Morgunblaðið - 17.03.1974, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.03.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 27 Eins 09 mér sýnlst ebip eisia j. ásiwpssoii Skottið á bröndótta kettinum ÞAÐ er að visu satt að sú stund er ekki ennþá runnin upp hér á (s- landi að húsmæður tölti út i búð á morgnana með hjólbörur fullar af peningum, en sú stund er samt óðum að nálgast. Maður sér það á svipnum á húsmæðrunum þar sem þær staulast náfölar útúr verstun- unum á morgnana með aðra hönd- ina skjálfandi á hjartastað en inn- kaupatöskuna lafandi i hinni með eina pulsu i botninum. Þetta er ekki óðaverðbólga: þetta er verð- bólga sem hnýtt hefur verið aftan i stélið að organdi eldflaug sem er þegar komin hálfa leið til Venusar. Það er ekki heldur satt ennþá að prísarnir hækki stundum tvisvar á dag en þeir hækka nærri sjálfkrafa tvisvar i viku eða þvi sem næst. Það þarf fifldjarfan mann og jafnframt bjartsýnan til þess að áræða að taka leigubil núna, þó að ekki sé nema bæjar- leið. Aksturinn vestur á Framnes- veg getur kostað 250 krónur þegar manngreyið stigur upp i bif- reiðina og leggur af stað. Á leiðinni yfir Tjarnarbrúna getur prisinn hrokkið upp í 300 krónur. Og um það bil sem bilstjórinn er að opna bakdyrnar og bjóða far- þega sínum kurteislega að gera svo vel, þá getur sá boðskapur rétt eins verið að berast gegnum talstöð bílsins að i þessum svifum hafi gjaldið fyrir aksturinn þvi miður verið að hlaupa upp í 400 krónur. Þetta er þó ekki leigubilstjór- unum að kenna sem eru orðnir að minnstakosti eins ringlaðir og húsmæðurnar. Maður sér þá stundum aka hringtorgin hring eftir hring og horfa stjörfum aug- um framan i vegfarendur. Sú var tiðin að hirðumenn meðal at- vinnubilstjóra höfðu dálitla blikk- öskju undir skiptimynt sína i hanskahólfinu i bilnum sínum og svo misjafnlega bústið seðlaveski i rassvasanum að hifa upp þegar viðskiptavinurinn þóttist geta státað af hundrað króna seðli. Nú er allt útlit fyrir að tunna F fram- sætinu, sem yrði einungis undir smápeninga, dugi ekki þegar líður fram á sumarið. Leigubilstjórar næsta árs verða komnir með jeppakerru aftan i sig og væna skóflu. Það er verst við þessa vitfirr- ingu að hún á eiginlega engum að vera að kenna. Það er alltaf dálitil sárabót ef hægt er að finna hrapp- inn, þvi að þá getur maður þó fjandakornið sagt honum sina meiningu og á þann hátt hleypt af svolitlum dampi. En nú eru allir eins saklausir og tiu ára barn i klausturskóla. Það eru helst fyrr- verandi ríkisstjórnir sem hafa sprengt verðlagið upp, jafnvel fyrrverandi manneskjur sem eru fyrir óralöngu komnar undir græna torfu. Það er Gísla, Eiriki og Helga að kenna, það er árferð- inu að kenna. það er ansjósunni i Perú að kenna. Eitt er vist: það er öllum öðrum að kenna en mönn- unum sem halda um stjórnartaum- ana. Kannski er þetta rétt. Kannski er það bara imyndun okkar (eins og við værum á geðveikrahæli) að þeir menn séu að fást við að stjórna okkur sem lofuðu þó að gera það fyrir bráðum þremur árum — nú, eða hótuðu þvi ef menn vílja vera með hótfyndni. Kannski voru þeir bara að gabba okkur. Mér hefur meira að segja dottið i hug að kannski sitji þeir bara allir í kringum stóra borðið i stjórnarherberginu og raði púslu- spili. — Ertu búinn að tala við Kan- ann, Einar? — Nei, ég er að leita að litla bröndótta stykkinu sem vantar hérna aftan í rófuna á kettinum minum. Ég átti einu sinni frænku sem lét einmitt svona. Maðurinn hennar var að reyna að leyna þvi fyrir okkur, en hann var að falla úr hor. Ég minnist hans alltaf núna þegar ég sé kjötfarsið sem maður fær fyrir fimm hundruð krónur og sem húsmæðurnar þurfa að nota teskeið við þegar þær eru að móta bollurnar. Þegar