Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 13

Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JUNÍ 1974 13 Samvinnutryggingar: Hagnaður 1% af veltu AÐALFUNDIR Samvinnutr.vgg- inga, Líftrvggingafélagsins And- vöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga hf. voru haldnir f.vrr í þessum mánuði. í Asgeir Magnússon kveður sam- starfsmenn sína hjá Samvinnu- tryggingum á aðalfundi félagsins f.vrir skömmu. skýrslu Erlends Einarssonar for- stjóra kom m.a. fram aó heildar- iógjaldatekjur Samvinnutr.vgg- inga námu 661,8 milljónum króna á árinu 1973, sem var 27. reikn- ingsár félagsins. Höfóu iógjöldin aukizt um 38,7 milljónir króna eða tæp 10% frá fyrra ári. Heildariógjaldatekjur Líf- tr.vggingafélagsins Andvöku námu kr. 15,6 milljónum og höfóu aukizt um 3,9 milljónir eða 32,8% frá 1972. Andvaka varó 25 ára 9. þessa mánaóar og í tilefni af þvf ákvaó stjórn félaganna aó afhenda Krabbameinsfélagi ís- lands og Hjartavernd hundraó þúsund krónur hvoru félagi aó gjöf. Iógjaldatekjur Endurtr.vgg- ingafélags Samvinnutrvgginga hf. námu 217,5 milljónum króna 1973 og var aukningin 118,9% frá fyrra ári. Iógjaldatekjur allra félaganna námu því samtais á árinu 1973 kr. 894.9 millj. á móti kr. 714.2 millj. árió 1972, og höfðu þvf aukizt um kr. 180.7 millj. eöa rösk 25%. Kappreiðar og firma- keppni í Hafnarfirði HESTAMANNAFÉLAGIÐ Sörli í Hafnarfiröi efndi til kappreiða og firmakeppni á skeiðvelli félagsins við Kaldárselsveg laugardaginn 25. maí sl. í firmakeppninni var keppt í þremur flokkum, karla-, kvenna- og unglingaflokki. Bezti hestur- inn í karlaflokki var dæmdur Gráni Sigurjóns Jónssonar, sem keppti fyrir Hamrakjör, Suður- veri. í kvennaflokki varð hlut- skarpastur Tvistur Elísabetar Gunnarsdóttur sem keppti f.vrir bifreiðaleiguna Vegaleiðir, og í 30 ára — Hús- mæðraskólinn á Löngumýri Mælifelli, 31. maí. ÞRJATIU ára afmælis Hús- mæðraskólans á Löngumýri var minnzt með hátíðarhöldum sunnudaginn, 26. maí. Kvöldið áð- ur höfðu 60 konur komið á stað- inn, gamlir nemendur, og gistu þar og í nágrenninu. Samkomunni, sem hófst í Mið- garði. stýrði fr. Margrét Jónsdótt- ír skólastjöri. Rakti hún sögu skólans frá upphafi og ræddi við neinendur frá f.vrri tíð, einnig flutti hún kveöjur Hólmfriðar Pétursdöttur fv. skólastjöra. Séra Erlendur Sigurmundsson formaður skölanefndar flutti kveðjur biskups og kirkjuráðs og færði hann skólanum bókagjöf frá þessum aöilum. Frú Emma Hansen fór með frumort Ijóð. Jón H. Jónsson söng einsöng, en al- mennur söngur var milli atriða. Kveðjur fr. Ingibjargar Jóhannes- dóttur stofnanda skólans og lengst af skölastjóra flutti Sigur- bjiirg Eggertsdóttir, en Ingibjörg og Bjiirg Jóhannesdóttir kennari gáfu skólanum forkunnarfagra kertastjaka. Nemendasambönd skólans norðan- og sunnanlands og núverandi kennarar gefa skól- anum pianó. Tvö hundruð manns voru í Miö- garði og var öllum boðið til kaffi- drykkju á Löngumýri, en þar var einnig handavinnusýning nem- enda. Fleiri bættust í hópinn, er á leið kvöldið svo alls hafa verið um 300 gestir. Skólinn starfar næsta vetur á svipaðan hátt og áður og er þess vænzt, að umsöknir berist sem fyrst. Síra Agúst. unglingaflokki Blesi Birgis Arn- ars Birgissonar, en hánn keppti fyrir Glóbus h/f. I kappreiðunum urðu úrslil sem hér segir: I 250 m skeiöi sigraði Hvinur Sigurðar Sæmundssonar á 25,8 sek. I 300 m stökki varð Blesa Petrúnar Magnúsdóttur hlutskörpust á 24,0 sek. I 250 m folahlaupi sigraði Ör Kristjáns Guðmundssonar á 21,2 sek. Framkvæmdir hafnar við Mjólkárvirkjun Patreksfirði, 31. maf. ÍSTAK h.f. hefur nú á ný hafiö framkvæmdir vió Mjólkárvirkj- un, en stækkun virkjunarinnar á