Morgunblaðið - 15.06.1974, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1974
Vil verða Vestfirðingum aðliði í
baráttu þeirra fyrir betra lífi
SIGURLAUG Bjarnadðttir frá Vigur skipar 3. sætið á
lista sjálfstæðismanna á Vestfjörðum í komandi kosn-
ingum. Að Sigurlaugu standa sterkir vestfirzkir stofnar,
foreldrar hennar eru Bjarni Sigurðsson bóndi í Vigur og
kona hans Björg Björnsdóttir frá Veðramóti. Sigurður
bróðir Sigurlaugar og afi hennar, sr. Sigurður Stefáns-
son, voru lengi þingmenn Vestfirðinga. Eiginmaður
Sigurlaugar er Þorsteinn Thorarensen rithöfundur og
eiga þau 3 börn. Þau búa í Reykjavík. Sigurlaug hefur
setið í borgarstjórn Re.vkjavíkur, en aldrei verið í fram-
boði til Alþingis, og því var eðlilegt, að fyrsta spurning
blaðamanns Mbl., sem hitti Sigurlaugu að máli á Isafirði
fyrir skömmu, yrði um tildrög að framboði hennar.
Sigurlaug
Bjarna-
dóttir.
Myndin er
tekin
á heimili
Þorbjargar
systur
hennar
á tsafirði.
Rætt við Sigurlaugu Bjarnadóttur, sem skip-
ar 3. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
„Eg hafði alls ekki hugsað um
framboð til Alþingis. Eg hafði
dregið mig út úr borgarstjórn
Reykjavíkur og ætlaði að standa
álengdar við stjórnmálin, um sinn
a.m.k. En ég stóðst ekki mátið
þegar ég varð vör við sterka sam-
stöðu fyrir vestan um mitt fram-
boð. Þó að ég sé nú í fyrsta skipti í
framboði til Alþingis tel ég mig
hafa töluverða pólitíska reynslu,
sem ég hef hlotið sl. 4 ár í borgar-
stjórn. Landsmál eru umfangs-
meiri en borgarmál, en við nánari
skoðun kemur í ljós, að um er að
ræða sömu vandamálin. Mann-
legar þarfir eru þær sömu, hvar
sem er á landinu."
— Þú ert ættuð af Vest-
fjörðum?
„Jú, ég er fædd og uppalin í
Vigur og hefi því sterkar taugar
til Vestfjarða. Og þótt starfsvett-
vangur minn hafi verið fjarri
Vestfjörðum hef ég alltaf fylgzt
með málefnum þeirra úr
fjarlægð. Ég hef komið hingað á
hverju sumri og leiðin þá oftast
legið til Vigur. Og nú er ég að
leggja upp í ferðalag um alla
Vestfirði og hef ég þá ekki bara
atkvæðaveiðar í huga. Ég tel það
skyldu og nauðsyn hjá hverjum
frambjóðanda að kynnast fólkinu,
störfum þess og vandamálum,
með hugsanlega þingmennsku í
huga.“
— Hver telur þú brýnustu verk-
efnin framundan?
„Eg tel að hvað brýnast sé að
virina að heilbrigðismálum,
menntamálum hvers konar og
félagsmálum. Má í því sambandi
nefna húsnæðismálin, en hús-
næðiseklan er viða svo mikil i
kjördæminu, að ungt fólk, sem
gjarnanvildisetjastaðhér vestra,
getur ekki stofnað heimili. Hér er
á ferðinni brýnt hagsmunamál
Vestfirðinga. Aðstaða til alhliða
menntunar mætti vera betri.
Menntaskólinn á ísafirði er stór-
kostlegt skref framávið, en fram-
tíðin þyrfti að vera sú, að hér yrði
komið upp fjölþrautaskóla, sem
starfaði í sem nánustu samstarfi
við atvinnulífið. Auðvitað eru
samgöngumálin stór þáttur í lífi
Vestfirðinga, og einnig tel ég
nauðsyn á fjölbreyttari atvinnu-
háttum í kjördæminu."
— Og þú munt væntanlega
beita þér í þessum málum?
„Ég mun fara varlega í að gefa
kosningaloforð. Ég mun í upphafi
kappkosta að setja mig sem bezt
inn í málefni Vestfjarða, og ég
hef einlæga ósk og vilja að verða
Vestfirðingum að liði í baráttu
þeirra fyrir betra lífi. En ég geri
mér einnig fyllilega grein fyrir
því, að þingmaður máekki aðeins
hugsa um eigið kjördæmi. Vest-
firðir sátu allt of lengi á hakanum
með ýmislegt, en á síðustu
tveimur áratugum hefur vissu-
lega miðað fram á við. Vonandi
fær Sjálfstæðisflokkurinn fylgi
til að halda uppbyggingarstarfinu
áfram.“
— Nú er erfiður kosninga-
slagur framundan, hvernig leggst
hann i þig?
