Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 15
hætti, þrátt fyrir slíka verðbólgu.
Árangur efnahagsstarfseminnar
á tveimur og hálfum áratug eftir
styrjöldina, hagvöxtur, sem var
ekki að mun lægri en í nágranna-
löndunum, full atvinna mest allan
timann og heilbrigður greiðslu-
jöfnuður síðari hluta timabilsins,
byggðist á þessari sífelldu við-
leitni. Barátta margra rikis-
stjórna gegn verðbóigunni, oft i
samráði við fulltrúa bæði laun-
þega, atvinnurekenda og bænda,
þó þvi samráði væri ekki flíkað,
var því síður ekki svo unnin fyrir
gýg. Það, sem gerist, þegar slik
viðleitni er látin lönd og leið,
blasir nú við okknr
Hvernig er það þá hugsanlegt,
að á áttunda áratug aldarinnar
eftir alla þrá reynslu, sem fengizt
hafði áratugina á undan, skuli
nokkurri ríkisstjórn geta hug-
kvæmzt, að það mundi ekki hafa
hinar alvarlegustu afleiðingar í
för með sér, ef stjórn efnahags-
mála væri lögð fyrir róða. Það er
sagt, að sérhver þjóð fái þá rikis-
stjórn, sem hún eigi skilið. í viss-
um skilningi er þetta sjálfsagt
rétt, stjórnmálamenn eru við-
kvæmir fyrir almenningsálitinu,
eða þvi, sem þeir telja vera al-
menningsálit. Það má því gera ráð
fyrir, að jafn veigamikil breyting
á afstöðu rikisstjórnar, frá því,
sem áður hafði tíðkazt, spegli al-
menna breytingu á afstöðu
manna að meira eða minna leyti.
Það er skoðun mín, að slík breyt-
ing hafi átt sér stað á undanförn-
um árum, bæði hér á landi og
annars staðar, og ég vil i stuttu
máli reyna að gera grein fyrir í
hverju ég tel hana vera fólgna.
Eftir því sem velmegun og öryggi
hafa aukizt f velferðarþjóðfélög-
um nútímans hefur tilfinningin
horfið fyrir nauðsyn þess að
leggja að sér, að halda uppi aga,
að velja á milli markmiða, að taka
erfiðar ákvarðanir. I heimi alls-
nægta og velferðar virðist allt
kleift, engin þörf lengur til að
láta neitt á móti sér, ekki þörf á
því að bfða til morgundagsins eft-
ir því, sem höndla má í dag. Úr
slíkum viðhorfum sprettur það
þjóðfélag undanlátsseminnar,
sem við sjáum fyrir okkur. Fyrir
stjórnmálamenn er hér hættuleg
freisting á ferðinni. Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja að stjórn
málamenn vilja helzt geta þókn-
azt sem flestum, og að þeir vilja i
lengstu lög komast hjá því að
velja og hafna á milli markmiða
og leiða. í þjóðfélagi, sem enn var
fátækt, þar sem var ríkjandi at-
vinnuleysi og öryggisskortur
jafnt inn á við sem út á við, var
augljóst, að slíkur undansláttur
gat ekki gengið, að menn urðu að
móta fasta stefnu og fylgja henni
eftir, að agi varð að ríkja og fram
hjá erfiðum ákvörðunum varð
ekki komizt. En þegar hin ströngu
ytri skilyrði eru ekki lengur til
staðar, eða virðast ekki Iengur
vefa til staðar, þá tekur undan-
látssemin við, undanlátssemi i öll-
um greinum. En því er einu sinni
þannig farið, að meginforsendan,
sem undanlátssemin byggist á, er
ekki rétt. Þúsund ára ríkið er
ekki komið. Gæði lífsins eru,
þrátt fyrir allt, af skornum
skammti. Það er þetta, sem verð-
bólgan minnir okkur á. Verð-
bólga, ör verðbólga, fylgir þjóðfé-
lagi undanlátsseminnar eins og
skuggi fylgir manni. Það er hún,
sem gerir upp dæmið, sem menn
vildu ekki leysa eða héldu að þeir
þyrftu ekki að leysa. Á sinn
óskipulega hátt og með þeim geig-
vænlegu afleiðingum, sem því
fylgja, er það hún, sem velur og
hafnar, hún sem tekur ákvarðan-
irnar.