grauturinn brann við hjá þessari frænku minni, þá labbaði hún sig bara fram i stofu og tók til við púsluspilið. Hún gekk lika með rautt pappanef undir lokin og stakk sér kollhnis fram af svöl- unum þegar hún var búin að finna litla bröndótta stykkið sem vantaði i rófuna á kettinum. Þá var hún tekin úr umferð. En það var aldrei henni að kenna þegar grauturinn brann við. Kannski spila þeir lika vist kringum stóra borðið þegar þeir eru orðnir leiðir á púslunum sin- um. Ég á að visu engan nákominn ættingja sem hefur iðkað þá iþrótt að marki, en framsóknarvistin kemur óneitanlega upp i huga manns: hún er svo iangtum liflegri en sú venjulega með öllum þess- um þeytingi milli borðanna. — Hvað segir þú um söluskatt- inn, fjármálaráðherra góður, sem ert svo alvis i sjónvarpinu? — Ég segi nóló. — Og hvað segir þú um kaup- getu fólksins núna. kæri Lúðvik, sem mátt varla um annað hugsa en hag þeirra efnalausu. — Ég segi nóló lika, og hættu að kikja, Mangi! Lika gætu þeir verið i hanaslag eða að fela fantinn. Ákvarðanataka í svo til öllum atvinnumálum á sér nú stað í Reykjavík, og fáir menn hafa allt þetta vald í hendi sér, gagnstætt því, sem vera ætti, þar sem lána- stofnanir ættu að geta metið sjálf- stætt, hvort fjármagna eigi þessa framkvæmdina eða hina. En of- stjórnarmennirnir segja: Það þarf að skipuleggja hlutina, það þarf að raða niður framkvæmd- um, og ,.vér skipuleggjum“, annars fer allt í vitleysu. Og hver er svo árangurinn af allri skipulagningunni og niðurröðuninni? Jú, árangurinn er bandóðaverðbölga og algjör upplausn í efnahags- og fjármál- um. Kerfið sjálft hefur vaxið stjórnarherrunum yfir höfuð og þeir sitja kolfastir í því og geta sig hvergi hrært. Enn er þó skipulagt. Sparnað í ríkisútgjöldum á að auka með því að færa ákvörðunarvald ríkis- stofnana í vaxandi mæli til fjár málaráðuneytisins. Stjórnendum ríkisfyrirtækja eru settar þröngar skorður. Athafnaþrek þeirra og vilji til að láta gott af sér leiða er lamaður, því að þeir eiga ætíð yfir höfði sér dóm hæstaréttar, úr- skurði og ómerkingar af hálfu embættismanna i stjórnarráðinu. Og hver verður svo sparnaðurinn af þessu háttarlagi? Hann er aðal- lega fólginn í þvi, að stofnunum og fyrirtækjum er ver stjórnað en ella, kannski alls ekki stjórnað, þvi að lömunin heldur áfram nið- ur eftir öllu fyrirtækinu. Brýnasta verkefnið í íslenzkum þjóðmálum nú er að stinga á kýl- inu, að snúast gegn ofvexti kerfis- ins og gera á því rækilegan upp- skurð. Þegar núverandi rikis- stjórn fer frá völdum, hvort sem það verður fyrr eða síðar, verður meginverkefni Sjálfstæðis flokks- ins þetta. Þá þarf að flytja valdið til ákvarðana heim, heim til héraða, fyrirtækja og stofnana. Öngþveitið algjört Svo fullkomið er öngþveiti íslenzkra stjórnmála nú orðið, að menn hrista helzt hausinn, þegar á ósköpin er minnzt. Þessi vinstri stjórn hefur komizt miklu lengra en hin fyrri í hringavitleysunni, en þó má raunar benda á það henni til afsökunar, að hún hefur setið nokkrum mánuðum lengur en vinstri stjórnin á árunum 1956—’58, og þess vegna hafa menn fengið að sjá lítið eitt betur framan í hana heldur en fyrri vinstri stjórn. Því heyrist stundum haldið fram, að stjórnarandstaðan leggi á það ofurkapp að koma ríkis- stjórninni frá sem allra fyrst. Auðvitað er það skylda stjórnar- andstöðu, sem sér, að í algjört óefni er stefnt, að leitast við að koma slíkri stjórn frá, enda mundi það þegar i stað gert, ef stjórnarandstaðan hefði nægi- legan þingstyrk til að fá sam- þykkt vantraust. Hitt er aftur á móti alrangt, að t.d. sjálfstæðismenn telji það sér- stakan flokkslegan ávinning sinn, að þessi ríkisstjórn fari strax. Eins og áður segir, hafa þeir mánuðir, sem hún hefur lifað