Morgunblaðið - 15.06.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974
Kommúnist-
ar um fram-
sóknarmenn
Einar Ágústs-
son sýnir „aum-
legan undir-
lægjuhátt gagn-
vart Banda-
ríkjamönnum”:
□
Hann lýkur ekki
svo við máls-
grein „að ekki
sé halelújað fyr-
ir Bandaríkjun-
um og NATO".
□
„Hann afhjúpar
óheilindi
framsóknar."
□
„Framsóknar-
flokkurinn er
hikandi
og þróttlaus."
□
„Framsóknar-
flokkurinn er
ístö ð ulítill
millif lokku r."
□
„Utanríkisráð-
herra sýnir
„undirlægjuhátt
gagnvart
útlendingum".
□
„Grein utan-
ríkisrá ð herra
ber ekki vott
um reisn og
sjálfstæði, sem
slíkur forystu-
maður þarf
að hafa."
(UMMÆLI ÞJÓÐ-
VILJANS SlÐUSTU
DAGA).
Brezki lögfræðingurinn dr. Marston.
Benedikt Olafsson fundarstjóri, og Hans G. Andersen.
Dr. Páll A. Pálsson
yfirdýralæknir.
Páll A. Pálsson sæmd-
ur heiðursdoktorsnafnbót
Meirihluti Sjálfstæð-
ismanna og Fram-
sóknar í Kópavogi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR og Fram-
sóknarflokkur hafa myndað meiri-
hluta f bæjarstjórn Kópavogs, og var
fyrsti bæjarstjórnarfundurinn hald-
inn í gær. Á þeim fundi var Sigurður
Helgason kjörinn forseti bæjarstjórn-
ar og Björgvin Sæmundsson var
endurráðinn bæjarstjóri. Er það lá
fyrir, gekk starfsfólk á bæjarskrif-
stofunni á fund hans og afhentu
honum blómvönd.
Fyrsti varaforseti var kjörinn Ólafur
Jónsson af G-lista og annar varaforseti
Jóhann H. Jónsson af l-lista I bæjar-
ráð voru kjörnir Axel Jónsson af D-
lista, sem jafnframt er formaður þess,
Björn Ólafsson af G-lista, Jóhann H.
Jónsson af l-lista, Magnús Bjarnfreðs-
son af l-lista og Sigurjón Ingi Hillarius-
son, einnig af l-lista
l-listinn var sem kunnugt er kosn-
ingabandalag Framsóknar og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna við sfð
ustu bæjarstjórnarkosningar i Kópa-
vogi Sigurjón Ingi Hillaríusson var
annar maður á -listanum sem
fulltrúi samtakanna, en hann kaus
nú að eiga ekki aðild að
þessu meirihlutasamstarfi, enda
þótt hann tæki þátt f viðræðunum
við D-listann í upphafi. Munu fulltrúar
Framsóknar á listanum hafa heyrt það
á skotspónum í fyrrakvöld, að Sigurjón
myndi ekki taka þátt f meirihlutamynd-
uninni.
Við myndun bæjarstjórnar f Kópa-
vogi árið 1 970 var einnig um samstarf
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
að ræða í upphafi, en sá meirihluti
brast, er einn af fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins gekk úr samstarfinu út af
hitaveitumálinu. Þá gekk Hulda
Jakobsdóttir inn f meirihlutasamstarf-
rð, en hún var þá bæjarfulltrúi fyrir
Samtökin. Núverandi meirihluti hefur
sex fulltrúa af 1 1 f bæjarstjórn.
Þar sem Sigurjón Ingi Hillarfusson
hefur nú hætt samstöðu með öðrum
fulltrúum l-listans, sneri Morgunblaðið
sér til Magnúsar Bjarnfreðssonar, efsta
manns á listanum og spurði, hvað
hann hefði um þessa þróun mála að
segja. Hann sagði, að fljótléga eftir
kosningarnar hafi byrjað viðræður milli
l-listans annars vegar og D-listans og
G-listans hins vegar, en fulltrúar
beggja þessara lista hefðu skrifað I-
listamönnum bréf með samvinnu um
meirihlutamyndun í huga.
Magnús sagði, að rætt hafi verið við
báða aðilana og hafi af hálfu Fram-
sóknarfulltrúanna strax verið gert Ijóst,
að allar slíkar ákvarðanir yrðu teknar f
samráði við fulltrúaráð flokksins f
Kópavogi Kvað Magnús viðræðurnar
fljótlega hafa leitt til þess, að gerð voru
drög að samningi við báða aðilana —
D-listann og G-listann. Samningarn-
ir hafi f grundvallaratriðum ver-
ið mjög áþekkir, ekki hafi mik-
ill málefnaágreiningur komið fram
i þessum tveimur samningsdrög-
um Hins vegar hafi verið sýnt, að
nýr meirihluti myndi hafa meiri röskun
f för með sér i stjórnsýslu bæjarins, svo
sem embættismannakerfinu.
