Morgunblaðið - 15.06.1974, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1974
13
Þurfum listir til að fá
okkur orku í skammdeginu
Viðtal við bassasöngvarann fræga Martti Talvela
RISINN frá Kirjálaeiði er vissu-
lega réttnefni á finnska bassa-
söngvaranum fræga Martti Tal-
vela. Það sáum við, er við hittum
þennan stóra mann f morgunverði
á Hótel Sögu I gærmorgun. Hann
er ímynd hins mikla bassasöngv-
ara í útliti, en framkoman er ekk-
ert rosaleg, heldur ljúf og elsku
leg. Llklega má segja um
hann eins og hann sjálfur sagði
um óperusöngkonuna Renötu Te-
baldi, að hún væri svo ljúf og hlý
manneskja, að það heyrðist í söng
hennar.
Talvela kvaðst búa í Helsinki
núna, fluttist heim fyrir tveimur
árum, eftir að hafa búið 8 ár í
Berlín og 4 I Hamborg, þar sem
hann söng við óperurnar. Nú
kvaðst hann ferðast að heiman til
að syngja bassahlutverkin, svo
sem í Boris Goudenoff í ákveðn-
um óperum í óperuhúsunum I
Berlfn, Mllnchen, Convent Gard-
en, Metropolitan o.fl., um 45 sýn-
ingar á ári, stóru bassahlutverkin
eru ekki svo mörg, segir hann til
skýringar. En nú hefur hann aft-
ur getað tekið upp ljóðasöng, sem
hann byrjaði á í upphafi ferils
síns, og kom upp efnisskrá þeirri,
sem hánn flytur hér. Með hana
ferðaðist hann um 15 staði í vetur,
til Hamborgar, Graz, Parísar,
Lissabon o.s.frv. við alveg frábær-
ar undirtektir. Það sagði hann að
vísu ekki sjálfur, en játaði, er við
höfðum orð á þvf. Þessa sömu
efnisskrá flytur hann hér og því-
næst í Convent Garden í London
10. júlí.
En er ekki erfitt að vera með
tvo ólíka túlkunarmáta á dagskrá
í einu, eins og Ijóðaflutning og
óperusöng? Nei, segir Talvela.
Ljóðasöngur er góð trygging fyrir
því, að röddin sé í lagi. Það er
góð þjálfun. Við ljóðaflutning
flytur maður sinn eigin persónu-
leika, en á óperusviðinu
verður maður að finna sér leið
að persónu einhvers annars. Mað-
ur verður að vera konungurinn
eða það, sem við á. Öperu-
söngur er leikur, en í ljóð-
um er maður eigin persóna
Með Martti Talvela er sonur
hans. Þeir voru búnir að leigja sér
bíl og ætla að sjá eitthvað af land-
inu. — Við ferðumst mikið sam-
an, segir hann. Maður verður að
halda fjölskyldunni saman. Oft er
eitthvert af mínum þremur börn-
um eða konan með mér. Til dæm-
is söng ég Boris í Metropolitan-
óperunni í október og verð þar
aftur í haust og þá kemur öll fjöl
skyldanmeð. Á milli sýninga get-
um við skroppið til Miami. Innan
Evrópu er auðvelt að komast á
milli. Til dæmis tekur ekki nema
tvo tíma að fara til Hamborgar í
flugvél. Á flugvöllunum? Jú, þar
er löng bið, en ég tek bara vanda-
málin með farangrinum og nota
tímann þar vel til að fara yfir
nótur, og læra texta og fleira þess
háttar, sem ég þarf að gera. En
Síldarnót
góða einsöngvara. Það er sama
sagan hjá okkur og öðrum við
erum fáir og höfum litla peninga,
en óperuflutningur er gífurlega
dýr, aðeins hægt að ná inn 20% af
kostnaðinum. Og fólki, sem ekki
er vant að njóta slfkra lista, hætt-
ir þá til að segja, að ekki eigi að
eyða í hana. En það er misskiln-
ingur að halda, að fólkið geti lifað
á einu saman brauði. I löndum
okkar er langt skammdegi og
maður verður að byggja upp I
LISTA-
HÁTÍÐ
1974
Martti Talvela og sonur hans að leggja af stað til að sjá sig um á tslandi.
Evrópu þekkir fjölskyldan mín
orðið vel, hefur ferðazt mikið um
Þýzkaland og Frakkland.
Talvela segist þó aldrei hafa
komið til Islands fyrr. Hann kom
hér eins og aðrir, af þvi Ashken-
azy bað hann um það. Ashkenazy
ætlar í staðinn að koma og leika á
hans tónlistarhátíð í sumar i
Savonnalinna f Finnlandi. Við
komumst þannig að samkomulagi.
Það er fjárhagslega auðveldara
fyrir báðar hátíðarnar. Minni
greiðsla á báðar hliðar, segir
hann.
