Morgunblaðið - 17.03.1974, Side 22

Morgunblaðið - 17.03.1974, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ull trúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100 Aðalstræti 6, simi 22 4 80 Áskriftargjald 420,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 2 5,00 kr eintakið egar Þjóðviljinn skýrði frá kjarasamn- ingum þeim, sem tókust við verkalýðshreyfinguna, tal- aði hann um kjarasamn- inga verkalýðshreyfingar- innar og ríkisstjórnarinn- ar. Það átti að vera eins konar gæðastimpill á samn- inga þessa og tryggja, að hlutur launþega væri ekki fyrir borð borinn. Eins og kunnugt er náð- ist fyrir þessa samninga- gerð í fyrsta sinn samstaða innan Alþýðusambandsins um kröfugerð, sem miðaði að því, að hinir lægstlaun- uðu fengju í raun meiri kjarabætur heldur en hinir hærra launuðu í hópi launþega. Töldu ýmsir verkalýðsforingjar, að sá árangur hefði náðst við samningagerðina, sem stefndi að meira launajafn- rétti, og Eðvarð Sigurðs- son, formaður Dagsbrúnar, lagði skv. frásögn Þjóðvilj- ans áherzlu á það á Dags- brúnarfundinum, sem fjallaði um samningana, að með þeim „kæmi yfirleitt hlutfallslega mest hækkun á lægstu launin“. Þannig var mönnum sagt, að nú hefði náðst það takmark, sem sett var á ráðstefnu Alþýðusam- bandsins í sumar, að hlut- fallslega meiri hækkun kæmi á lægstu launin „og stuðla þannig að auknu launajafnrétti“ eins og Þjóðviljinn komst að orði í forystugrein sinni um samningana. S.l. fimmtudag skrifaði Morgunblaðið forystugrein undir fyrirsögninni: „Hróplegt ranglæti“. í for- ystugrein þessari bendir Mbl. á, að komið sé í ljós, að ekki hafi verið náð því markmiði sem verkalýðs- samtökin lýstu yfir, að þau stefndu að, „að hinir lægst- launuðu fengju mestar kjarabætur. Og það sem meira er, það hefur ekki heldur náðst jöfnuður í kjarabótum hinna lægst- launuðu og þeirra, sem við hærri laun búa innan Al- þýðusambandsins. Niður- staða kjarasamninganna var nefnilega sú, að hinir hærra launuðu launþegar fengu miklum mun meiri kjarabætur en verkafólk- ið,“ segir í forystugrein Mbl. Á það er jafnframt bent, að samkvæmt tölum, sem blaðið hafi birt í fréttum, nemi meðallaunahækkun innan Verkamannasam- bandsins með vísitölu 1. marz s.l. um 26% en meðal- hækkun iðnaðarmanna sé um 38%. Járniðnaðar- menn, sem fá greidd laun skv. taxta þeirra, er unnið hafa 3 ár eða lengur, fengu 39,5% kauphækkun um síðustu mánaðamót, með vísitölu. Morgunblaðið benti enn- fremur á, að hér væri um hróplegt ranglæti að ræða. Eftir fjögurra mánaða samningaþóf og margítrek- aðar yfirlýsingar þess efn- is, að verkafólkið hefði fengið mestar kjarabætur, kemur nú í ljós, að iðnaðar- menn fá miklu meiri kaup- hækkun en verkafólkið. Morgunblaðið hefur óskað eftir því, að á þessu fáist skýring. í forystugreininni segir blaðið, að félagsmenn í verkalýðsfélögunum eigi heimtingu á að fá svör for- ystumanna Alþýðusam- andsins við þvf, hvernig þetta hefur getað orðið. Nú hefur komið svar frá Eðvarð Sigurðssyni vegna fyrirspurnar Morgunblaðs- ins. Af svari Eðvarðs er ljóst, að hann og aðrir for- ystumenn verkalýðsfélag- anna hafa samið við rfkis- stjórn ,,sína“ á þann veg, að það mun stuðla mjög að auknum launaójöfnuði f landinu. Þeir, sem hærri laun höfðu, hækka hlut- fallslega miklu meira en hinir lægstlaunuðu. Þann- ig hefur verið gengið ger- samlega i berhögg við þá stefnu, sem mörkuð var á ráðstefnu Alþýðusam- bandsins á sl. sumri. „Rikisstjórn hinna vinn- andi stétta“ og stuðnings- menn hennar í forystuliði verkalýðsfélaganna hafa brugðizt þvf trausti, sem félagsmenn verkalýðs- félaganna settu á þessa for- ystumenn sína. Morgunblaðið hefur margbent á, hvernig svo- kallaðir