Magnús sagði síðan, að gengið
hefði verið frá meirihlutamynduninni á
fundi fulltrúaráðsflokksins f Kópavogi I
gær, og hafi þar verið samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að
ganga til samstarfs við D-listann.
Sigujón Ingi Hillarfusson hafi hins
vegar ekki viljað vinna með Sjálf-
stæðisflokknum nú, og hann hefði þvf
tekið upp samstarf við minnihlutann,
fulltrúa Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks.
120 Nalional-menn
á fundi hér
VÆNTANLEGUR er til lands-
ins I dag 120 manna hópur frá
Þýzkalandsdeild National
Panasonic, sem er japanskt
stórfyrirtæki á sviði rafeinda-
tækni, og hefur útibú um allan
heim. Hópurinn mun efna hér
til ráðstefnu og sölufundar, svo
og vera með vísi að vörukynn-
ingu, þar sem meðal annars
verða kynntar nýjustu gerðir
lítasjónvarpa.
Hópurinn kemur til tslands
með þotu Flugfélags íslands
frá Frankfurt en mun halda til
að Hótel Loftleiðum. Að sögn
Sveins Sæmundssonar, blaða-
fulltrúa hjá Flugfélaginu, er
tilefni Islandsferðarinnar það,
að fyrirtækið efndi til sam-
keppni meðal sölumanna sinna
og voru verðlaun ferð til Is-
lands eða Sviss að eigin vali. Af
150 verðlaunahöfum kusu þess-
ir 120 að fara til íslands og því
er þessi ráðstefna haldin hér. Á
fundinum verður rætt um ýms-
ar framleiðslugreinar National
Panasonic, m.a. um rafhlöðurn-
ar, sem eru hvað þekktust
Nationalvara hér á landi. Hóp-
urinn heldur sfðan utan á
þriðjudag.
750 millj. kr. hitaveitu-
lán í Bandaríkjunum
34 hvalír á land
GOTT útlit er með hvalveiðar 1
sumar, alltént hefur vertfðin
farið mjög vel af stað. Þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hvalveiðistöðina f Hvalfirði f gær,
voru komnir alls 34 hvalir á land,
23 langreiðar og 11 búrhvalir. A
sama tfma f fyrra voru komnir á
land 15 langreiðar og 7 búrhvalir.
BORGARSTJÓRINN I Reykjavík
undirritaSi í gær I New York lán-
samning aS upphæS 9 milljón dala,
eða rúmar 750 millj. króna, fyrir
hönd Reykjavikurborgar og Hita-
veitu Reykja vikur. Lán þetta er tekiS
vegna hitaveituframkvæmda í
Reykjavik, Kópavogi. GarSahreppi
og HafnarfirSi.
Lánið var boðið út á bandarlskum
fjármagnsmarkaði meðal valinna aðila,
að fengnu samþykki Seðlabankans og
viðskiptaráðuneytisins, en það er án
ríkisábyrgðar. Lánveitendur eru Etna
Life Insurance Company, The Western
Saving Fund Society of Philadelphia
og Business Men's Assurance Comp-
any of America. Við lántöku naut borg-
in aðstoðar Landsbanka íslands, Smith
Barney & Co i New York og Citicrop I
Ákvæði EBE-samnings um
fiskafurðir endurskoðuð?
London. Lánið er til 15 ára og
afborgunarlaust fyrstu 3 árin en hraða
má afborgunum ef Reykjavlkurborg
óskaT. Vextir eru 9,5%. Fyrri hluti
lánsins, 5 milljónir dollara, verður tek-
inn á þessu ári, en slðari hlutinn á
næsta ári.
Fékk gulllykil
að New York
FRA þvf var skýrt f AP frétt f
gærkvöldi, að Birgir Isleifur
Gunnarsson borgarstjóri hefði f
gær gengið á fund borgarstjórans
f New York, Abrahams D.
Beames, og við það tækifæri þeg-
ið að gjöf gulllykil að New York
borg. I för með borgarstjóra var
tvar Guðmundsson, aðalræðis-
maður tslands f New York.
Annars staðar f blaðinu er nánar
sagt frá ferð borgarstjóra.
ÍSLENZK sendinefnd frá viðskipta-
ráðuneytinu hefur undanfarna daga
veriS I Brussel og átt þar viðræður
við nefnd Efnahagsbandalagsland-
anna um einstök atriði samnings fs-
lands og EBE um tollamál.
