Morgunblaðið - 15.06.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1974
31
LiSTAHÁTÍÐ
1974
Jass og
vísnasöngur
frá Finnlandi
FINNSKI söngvarinn Lasse
Martenson tekur þátt I listahá-
tíð og með honum kvartett Esko
Linnavallis. Þessir fimm Finn-
ar skemmta i hátíðasal Mennta-
skólans við Hamrahlið sunnu-
daginn 16. júni'kl. 20.30. Lasse
Martenson er Reykvíkingum
kunnur. Hann kom hingað með
Lilla Teatern vorið 1973 og um
leið var hann með í norrænu
kvöldi fyrir Vestmannaeyja-
söfnunina og þótti frábær.
Kvartett Esko Linnavallis, sem
er tónskáld og útsetjari, er ein
bezta og þekktasta jasshljóm-
sveit Finnlands. Lasse syngur
bæði við eigin gítarundirleik og
undirleik kvartettsins. Hann
flytur vfsur og söngva úr söng-
leikjum og ádeilusöngva og
kvartettinn flytur m.a. konsert-
jass.
Ekki er áhlaupaverk að
kynna listamanninn Lasse Mar-
tenson í stuttu máli. Hann er
allt í senn, tónskáld, hljóm-
sveitarstjóri, söngvari og leik-
ari. Ferill hans hófst fyrir 25
árum, er hann gerðist píanó-
leikari í dixielandhljómsveit.
Þá var hann 14 ára. Upp frá því
má heita, að hann hafi lagt
hönd að vel flestu I skemmtana-
iðnaði.
Tónskáldið og söngvarinn
Lasse Martenson hefur þrisvar
unnið keppni innan Finnlands
um lag til að senda i Euro-
Lasse Martenson, þegar hann kom hér með Lilla Teatern og með honum samleikkonur hans úr
Kyss sjálu, Birgitta Ulfsson og Elina Salo.
vision-dægurlagakeppni og sem
söngvari hefur hann fjórum
sinnum keppt fyrir hönd Finn-
lands í þeirri keppni. Hann hef-
ur einnig samið kirkjutónlist,
messu til flutnings í sjónvarpi
og eins á hljómplötu, sem hann
stjórnaði sjálfur. Þá hefur
hann útsett og stjórnað tónlist
við ýmsa söngleiki og leikari
þykir hann frábær, lék t.d. aðal-
hlutverkið í Ó, þetta indæla
strið og prófessor Higgins í My
fair Lady. Fleiri hliðar á Iista-
maðurinn, er t.d. allgóður mál-
ari, grafiklistamaður og útskrif-
aður úr listaskóla i Helsinki.
Kvartett Esko Linnavallis er
skipaður úrvals tónlistarmönn-
um. Sjálfur leikur hann á
píanó og hefur leikið með
mörgum hljómsveitum á Norð-
urlöndum. Hann hefur verið
hljómsveitarstjóri við leikhús
og stjórnað danshljómsveit
finnska útvarpsins frá 1967.
Einnig hefur hann leikið inn á
margar hljómplötur.
Eero Koivisoinen saxofón-
leikari þykir mjög snjall.
Finnsku jasssamtökin krýndu
hann mann ársins 1967. Hann
hefur krækt sér í fjölda jass-
verðlauna, 1969 á alþjóðajass-
hátíð 1 Montreaux, verðlaunin
voru tónleikaför á Newport-jass-
hátíðina I USA. Arið 1971 var
honum veittur styrkur við
Berkleetónlistarskólann í Bost-
on. Koivisoinen er einnig tón-
skáld og hefur samtið tónlist
/við leikrit og kvikmyndir. Hann
hefur leikið inn á margar
hljómplötur.
Pekko Sarmanto er bassaleik-
ari kvartettins. Hann hefur
leikið með ýmsum finnskum
hljómsveitum og tekið þátt í
jasshátíðinni 1 Björneborg
hvert sumar frá 1966. Esko Ros-
nell leikur á trumbur. Hann var
aðeins 15 ára, þegar hann varð
atvinnutónlistarmaður og hef-
ur leikið með finnskum hljóm-
sveitum. Árið 1967 fékk hann
verðlaun á jasshátíðinni f Mon-
treaux.
LÉNHARÐUR FÓGETI
Stjórnarmyndun erfið í Kambódíu
Phnom Penh, 13. júní. AP.
LONG Boret, forsætisráðherra
Kambódíu, sagði af sér í dag
vegna vaxandi sundrungar í
samsteypustjórn hans og Lon
Nol forseti fól honum strax að
reyna myndun nýrrar stjórnar,
samkvæmt góðum heimildum.
Samkvæmt heimildunum
verða ráðherrar nýju stjórnar-
innar úr þeim armi flokks Lon
Nols forseta, Þjóðlega lýð-
veldisflokksins, sem styður
Long Boret, og herforingjar.
I stjórninni verða því ekki
fulltrúar úr Lýðveldisflokki
Sisowath Sirik Matak fyrrver-
andi forsætisráðherra og
flokksbroti, sem er í bandalagi
með Cheng Heng fyrrverandi
þjóðhöfðingja. Þessir tveir hóp-
ar áttu sex ráðherra I sam-
steypustjórninni.
Ráðherrarnir sex sögðu af sér
í síðustu viku til þess að mót-
mæla þvf hvernig Long Boret
brást við óeirðum stúdenta, er
leiddu til þess, að menntamála-
ráðherrann og staðgengill hans
voru drepnir. Þeir gagnrýndu
einnig hvernig stjórnin hefur
haldið á efnahagsmálunum og
öðrum vandamálum.
