Morgunblaðið - 16.05.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAl 1974
5
Borgarstjóri svarar
Hringið í síma
10100 - kl. 10-11
Til kjördags svarar
borgarstjórinn í
Reykjavík fyrirspurn-
um borgarbúa um mál-
efni Reykjavíkur.
Lesendur Mbl. eru
hvattir til að hringja í
síma 10100 kl. 10-11
fyrir hádegi.
Viðhald
og frágangur
bílastæða
Leifur Björnsson, Hjaltabakka
28, R.
„Væri mögulegt að vélamiðstöð
Reykjavíkur sendi veghemil ein-
stöku sinnum á bilastæðin f hverf-
inu, að sjálfsögðu gegn greiðslu
húsfélaganna? Eru ekki einhver
ákveðin tímatakmörk því sett
hvernær lokið þurfi að vera mal-
bikun bílastæða við hús)“
Svar borgarstjóra:
„Fyrirspyrjanda er bent á að
hafa samband við gantamála-
stjóra eða yfirverkfræðing hans,
Skúlatúni 2, og verða þá bílastæð-
in hefluð á kostnað eigenda
þeirra.
í skilmálum, sem lóðarhöfum
voru settir i þessu borgarhverfi,
var ekki skilyrði sett um, að bíla-
stæði yrðu malbikuð. Hins vegar
skyldu lóðarhafar hafa gengið frá
staðnum með undirlagi úr grús
eigi síðar en húsin voru tekin í
notkun."
Vínveitingahús
við
Hallveigarstíg?
Erla Bjarnadóttir, Hallveigar-
stíg 9, R.
„Er meiningin hjá borgaryfir-
völdum að leyfa vfnveitingastað í
nýja iðnaðarmannahúsinu að
Hallveigarstíg 1?“
Svar borgarstjóra:
„Dómsmálaráðuneytið veitir
vínveitingaleyfi að fenginni um-
sögn borgarstjórnar. Beiðni um
slíka umsögn hefur ekki borizt og
málið hefur því ekki verið rætt í
borgarráði eða borgarstjórn.“
Skólabörn-
um boðið á
norrænt
námskeið
Afengisvarnaráðið norska býð-
ur fslenskum skólamönnum að
taka þátt f tveimur námsskeiðum
í júní og júlí n.k. Boðið er þremur
þátttakendum á hvort námsskeið.
Námsskeiðstfmi er ein vika. Uppi-
hald er ókeypis. Auk þess fá þátt-
takendur 300 norskar krónur í
ferðakostnað.
Námsskeiðin eru þessi:
1. Gagnfræðaskólinn og fíkni-
lyf javandamálin. Mótsstaður:
Ásane Folkehögskolo við Bergen.
Námsskeiðið stendur yfirdagana
6.—12. júnf.
2. Kennsla um fíknilyf á
skyldunámsstigi. Mótsstaður: Sol
hof Folkehögskole, Lyngseidet, (f
grennd við Trömsö). Námsskeiðið
stendur yfir dagana 28. júnf til 5.
júlí.
Vinnuform á báðum náms-
skeiðunum: Fyrirlestrar, samræð-
ur, flokkavinna og kynning á
kennslutækjum.
Skólamenn, sem hug hafa á að
sækja námsskeið þessi, tilkynni
þátttöku sína eigi sfðar en 25. maí
n.k. til skrifstofu Áfengisvarna-
ráðs.Eiríksgötu 5, Reykjavík.
(Frá Bindindisfélagi fslenskra
kennara).
Endursala íbúða
r
við Asgarð og
1 Bústaðahverfi
Magnea Magnúsdóttir, Ásgarði
163, R.
„Hérra borgarstjóri. Vegna fyr-
irspurnar, sem lögð var fyrir yður
á hverfafundi í Glæsibæ 5. maí í
sambandi við að íbúðir f Bústaða-
hverfi og raðhúsahverfi við Ás-
garð yrðu gefnar algjörlega frjáls-
ar á sölumarkað eftir 20 ára btí-
setu f þessum húsum, vil ég
spyrja hvort svar yðar hafi
þannig verið rétt skilið?"