„Kosningabaráttan hér er mjög
ólík því, sem ég hef áður þekkt í
sambandi við borgarstjórnarkosn-
ingarnar og samband við kjós-
endur nánara. Hér verða haldnir
13 almennir framboðsfundir fram
til kosninga, þar sem fuiltrúar
allra flokka verða þátttakendur
og mun ég að sjálfsögðu taka þátt
í þeim. Þessir fundir eru yfirleitt
afar vel sóttir. Ég hlakka til bar-
áttunnar og vona, að hún verði
skemmtileg, en umfram allt vona
ég, að hún verði málefnaleg og
drengileg."
— Og þú ert bjartsýn?
„Ég hef hitt marga hér á Vest-
fjörðum og á eftir að hitta marga.
Ég er bjartsýn á kosningaúrslitin,
því að mér heyrist hljóðið i
fólkinu vera þannig. Vestfirð-
ingar eru framfarasinnað fólk,
sem vill sterka og örugga stjórn.
Fólk er uggandi um hag þjóðar-
innar ef ekki kemur styrk stjórn i
stað þeirra sundrungarafla, sem
farið hafa með völd síðasta kjör-
tímabii. En ég vil taka það skýrt
fram að lokum, að ég tel að Sjálf-
stæðisflokkurinn byggi ekki
sigurvonir sínar fyrst og fremst á
sundrungu andstæðinganna
heldur á verðleikum eigin
stefnu.“
RKKT BJART FRAM-
UNDAN í FRYSTI-
IÐNAÐINUM..............
Rætt við Einar Steindórsson í Hnífsdal
í Hnífsdal hitti Mbl. aö máli Einar Steindórsson, sem
um langa hríö hefur veitt forstööu stærsta atvinnufyrir-
tæki staöarins, Hraðfrystihúsinu hf. Einar var einnig
oddviti og hreppstjóri í Hnífsdal í mörg ár. Hann var
fyrst spuröur um atvinnuástandið á staðnum og afkomu
frystihússins, en hún speglar að mestu afkomu
Hnífsdælinga.
„Atvinna var hér ágæt 1973, og
hún hefur verið góð á þessu ári.
Framleiðsla hraðfrystihússins var
árið 1973 alls 1400 tonn af freð-
fiski, eða rúmlega 54 þúsund
kassar. Verðmætið var 126
milljónir og 330 þúsund. Á þessu
árí er búið að framleiða 405 tonn
af freðfiski."
-Nú eigið þið Hnífsdælingar
nýjan skuttogara?
„Já, nýi togarinn okkar, Páll
Pálsson 1S 107, kom hingað 21.
febrúar 1973 og hóf veiðar stuttu
síðar. Á árinu 1973 kom hann með
að landi 2435 tonn, að verðmæti
50 milljónir, og á þessu ári, ef
miðað er við 18. mai, hefur hann
komið með 968 tonn að landi.
Togarinn hefur veitt sæmilega og
vel á köflum, enda skipstjórinn,
Guðjón Kristjánsson, ungur að
árum og aflasæll og skipshöfn
hans dugmikil. Þá höfum við gert
héðan út m.b. Mimi, 217 tonn, en
nú er búið að selja hann til Eski-
fjarðar vegna erfiðleika i manna-
ráðningum, sérstaklega fyrir línu-
beitinguna. Þá hefur frystihúsið
öll árin keypt fisk af nokkrum
handfærabátum."
—Hvernig horfír með afkomu
frystihússíns á þessu ári?
„Afkoman var góð i fyrra, en
það er ekki eins bjart framundan
og óvíst hvernig úr rætist. Einnig
eru erfiðleikar hjá togaraút-
gerðinni um þessar mundir og
aflinn hefur verið sáratregur upp
á síðkastið."
Þið standið í byggingar-
framkvæmdum um þessar
mundir, er ekki svo?
„Jú, það er unnið í nýbyggingu
fyrir hraðfrystihúsið. í þá fram-
kvæmd var ráðizt til að bæta
hollustuhætti við fiskvinnsluna
og auka tækni. Á s.I. hausti keypti
Hraðfrystihúsið hf. 2 hæða
fbúðarhús f Hnífsdal fyrir starfs-
fólk sitt, sem er aðkomið. Þá má
geta þess, að frystihúsið rekur í
samvinnu vió ishúsfélag
ísfirðinga hf. beinamjölsverk-
smiðju á Hnífsdal, Mjölvinnsluna
hf."
— Hvernig hefur gengið að fá
fólk til frystihúsastarfa?
„Það gekk vel á s.l. vetri. Meðal
annars voru hér 8 erlendar
stúlkur á hausti- og vetrarvertíð
6 frá Ástraiíu, ein frá Nýja
Sjálandi og ein frá USA. Þær hafa
reynzt prýðilegir starfskraftar og
þeim líkaði vel hér. Sumar eru
ekki enn farnar og hinar vilja
koma aftur. Slíkt þekkist vfðar
um Vestfirði. Segja má, að vinna
hafi varla nokkru sinni fallið
niður í frystihúsinu síðan
togarinn kom."
