talaði mállausi maðurinn. Og mannfjöldinn undraðist en sumir
þeirra sögðu: Með fulltingi Beelsebúls, foringja illu andanna, rekur
hann iilu andana út. En aðrir freistuðu hans og kröfðust af honum
tákns af himni. En hann, sem vissi hugrenningar þeirra, sagði við þá:
Sérhvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst I auðn, og hús
fellur á hús.
(Lúkasarguðspjal I 11. 14—17).
Leðurblakan
Leðurblakan, hin sfgilda óperetta Jóhanns Strauss, hefur nú verið
sýnd í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir frá þvf á jólum. I kvöld er
31. sýning. Myndin er af Lárusi Ingólfssyni og Kristni Hallssyni í
hlutverkum sfnum.
ást er
\6cNo 3-19
að missa matar-
lystina,
þegar hann
kemur í heimsókn
| BRIPC3E
Útspil í byrjun spils er afar
þýðingarmikið og verður aldrei of
oft brýnt fyrir spilurum að vanda
til þess. Gott dæmi um þetta finn-
um við í eftirfarandi spili.
Norður
S. D-G-10
H. G-3
T. 9-7
L. K-10-9-8-7-4
Vestur
S. Á-K-9
H. K-D-10-9-8-4-2
T. —
L. Á-5-3
Suður
S. 8-6-4-3-2
H. A-7-6-5
T. K-10
L. D-2
Austur
S. 7-5
11. —
T. A-D-G-8-6-
5-4-3-2
L. G-6
Spil þetta er frá bridgekeppni
og við annað borðið opnaði austur
á tíglum, vestur sagði 5 hjörtu,
austur sagði 6 tigla, sem varð
lokasögnin.
Suður gerði sér strax grein fyr-
ir, að mjög hættulegt gæti verið
að láta út hjartaás og byggði
hann þessa skoðun sína réttilega
á sögnunum. Vestur segir ekki 5
hjörtu nema eiga langan lit og þar
sem suður á 4 hjörtu, þá má
reikna með, að austur eigi eyðu i
hjarta. Suður ákvað því að láta út
annaðhvort spaða eða lauf og
hann var heppinn, því að hann
valdi laufið. Eftir þetta getur
sagnhafi ekki unnið spilið, hann
gefur alltaf slagi á tromp og lauf.
Við hitt borðið opnaði austur á
4 tíglum og vestur bætti einum
við og sagði 6 tigla. Suður lét
umhúgsunarlaust út hjartaás og
þar með var spilið unnið.
FRÉTTIR
Kvenfélag Frfkirkjusafnaðins í
Reykjavik heldur aðalfund sinn
mánudaginn 18. marz kl. 20.30 í
Iðnó, uppi.
Kvenfélag Neskirkju býður
eldra fólki í sókninni til kaffi-
drykkju í félagsheimilinu að lok-
inni messu, sem hefst kl. 2 i dag.
Barnastúkan Svava nr. 23 held-
ur fund í dag kl. 2 í Templarahöll-
inni, og eru öH börn velkomin
meðan húsrúm leyfir.
Kl. 3 í dag verður sýning I Leik-
brúðulandi að Fríkirkjuvegi 11.
Leikbrúðuland hefur sýnt tvo
leikþætti um Meistara Jakob nú I
vetur, en nú fer sýningum að
fækka.
Messa í dag
SöfnuSur Landakirkju í
Vestmannaeyjum
Messað verður í krikju
Óháða safnaðins kl. 2 síð-
degis. Séra Þorsteinn L.
Jónsson prédikar.
Fermingarbörn, sem ferm-
ast eiga f Reykjavík eða
Vestmannaeyjum, eru beð-
in að koma til messu. Org-
anisti: Jón ísleifsson.
| SÁ NÆSTBESTI
Litli eftirlætisdrengurinn fór
til læknis með mömmu sinni,
sem hafði áhyggjur út af lystar-
leysi hans.
Læknirinn ræddi við barnið
og reyndi að ginna það með
ýmsu góðgæti en það var árang-
urslaust. Loks spurði hann:
— Hvað finnst þér bezt?
— Ormar.
Þá var farið út tii að sækja
orma handa sælkeranum, en
hann heimtaði, að þeir yrðu
soðnir áður en hann legði þá
sér til munns, og var það gert
og síðan voru ormarnir fram-
reiddir á diski.
— Ég vil bara einn, sagði
krakkinn.
Stærsti og fallegasti ormur-
inn var valinn úr kássunni.
— Fyrst verður þú að borða
helminginn, sagði krakkakvik-
indið við lækninn.
Læknirinn skar orminn f
tvennt, opnaði munninn og lok-
aði augunum og gleypti hinn
hálfa orm.
Þá rak krakkinn upp skað-
ræðisöskur kastaði sér í gólfið
og lamdi niður hælum.
— Ilvað er nú að, spurði
læknirinn.
— Þú ázt minn helming.