Svar borgarstjóra:
„Svar mitt hefur ekki verið rétt
skilið, a.m.k. ekki að öllu leyti. A
fundi borgarráðs 19. marz si. var
rætt um forkaupsréttborgarinnar
á fbúðum, sem Reykjavíkurborg
hefur byggt og selt með hagstæð-
um kjörum. Borgarráð samþykkti
að halda forkaupsrétt á umrædd-
um fbúðum. Hins vegar sam-
þykkti borgarráð einnig að rýmka
ákvæði, sem áður voru f gildi um
endursöluverð fbúðanna, og fela
hinar nýju reglur í sér, að aðili,
sem átt hefur slíka ibúð í 20 ár,
getur notið verðhækkunar á verði
allrar fbúðarinnar við sölu, ef
hann greiðir eftirstöðvar lána til
borgarsjóðs að fullu. Með þessu
móti hafa borgaryfirvöld gengið
verulega til móts við óskiríbúðar-
eigenda, sem Hafa með réttu talið,
að verðmæti íbúðanna við sölu
hafi ekki verið f samræmi við
gangverð áfrjálsum markaði."
Getur borgar-
stjórn haft áhrif
á útvarpsráð hvað
snertir stereó-
útsendingar?
Einar Mýrkjartansson, Klepps-
mvrarvegi 4, R.
,íig vil í fyrsta lagi færa borgar-
stjóra þakkir fyrir vel unnin
störf, — einnig fyrrverandi borg-
arstjóra.
Telur borgarstjórn sig geta haft
áhrif á útvarpsráð, þannig að
hafnar verði stereóútsendingar?
Að mfnu áliti er þetta beint
hagsmunamál borgarbúa."
Svar borgarstjóra:
„Ég skil vel, að fyrirspyrjandi
hafi áhuga á, að ríkisútvarpið taki
upp stereóútsendingar og tel það
raunar vera áhugamál allra lands-
manna.
Hins vegar verð ég að telja hæp-
ið, að útvarpsráð sjái sér fremur
unnt að gera umrædda breytingu,
þótt tilmæli eða áskorun berist
frá borgarstjórn um þetta efni,
enda hlýtur útvarpsráði að vera
um það kúnnugt, að hlustendur,
hvar sem er á landinu, myndu
fagna stereóUtsendingu."
Bláfjöll
Guðjón Marteinsson, Hraunbæ
44, R.
„Fyrir hvaða framkvæmdun
ætlar borgin að beita sér i Blá-
fjöllum fyrir næsta vetur?“
Svar borgarstjóra:
„Samvinnunefnd sveitarfélaga
um fólkvang í Bláfjöllum hefur
umsjón með þessum framkvæmd-
u'm og hefur f þvi sky ni ti 1 ráðstöf-
unar kr. 8.0 millj. á þessu ári.
Snemma á liðnu vori var lokið
við lögn rafstrengs á skíðasvæðið
og er ætlunin að setja upp tvær
skíðalyftur fyrir næsta vetur. Þá
er einnig ætlun nefndarinnar að
lagfæra veginn upp í fjöllin á
þeim köflum, sem hann er ekki
þegar upphleyptur og snjóar loka
honum lengst."
Skólabörn og
strætisvagnar
Ólöf Jónsdóttir sagðist spyrja í
nafni íbúanna íTúnunum:
Það mun hafa verið i tíð fyrir-
rennara Birgis Isleifs borgar-
stjóra, að hann var beðinn og hon-
um sent bænaskjal þar að lútandi,
að koma því til leiðar, að börnin
úr þessu hverfi geti notað leið 4
vegna skólagöngu sinnar í Laug-
arnesskóla. Þetta skjal langar mig
til að spyrja um, um leið og ég
ftreka hér með undirskrift mfna á
því, sagði Ólöf Jónsdóttir.
S var borgarstjóra:
„Við breytingu á leiðakerfi
S.V.R. var sú ákvörðun tekin að
hætta að láta leið nr. 5 ganga um
Túnahverfið, en ástæðan tii þess
var sú, að f samræmi við aðal-
skipulag borgarinnar er Sigtún
slitið úr sambandi við Kringlu-
mýrarbraut. Rétt er, að við þessa
breytingu, sem talin var óh já-
kvæmiieg, varð samgangur rr.illi
Laugarnesskóla og Túnanr.a lak-
ari en áður. Hins vegar er rétt að
benda á, að unnt er nú að taka
leið nr. 4 á horni Nóatúns og
Miðtúns að horni Sundlaugavegar
og Laugarnesvegar og stytta
þannig gönguleiðina i skólann um
nær helming."
Gallabuxur
frá Levis úr ekta
þykku denim.
Buxur sem alltaf
eru í tízku.
Nýkomnar buxur úr
sléttu flaueli.
Terylenebuxur
í Ijósum
sumarlitum.
Frotté bolir.
Einlitir
bómullarbolir.
Röndóttir bolir.
Leðurjakkar.
Skyrtujakkar
úr sléttu flaueli.
Herraskyrtur.
Dömu- og herra-
peysur.