Morgunblaðið - 23.03.1974, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 »
33
VIKUNNAR
Mánudagur
Soðin ýsa með hangikjötsfloti, hrátt salat,
eggjagrautur, (sjá uppskrift).
Þriðjudagur
Lifrarbuff með gulrótum f jafningi, (sjá
uppskrift), hrátt salat, möndluvanillubúð-
ingur með saft.
Miðvikudagur
Steikt lúða, hrátt salat, gulrótarsúpa með
heitu ostbrauði.
Fimmtudagur
Kjöthringur (kjötdeig) með hvítkálsjafn-
ingi, blönduð ávaxtasúpa með tvfbökum.
Föstudagur
Smásteik með sveppum (sjá uppskrift),
hrátt salat, hrisgrjónagrautur með saft og
kanil.
Laugardagur
Saltfiskbúðingur með hrisgrjónum, (sjá
uppskrift), hrátt salat, júgurð með
bananasneiðum.
Sunnudagur
Enskt buff (sjá uppskrift) með soðnum
kartöflum eða frönskum kartöflum, hrátt
salat, pönnukökur vafðar upp með van-
illuís.
Lifrarbuff
3 laukar, * 75 g smjörlíki, * 200 g lifur, *
200 g hráar kartöflur (flysjaðar), * 1
laukur, * 1 egg, * 1 tsk. salt, •* 1/4 tsk.
pipar.
Skerið laukinn f sneiðar og brúnið í
helmingi smjörlfkisins. Hreinsið lifrina og
flysjið Iaukinn. Hakkið lifur, kartöflur og
lauk í hakkavél. Hrærið egginu saman við
og kryddið. Brúnið hinn helming smjör-
lfkisins og látið lifrardeigið á pönnuna
með matskeið eins og lummur. Steikið
buffið í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Raðið síðan buffinu á fat og leggið lauk-
inn yfir.
Tilbreytni.
Berið lifrarbuff fram með soðnum
kartöflum og grænkáli, hvftkáli eða blóm-
káli í jafningi.
Umsjón:
Unnur Tómasdóttir
matreiÓslukennari
Smásteik með sveppum
3 laukar, •* 75 g smjörlíki, * um 400 g
nauta- eða kindakjöt, * 250 g sveppir,* 1
tsk. salt, * 1/4 pipar, * 1/4 tsk. paprika, *
2'á dl vatn eða soð, * 1 dl tómatkraftur eða
2—3 tómatar, * 1 dl rjómi, * 20—30 g
hveiti.
Skerið laukinn í sneiðar. Brúnið hann í
potti og takið hann upp. Skerið kjötið í
lengjur á stærð við litla fingur. Brúnið
það og takið það upp. Hreinsið sveppina sé
verið með nýja sveppi. Skerið hvern svepp
í 4 hluta og brúnið. Blandið öllu saman i
i pottinn. Látið krydd, vatn eða soð og
tómatkraft út f. Nýir tómatar eru skornir í
báta og látnir út i, 10 mín. áður en rétt-
urinn er tilbúinn. Sjóðið réttinn við væg-
an hita í um 3/4 klst. og látið rjómann
saman við. Þykkið soðið lítið eitt, en sósan
á að vera þunn. Bera má réttinn fram með
kartöflustöppu, soðnum hrisgrjónum eða
hveitibrauði.
Saltfiskbúðingur
með hrísgrjónum
100 g hrísgrjón, * 1/4 1 vatn, * 6 dl mjólk,
* 40 g smjörliki, * 2 egg, ★ 1/4 tsk. pipar, *
2 tsk. sykur, * 400—500 g soðinn saltfisk-
ur.
Saltfiskurinn soðinn, hreinsaðurog sax-
aður. Vatni og mjólk blandað saman og
hrisgrjónin soðin þar i 1/2 klst. Smjörlíki
látið í grautinn og hann kældur. Fiskur-
inn og kryddið látið saman við og eggja-
rauðurnar hrærðar i, ein og ein. Hrært um
stund. Þá er stifþeyttum eggjahvítunum
blandað saman við. Látið i smurtmótog
bakað í ofni i 3/4 klst. Borðað með hrærðu
eða bræddu smjöri. Gott er að hagnýta sér
leifar áf hrísgrjónagraut og saltfiski á
þennan hátt.