Élg get ekki látið hjá liða að
benda á, að sú afstaða til efna-
hagsmála, sem ég hefi lýst, á sér
nána hliðstæðu á öðru sviði,
þ.e.a.s. í utanríkismálum. Ásamt
efnahagsmálum eru þessi mál
höfuðviðfangsefni hverrar ríkis-
stjórnar og stjórn þessara tveggja
málaflokka það, sem mestu máli
skiptir fyrir framtíð lands og
þjóðar. Það getur ekki hjá því
farið, að anda undanlátsseminnar
gæti einnig hér. A árunum eftir
styrjöldina var hvarvetna víðtæk-
ur skilningur, á nauðsyn varna, á
nauðsyn bandalaga þjóða í milli, á
nauðsyn þess, að sérhver þjóð
mótaði stefnu sína með tilliti til
sameiginlegra hagsmuna margra
þjóða. Nú virðist þessi skilningur
á þrotum, varnir eru álitnar að
meiru eða minna leyti óþarfar,
þátttaka í bandalögum hvimleið-
ur trafali, og tillit til sameigin-
legra hagsmuna ástæðulaust. Þús-
und ára ríkið er sem sé runnið
upp og allt kleift og allt leyfilegt.
hængurinn er bara sá, alveg eins
og í efnahagsmálunum, að þannig
er þessu i rauninni ekki farið. í
efnahagsmálum hafa vissulega
mikilsverðar breytingar átt sér
stað og umtalsverður árangur
náðst að mörgu leyti, þótt þær
breytingar séu ekki eins mikil-
vægar og menn oft virðast halda.
I utanríkismálum hafa á hinn
bóginn engar teljandi breytingar
orðið í grundvallaratríðum. Breyt
ingar á ytra borði hafa vissulega
orðið, breytingar í átt til betri
umgengni á milli þjóðarleiðtoga
og meiri kurteisi í viðskiptum
þeirra. En undir niðri eru and-
stæður hagsmuna og hugsjóna
þær sömu, viðleitnin til að styrkja
stöðu sína á kostnað andstæðings-
ins óbreytt, heimurinn ekki frið-
samlegri en hann var fyrir tutt-
ugu og fimm árum síðan. Hafi
varnir, þátttaka í bandalögum og
tillit til nágranna áður skipt máli
fyrir öryggi lands og þjóðar er svo
enn, hvað sem andi undanláts-
seminnar kann að blása mönnum
í brjóst þá og þá stundina..
Hvað er unnl
að gera?
Við komum þá að þriðja atrið-
inu, sem ætlunin var að fjalla um
i þessu spjalli. Hvað er til ráða?
Hvernig á að bregðast við? Það er
rétt að lít'a á þetta atriði frá
tveimur hliðum, kanna annars
vegar hína tæknilegu hlið máls-
ins, hins vegar þær pólitísku for-
sendur, sem sérhver lausn verður
að byggjast á.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að miklar tæknilegar fram-
farir hafa á undanförnum áratug-
um átt sér stað í stjórn efnahags-
mála bæði í veröldinni yfirleitt og
hér á landi. Þessar framfarir eru
annars vegar fólgnar í þvi, að
allar upplýsingar eru nú miklu
fyllri en áður, mun áreiðanlegri
og berast fyrr en áður var. Hins
vegar eru framfarirnar fólgnar í
því, að fleiri tæki eru nú til reiðu
við stjórn efnahagsmála en áður
og meira er um það vitað, hvernig
þau verki. Slæmur árangur í
stjórn efnahagsmála bæði hér á
landi og annars staðar stafar ekki
af skorti á upplýsingum og skorti
á tækjum, heldur af þvi að þær
upplýsingar og þau tæki, sem fyr-
ir hendi eru, eru ekki notuð. Þeg-
ar um það er að ræða að vinna
bug á slikri verðbólgu og greiðslu-
halla, sem nú ríkir hér á landi, er
hins vegar ekki við lambið að
leika sér. Árangur getur ekki
náðst nema með víðtækum og
samræmdum ráðstöfunum í öllum
greinum efnahagsmála, þar sem
sérhver liður tengist öðrum eins
og hlekkir í keðju. Tilraunir til að
leysa vandann með einstökum og
einangruðum aðgerðum, með þvi
að ráðast að einu atriði, en láta
önnur eiga sig, að beita einu tæki
en ekki öðru, hljóta hins vegar að
renna út i sandinn.
