Morgunblaðið - 15.06.1974, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974
33
sonar verður góð til áheita og
margir munu vilja styðja það
starf, sem við hana verður bund-
ið.
Ég samgleðst Skaftfellingum að
hafa komið þessari merkilegu
hugmynd f framkvæmd, og ég
veit, að minning sr. Jóns Stein-
grímssonar mun verða komandi
kynslóðum hvatning til trúar og
góðra verka.
Óskar J. Þorláksson
FYRIR nokkrum árum hófust V-
Skaftfellingar handa að reisa sr.
Jóni Steingrímssyni minnisvarða
að Kirkjubæjarklaustri. Var sú
ákvörðun tekin 1966, að reist
skyldi minningarkapella um sr.
Jón þar sem hann starfaði og
prédikaði þau ár, sem hann var
prestur á Síðunni — og á þeim
stað, þar sem hann flutti „eld-
messuna“ frægu 20. júll 1783 (5.
sunnud. e. Trin.).
Vorið 1969 var hafist handa um
byggingu kapellunnar, en upp-
drátt að henni gerðu arkitektarn-
ir Helgi og Vilhjálmur Hjálmars-
synir. Umsjón með smiðinni hef-
ur haft Valdimar Auðunsson, Ás-
garði í Landbroti. Nú er svo kom-
ið, að kapellan verður vfgð 17.
júní n.k. í sambandi við hátíða-
höld þau, sem Skaftfellingar efna
til á 1100 ára afmæli Islands-
byggðar. I Kirkjubæ hafa kristnir
menn jafnan búið, allt frá því að
Ketill ffflski landnámsmaður
reisti þar bú, og afkomendur hans
héldu síðan fast við kristinn sið.
Skaftfellingar hafa vel og
drengilega stutt byggingu minn-
ingarkapellunnar, en auk þess
hafa ættingjar sr. Jóns Stein-
grímssonar, sem dreifðir eru um
land allt, lagt fram drjúgan skerf,
og aðrir aðdáendur hans. Alþingi
hefur og veitt myndarlegan styrk
til þessa verks, og ýmsar opinber-
ar stofnanir líka. Forystufólk f
safnaðarmálum sýslunnar hefur
staðið bak við allar ákvarðanir, en
framkvæmdir hafa að mestu hvílt
á herðum sóknarprestsins á
Kirkjubæjarklaustri, sr. Sigur-
jóns Einarssonar, og frú Guðríð-
ar Pálsdóttur, Seglbúðum.
Séra Jón Steingrfmsson var
Skagfirðingur að ætt og uppruna
(f. 10.9 1728), en vann að mestu
ævistarf sitt í V-Skaftafellssýslu.
Þar reyndist hann sönn hetja og
öruggur leiðtogi á miklum neyð-
artímum Skaftáreldanna 1783.
Auk þess var hann merkur rithöf-
undur, hvort heldur hann ritaði
um hin stórkostlegu náttúrufyrir-
bæri Skaftáreldanna eða sína eig-
in ævi, sem hvorttveggja f senn
var saga samtíðar hans og
persónusaga hans sjálfs. Fullyrða
má að ævisaga sr. Jóns Stein-
grimssonar er meðal allra merk-
ustu rita sinnar tegundar í fs-
lenzkum bókmenntum.
Engu af þessu hafa Skaftfell-
ingar gleymt og hafa þvf viljað
heiðra minningu hans með verð-
ugum hætti. Það var næsta eðli-
legt, að tekið væri tillit til hinnar
trúarlegu og kirkjulegu þátta í
ævistarfi hans.
Kirkjan á Prestsbakka, sem
byggð var 1859 og er veglegt og
virðulegt hús, verður framvegis
sem hingað til sóknarkirkja fyrir
Síðu og Landbrot. En þar sem
Kirkjubæjarklaustur er nú orðið
skólasetur, og byggð fer þar
smám saman vaxandi, og ætla
má, að umferð verði þar mikil I
framtfðinni, gæti minningar-
kapellan orðið verulegur þáttur í
andlegu lífi staðarins. Auk þess
tengir hún hinn nýja tíma sögu-
legri hefð, þvf að frá upphafi Is-
landbyggðar bjuggu kristnir
menn í Kirkjubæ, og þar var
merkilegt nunnuklaustur í
kaþólskum sið.
Bygging kapellunnar að Kirkju-
bæjarklaustri sýnir góðan skiln-
ing Skaftfellinga á því, hve minn-
ing merkismanna eins og sr. Jóns
getur haft fyrir þetta byggðarlag
og þjóðlífið í heild. Einmitt á
breytinga og óróatfmum höfum
ÞRR ER EITTHVRfl
FVRIR RLLR
Minningarkapella
sr. Jóns Steingrímssonar
við sérstaka þörf fyrir festu og
fórnarlund, sem á rætur sínar í
trúarlegum áhrifum og verðmæt-
um.
Enginn vafi er á því, að minn-
ingarkapella sr. Jóns Steingríms-
IMýja Bíó — frumsýnir
THE LAST
AMERICAN
&HEROŒ
Geysispennandi ný litmynd um einn vinsælasta
„Stock-car" kappakstursbilstjóra Bandaríkjanna fyrr
og síðar.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Festi Grindavík
Félag ungra jafnaðarmanna heldur stórdansleik
í Félagsheimilinu Festi í kvöld frá kl. 10 — 2.
Roof Tops
Mætum öll og stuðjum góðan málstað.
X—A X—A X—A X—A X—A X—A X—A
F.U.J.
Hótel
Akranes
Opið í kvöld
o
O
NÆTURGALAR
OPIÐ í KVÖLD! Dansað til kl. 2.00
Matur framreiddur frá kl. 19.00
Borðapantanir frá kl. 16.00 í síma: 52502
Borðum eigi haldið lengur en til kl. 21.00
Veitingahúsið w
SKIPHOLL Strandgötu 1 • Hafnarfirðl • ® 52502
Sveitaballstuð á
Hlégarði í kvöld
Tvær hljómsveitir
Haukar
Bendix
Mætum létt klædd.
Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 9—10.