um- fram gömlu vinstri stjórnina, leitt til þess, að menn skilja nú betur en þá eðli vinstri stjórnar og hve gjörsamlega vonlaust það er, að þau öfl fái ráðið við vandamálin, sem nú sitja við stjórnvölinn. Enn ljósar mun þetta koma fram á næstu mánuðum, ef stjórnin sit- ur. Þess vegna getaþað ekki verið sérstakir flokkslegir hagsmunir Sjálfstæðisflokks eða Alþýðu- flokks, að stjórnin fari nú frá, þótt það séu sameiginlegir hags- munir þjóðarheildarinnar, að vandamálin verði tekin föstum tökum fyrr en síðar. En þótt þróun efnahagsmái- anna sé vissulega uggvænleg, er hitt þó hálfu verra, að ráðherrarn- ir umgangast öryggis- og varnar- mál landsins af fullkomnu ábyrgðarleysi, enda á það eftir að koma í ljós fyrr en siðar, að fram- ferði þeirra er óverjandi með öllu. En það bfður síns tíma. Gegn verkföllum Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri ritar athyglisverða grein hér í blaðið sl. fimmtudag, þar sem hann fjallar um aðgerðir til að leitast við að koma i veg fyrir verkföll. Um það efni segir hann m.a.: „Liður i umsköpun ákvarðana- töku á þessu sviðu yrði að vera nýtt verksvið og aukið valdsvið' sáttasemjara rfkisins til að koma í veg fyrir verkföll og jafnvel skera úr ágreiningi hjá einstökum félögum og innan einhverra marka í heildarsamningum. Meiri háttar ágreiningi þyrfti sátta- semjari að mega skjóta til Alþing- is, enda væri þar um að ræða stórpólitískt mál, sem telja verður rökrétt, að Alþingi ráði til lykta eins og stjórnskipan ríkisins gerir ráð fyrir og þegnarnir beygi sig fyrir niðurstöðu þess, hvernig sem þeim líkar, rétt eins og um væri að ræða hegningarlög, skattalög eða lög um almanna- tryggingar." Hér er um að ræða róttækar tillögur, sem sjálfsagt eiga langt í land, ef þær þá nokkurn tíma geta orðið að veruleika. En vissulega er tímabært að ræða allar hliðar þessa máls og reyna að finna lausn, sem hagstæðari er en sú kaupgjaldsbarátta, sem nú er háð með breytingu verkfallsvopnsins. Þetta mál er raunar ekki aðeins rætt hér á landi heldur líka er- lendis, þar sem ýmsar hugmyndir hafa skotið upp kollinum. Ein er t.d. eitthvað á þennan veg: Verkalýðsfélög og atvinnurek- endur samþykki áður en deila kemst á alvarlegt stig, að „verk- fail" leiði ekki til neinnar stöðv- unar. í staðinn renni hluti af launum allra verkamanna og hluti af ágóða fyrirtækisins til mannúðarmála. Framleiðslan heldur áfram, en ráð er fyrir því gert, að bæði fyrirtækið og verka- mennirnir bfði fjárhagslegt tjón og vegna þess sé nægilegur þrýst- ingur til að leiðaþá til samninga. Raunar hefur það gerzt, a.m.k. í einu tilviki í Bandaríkjunum að svipaður háttur hefur verið á hafður, þar sem strætisvagna- stjórar héldu áfram akstri, án þess að innheimta nokkur gjöld og án þess að taka laun. En bollaleggingar i þessa átt geta líka leitt inn á aðrar brautir. Þannig mætti i rauninni hugsa sér það, eins og ástand er hér á landi, að launþegasamtökin í heild hreinlega fengju rétt tii þess að auglýsa kauphækkanir, að því þó áskildu, að gengisskráning væri frjáls og raunverulegir vext- ir væru í gildi, þannig að allt fé væri verðtryggt. Þá yrði baráttan einungis um skiptinguna innbyrð- is milli hinna ýmsu launaflokka, og þar gæti raunar orðið um nógu erfitt vandamál að ræða. En kaupdeilurnar að undan- förnu og víðtækasta verkfall í sögunni leiða auðvitað til slíkra hugleiðinga. Samningar eru gerðir um launahækkanir, sem allir vita, að ekki eru raunhæfar. Hví þá ekki bara að auglýsa laun- in? Kannski er ekki leyfilegt að tala um þessi mál í hálfkæringi — eða er þetta hálfkæringur? Hvernig væri, að umræður spynn- ust um þessi mál og margir létu til sín heyra?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.