Marrti Talvela hefur f tvö ár
verið framkvæmdastjóri varðandi
alla tónlist á listahátiðinni í
Savonnalinna, sem er gömul og
gróin listahátíð, sem haldin er á
lítilli eyju f austurhluta Finn-
lands, hófst þar í júlí 1912. Hana
sækja 40 þúsund manns og eru
allir miðar uppseldir á hátíðina í
sumar, segir Talvela. Og hann
bætir við, að kannski væri gott
fyrir einhverja Islendinga að vita,
að meðan á listahátíðinni í
Savonnalinna stendur, þá er
ávallt komið upp skóla fyrir Ijóða-
söng og fengnir beztu Ijóóa-
söngkennarar heimsins. Einnig er
þá í bænum komið upp barnabúð-
um með tónlistarkennslu og börn-
in mynda 3 hljómsveitir. Sá hluti
er ekki á hans vegum, en f tengsl-
um við hátfðina. Hún byrjar 25.
júlf og lýkur 5. ágúst með hljóm-
leikum Ashkemazys f 3700 manna
timburkirkju. En óperur eru
fluttar undir berum himni f kast-
alarði. Þó er hægt að tjalda
yfir sviðið og áhorfendur með
plasthimni, ef rignir.
Söngvarvar eiga erfitt uppdráttar
í Finnlandi, eins og annars staðar
á Norðurlöndum, segir Talvela og
útilokað að þeir geti lifað heima.
Enda eiga Finnar um 20 fyrsta
flokks söngvara við óperuhús
Evrópu. Og tónlistarhátíðin í
Savonnalinna er einmitt m.a. gerð
í þeim tilgangi að geta fengið þá i
gestaleik heima. — Við getum
gefið þeim tækifæri til að syngja
heima og sýnt finnsku þjóðinni
hvilíkar gersemar hún á f öðrum
löndum, segir Talvela. Við höfum
aðeins lítið óperuhús í Helsinki,
það tekur 600 manns og getur
aðeins ráðið 12—15 söngvara. En
á hátiðina í Svonnalinna þarf 40
Til
okkur orku gegn myrkrinu.
þess þurfum við list.
Martti Talvela kvaðst hafa átt
annasamt ár með 75 sýningum
eða hljómleikum. Hann er alltaf á
ferðinni. En næsta ár ætlar hann
að draga svolítið úr. Héðan flýgur
hann til Kaupmannahafnar og
þaðan til Helsinki. Af flugvellin-
um, ekur hann norður í land í
sumarhúsið sitt til fjögurra daga
dvalar og fer síðan til að syngja í
Hamborg. Þá tekur við hátíðin í
Savonnalinna, þar sem hann
syngur m.a. Boris Goudenoff. Og
svo fer hann í fri f sumarhúsið
sitt í Finnlandi, þar sem hann
gerir ekkert annað en að fiska og
tfna sveppi f skóginum — og þó.
— Ég hata ekki músik í frfinu
minu, bætir hann við.
Nú þarf ég t.d að læra á
rússnesku nýtt hlutverk í
Havasina, óperu eftir Musorksy,
sem ég mun syngja á móti Christu
Ludvig. — Rússneska er fallegt
mál og ég syng mikið á rússnesku
og þá verð ég auðvitað að geta
talað málið til að túlka það, segir
hann.
I kvöld fáum við að heyra í
þessum finnska bassasöngvara,
sem syngur með undurleik
Vladimirs Ashkenazy í Háskóla-
bíói lög eftir Schubert, lagaflokk
við texta úr bibliunni eftir
Brahms lög eftir Rachmaninoff
og 5 lög eftir Finnann Yrjö
Kilpinen.
-E.Pá.
TRARAMT
Fyrsta sendingin, eftir 5 ára afgreiðsluhlé,
er væntanleg í júlímánuði.
ÞAÐ ÓTRÚLEGA ER, AÐ VERÐIÐ ER AÐEINS
Til sölu lítið notuð síldarnót 87 faðmar á dýpt
245 faðmar á lengd Uppl. í síma 94-61 76.
Man vöruflutningabifreið
Til sölu er Man vöruflutníngabifreið árgerð 1967 i góðu standi,
aðstaða til vöruflutninga á Hellissandi getur fylgt.
Tilboð sendist undirrituðum sem gefur allar nánari upplýsingar, fyrir
20. júni næstkomandi.
Marteinn G. Karlsson, Óiafsvik, sími 93-6252 og 93-6238.
# kr. 281 þúsund
♦ kr. 291 þúsund
fólksbfll
station
(Innifalið í verðinu er ryðvörn, öryggisbelti o.fl.)
Við höfum gert samning um af-
greiðslu á Trabant bifreiðum til 5
ára, um ákveðið magn bíla á ári.
Ennfremur að í Tollvörugeymslu
verði allir nauðsynlegir varahlutir
fyrirliggjandi og að eftirlitsmaður
frá verksmiðjunni komi einu sinni á
ári til eftirlits bifreiðanna.
Sýningarbílar
verða til staðar hjá okkur í næstu
viku. — Lítið á Trabant og leitið
upplýsinga. Takmarkað magn
Trabant bíla verður innflutt einu
sinni á ári. Þvi er öllum þeim, sem
hafa hug á að eignast Trabant
ráðlagt að gera pöntun strax.
ingvar Helgason,
Vonarlandi við Sogaveg. Sími 84510 og 84511