Morgunblaðið - 17.03.1974, Page 42

Morgunblaðið - 17.03.1974, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 Eldfœrin eftir H. C. Andersen Steingrímur Thorsteinsson þýddi Hundurinn var óðara þotinn út, og ekki vissi dátinn fyrr en hann sá hann aftur kominn með kóngsdótturina. Hún sat sofandi á baki hundsins og var svo ljómandi fögur, að hver maður gat séð, að þetta var sannarleg kóngsdóttir. Dátinn gat ekki á sér setið, hann mátti til að kyssa hana, og var það að vonum, því að þetta var almennilegur dáti. Hundurinn hljóp síðan beina leið aftur með kóngs- dótturina, en um morguninn, þegar kóngurinn og drottningin sátu við teborðið, sagði kóngsdóttirin, að sig hefði dreymt svo undarlegan draum, það hefði Hver er rétta röðin? Eins og þú sérð, er hér teikning af Eskimóa að dorga niður um ís. Mörgæsin bíður róleg eftir að hann dragi fiskinn upp á ísinn, — og fær sér þá að borða. En þú tekur eftir því, þegar þú ferð að skoða myndaröðina, að hún er ekki rétt. Á því skaltu sprevta þig, áður en þú lest lausnina, sem fer hér á eftir: a — 9 ‘a — •£ ‘a —* v c ‘a —zd— i verið um hund og dáta. Hún hefði riðið hundinum, og dátinn hefði kysst sig. „Það er dálaglegt að heyra, eða hitt þó heldur,“ sagði drottningin. Nú átti ein af hirðkonunum gömlu að vaka við rúm kóngsdótturinnar næstu nótt, til þess að komast fyrir, hvort þetta væri draumur eða hvernig annars í því Iægi. Dátann langaði nú fram úr öllu lagi til að sjá aftur kóngsdótturina fallegu, og kom þá hundurinn um nóttina, tók kóngsdótturina og hljóp með hana eins og hann gat hraðast, en hirðkonan gamla fór í vantsstígvél og hljóp engu óhraðara á eftir. Nú sem hún sá, að þau hurfu inn í stórt hús, þá hugsaði hún með sér: nú veit ég, hvar það er, og markaði með krítarmola stóran kross á dyrnar. Síðan fór hún heim og háttaði, og hundurinn kom líka aftur með kóngsdótturina. En þegar hann sá, að kross hafði verið markaður á dyrnar, þar sem dátinn var til húsa, þá tók hann líka krítarmola og markaði kross á allar húsdyr í allri borginni, og var það kænlega gert, því að nú gat hirðkonan ekki fundið réttu dyrnar, þegar kross var á öllum. Snemma morguns komu þau kóngur og drottning, hirðkonan gamla og allir höfuðsmennirnir til að gá að, hvar kóngsdóttirin hefði verið um nóttina. „Þarna er það,“ sagði konungurinn, þegar hann sá fyrstu dyrnar með krítarmerkinu. „Nei, þarna er það, gæzka!“ sagði drottningin, en henni varð litið á aðrar dyr, sem kross var markaður á. „Og þarna er einn og þarna er einn,“ sögðu þau öll, þegar þau voru að reka augun í krossana, sem voru á öllum húsdyrum borgarinnar. Þeim gat þá ekki lengur blandazt hugur um, að leitin mundi verða árangurslaus. En drottningin var stórvitur kona, sem fleira kunni en að aka í dýrum vagni. Hún tók stóru gullskærin sín, klippti sundur stóran silkidúk og saumaði úr stykkjunum poka. Pokann fyllti hún fínustu bókhveitigrjónum og batt hann á bak kóngs- dótturinni, klippti síðan gat á pokann, til þess að grjónin skyldu sáldrast niður alla leiðina, þar sem kóngsdóttirin færi um. Um nóttina kom hundurinn aftur, tók kóngs- dótturina á bak sér og hljóp með hana til dátans, sem þótti svo vænt um hana og vildi svo feginn, að hann hefði verið konungborinn sjálfur, til þess að geta eignzt hana fyrir konu. oAJonni ogcTManni Jón Sveinsson Fyrsta kastið töluðum við margt og mikið. En brátt fundum við, að það var betra að þegja. Þá urðum við ekki eins móðir. Svona gengum við upp hvert leitið á fætur öðru, og ekki leið á löngu áður en við urðum kófsveittir. Þegar við komum upp á eina hæðina, sagði Manni: .,Það er undarlegt, að mér finnst fjallið alltaf hærra og hærra, eftir því sem við komum lengra upp“. ,.Þetta finnst mér líka, Manni. Þessar hæðir og hjallar ætla aldrei að taka enda. Það koma alltaf nýjar og nýjar liæðir, og hæsti tindurinn er alltaf jafnlangt í burtu“. ..Já, það finnst mér skrítið“. Hann benti nú á klettabeltið, sem hæst bar á, og sagði: „Sjáðu, þarna sýnist fjallseggin vera. Það er alveg eins og þetta væri hæsta brúnin, en þú sannar það, að þegar við komum þar upp, þá eru aðrar eftir“. Freysteinn Gunnarsson þýddi Og það var rétt til getið hjá Manna. Við gengum nú þegjandi upp snarbratta hrekkuna. Þegar upp var komið á brúnina, lá framundan okkur dálítil iðgræn slétta, og hinum megin við hana tók við önnur hæð, öll saman lyngi vaxin. „Sérðu“, sagði Manni. „Það er eins og ég sagði. Þarna uppi sjáum við aftur annan tind, alveg himin- háan. Heldurðu, að það sé sá hæsti?“ „Ég veit ekki, Manni. En við hljótum að vera komnir gríðarlega hátt upp“. Ég sneri mér við og leit aftur. Og satt var það, hátt vorum við komnir. Og útsýnið var dásamlegt. Ég tók í handlegginn á Manna og sagði: „Sjáðu, Manni, hvað þetta er fallegt. Líttu á, hvað bærinn okkar sýnist lítill. Svona hátt erum við komn- ir. Þú sérð, hvað það er orðið langt niður að bænum. Ég held við hljótum bráðum að vera komnir upp á efsta tindinn“. ffte&fflorgufikciffinif — Eruð þið með stutt nám- skeið? Ég þarf aðeins að æfa mig þangað til ég get borið ritvélina mfna. — Ég hefi hlotið fangelsisdóm í samanlagt 189 ár. Svo er það þeirra að sjá til þess, að ég lifi svo lengi. — Jæja, Stína, hvað viltu að ég geri meira til þess að sanna, að ég elska þig. — Hvers vegna ætti hún að bíða þar til rétti maðurinn bið- ur hennar. Ekki gerði ég það. — Eiga þetta að vera hrein hnffapör, með leyfi að spyrja? Ykkur veitti sannarlega ekki af, að fá manninn minn f eld- húsið. Ilann gæti kennt ykkur, hvernig á að þvo upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.