að Ijúka á næsta ári. Einnig er haíinn undirbúning- ur að þjóðhátíö Vestfirðinga, sem haldin verður í Vatnsdal í Baröa- strandarsýslu 13. og 14. júlí n.k. Umferð á veguin er hér óvenju mikil miðað við árstfma. Hótel Flökalundur hefur þegar opnað og Bjarkalundur er í þann veginn að opna. Páll. Heildartjón Samvinnutrygg- inga, greidd og áætluð ógreidd, námu samtals kr. 506.5 millj., og varð tjónaprósentan 76,54% á móti 63.63% árið 1972. Verulegur halli varð á bifreiðatryggingum áttunda árið í röð og óvenjulega slæm útkoma og tap varð á fiski- skipatryggingum og slysátrygg- ingum bátasjómanna vegna mik illa skipstapa og fjölda sjóslysa. Þrátt fyrir aukin tjón í þessum greinum og hækkandi reksturs- kostnað varð hagnaður af rekstri Samvinnutrygginga, sem aö vísu nam ekki nema rúmu 1% af heildariðgjaldatekjunum, og verður endurgreiddur tekjuaf- gangur til tryggingatakanna kr.6.435.000,-. Með þessari endurgreiðslu tekjuafgangs hafa Samvinnu- tryggingar samtals endurgreitt þannig til tryggingatakanna kr. 97 milljónir, frá því fyrst var hafin endurgreiðsla tekjuafgangs fyrir 25 árum síðan, en upphæðin næmi tæpum 500 milljónum króna, ef hún væri reiknuö út miðað við raungildi peninganna á hverjum tíma. Sjóðir Samvinnutrygginga, þ.e. iðgjalda- og tjónasjóðir, fyrninga- sjóður fasteigna. varasjóður, höfuðstóll og eigið tryggingafé, námu i lok ársins 1973 kr. 545.6 rnillj. á móti kr. 485,8 millj. í árslok 1972. Tryggingasjóður Andvöku nam i árslok 1973 kr. 38,5 millj. og bónussjóður kr. 9,7 millj. Saman- lögð tryggingaupphæð i gildi hjá félaginu í árslok 1973 var kr. 2.974 milljónir. Eins og kunnugt er, lét Asgeir Magnússon, sem verið hel'ur framkvæmdastjóri félaganna um 16 ára skeið, af störfum 15. þ.m. A fundinum og í hófi, sem stjórn félaganna hélt fulltrúaráðsmönn- um og nokkrum gestum að honum loknum, flutti stjórnarformaður félaganna, Erlendur Einarsson, Ásgeiri sérstakar þakkir fyrir góð störf i þágu félaganna og óskaði honum allra heilla í nýju starfi. Jafnframt óskaði hann hinum nýju framkvæmdastjórum félag- anna, þeim Hallgrími Sigurðssyni og Jóni Rafni Guðmundssyni, far- sældar í störfum. í stjörn félaganna voru endur- kjörnir þeir Erlendur Einarsson forstjórí, Reykjavík, formaður. Ingólfur Olafsson kaupfélags- stjóri, Kópavogi, og Ragnar Guð- leifsson kennari, Keflavík. Aðrir i stjórn eru Jakob Frímannsson. fyrrv. kaupfélagsstjóri, Akureyri, og Karvel Ögmundsson útgerðar- maður, Ytri-Njarðvík. Sæti á aðalfundi þessara félaga áttu nú i f.vrsta sinn tveir full- trúar starfsmanna félaganna. Fyrsta skóflustungan tekin að þörungaverk- smiðjunni á Reykhólum Króksfjarðarnesi 31. mai. I DAG var tekin fyrsta skóflu- stungan að verksiniðjuhúsi Halidór H. Jóns- son formaður Eimskipafélagsins Á FYRSTA stjórnarfundi nýkjörinnar stjórnar Eiin- skipafélags Islands, sem haldinn var í gær, var Hall- dór H. Jónsson kosinn for- maöur félagsins og aðrir í stjórn eru: Birgir Kjaran varaformaður, Pétur Sig- urðsson gjaldkeri og Thor R. Thors ritari. Þörungavinnslunnar hf. í Karlsey á Reykhólum. Stjórn Þörunga- vinnslunnar hf. ásamt hrepps- nefnd Reykhólahrepps var við- stödd. Ræður voru fluttar og kom þar fram, að fjármagn er trvggt tii byggingar á mannvirkinu. Þórisós hl'. sér um grunnmann- virki, en verksmiðjuhúsið veröur innflutt stálgrindarhús. Vegagerð ríkisins sá um vegagerö út i Karls- ey og stóðust framkvæmdir því að í fyrradag óku fyrstu bílarnir út i eyna. en hún er tæplega 3 km frá Kevkhólum. Jarðboranir ríkisins byrja eftir hvitasunnuna að bora eftir heitu vatni og þá koma einn- ig menn frá vita- og hafnarmála- stjórn til þess að leggja síðustu hönd á undirbúning