Sundrungin á rætur í árásum
á þingi á ráðherrann af hálfu
flokksbrota Sirik Mataks og
Cheng Hengs. Þjóðlegi lýð-
veldisflokkurinn er í meiri-
hluta á þingi.
En breytingarnr á stjórninni
munu lítil áhrif hafa á stéfnu
stjórnarinnar. Henni ráða Lon
Nol, Long Boret og bandaríski
sendiherrann, John Gunther
Dean, sem að sögn eins æðsta
embættismanns stjórnarinnar
„er viðriðinn nánast allar
meiriháttar ákvarðanir stjórn-
arinnar og jafnvel ýmsar
minniháttar líka“.
Peron skipar sömu stjórn
Eins og frð var skýrt f Mbl. sl. fimmtudag er nú unnið að kvikmyndun leikritsins Lénharðs fógeta eftir
Einar H. Kvaran á vegum sjónvarpsins. Meðfylgjandi mynd sýnir nokkra leikenda 1 hlutverkum sfnum.
Frí merk j asýning
íHagaskóla
’UM HELGINA mun Landssam-
band fslenzkra frfmerkjasafnara
gangast fyrir frfmerkjasýningu f
Hagaskóla undir nafninu FRl-
MERKI ’74. Sýningin verður
opnuð föstudaginn 14. júnf kl. 17
og stendur fram á sunnudaginn
16. júnf.
Á Frfmerki ’74 verða sýnd frf-
merki ( 76 sýningarrömmum, þar
af 69 1 samkeppnisdeild og 7 utan
samkeppni. Dómnefnd þriggja
kunnra ’ frfmerkjafræðinga,
þeirra Sigurðar H. Þorsteinsson-
ar, Bolla Davfðssonar og Magna
R. Magnússonar, mun dæma um
söfnin, og verða úrslit tilkynnt kl.
20 á föstudag. Sýningarefni er
fjölbreytt og má m.a. nefna tvö
söfn númerastimpla, ýmis
afbrigði f fslenzkum frfmerkjum,
Kristjáns IX, Jóns Sigurðssonar
og Landslagsútgáfurnar og heild-
arsafn fslenzkra frfmerkja eftir
1944. Af erlendum söfnum má
nefna safn noskra frfmerkja,
skátafrfmerki frá Afrfku,
frfmerki með trúarbragðaefni og
frfmerkið 100 ára frá ýmsum
löndum.
Póstur og sími mun starfrækja
sérstakt pósthús á sýningarstað
og sýningarnefnd hefur látið gera
sérstök umslög, sem menn geta
fengið stimpluð með stimpli sýn-
ingarinnar. Þá hefur sýningar-
nefnd gefið út sýningarblokk í
aðeins 500 tölusettum eintökum
og sýningarskrá.
I sambandi við sýninguna mun
L.Í.F. halda 7. landsþing
frímerkjasafnara 1 Hagaskóla
laugardaginn 15. júní og verður
það sett kl. 15. Rétt til setu á
þinginu hafa um 30 fulltrúar.
Þetta er nfunda frímerkjasýn-
ingin, sem L.Í.F., eða aðildarfélög
þess, gengst fyrir og er jafnframt
sú stærsta, sem haldin hefur verið
af samtökum frímerkjasafnara
hér á landi til þessa, þar sem á
annað þúsund albúmsíður verða
sýndar á þessari sýningu.
Buenos Aires, 13. júní. AP.
JUAN D. Peron forseti skipaði
f dag nýja stjórn, sem er skipuð
nákvæmlega sömu ráðherrum
og sú stjórn, sem sagði af sér f
morgun.
Með því að skipa aftur sömu
stjórn er talið, að Peron vilji
treysta stöðu hennar gagnvart
andstæðingum stefnu hennar í
efnahagsmálum.
I stjórninni sitja þeir menn,
sem talið er að beri höfuð-
ábyrgðina á efnahagsstefn-
unni: Jose Lopez Rega, einka-
ritari Perons og félagsmálaráð-
herra, og Jose Galbard efna-
hagsmálaráðherra.
Áður en stjórnin fór frá hafði
Peron hótað því í sjónvarps-
ræðu að segja af sér ef þjóðin
væri ósammála efnahagsstefn-
unni og fela völdin f hendur
mönnum, sem hefðu betri von
um árangur.
Peron dró hótunina til baka
þegar tugþúsundir verkamanna
gengu fylktu liði til forsetahall-
arinnar og skoruðu á hann
að sitja áfram. Foringjar
peronistaflokksins höfðu lagt
til, að stjórnin segði af sér til
þess að gefa Peron frjálsar
hendur f baráttunni gegn verð-
bólgunni.
Þrátt fyrir gagnrýni úr röð-
um verkamanna á undanförn-
um vikum virðist Peron hafa
treyst stöðu sína og stefnu sína
í efnahagsmálum. Peron hótaði
oft að segja af sér í fyrri for-
setatíð sinni og hótaði því á ný í
janúar, þegar skæruliðar marx-
ista ráðust á herstöð og drápu
fimm.
Peron kom á kaupgjalds- og
verðlagsstöðvun í maf 1973, en
á fyrstu mánuðum þessa árs'
jókst verðbólgan um 12%. I
aprfl voru leyfðar 13% kaup-
hækkanir en verð var hækkað á
mörgum afurðum vegna olfu-
krepppunnar. Sfðan hefur oft
komið til verkfalla.