Hætt er einnig við, að athyglin
beinist um of að yfirborði mál-
anna en ekki rótum vandans, og
þess vegna séu rangar leiðir farn-
ar og röngum tækjum beitt. Sér-
stök ástæða er í þessu sambandi
til að vara eindregið við einhliða
aðgerðum í verðlagsmálum eða
aðgerðum, sem fyrst og fremst
beinast að verðlagsmálum. Það er
eðlilegt, að í viðureign við verð-
bólgu beinist athyglin mjög að
sjálfu verðlaginu, en því má jafn-
framt ekki gle.vma, að í þróun
verðlagsins birtist niðurstaða
þeirra afla, sem verðbólgunni
stýra, og það er ekki unnt að ráða
niðurlögum þeirra afla með því
móti einu að varna þessum niður-
stöðum að koma í ljós. Heilbrigð
verðmyndun er ein af meginfor-
sendum heilbrigðs efnahagslifs
yfirleitt, og þvi skiptir miklu máli
að ráðstafanir gegn verðbólgu
verði ekki til að skekkja og trufla
heilbrigða verðmyndun. Eitt af
meginatriðunum í alhliða við-
námi gegn verðbólgu er því ein-
mitt að láta áhrif verðbólguþró-
unar koma í dagsljósið, en reyna
ekki að fela þau. Hitt er svo annað
mál, að tímabundin verðstöðvun
eins og framkvæmd hefur verið
oftsinnis bæði hér á landi og i
öðrum löndum, getur átt rétt á
sér, sem biðleikur, meðan viðnám
er enn ekki til staðar. En slikur
biðleikur er allt annars eðlis en
raunverulegt viðnám og spillir að-
eins fyrir árangri þess, ef litið er
á hann í nokkru öðru ljósi en
þessu.
Annað atriði, sem rétt er að
hafa hugfast, er nauðsyn þess að
allur almenningur öðlist trú á því,
að réttar ráðstafanir hafi verið
gerðar, að sú heildaráætlun, sem
unnið er eftir sé þess eðlis, að
fullur árangur geti náðst. Þessi
trú er í rauninni ein af forsendum
þess, að árangur náist. Þetta er
enn ein ástæða fyrir því, hversu
varasamar ófullkomnar og ósam
ræmdar aðgerðir eru. Þær geta
ekki náð tilætluðum árangri, en
grafa um leið undan tiltrú al-
mennings á því, að unnt sé að ná
slíkum árangri.
En í hverju á þá slik heildar-
áætlur. samræmdra aðgerða að
vera fólgin? Þetta verður ekki
tíundað hér enda er samning
slíkra tillagna ekki á annarra færi
en sérfræðinga, sem hafa öll
nauðsynleg gögn í höndum og
geta byggt á þeirri reynslu, sem
fengizt hefur af svipuðum aðgerð-
um bæði hér á landi og annars
staðar. Nokkur atriði er þó rétt að
nefna, fyrst og fremst til þess að
menn geti áttað sig á því, um
hversu vfðtækar og róttækar að-
gerðir hér hlýtur að vera að ræða.