forystumenn verkalýðsins nota trúnað hans og traust í því skyni að komast til valda og sitja í valdasessi. Stóryrði eru notuð til að lýsa um- hyggjunni fyrir verkalýðn- um, blekkingum er beitt, en eitt eru orð, og annað efndir. Það hefur nú komið áþreifanlegar í ljós en nokkru sinni. Bezti vitnis- burðurinn um það eru eftirfarandi ummæli Eðvarðs Sigurðssonar um kjarasamningana, en þau viðhafði hann í samtali við blaðamann Morgunblaðs- ins. Hann sagði: „Því mið- ur stuðlar þetta (síðustu kjarasamningar) jafnvel frekar að meira misrétti heldur en hinu, sem var nú eitt af höfuðmarkmiðun- um, að jafna laun meira og hækka þá, sem lægstir voru.“ K j ar asamningarnir stuðla að meira misrétti ] Reykjavíkurbréf »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 16. marz ♦♦♦♦♦♦♦♦< Samgöngur við Færeyjar Fyrir nokkrum árum samþykkti Alþingi einróma þingsályktunar- tillögu um samgöngur við Færeyj- ar og aukin samskipti við þessa nánustu frændþjóð okkar. En þrátt fyrir ályktun þessa hefur því miður verið lítið að gert. ís- lendingar halda áfram að fljúga yfir Færeyjar, á án þess svo mikið sem sjá niður. Þar við bætist svo, að Gullfoss hefur verið seldur, og samgöngur á sjó við Færeyjar eru því engar. Má því segja, að frem- ur hafi sigið á ógæfuhliðina að því er varðar samskipti við frændur okkar í Færeyjum en hitt, gagn- stætt því sem Alþingi í heild hef- ur ályktað um. Við svo búið má ekki standa. Valdimar Kristinsson ritaði hér í blaðið sl. sunnudag greinarkorn um farþegaskip til millilandasigl- inga. Taldi hann heppilegt, að byggt yrði 4-6 þús. tonna skip, sem flutt gæti allmarga farþega og bifreiðar, en væri þó með til- tölulega einföldum og ódýrum búnaði. Gerir hann tillögu um áætlunarsiglingar, sem þannig yrði hagað, að lagt yrði upp frá Reyðarfirði, siglt til Þdrshafnar, þaðan til Bergen, þá kæmi Hirts- hals, Aberdeen, Þorshöfn á ný og svo heimahöfnin, Reyðarfjörður. Ef siglingu væri hagað á þenn- an hátt, gætu farþegar haft fast land undir fótum á sérhverjum sólarhring, víða komið og margt séð. Þeir gætu haft bifreiðar sínar meðferðis og beðið milli ferða, sem farnar væru vikulega að sumarlagi, og er ekki að efa, að slíkar ferðir yrðu mjög vinsælar. Stjórn Eimskipafélags ísiands hefur gert grein fyrir því, að úti- lokað sé að reka Gullfoss, og því var skipið selt. En þrátt fyrir það kann að vera, að rekstrargrund- völlur væri fyrir annars háttar skipi, einmitt eitthvað í líkingu við það, sem Valdimar Kristinsson ræðir um, a.m.k. er tillaga hans þess eðlis, að rétt er, að hún verði tekin til rækilegrar skoðunar, og væri auðvitað æskilegast, að Eim- skipafélagið hefði um það for- ustu, en þó gætu aðrir aðilar kom- ið til greina, og auðvitað er hugsanleg samvinna við aðrar þjóðir, sem hagsmuna hafa að gæta varðandi þessar siglingar, ekki sízt Færeyingar. I öllu falli er nauðsynlegt að finna leið til að styrkja samskiptin við þá, og ef þessi leið er ekki fær, verður að grípa til annarra úrræða. Einar ríki Einar Sigurðsson útgerðarmað- ur er einhver skemmtilegasti og sérkennilegasti persónuleiki þessa Iands. Hann vinnur hvert þrekvirkið af öðru í íslenzkum atvinnumálum og er yfirleitt ekk- ert lengi að hugsa sig um. Kaup á einum eða tveimur skuttogurum vefjast vart meira fyrir honum en bílakaup almennings. 