Morgunblaðið - 06.06.1974, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.06.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1974 1 *7 brúnum jarðarlitum f Þrymheimum. Og að sjálfsögðu láta þursar og þursameyjar meira en æsir og ásynj- ur. Æði Ifflegt f höllu þursans Þryms. — Sagan sjálf er skemmtileg og dramatfsk, létt gamansaga, segir Þórhallur Sigurðsson. Jóni hefur vfða tekizt mjög vel að ná þvf. Kór- inn á stóru hlutverki að gegna ! óperunni. Það er meira á hann lagt en venja er. Það gerir sviðsetning- una nokkuð sérstætt verkefni. Það þarf að virkja kórinn mikið ! erfiðum leik. Jón hefur fellt efnið meistara- lega saman f heild. Þetta er mjög lifandi sýning. Óhætt er að taka undir það. I sfðasta þættinum f Jötunheimum er til dæmis mjög haganlega ofinn tregabundinn texti Völundarkviðu ærslum og látum, sem á eftir fara, þegar Þrymur fagnar Freyju, sem er Þór dulbúinn. Og þessum spreng- hlægilega hraða þætti lýkur með speki úr Hávamálum, og lokaorðum: Svo kom Óðins sonur endur að hamri. Góður gestur hefur komið til fs- lands til að vera með i þessum merk- isatburði f fslenzku tónlistarlffi, Ólaf- ur Þ. Jónsson, sem undanfarin 10 ár hefur sungið f óperum f Lubeck, Hamborg og Mainz, þar sem hann er nú ráðinn og fer aftur þangað f ágúst. Hann kom 15. maí til æfinga og þykir mjög skemmtilegt að fá þetta tækifæri. En Ólafur er fslenzk- um leikhúsgestum ekki alls ókunnur. Hann var í leikskóla Þjóðleikhússins og lék hér ! 2 ár áður en hann fór utan, söng þá m.a. í óperettunni Brosandi land. — Þessi ópera er nokkuð ólfk þeim óperum, sem ég hefi verið að syngja f, segir Ólafur. Hún er í sér- stökum fslenzkum stfl. Músikin er geysilega góð. Örugglega á hún eftir að heyrast vfðar. Hvort hún verði hugsanlega til útflutnings? Ég reikna með þvi, ef réttir menn komast i kynni við hana. Ekki kvaðst Ólafur geta gefið svar við þvf hvort þetta sé e.t.v. upphafið að þvf, að hann fari að koma heim. Enda ekki hægt að bera upp slfka spurningu meðan aðstæður eru slfk- ar. Guðrún Á. Sfmonar er Freyja f óperunni. Meðan leiksviðsstjórar leiðbeina kórnum á sviðinu, náum við tali af henni andartak. — Mér finnst þetta stórkostlegt verk, svarar Guðrún um hæl. Þarna ætti að vera eitthvað til útflutnings. Ég er dálítið stolt af þvf. Við fs- lendingar höfum aldrei átt svona óperu. Ég er nokkuð seintekinn á nýja músik, en mér finnst þetta gott. Jú, ýmsir hljómar eru erfiðir að syngja, og eins og alltaf, þá höfum við of iftinn tlma til undirbúnings. Eftir ár verður þetta orðið gott. Það gerir kannski ekkert til. Þrymskviða á sjálfsagt tfma fyrir sér að slfpast. Þarna er fslenzk ópera, sem ætti að vera á sýningarskrá á hverju ári. Þarna er komið eitthvað, sem við getum verið svolftið stolt af, eins og hún Guðrún segir. Og má mikið vera ef svo aðgengilegt og skemmtilegt efni á ekki eftir að ná til leikhúsgesta og verða þeim kært. — p Di lllt er með ásum illt er með álfum ás er stolinn hamri Reiður var þá Vingþór er hann vaknaði og síns hamars saknaði Það eru ill tfðindi, sem Loki (Ólaf- ur Þ. Jónsson) færir ásum og ásynj- um (Þjóðleikhúskórnum) f Ásgarði, ’orsteinn Hannesson leiðbeinir Ólafi Þ. Jónssyni um staðsetningu