Enskt buff
um 600 g nauta-, folalda- eða hvalkjöt
(hryggvöðvar), * 1 tsk. salt, * 1/4 tsk.
pipar, * 3 laukar, * 75 g smjörlíki eða
smjör, * 3/4 dl vatn.
Matreiðið ekki enskt buff nema úr
meyru og safariku kjöti. Hreinsið burt
sinar og himnur úr kjötinu. Skerið kjötið i
2 sm þykkar sneiðar og berjið þær lítið
eitt. Hitið pönnuna vel og steikið buff-
sneiðarnar móbrúnar báðum megin á
þurri pönnunni. Takið sneiðarnar af og
stráið salti og pipar yfir buffið. Skerið
laukana í sneiðar og brúnið þá í helmingi
smjörlíkisins og takið upp. Steikið síðan
buffsneiðarnar í afg. smjörl. i 3—4 min. á
hvorri hlið. Raðið buffsneiðunum á fat og
leggið laukinn yfir. Hellið vatninu á pönn-
una, og látið sjóða i nokkrar minútur.
Berið soðsósuna með.
Tilbreytni:
Berið enskt buff fram með soðnum
kartöflum, frönskum kartöflum og ef til
vill steiktum eggjum eða steiktum svepp-
um.
Hvernig nýtum við
ostafganga?
Þurran ostafgang rifum við gjarnan
niður, þegar við höfum tíma til. Við setj-
um hann í glas með loki og notum hann í
ýmsa rétti t.d. makkrónurétti, eggjarétti,
ofan á ofnsteikta fiskrétti og ofan á brauð.
Ef við eigum nú 1 eggjahvítu í afgang, þá
þeytum við hana, blöndum saman við
hana 50 g af rifnum osti, skiptum þessu á
fjörar brauðsneiðar og stráum örlítilli
papriku yfir. Þetta er bakað i 15—20 min.,
þar til osturinn er gulbrúnn. Þetta má
gefa börnunum, þegar þau koma heim úr
skólanum, því alltaf er vel þegið að fá
eitthvað volgt.
Skipað í 3 norræn-
ar ráðgjafarnefndir
SKIPAÐ hefur verið í þrjár
norrænar nefndir, sem skulu vera
ráð- og hugmyndagefandi fyrir
ráðherranefndina og embættis-
mannanefndina, sem fjalla um
norrænt menningarmálasam-
starf. Eru nefndirnar á þremur
sviðum, 1 samræmi við deilda-
skiptingu Norrænu menningar-
málaskrifstofunnar f Kaup-
mannahöfn, þ.e. vfsindamálefni,
menntamál og almenn
menningarmál og listir.
Nefndirnar eru skipaðar til
tveggja ára, þ.e. árin 1974 og
1975.
Er þetta í annað skipti, sem
skipað er í þær; fyrst var skipað i
þær vorið 1972. Eru mikið til
sömu Islendingarnir i nefndun-
um og áður. í Visindanefndinni
eru dr. Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Árnastofnunar, og
dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur. í menntamálanefnd-
inni eru Guðmundur Arnlaugsson
rektor og dr. Þuríður
Kristjánsdóttir, sem tók sæti i
nefndinni i stað dr. Brodda Jó-
hannessonar. 1 nefndinni um al-
menn menningarmál eru Þor-
björn Broddáson lektor, Sveinn
Einarsson leikhússtjóri og Guð-
rún Jónsdóttir arkitekt, sem kem-
ur í stað Harðar Ágústssonar. i
nefndunum eru 2—4 fulltrúar frá
hverju Norðurlandanna.
SætaferS frá B.S.Í. kl. 9 og 10.
MissiS ekki af þessu einstæSa tækifæri.
UNGÓ UNGÓ
HAUKAR
Sætaferðir frá Umferðamiðstöðinni kl. 9.30.
Hlégarður
Stórkostlegt laugardagskvöld
GHANGEOð JÚDAS