—Og að lokum Flinar, hvernig er
hafnaraðstaða hér í Hnífsdal?
„Unnið hefur verið að því að
Einmuna tíð síðan í vor
Rætt við sr. Andrés Olafsson á Hólmavík
Á HÓLMAVÍK ræddi Mbl. viö Andrés Ólafsson
prófast. Þar eru ífiuar um 330, og fjölgar þeim hægt og
sígandi.. A Hólmavík er næg atvinna eins og víöast
annars staöar um þessar mundir og skortur á vinnuaf li.
Einar Steindórsson.
endurbyggja Hnffssdalsbryggju,
sem er 80 metra löng, en nú er
orðin óhjákvæmileg nauðsyn að
dýpka við bryggjuna, svo
togarinn okkar, Páll Pálsson, geti
lagzt þar að með góðu móti. Hann
hefur orðið að landa aflanum á
ísafirði og þaðan hefur aflinn
verið fluttur á bílum út í Hnífs-
dal."
„Vorið hefur verið eindæma
gott hér um slóðir, og sauðburður
gekk mjög vel. Almennt er hljóðið
gott í bændum hér í nágrenninu.
Grasspretta er góð, og má reikna
með að sláttur hefjist á næst-
unni". sagði Andrés.
— Hvernig gekk rækjuvertíð
við Steingrimsfjörð?
„Hún gekk mjög vel. Héðan
frá Hólmavík og frá Drangsnesi
eru gerðir út 13 litlir bátar. Þeir
fara á handfæraveiðar í sumar,
líklega í þessarri viku. Við
vonumst eftir því að fiskur gangi
inn í Hdnaflóa í sumar, annars
verða bátarnir að leita á mið í
nágrenni flóans. Kaupfélagið á
Hólmavík er að undirbúa söltun á
fiski, en hér hefur ekki verið
saltað mörg undanfarin ár.“
— Það er eitthvað um íbúðar-
húsabyggingar á staðnum?
,..fá,„ — vegna fólksfjölgunar-
innar. Og þó vantar hér fólk
frekar en hitt. I vor var byrjað á
íbúðarhusum og haldið áfram
með nokkur sem b.vrjað var á í
fyrra. Þá hefur verið unnið að því
að gera uppf.vllingu i höfninni,
þar sem á að standa í framtíðinni
bryggjuhús fyrir bát na."
— Það er go't hljóð í fólkinu, -r
ekki svo?
„Jú, hér líður fólki vel og af því
er allt gott af að frétta. Það er
framkvæmdahugur hér víðast
hvar, t.d. er verið að koma upp
rækjuvinnslu í Djúpuvik. Það
vantar bara fólk til vinnu."
BYGGING 3000 FERMETRA
FRYSTIHÚSS AÐ HEFJAST
Rætt við Jakob Helgason á Patreksfirði
JAKOB Helgason, framkvæmdastjóri Hraöfrystihúss
Patreksfjaröar hf., varö fyrir svörum á Patreksfirði. Þar
er filómleg byggð, sú fjölmennasta á suöurfjöröunum,
með um 1000 íbúa.
„Það er nú frekar lítið að frétta
héðan þessa dagana“, sagði
Jakob, „því það er alltaf dauft
yfir útgerðinni svona rétt eftir
vetrarvertíðina. Héðan voru
gerðir út 7 stórir bátar í vetur, og
var vertíðin frékar léleg. Núna
undanfarið hafa nokkrar trillur
verið á handfærum og aflað sæmi-
lega. Tíðin var afar slæm í byrjun
vetrarvertiðarinnar og gaf þá
sjaldan á.sjó, en tíðin batnaði
þegar á leið, en fiskiríið ekki.“
— Hvaða framkvæmdir eru
helztar á döfinni?
„Það eru hafnar byrjunarfram-
kvæmdir við nýtt frystihús, Hrað-
frystihúss Patreksfjarðar hf.
Þetta verður mikil bygging, um
3000 fermetrar að stærð, og
stendur á hafnarbakkanum. Það
er ekki bjart framundan í frysti-
húsarekstrinum og því alveg óvíst
hve langan tima tekur að koma
þessu nýja húsi í gagnið. Þá hefur
töluvert verið byggt af nýjum
íbúðarhúsum, og í undirbúningi
er gatnagerð úr varanlegu efni á
helztu götum bæjarins.“
— Hafið þið nokkuð hugsað
til skuttogarakaupa?
„Já, við höfum óneitanlega
hugsað um kaup á siíku skipi,
enda virðast þetta vera þau tæki
sem halda stöðunum uppi um
þessar mundir. Málið er enn á
umræðugrundvelli og margt sem
þarf að gera áður en ákvarðanir
eru teknar um kaup á slíku
skipi.“
— Hvað með tíðarfar á Patreks-
firði og nágrenni?
„Tiðarfar hefur verið hér sem
annars staðar á landinu með ein-
dæmum, blíðuveður upp á nær
hvern dag og útlit gott í landbún-
aðinum."