á sviðinu. Á bak við er kórinn f búningum ása ig ásynja. Esir og ásynjur á þingi, fremst Loki (Ólafur) Heimdallur (Magnús) og Þór (Guðmundur). Tónskáldið Jón Ásgeirsson og dóttir hans, sem komin var f heimsókn á æfinguna. hamar Þórs horfinn. En það eru ekki sfður mikil tfðindi að gerast f Þjóð- leikhúsinu. Þar er verið að færa upp Þrymskviðu, nýja verðlauna óperu eftir Jón Ásgeirsson, tónskáld, sem frumsýna á föstudaginn 14. júnf á listahátfð. Þetta er fyrsta fslenzka óperan, runnin úr alfslenzku efni, fornsögum okkar, eftir fslenzkan nú- tfmahöfund. — Óperan getur orðið prófsteinn á það hvort þessir gim- steinar okkar eins og Eddukvæðin, eiga að geymast eins og forngripir f glerkassa eða geta verið lifandi list f nútfmanum, eins og Þorsteinn Hannesson sagði. En Þorsteinn, sem sungið hefur í yfir 30 óperum sjálfur úti f heimi, er nú að setja upp óperu f fyrsta skipti með aðstoðarleikstjórn Þórhalls Sigurðsson'ar leikstjóra. Og Haraldur Guðbergsson, sem les- endum Mbl. er kunnur frá þv! hann teiknaði einmitt þessa sömu Þryms- kviðu sem myndasögu f Lesbók, ger- ir þarna leikmynd f fyrsta sinn. Ólafur Þ. Jónsson, sem f 10 ár hefur sungið fyrir Þjóðverja f yfir 50 óper- um, er kominn heim til að vera með f þessari fyrstu uppfærslu á fslenzkri óperu, ásamt einsöngvurunum Guð- mundi Jónssyni, sem hefur hlutverk Þórs, Guðrúnu Á. Sfmonar, sem syngur Freyju, Magnúsi Jónssyni, sem er Heimdallur, Jóni Sigurbjörns- syni sem er Þrymur, og Rut Magnús- son, sem er systir Þryms. Höfundur- inn, Jón Ásgeirsson, veifar tónsprot- anum og stjórnar sjálfur hljómsveit og kór. Og þetta er góð ópera. Það segir hver af öðrum. — Stórkostleg, segir Guðmundur Jónsson, sem sungið hefur f öllum óperum f Þjóðleikhús- inu. — Rammfslenzkur skratti, skemmtileg og fyndin, bætir hann við. Guðmundur á fyrir höndum ýmis spaugileg atriði á sviðinu, svo sem eins og að klæðast brúðarlfni i gervi Freyju og eta snarlega einn uxa, átta laxa með öli í höllu Þryms jötuns. Enginn lætur á sér standa að gera sýninguna vel úr garði — 6 ein- söngvara. 36 manna kór, 8 manna ballet og 30 manna hljómsveit þarf til. Nú er 40 manna hópur mættur á æfingu á leiksviði Þjóðleikhússins á hvftasunnumorgni. Enginn hreyfir minnstu andmælum, og ætlunin er að æfa meira og minna alla hvfta- sunnuhelgina. Kórinn hefur geysi- miklu hlutverki að gegna. Þjóðleik- húskórinn hefur Ifklega aldrei fengið þvflfkt verkefni. Prólógus hefur verið fluttur — speki úr Hávamálum, sem karlakói flytur. Gáttir allar, áður gangi fram um skoðast skyli . . . Og Loki hefui flutt hin illu tfðindi. Þór kemur með þrumum miklum. Æsir allir á þingi og ásynjur. Veit ég, að Þrymur, þursa dróttinn, hefur þinn hamar, syngur Heimdallur. Hann engi maður heimtir aftur. Og þannig helduróper- an áfram og segir söguna, sem flest- um er kunn úr goðafræðinni, af þvf er Þrymur jötunn stelur hamri Þórs og neitar að skila aftur nema hann fái Freyju fyrir konu. Þór býst brúð- arlfni og fer f hennar stað til brúð- kaupsins til að heimta hamar sinn, enda munu jötnar Ásgarð búa, nema hann heimti hamar sinn, eins og kórinn syngur. Svo mikið liggur nú við. Um það fjallar óperan Þryms- kviða f fimm þáttum, sem