Morgunblaðið - 23.03.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974
7
Kúrdahéruð
Eftir
Joseph
Fitchett
vopnum og 200 orrustuflugvélum.
Þótt um mikinn liðsmun sé að ræða
þá hefur skæruliðaherinn, Pesh
Merga, sýnt það i tiu ára bardögum
á árunum 1 960—1 970 að hann er
fær um að verja héruðin gegn inn-
rásartilraunum stjórnarhersins. For-
ingjar skæruliða i aðalstöðvum Barz
ani hershöfðingja segja að Iraks-
stjórn sé að draga saman mikið lið
við varnarlínu Kúrda í fjalllendinu í
Norður-lrak. Sveitir Pesh Merga,
búnar sovézkum rifflum og
sprengjuvörpum, eru á ferli um for-
ugar fjallaslóðir milli Isi þaktra tinda.
Vorleysingarnar, sem geta markað
upphaf nýrra átaka, eru i nánd.
Pesh Merga óttast skyndi-loftárásír
og eru að byggja skotpalla fyrir
loftvarnarbyssurnar, sem geymdar
hafa verið i hellum undanfarin fjög-
ur ár. Flóttamenn keppast um að
láta skrá sig til herþjónustu meðan
konur og börn grafa sér skotbyrgi.
Vigorð eru á allra vörum: „Við látum
blóðið flæða í Kúrdistan og drekkja
óvinunum," segja ibúarnir, sem bar-
izt hafa fyrir sjálfstjórn allt frá því
yfirráðum Tyrkja lauk fyrir rúmri
hálfri öld.
Hættuástandið í dag stafar af
ágreiningi um framkvæmdaratriði í
sambandi við tilboð Ba'ath flokksins
um heimastjórn í Kúrdahéruðunum.
Mestur ágreiningur er um stöðu
borgarinnar Kirkuk sem er miðstöð
olíuvinnslunnar i írak. Leiðtogar
Kúrda krefjast þess að borgin verði
innan marka Kúrdahéraðanna. Rikis-
stjórnin hefur lagt til að ibúar Kirkuk
gangi til atkvæðagreiðslu um málið,
en leiðtogar Kúrda benda á að 50
ið riki i samræmi við siðustu tHlögur
þeirra, sem Ba'ath flokkurinn neitaði
að fallast á fyrir fjórum árum. Er
þegar farið að undirbúa stofnun sér-
staks stjórnarráðs, sem færi með öll
völd á 25 þúsund ferkilómetra
svæði í norð-austurhéruðum íraks.
sem Kúrdar ráða.
Ef til bardaga kemur á ný geta
Kúrdar teflt fram 20 þúsund skæru-
liðum gegn 90 þúsund manna her
íraks, sem er vel búinn sovézkum
LEIÐTOGAR kúrdiskra þjóðernis-
sinna, sem hafa aðalstöðvar sinar í
vel viggirtum dal í Norður-írak, spá
því nú að til nýrrar uppreisnar kunni
að draga vegna deilunnar um sjálfs-
stjórn Kúrda. Hefur íraksstjórn til-
kynnt að talsmenn kúrdíska demó-
krataflokksins hafi hafnað tilboði
stjórnarinnar um fyrirkomulag
heimastjórnar i Kúrdahéruðunum,
en tilboðið var að mestu byggt á
samningi frá 1 970, sem batt enda á
áratugar bardaga skæruliða Kúrda
við hersveitir írakshers.
Eftir tilkynningu íraksstjórnar í
fyrri viku hefur fjöldi kúrdiskra emb-
ættismanna látið af embættum sin-
um og flutzt til Kúrdahéraðanna i
norðri, þeirra á meðal um tvö þús-
und lögreglumenn frá Arbil, há-
skólakennarar frá Sulaimaniya, og
tugir opinberra starfsmanna frá
Kirkuk. Hefur tjöldum verið slegið
upp fyrir þessa flóttamenn í fjalla-
héruðum Kúrda.
Stjórnarflokkarnir í Irak — Ba'ath
flokkurinn og kommúnistaflokkurinn
— virðast hafa vanmetið styrk
Kúrda og trúnað þeirra við flokk
sinn og flokksleiðtogann Mustapha
Barzani, sem er sögufrægur skæru-
liðaforingi Haldi ríkisstjórnin áfram
tilraunum sínum til að koma á fót
leppstjórn I Kúrdahéruðunum, hafa
leiðtogar Kúrda hótað að stofna eig-
Barzani hershöfðingi (i miðju) með tveimur hermönnum sinum.
þúsund Kúrdar hafi verið hraktir úr
borginni, en Arabar frá suðurhéruð-
um íraks flutzt þangað i staðinn og
raskað hlutföllunum stjórninni I hag.