Aðgerðirnar þurfa, eins og áður
er ságt, að ná til allra greina efna-
hagsmála. Þær þurfa að sjálf
sögðu að fela í sér endurskoðun á
útgjöldum ríkisins og raunar
einnig á tekjuöflun þess. Eins og
nú hagar til hér á landi ber brýna
nauðsyn til að stefnt sé að lækkun
rikisútgjalda í hlutfalli við þjóð-
artekjur. í nánu sambandi við
endurskoðun ríkisútgjalda hljóta
fjármál hvers konar fjárfesting-
arlánasjóða og fjáröflun til þeirra
einnig að koma til gagngerrar
endurskoðunar. í peningamálum
er óhjákvæmilegt, að um verulega
vaxtahækkun verði að ræða, enda
þótt slik hækkun ætti ekki að
þurfa að standa lengi, ef vel tekst
til. í launamálum er óhjákvæmi-
legt að samkomulag náist við að-
ila vinnumarkaðsins, launþega og
vinnuveitendur, og einnig við
bændur, um stefnu í launa- og
verðlagsmálum, er samrýmanleg
sé efnahagslegu jafnvægi. 1 því
sambandi hlýtur vfsitölubinding
launa og verðlagning landbúnað-
arafurða að sjálfsögðu að koma til
sérstakra álita
i þessu sambandi skipta áhrif
almennra aðgerða sem þessara á
lifskjörin miklu máli. Otti við slík
áhrif hefur áður orðið til að
seinka þvi, að nauðsynlegum að-
gerðu'm væri hrundið i fram-
kvæmd. Þannig var þetta bæði í
upphafi og við lok sjötta áratugar-
ins og enn við lok þess sjöunda.
Hér er að sjálfsögðu um eins kon-
ar skynvillu að ræða. Til lengdar
ákvarðast lífskjörin af fram-
leiðslu þjóðarinnar annars vegar
og viðskiptakjörum hennar við
aðrar þjóðir hins vegar. Andófið
gegn verðbólgunni stuðlar að því,
að framleiðslan geti orðið meiri
en ekki minni en ella hefði verið
og stuðlar þannig að bættum lífs-
kjörum en ekki lakari. En hafi
ráðstöfun verðmæta til neyzlu og
fjárfestingar um skeið verið meiri
en þjóðartekjur og heilbrigður
innflutningur fjármagns leyfði
hljóta nauðsynlegar ráðstafanir
til að stemma stigu við þessu m.a.
að koma fram i nokkurri skerð-
ingu fyrri lifskjara um sinn. Þetta
er að sjálfsögðu einn meginerfið-
leikinn við ráðstafanir af þvi tagi,
sem hér um ræðir. Lækningin
hefur í för með sér nokkurn sárs-
auka, þótt sá sársauki sé lítilfjör-
legur samanborið við afleiðingar
sjúkdómsins. Afþessum sökum er
þó sjálfsagt og nauðsynlegt að
einn liður hinna samræmdu að-
gerða sé fólginn í því að draga úr
þessum skammtima afleiðingum á
h'fskjör þeirra, sem sizt mega við
slíkum áföllum. Þetta var gert
hér á landi bæði 1960 og 1968, og
var ein af forsendum þess, að
árangur hei ldaraðgerðanna náð-
ist. Eðlilegast er, að beita skatta-
og tryggingakerfinu i þessu
skyni, enda þótt aðgerðir af öðru
tagi komi einnig til greina. Að því
leyti til erum við Islendingar nú
mun betur settir i þessu efni en
fyrir 15 eða 25 árum siðan, að
lifskjör þjóðarinnar eru miklu
betri en þá var, og timabundin
rýrnun þeirra kjara þvi mun létt
bærari en áður var. Þetta kont
raunar greinilea fram i þeim erf-
iðleikum, sem yfir landið gengu á
árunum 1967—'69.