að fyrirhug- aðri hafnargerð i Karlse.v. — Fréttaritari. Paul-Emile Vietor. Með annan fótinn á suðurpólnum Rætt við Frakkann r Paul-Emile Victor heimskautakönnuð FYRIR nokkru var staddur í Reykjavík gamall Islandsvinur og kunningi fjölmargra hér á landi, franski heimskautafar- inn Paul-Emile Victor, sem í þetta sinn var á stuttri ferð hér vegna rannsóknastarfa á Græn- landi. Victor kont fvrst til ís- lands árið 1948 á leiö til Græn- lands og var hér við og viö næstu árin vegna starl'a sinna. Þeir, sem komnir eru yfir miðj- an aldur, muna eflaust eftir samstarfi hans við Loftleiða- menn um flug með birgðir upp á Grænlandsjökul, . þar sem hann og leiðangursmenn hans höfðu bækistöð. Vietor minnist enn þessara ára með hlýjum hug og á góðar minningar um samvinnuna við Alfreð Elías- son, Magnús Guðmundsson, Þorstein Jónsson og fleiri flug- kappa frá þessum tíma. Victor stofnaði frönsku heim- skautarannsóknastöðina 1947 og hefur veitt henni forstöðu síðan. Eg spurði hann fyrst, hvað hefði ráðið því. að hann valdi sér þetta óvenjulega ævi- starf. — Ég hef haft áhuga á heim- skautaferðum frá þvi ég var barn, þá ias ég um f.vrri heim- skautafara, Nansen. Aamund- sen og fleiri og varð staðráðinn í að gerast heimskautakönnuð- ur. Ég er ættaöur frá Júrafjöil- unum f Frakklandi, þar sem faðir minn rak litla verksmiöju. sem framleiddi pípur og blek- penna og við þeirri verksmiðju hefði ég getað tekið, en i stað- inn fyrir að verða pípu- og pennaframleiðandi varð ég pól- fari. F.vrst fór ég til Grænlands 1934 og var siðan í þrjú ár í Angmagsalik fyrir stríð. I stríð- inu var ég í Alaska og vann með Bandarikjamönnum á heim- skautasvæðunum þar, en eftir stríð hef ég verið með annan fötinn á suðurskautinu, hef siglt 29 sinnum á milli Astralíu og suðurpólsins og aðeins í þrjú skipti fengið sæmilegt veður. I öll hin skiptin hefur það verið afleitt. — Eruð þið ekki stundum gagnrýnsir fyrir að stunda óhagnýtar rannsóknir á suður- skautinu? — Jú, það kemur auðvitað f.vrir. Frakkar hafa haft mann- aða stöð allt árið um kring á suðurskautinu frá 1956 og hef ég borið ábyrgð á því starfi og stundum erum við gagnrýndir f.vrir að vinna ekki nógu hagnýt störf. En þessi gagnrýni missir marks og ég get nefnt mörg dæmi um hagnýtan árangur af starfi okkar bæði þar og á Grænlandsjökli. Enginn hag- nýtur árangur næst af neinu starfi án grundvallarrann- sókna. Því meira sem við lær- um, því minna vitum við i raun og veru. Nýjar spurningar vakna stöðugt við allt nýtt. sem lærist. — Geturðu nefnt dæmi um rannsóknir ykkar. sem þýðingu heföi fyrir íslendinga? — Það er auövelt. Boruð hef- ur verið 2200 metra hola í Grænlandsjökul og tekið sýni. sem gefur mvnd af veðurfræði- legri sögu jarðkringlunnar síð- astliðin 110 þúsund ár. Af þessu sýni má draga þá álvkt- un, aö veðurfar á jörðinni verði kaldara næstu áratugi en verið hefur. vetur lengri og kaldari. snjókoma meiri o.s.frv. Þetta verður ekki ný ísöld. en senni- lega um 40 ára langt tímabil. þar sem hiti verður talsvert lægri en undanfarna áratugi. Það er t.d. ekki útilokaö. að á þessum tima muni syðstu út- jöklarnir í Vatnajökli skríða fram i sjó. Segiö svo. að þessar rannsóknir hafi ekki hagnýta þýðingu. Victor fer nú að nálgast sjö- tugt og segist hafa hug á því að draga sig í hlé, hætta heim- skautaferðunum. Hann ætlar að setjast að á smáey. sem hann á í K.vrrahafinu nálægt Tahiti. mála og skrifa bækur og helga sig konu sinni og ungum svni. I lok samtals okkar bað Vietor fyrir kærar kveðjur til allra sinna eldri kunningja, sem hon- um gafst ekki tækifæri til að hitta. -GHH.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.