Önnur meginkrafa Kúrda er um
meira' lýðræði í ríkisstjórn Iraks, en
þar hefur byltingarráð Ba'ath flokks-
ins farið með einræðisvald frá árinu
1 968. Vilja Kúrdar að löglega kjörið
þing fái hluta löggjafarvaldsins.
Kúrdar vilja einnig sérstök fjárlög
fyrir Kúrdistan. Segja þeir að ríkis-
stjórnin hafi vanrækt Kúrdahéruðin
á þessu sviði, og benda á máli sínu
til stuðnings, að af 1 00 verksmiðj-
um landsins, séu aðeins 3 í Kúrdist-
an
Af öðrum kröfum Kúrda má nefna
að þeir vilja fá neitunarvald varðandi
skipan í þau ráðherraembætti, er
fjalla um olíu- og innanríkismál,
hlutfallslega aðild Kúrda að embætt-
um innan hersins og í utanrikis- og
leyniþjónustunni, og sérstakan yfir-
rétt, sem dæmi í ágreiningsmálum
ríkisstjórnarinnar og héraðastjórna
Kúrdar segja að rikisstjórnin hafi
neitað að fallast á nokkuð þessara
deilumála i fjögurra ára samninga-
viðræðum frá þvi hernaðaraðgerð-
um var hætt árið 1970 Telja Kúrd
ar að rikisstjórnin áliti óhætt að
standa gegn öllum óskum þeirra,
þar sem hún nýtur nú stuðn
ings Sovétríkjanna, sem er
nauðsynlegur til að geta búið
stjórnarherinn nýjustu vopn
um, til að hafa hemil á komm-
únistaflokki landsins, og til að
try9gia áhrif stjórnarinnar meðal
annarra ríkja þriðja heimsins svo-
nefnda
Lengi vel var Barzani hershöfðingi
talinn skjólstæðingur Sovétrikjanna,
og kommúnistar, sem orðið höfðu
fyrir ofsóknum íraksstjórnar, leituðu
oft hælis hjá Kúrdum. Eftir að Irak
undirritaði vináttusamning við Sov-
étríkin árið 1971, hefur þetta snúizt
við, og áhrifa Sovétríkjanna gætir æ
meir i landinu Kommúnistaflokkur
landsins styður nú Ba'ath flokkinn.
Kúrdar í
vígahug
NÝ SENDIBIFREIÐ Af sérstökum ástæðum er til sölu Bedford Van De luxe árg. 1973, með talstöð og mæli. Simi 83624 og 37449. SKÁPASMfÐI í svefnherb. Vönduð vinna og efni Teikna og geri tilboð Smiðastofan Miðbraut 1 7. Lúðvik Geirsson. Simi 19761.
PlPULAGNINGAMEISTARI með tvo lærlinga, getur tekið að sér stór verk eða einbýlishús. Upplýsingar gefnar i sima 52970 eftir kl . 7 á kvöldin. fBÚÐIRTILSÖLU 3ja og 4ra herbergja ibúðir til sölu Kópavogsmegin i Fossvogsdal. Upplýsingar i símum 43281 og 40092 eftir kl. 1 9 00.
TIMBUR Óskum eftir að kaupa notað timbur. Upplýsingar i sima 92-1670 eftir kl 6 á kvöldin. VILKAUPA 2ja drifa benzinbil, jeppa Vibon eða hliðstæðan bíl með palli eða skúffu, éða bil með verðlitlu húsi. Simi 50572—50173.
V.W. '67 til sölu. Mjög vel með farinn. Út- varp, bensinmiðstöð o fl. fylgir. Uppl. í síma 1021 7. BÁTUR Til sölu er bátur 5'6 rúmlest að stærð. Er með ratsjá, dýptarmæli og talstöð. Uppl i síma 94-3740
TILSÖLU Volvo N 88 m/tandem og 216 tonna Toco krana i góðu ásig- komulagi Hagstætt verð, ef samið er strax. Upplýsingar i sima 9 7- 6163. TEK AÐ MÉR viðgerðir og stillingar á BAADER fiskvinnsluvélum Upplýsingar i síma 97-8339
MAVERIC FORD ÁRG. '70 Sjálfskiptur með vökvastýri og krafthemlum. Ekinn 46000. Fiat 125 P. árg. '74. Bilana má greiða með skuldabr. til 2—4 ára eða eftir samkomul. Uppl. i s 37449 og 83624. FÍAT 127 1973 til sölu, ekinn 1200 km Uppl. I sima 71 066
Leiksýning
í Norræna húsinu kl. 18.
„Inuk-maðurinn" — stutt leikrit um Eskimóa, æft og
samið í hópvinnu á vegum Þjóðleikhússins — verður
sýnt í samkomusal Norræna hússins sunnudaginn 24.
marz kl. 1 8:00.
AðgöngumiSar — seldir í Kaffistofu NH frá kl. 13 á
sunnudag.
NORR€NA Hl'JSlO POHJOIAN TAIO NORDENS HUS
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuð börnum.