100 milljón króna breyting á togara til að gera hann að loðnuskipi er álíka sjálf- sögð og eldhúsviðgerð hjá Jóni Jónssyni. Smíðasamningur um fimm 150 tonna báta er hripaður upp eins og smá kunningjabréf o.s.frv. Sem betur fer er Einar þó ekki eini athafnamaðurinn, sem mikið hefur að kveðið á sviði sjávarút- vegsins. Má þar nefna menn eins og Ingvar Vilhjálmsson og Tryggva Öfeigsson. Og vissulega er það ánægjuleg tilhugsun, að þeir Einar og Ingvar skuli saman byggja pýtízkulegt togskip. Svo er líka fjöldi annarra manna, sem unnið hafa sig upp i sjávarútveg- inum, flestir byrjað sem hásetar, síðan eignazt kænu, en jafnt og þétt fært út kvíarnar, þangað til þeir eiga sitt eigið fullkomna skip, ýmist einir eða'í félagi við aðra. Einkaframtakið í sjávarút- veginum er burðarásinn í ís- lenzku atvinnulífi, og að því eiga aðild tugþúsundir manna, því að til viðbótar þeim einstaklingum, sem tekizt hafa á við verkefni á sviði sjávarútvegs einir eða í fá- mennum félögum, koma almerin- ingshlutafélögin, sem víða hafa lyft grettistaki. Þetta framtak er skýrasti votturinn um hið heilbrigða einkaframtak, sem Sjálfstæðis- flokkurinn styður af alefli og fleiri og fleiri gera sér grein fyrir, að nauðsynlegt er að styrkja, ef vel á að farnast. Hvar eru ungu mennirnir? Allt athafnalíf íslendinga hefur verið byggt upp á þessari öld. Það hefur verið byggt upp af þeim mönnum, sem nú eru að hverfa af sjónarsviðinu, og það hafa ekki verið nein vettlingatök, sem sú kynslóð hefur tekið verkefnin. Athafnamennirnir skömmuðust sín heldur ekkert fyrir tilvist sína, þrátt fyrir nagg og róg, sem ýmist var byggður á öfund eða einhverjum hugsjónavanskapn- ingi. Þeir héldu sína leið og kærðu sig kollótta. Þess vegna býr íslenzka þjóðin nú við ein- hverja mestu velmegun, sem f veröldinni þekkist. En hvar eru ungu mennirnir? Hvað er framtak hinnar glæstu kynslóðar æskumanna, sem verið hefur að alast upp síðustu tvo, þrjá áratugina? Því miður verður að játa, að ekki ber ýkja mikið á tilþrifum þessa fólks á sviði at- hafnalífs. Helzt er það þó í út- veginum, sem ungir menn halda áfram að ryðja sér braut, Iandi og lýð til hagsældar, t.d. eigendur Ögurvíkur. Ríkiskerfið á íslandi hefur verið að þenjast út ár frá ári, og síðustu árin hefur keyrt um þver- bak eins og allir vita. Og því mið- ur er það svo, að mikill fjöldi hinna beztu og mætustu manna, sem eru að hefja lífsbaráttuna, laðast að störfum í þágu ríkisins eða þá tiltölulega ábyrgðarlitlum störfum hjá einkafyrirtækjum. Hinir eru miklu færri, sem af eigin rammleik leitast við að leggja út í baráttuna. Þeir vita sem er, að sú barátta getur verið hörð og erfið, hitt er auðveldara að tryggja sér sæmilega stöðu hjá hinu opinbera, sem svo fylgja aukastörf og þægilegir bitlingar. Því er meira að segja haldið fram, að menntað fólk eigi ekki að vera að fást við atvinnurekstur á ein- dæmi sitt, hin háleita menntun nýtist því þá ekki, því að tími þess fari i áhyggjur og ákvaröanatöku. Sumir segja jafnvel, að það sé sérstaklega ófínt að bjástra við rekstur einkafyrirtækja. Svo sannarlega er tímabært að menn hugleiði þessa þróun og hver og einn leitist við að gera upp við sjálfan sig, hvort hann vill að henni stuðla eða reyna að stinga við fótum. r Akvarðanataka heim Það er líka önnur hlið á þessu fyrirbæri, þessari ríkismeinsemd, sem breiðist út með sívaxandi hraða. Vinstri stjórnin hefur markvisst að því unnið að auka miðstjórnarvald eins og alkunna er. Fjármagn er flutt í milljörðum á milljarða ofan frá fólkinu til ríkisins, frá landsbyggðinni til skrifstofubáknsins í Reykjavík. Allt á að vera undir einum hatti, og allir eiga að vera háðir duttl- ungum skrifstofuvaldsins. Og þessu valdi er svo reynt að safna saman á hendur sem fæstra, helzt á ein stofnun að hafa yfirstjórn alls fjármálavalds. Til þess var Framkvæmdastofnun rfkisins sett á laggirnar, þótt raunar hafi henni enn ekki tekizt að ná til sín öllu því valdi, sem henni var ætlað, af sumum a.m.k.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.