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóri er fyrir nefndinni, og sagði hann I
símtali við Morgunblaðið, að þetta
væri þriðji fundurinn, sem fram færi
milli aðila. Á fundinum nú I Brussel
ítrekaði islenzka sendinefndin óánægju
islenzkra stjórnvalda, vegna þess að
það ákvæði samningsins, er lýtur að
innflutningi fslands til EBE-landanna
skyldi ekki enn vera komið til fram-
kvæmda. Var lögð áherzla á það I
viðræðunum við nefnd EBE, að frekari
dráttur á gildistöku þessa ákvæðis gæti
haft óheillavænleg áhrif á samskipti
íslands og EBE Gildistaka ákvæðisins
hefur sem kunnugt er strandað á þvl,
að ekki hafa náðst samningar milli
Islenzkra og v-þýzkra stjórnvalda um
veiðar þýzkra togara innan 50 mílna
landhelginnar, en fyrirvari þess eðlis er
I samningnum. Sagði Þórhallur, að
íslenzka sendinefndin hefði tjáð fulltrú-
um EBE, að Islenzk stjórnvöld kynnu
að vera tilneydd til að beiðast endur-
skoðunar á þessu ákvæði samningsins
og fyrirvörum þess, ef ekki fyndist
skjót lausn á þessu ágreiningsefni.
Norrænt
laganemamót
haldið hér
SlÐASTLIÐNA viku hefur staðið
hér yfir 19. norræna laganema-
mótið. 1 gær var á mótinu fjallað
um þróun hafréttarreglna með
sérstöku tilliti til efnahagslögsög-
unnar. Frummælendur voru
Hans G. Andersen sendiherra og
brezki lögfræðingurinn dr. G.
Marston. Mótið hófst fyrra sunnu-
dag. Fundir hafa verið haldnir á
Laugarvatni þar til í gær, en þá
var tekinn í notkun nýr fyrir-
lestrasalur í Lögbergi.
Mót þessi eru haldin til skiptis á
Norðurlöndunum annað hvert ár.
Orator, félag laganema við Há-
skóla Islands, hefur séð um allan
undirbúning mótsins. Formaður
félagsins er Sveinn Sveinsson, en
formaður undirbúningsnefndar
mótsins er Þór Vilhjálmsson
prófessor.
Auk umræðna um hafréttar-
málefnin hefur verið fjallað um
mörg önnur lögfræðileg viðfangs-
efni. Alls hafa um 60 laganemar
tekið þátt í mótinu, þar af 48 frá
hinum Norðurlöndum. Auk inn-
lendra fyrirlesara hafa fjölmargir
erlendir fræðimenn tekið þátt f
umræðum.
Mótinu lýkur sfðdegis f dag,
laugardag.
PÁLL A. Pálsson yfirdýralæknir
var f fyrradag gerður að heiðurs-
doktor við Konunglega land-
búnaðar- og dýralæknaháskólann
f Kaupmannahöfn, en skólinn á
200 ára afmæli um þessar
mundir. Ásamt Páli voru fjórir
aðrir dýralæknar heiðraðir og
gerðir að heiðursdoktorum. Voru
það Hans Petersen dýralæknir og
framkvæmdastjóri Alþjóða dýra-
verndunarsambandsins 1 Róm,
Gustav Rosenberger frá dýra-
læknaháskólanum f Hannover, R.
Sakazaki frá heilbrigðisstofnun-
inni f Tokyo og A. P. Stableforth
frá Surrey f Englandi.
Samkvæmt upplýsingum Helgu
Finnsdóttur dýralæknanema í
Kaupmannahöfn fór athöfnin
fram f ráðhúsi Frederiksbergs og
var hin hátíðlegasta. Viðstödd var
Margrét drottning og maður
hennar Henrik prins, mennta-
málaráðherra Dana Tove Nielsen,
sem flutti ræðu við athöfnina, og
Sigurður Bjarnason sendiherra
Islands f Kaupmannahöfn.
H. C. Aslyng rektor skólans
setti athöfnina og rakti sögu skói-
ans og tildrög stofnunar hans, en
formaður dýralæknisfræðideildar
skólans, N. O. Christiansen, rakti
feril doktorsefnanna. Síðan veittu
doktorsefnin heiðursskjölum við-
töku, dr. Páll A. Pálsson fyrstur
og síðan hver af öðrum. Rektor
skólans tók þvf næst til máls og
lýsti doktorskjörinu. Pál A. Páls-
son kvað hann fá doktorsnafn-
bótina m.a. fyrir störf hans að
rannsóknum á sauðfjársjúk-
dómum á Islandi.
Að lokinni athöfn óskaði drottn-
ingin og maður hennar hinum ný-
kjörnu doktorum til hamingju.