fara fram f Ásgarði meðal goða, í dyngju Freyju og f Jötunheimum hjá Þrymi. Blaðamaðurinn hrffst með á æf- ingunni þennan hvitasunnumorgun. Músikin er ákaflega aðgengileg. Hún er söngræn, semf-nútfmaleg og ekki vafi á, að stfllinn er fslenzkur og þjóðlegur. — Ég hafði um tvo kosti að velja, segir tónskáldið Jón Ás- geirsson. Að semja alveg nútfma tónlist, en þá var spurningin hvort þetta gamla efni gæti samsvarað nútfma vinnubrögðum. Mér fannst. að ég mundi rjúfa tengslin við þetta sérfslenzka efni með nútfma tízku- stefnu. Ég fór þvf inn á það að hafa tónlistina f þessum stfl, sem ég hefi haslað mér sjálfur og reyni að fylgja eftir mætti áherzlu textans. Ég læt textann ráða. Eftiraðhafa lesið hann oft, finnst mér þetta vera eins og mælt mál, og þá þykir mér eðlilegt að gera efnið að söngóperu. En hver er þá textinn? Og hver setti saman óperutextann til söngs? Það gerði Jón sjálfur, en hann er allur tekinn óbreyttur úr Eddukvæð- unum, úr 10 kvæðaflokkum þeirra, og úr fornu danskvæði. Jón kveðst hafa byrjað á þessu verki fyrir 9 árum. Þá gerði hann fyrir nemendur Kennaraskólans Ift- inn þátt úr Þrymskviðu og er eitt stef úr þvf enn i nýju óperunni. Fyrir 8 árum var hann svo f Englandi f 3 mánuði og velti þessu þá mikið fyrir sér. Eftir að hann kom heim, tók hann textann til gagngerðrar með- ferðar. Og sfðan fór hann fyrir alvöru að huga að tónlistinni. Áður en yfir lauk, hafði hann samið óperuna fjór- um sinnum, fyrst fyrir pfanó og söng og sfðan fyrir hljómsveit IFka. Verkið var að mestu búið, þegar auglýst var samkeppni Þjóðleikhússins um óperu vegna 1100 ára afmælis ls- landsbyggðar. En til þess var raunar ekki nema ársfrestur. Þetta hlýtur að vera óskaplegt verk að vinna með venjulegu brauð- striti. Er það f rauninni hægt? — Nei, svarar Jón. Það er skelfilegt að vinna slfkt verk með öðru starfi. Fyrir þremur árum var ég búinn að leggja svo að mér, að ég datt niður á götu og var stungið inn á spftala. Þá var ég rétt að fá sex mánaða frí frá störfum til að vinna að þessu. en þrfr mánuðir spilltust af þessum veik- indum. En Þrymskviða er orðin til samt og var byrjað að æfa óperuna í janúar. — Þetta er ákaflega skemmtilegt viðfangsefni, segir Þorsteinn Hannesson, stjórnandi óperuflutn- ingsins. Það er feikilega lifandi skáldskapur. Þarna eru Eddukvæðin tekin og lögð orðrétt f munn söngvara og það er góður prófsteinn á hvort þau geta lifað ! nútimanum eða verða að geymast sem forngrip- ir. Ekki veit ég hvort þau hafa verið sungin áður fyrr, en Bertha S. Philat ! Oxford hélt þvf fram, að þau hefðu verið flutt við helgiathafnir. Seinna var talið. að þessi kenning hennar væri röng, en nú eru þær hugmyndir aftur að skjóta upp kollinum. Þorsteinn segir, að mjög skemmti- legt sé að setja Þrymskviðu á svið. Hann leggur þar mikla áherzlu á andstæðurnar, heiðrfkjuna og feg- urðina yfir goðheimum, jafnvel nokkuð kuldalega fegurð, en heita liti og mikinn þunga f Jötunheimum. Þetta má strax marka af búning- unum, bláum f Ásgarði en rauðum og LISTAHATIÐ 1974 Loki telur Þór á að fara til Jötunheima í stað Freyju (Guðrún Á Símonar), sem hlustar á. ikil tíðindi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.