Hér hefi ég aðeins stiklað á
nokkrum veigamestu atriðum
þeirra heildaraðgerða, sem nauð-
synlegar munu reynast; Hversu
miklu máli, sem það skiptir, að til
hinnar tæknilegu hliðar málsins
sé vel vandað, er hún þó tiltölu-
lega auðveld viðfangs, séu réttar
pólitiskar forsendur á annað borð
fyrir hendi. En hverjar eru þá
hinar pólitísku forsendur. Þær
eru i fyrsta lagi, að nægilegur og
almennur skilningur sé orðinn
fyrir þvi, að ekki megi halda
lengra áfram á braut undanláts-
seminnar. Þá fyrst, er stjórnmála-
menn verða varir við slikan skiln-
ing, er unnt að gera ráð fyrir, að
þeir öðlist kjark til þess að breyta
um stefnu og að þeir framsýnustu
þeirra beri gæfu til að taka þá
forustu, sem stjórnmálaleiðtogar
verða að geta veitt á tvisýnum
tímum. í öðru lagi er nauðsynlegt,
að nægilegur samstarfsvilji reyn-
ist vera fyrir hendi á milli stjórn-
málaflokka og hagsmunasamtaka.
Við slikar aðstæður sem þessar er
of mikið i húfi til þess að einstak-
ir stjórnmálaflokkar eða hags-
munasamtök geti vænzt þess að
skara eld að sinni köku. Hags-
munir heildarinnar, framtið
lands og þjóðar, verða að sitja í
fyrirrúmi. í þessu sambandi
skiptir ekki máli, hvort sú ríkis-
stjórn, sem forustuna hefur með
höndum, er meirihlutastjórn eða
minnihlutastjórn, stjórn eins
flokks eða samsteypustjórn nokk-
urra flokka eða ailra. Höfuðatrið-
ið er sá hugur, sem málinu fylgir,
sá andi, sem ríkjandi er.
En er þá þessi timi kominn? Er
búið að feta óheillabrautina nægi-
lega lengi? Eru augu manna að
opnast? Getur undanhaldið loks-
ins tekið enda og viðnátnið hafizt?
Um þetta ætla ég ekki að spá. Það
eru forustumenn stjórnmálanna,
sem lúðurinn verða að þeyta, el<ki
forustumenn neins einstaks
flokks, heldur forustumenn í öll-
um flokkum. sem á annað borð
hafa til að bera þann skilning og
þá víðsýni, sem nú er meiri þörf
fyrir en oftast nær áður.
Viljið þér gefa
skíðabakteríu
í fermingargjöf ?
Sá, sem fær skíðabakteríuna er þaðan af veikur — fyrir
heilbrigðu útilífi og líkamsrækt. Að öðru leyti styrkist
hann. Gefið fermingarbarninu skíðanámskeið í
Kerlingarfjöllum i sumar. Þaðan kemur það ekki án
skiðabakteriu, slíkur urmull sem af þeim er i fjallaloftinu
uppi við Hofsjökul.
skíðanámskeiðin í sumar:
Nr. Frá Rvík Dagafj. Tegund námskeiða Verð Án kennslu
1 19. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
2 24. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
3 29. Júnt 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00
4 4. Júlí 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 *) 14.500,00
5 10. J ú 11 6 dagar Fjölskyldunámskeið 13.800,00 2) 12.800,00
á 15. Júlí 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 14.500,00
7 21. Júlí 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 14.500,00
8 27. júlf 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 14.500,00
9 2. ágúst 4 dagar Alm. námsk. (skíðamót) 9.000,00 ■’)
10 6. Ágúst 6 dagar Almennt námskeið 13.800,00 12.800,00
n 11. Ágúst 6 dagar Unglingar 14—18 ára 10.800,00
12 16. Ágúst 6 dagar Unglinqar 14—18 ára 10.800,00
13 21. Ágúst 6 dagar Námsk. f. keppnisfólk 12.500,00
14 26. Ágúst 6 dagar Almennt námskeið 12.500,00
FEROASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5
Bókanir og miðasala:
OÍGA Útilif Glæsibæ
NlARSTRÆTI 5
Ath.biðjiðum
upplýsingabælding.
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum