Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 34

Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 34
Grótta eða Þróttur í 1. deild að ári Veitum Norðmönnum keppni Blaklandsleikir í dag og á morgun EKKI var sérlega gott hljóðið í fslenzku blaklandsliðsmönnun- um að lokinni síðustu æfingu liðs- ins fyrir Iandsleikinn við Norð- menn, sem fram fer á Akureyri í dag. Æfingin fór fram f íþrótta- húsinu f Hafnarfirði í fyrrakvöld. Verið vár að reyna nýja leikað- ferð, sem sænski blakþjálfarinn, sem var hér á dögunum, hafði kennt, en landsliðsmönnunum fannst hún ekki heppnast sem bezt á æfingunni, enda mátti glögglega sjá, að ekki var eins mikið spil í æfingaleiknum, sem landsliðsmenn tóku, og verið hef- ur í undangengnum leikjum í ís- landsmótinu. — Þessi leikaðferð, sem Svfinn var með, er sú, sem flestar þjóðir nota núna, sagði Anton Bjarnason fyrirliði landsliðsins. — Hitt er svo annað mál, að mér finnst við ekki hafa nægilega gott vald á henni. í sama streng tók Halldór Jónsson. Þeir félagar voru þó sammála um, að fyrsta stigið í þessari leikaðferð hefði tekizt all- vel á æfingunni. — Það er spurningin hvað við eigum að gera í landsleiknum, sagði Anton, og sfðan var rætt fram og aftur um, hvernig bezt væri að byrja i leiknum. Albert Valdimarsson fyrrver- andi formaður Blaksambandsins var meðal þeirra, sem fylgdust með æfingunni og hughreysti hann landsliðsmennina með því að segja, að löngum hefði verið sagt að það vissi á gott, ef menn væru ekki ánægðir með síðustu æfinguna fyrir leik. Æfingin i Hafnarfirði gekk ekki með öllu snurðulaust fyrir sig. Landsliðinu hafði verið heitið, að það gæti haft tíma í húsinu til klukkan 21.30, en fljótlega eftir að æfingin byrjaði komu aðrir íþróttamenn, sem töldu sig einnig eiga timann. Kostaði töluvert stapp fyrir landsliðið að fá að halda æfingu sinni áfram, og fór svo að lokum, að æfingin var styttri en vera átti — landsliðs- mennirnir urðu að rýma fyrir Gróttu og FH, sem léku þarna æfingaleik i handknattleik. Kom því þarna enn einu sinni fram sá gffurlegi skortur, sem er á íþróttahúsnæði á höfuðborgar- svæðinu, og stærð iþróttahúsanna er þannig, að ekki mun vera hægt að leika blak með góðu móti nema í þremur húsum. Um möguleika landsliðsins í leiknum á Akureyri í dag og Hafnarfirði á morgun er óhugs- andi að segja nokkuð. Blakíþrótt- in er ung íþróttagrein hérlendis, en í augljósri framför. Þessir landsleikir eru fyrstu stórverk- efnin, sem islenzkir blakmenn fá. Augljóslega mun þvt reynsluleysi há leikmönnunum. Landsliðs- mennirnir voru ákveðnir f að veita Norðmönnunum keppni, en á frammistöðu landsliðsins í þess- um leikjum mun ráðast, hvort ís- lenzka landsliðið verður sent til keppni á Norðurlandamótinu, sem fram fer í Finnlandi næsta haust. ÞRÓTTUR eða Grótta leika f Iþróttahúsinu í Hafnarfirði í dag kl. 18.00 um réttinn til að leika f 1. deildinni i handknattleik næsta vetur. Liðin urðu hnífjöfn að stigum í 2. deild og er þvf hér um hreinan úrslitaleik að ræða. Hvort liðið sigrar er spurning, sem ekki verður svarað fyrr en síðdegis í dag. Að ætla sér að spá um úrslit liðsins er út í bláinn, liðin eru jöfn að getu, þótt þau leiki ólfkan handknattleik. 1 1. deild karla fara fram þrír leikir um helgina, Þór leikur gegn Haukum á Akureyri í dag. í Laugardalshöllinni annað kvöld mætast fyrst Armann og Víking- ur, en siðan leika Fram og ÍR. Bæði verður barizt um fall og flutning í kvennahandknattleikn- um á Akureyri i dag. Breiðablik og Völsungur leika um sæti í 1. deild og Þór og Víkingur á botni 1. deildar. Þdrsliðið hlaut sín 2 fyrstu stig á miðvikudaginn, er það vann KR 10:9. Víkingsliðið hefur hlotið 4 stig, en ef það tapar i dag verður að fara fram auka- leikur milli liðanna um hvort þeirra hangir uppi. Blaklandsliðið sem leikur gegn Norðmönnum á Akureyri f dag og í Hafnarfirði ámorgun. Toppliðin í eldlínunni í körfunni FJÖRIR leikir fara fram f 1. deild Islandsmótsins í körfu- knattleik um helgina og má segja, að þessi helgi sé sú mest spennandi f mótinu til þessa. Þau lið, sem enn hafa ein- hverja möguleika á sigri í mót- inu, verða f eldlinunni og leika þar að auki innbyrðis. Þvf má allt eins búast við, að linurnar skýrist all verulega, hvað topp- baráttunni viðkemur. I dag klukkan 16 hefst í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi leikur ÍS og HSK og að honum loknum leika ÍR og Valur. Það er síðari leikurinn, sem mesta athygli vekur og erfitt að spá fyrir um úrslit, þó svo að ÍR hafi unnið stórsigur gegn Val í fyrri umferðinni. Á morgun kl. 18 hefst leikur ÍS og UMFN og að honum loknum leikur erkifjendanna KR og Ármanns. UMFN vann fyrri leik sinn gegn ÍS, en kæra ÍS frá þeim leik hefur enn ekki verið afgreidd. Leikir KR og Ármanns hafa ávallt verið hnífjafnir, t.d. sigraði KR i fyrri umferðinni með aðeins þriggja stiga mun. Nú eru Ármenningar með íslands- bikarinn í sjónmáli í fyrsta skipti í mörg ár og kunna því að reynast KR-ingum enn erfiðari en ella. Oánægðir með árangurinn KEPPNINNI í 1. deild ís- landsmótsins í handknatt- leik lýkur formlega á mið- vikudaginn í næstu viku með leik Vals og FH í Laug- ardalshöllinni. I rauninni hefur þó öllum spurning- um í sambandi við 1. deild- ina þegar verið svarað. Ljóst er, að Þór fellur nið- ur í aðra deild, FH er meistari með miklum glæsibrag, Valur verður í öðru sæti og Fram.í því þriðja. Þá er einnig nokk- urn veginn öruggt, að Axel Axelsson verður marka- kóngur þessa móts. Eftir leik Vals og Fram, sem fram fór á miðvikudaginn, feng- um við þá ÞórA Sigurðsson for- mann handknattleiksdeildar Vals og Sigurð Eihársson þjálfara Framara til að' svara tveimur spurningum, þetsri fyrri um ár- angur félags þeMit,á- i íslandsmót- inu og þeirri sfiWr um næsta Is- landsmót. FaraÖáfcgH þeirra hér á eftir. Jwm.* Þórður Siguf#ss«ti: Evrópu- keppnin fór i llVWffr ökk ur. — Mér finnst handboltinn hafa verið það lélegur í vetur, að ekki sé merkur árangur i sjálfu sér að verða í öðru sæti. Liðin hafa verið lakari en undanfarið, niðurröðun og dómaramál i miklum ólestri. Valsliðið byrjaði æfingar mjög snemma vegna Evrópukeppninn- ar og var komið i toppæfingu i byrjun september. Þegar kom svo fram í íslandsmótið fór að koma í ljós þreyta hjá leikmönnum og þeim tókst ekki að halda sér á toppnum, ég er ekki i minnsta vafa um, að Evrópukeppnin fór illa með okkur. —Eg á ekki von á að miklar breytingar verði á Valsliðinu næsta vetur og reikna með, að fleistir þeir sömu leiki með liðinu áfram. Þá kemur Bjarni Jónsson að nýju í liðið og styrkir það án efa svo ég er ekki í minnsta vafa um, að Valur verður í toppbarátt- unni næsta vetur og vonandi tekst liðinu að endurheimta Islands- meistaratitilinn. Sigurður Einarsson: Þriðja sæt- ið kallast slakt hjá Fram. — Eg er ekki ánægður með frammistöðu Framliðsins í vetur og kemur margt til. Fjarvera landsliðsmanna frá æfingum með liðinu kom illa niður á okkur, þegar þeir komu til baka voru þeir þrekminni og úr sambandi við leikaðferðir liðsins. Veturinn var þó ekki með öllu vonlaus hjá okkur, Fram varð Reykjavíkur- meistari nú, en ekki keppnistíma- bilið þar á undan. Þá er þriðja sætið í islandsmótinu ekki svo slakt, þó að það þyki ekki góður árangur i herbúðum Framara og vissulega ætluðum við okkur meira. — Erfitt er að segja fyrir um, hvað Framliðið gerir næsta vetur. Fyrirsjáanlegt er, að tveir af burðarásunum í liðinu verða ekki með, þeir Ingólfur Öskarsson og Axel Axelsson. Ingólfur mun að öllum lfkindum leggja skóna endanlega á hilluna og Axel ætlar sér til Þýzka- lands. Ekki er þó þar með sagt, að Framliðið detti niður næsta vetur. Margir góðir leik- menn eru eftir í liðinu og svo á Fram 5 leikmenn í unglingalands- liði, pilta, sem svo sannarlega hafa hæfileika til að verða topp- menn I íþróttinni. — Ég tel, að Valur, Fram og Víkingur hafi ekki haft síðri lið- um á að skipa í vetur en íslands- meistarar FH. Það, sem gerði gæfumuninn FH-ingum í vil, var, að þeir urðu ekki eins illa fyrir barðinu á landsliðinu. Við verð- um að vona, að Fram verði með í baráttunni næsta vetur, en per- sónulega hef ég mesta trú á Vik- ingsliðinu. RÆTT VIÐ SIGURÐ EINARSSON, FRAM, 0G ÞÓRÐ SIGURÐSSON, VAL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.