Morgunblaðið - 06.06.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAUUR 6. JUNI 1974
23
Sendiferðabíll til sölu
Tilboð óskast í Commer sendiferðabíl árg.
1969. Bíllinn er skoðaður 1974. Til sýnis að
Reykjalundi, Mosfellssveit. Upplýsingar gefur
skrifstofustjóri.
BILLTIL SÖLU
Chevrolet Impala árgerð 1971. Upplýsingar í
síma 25473 milli kl. 7 og 8 næstu daga.
M/s Hekla
fer frá Reyjavík laugardaginn 8. þ.m. vestur um
land í hringferð.
Vörumótttaka: þriðjudag og miðvikudag.
A,
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
Leitum að timbur eða
steinhúsi við Tjarnargötu,
Suðurgötu, Laufásveg
eða svipuðum slóðum
Fjársterkur kaupandi
IBUDA-
SALAN
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GA>ILA BÍÓI
SÍIVXI 12180.
Æ ttarmót
Lækjarbotnaætt
Niðjar Sæmundar Guðbrandssonar, hreppstjóra,
á Lækjarbotnum, Landsveit og konu hans
Katrínar Brynjó/fsdóttur ætla að hittast að Brúar-
lundi, Landsveit laugardaginn 8. júní nk. kl.
18.
Matur, ávarp, söngur og dans.
Ferð frá Umferðamiðstöðinni kl. 14.
Fjölmennum öll með fjölskylduna.
Undirbúningsnefdin.
pi4ri0iiwMaí>iííj
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Ólafsvík
Vantar umboðsmann strax
Uppl. á afgreiðslunni í síma
10100.
Hvammstangi
Umboðsmaður óskast
strax. Upplýsingar hjá
Karli Sigurgeirssyni í síma
1350 og hjá afgreiðslunni
í síma 1 01 00.
Innri-Njarðvík
Umboðsmaður óskast til að
annast dreifingu og inn-
heimtu fyrir Mbl. Uppl. hjá
umboðsmanni. Sími 6057
og hjá afgreiðslumanni í
Reykjavík. Sími 10100.
Breytingar
á námi bif-
vélavirkja
AÐALFUNDUR Félags bifvéla-
virkja var haldinn laugardaginn
30. marz sl. í Tjarnarbúd. For-
maður flutti skýrslu stjórnar og
kom þar m.a. fram, að nýlega
voru gerðir kjarasamningar við
fsl. álfélagið og átti félagið aðild
að þeim. Þá átti félagið aðild að
hinum almennu kjarasamn-
ingum, sem gerðir voru í lok
febrúar, og samningum, sem
gerðir voru við verktaka Sigöldu-
virkjunar.
Unnið er að breytingu á námi I
bifvélavirkjun, þ.e. að færa verk-
legt nám að hluta inn í iðnskóla
og þar með stytta námstímann.
Framhaldsnámskeið fyrir bifvéla-
virkja voru haldin með sama
hætti og verið hefur við Iðnskól-
ann í Reykjavlk.
Formaður Félags biívélavirkja
var kjörinn Sigurgestur Uuðjóns-
son og með honum i stjórn eru
Guðmundur Hilmarsson varafor-
maður, Einar Steindórsson,
Eyjólfur Tómasson, Samson Jó-
hannsson og Björn Indriðason.
Wagoner 1972
Til sölu vel með farinn Wagoner Custorn árg.
1 972 með sjálfskiptingu og vökvastýri.
Til sýnis og sölu að Sundagörðum 4 á skrif-
stofutíma.
Eggert Kristjánsson og c/o hf.
Sími 85300.
TIL SðLU í
KAUPMANNAHÖFN
BLAÐIÐ FÆST l\IU I LAUSA
SOLU I BLAOASOLUIMNI I
FLUGAFGREIÐSLU SAS I
SAS-BYGGINGUNNI I MIÐ
BORGINNI.
er svo annað lakk
Manstu þegar þú lakkaðir síðast? Lakklyktin ætlaði alla að
kæfa, og þegar þú varst loksins búinn að lakka, áttirðu
enga terpentínu til að hreinsa alla nýju penslana, sem þú
keyptir.
Bráðum þarftu að lakka aftur, sannaðu til. Þá er líka betra
að gera ekki sömu skyssuna aftur. Nú skaltu nota Hitt lakkið.
Kópal-Hitt er hálfgljáandi vatnsþynnt akryl-lakk, ætlað á tré
og stein, - úti sem inni. Kópal-Hitt hefur einnig frábæra
veður-vatns- og þvottheldni.
Svo geturðu nefnilega notað rúllu, og að sjálfsögðu pensil
líka. Kópal-Hitt þomar á 1—2 klst. Það er lyktarlaust, gulnar
ekki og bregst ekki. Greinargóður leiðarvísir á hverri dós.
Þegar þú ert búinn að lakka, þá, — já þá þværðu rúlluna og
penslana úr venjulegu sápuvatni.
Hugsaöu um Hitt
þegar þú lakkar næst.