Morgunblaðið - 28.07.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.07.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULÍ 1974. Ó,guð vors lands Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Matthfas Jochumsson. Þann 2. ágúst 1 874 var lofsöngur Matthlasar Jochumssonar, Ó. guS vors lands vi8 lag Sveinbjörns Svein- bjömssonar fluttur I fyrsta sinn. Þessi frumflutningur fór fram I Dóm- kirfcjunni, en þennan dag héldu Reykvíkingar hátíSlegan af tilefni þess, a8 eitt þúsund ár voru liSin frá því. a8 byggS hófst á íslandi. HaustiS 1870 settist Sveinbjörn Sveinbjörnsson a8 I Edinborg. þar sem hann átti eftir a8 búa mestan hluta ævi sinnar. Hann starfaSi þar sem tónlistarkennari og mun hafa vegnaS vel. HaustiS 1873. skömmu eftir a8 Sveinbjörn var kominn heim eftir átta mánaSa námsdvöl I Leip- zig, fær hann heimsókn. Er þar kom- inn Matthlas Jochumsson. Dvaldist Matthías um mánaSartima hjá Sveinbirni. en hann bjó I húsinu númer 15 vi8 London Street. Þetta hús átti vegna heimsóknar Matthlas- ar eftir a8 verSa islenzkur sögustaS- ur, því a8 þarna orti hann fyrsta erindi Ó. gu8 vors lands, en Svein- bjöm samdi viS þaS lag. Skömmu á8ur en Matthías hélt til Skotlands haföi hann fengiS lausn frá prestskap I Kjalarnesþingum. Um þessar mundir var mikiS rótleysi á Matthlasi. Hann haföi misst tvær konur sinar me8 stuttu millibili og hafSi það orðið honum þungbært. Hann var að mestu á faralds fæti og segir I endurminningum sinum, að svo megi heita. ,,að lif mitt og saga væri á hverfanda hveli 5—6 árin kringum þjóðhátiðina miklu 1874". Um það leyti. sem Matthias heldur af stað til Skotlands virðist undir- búningur þjóðhátíðar harla skammt kominn. Um það bil mánuði áður gefur þáverandi biskup, dr. Pétur Pétursson, tilskipun um, að sunnu- daginn 2. ágúst skuli sungin messa i öllum kirkjum landsins og skuli ræðutextinn vera 90. sálmur Davíðs 1.—4. og 12. —17. vers. Þessi texti virðist vera Matthiasi ofarlega i huga þegar til Edinborgar kemur, þvi að skyldleiki Lofsöngsins við 90. Daviðssálm er mjög greini- legur. Fyrsta erindið semur Matthias á meðan hann er hjá Sveinbirni i Edin- borg, en tvö hin siðari i London. Fyrstu tvö erindin fjalla um hin þús- und ár. sem nú voru liðin. en þriðja erindið höfðartil framtiðarinnar. Hluti af 90. Daviðssálmi hljóðar þannig: „Drottinn þú varst vort at- hvarf frá kyni til kyns. Áður en fjöllin fæddust og þú tilbjóst jörðina og heiminn, já frá eilifð til eilifðar ertu guð. Þú gjörir manninn að dufti og segir: Komið aftur þér mannanna börn, þvi að þúsund ár eru fyrir þinum augum sem dagurinn í gær. þá hann er liðinn eins og nætur- vaka." Og i fimmta versi, sem reynd- ar var ekki hluti af ræðutextanum, segir: „Þú skolar burt þeim (þ.e. dögunum); þeir eru sem draumur; á morgnana sem gras, er skjótt hverf- ur." Áður en Matthias fer frá Edinborg leggur hann hart að Sveinbirni að semja lag við Lofsönginn. En Svein- björn er tregur og segist ekki treysta sér til við hann. Eftir að Matthias er farinn sendir hann Sveinbirni itrekað áskoranir um „að reyna sig á sálminum. " Eggjanir Matthiasar báru að lokum árangur og um veturinn eða vorið semur Sveinbjörn i fyrsta sinn lag við íslenzkan texta. Lofsöng Matthí- ilS JH* !W' ÍS r] * : " 1 ! • m m • Hús númer 15 1 London Street f Edinborg, þar sem Matthfas orti fyrsta erindi 0, guð vors lands og Sveinbjörn samdi iag við ijóðið. í'í ð i‘lOt'l ii tfif*' /vr* (umh Jtr ti ihahÁi eitdfr/j T ju' <-.->» ín> tJ» . ia.tíis i-fiS.n «J '( Vif M p.t ittti U...I tuil u II <•/« ■ U* *Y «4 ii.ud ' icrt /l|tm<on.(S *»« s * d.f itti t».(x I t.ifn f.lf .4 /<«'</. ui lj.-ct i.i ffí’i-x «’’•* Iltif 'HuUti.iU jt u f Le tn«W . fc=3=T" p : ' ------.........■'■■■:...•• --------3L- -......... .................................. LV ; : J 1 ' . ■ I 1 M j J» M sillj-; J ; / '=*! T T~, * . T f ^ TT, < vil- * ’+’i * T * }■■ .rtó-:íí -id Z , 'S3 HL.i1 ................... ^.........--ti-r " 1 L. A»\n,v itý t+Ul’ í ---------- _L_____ ...... ___ » Ufiaí' t' L.;n*L> t*'’* , 'ru.U tt -=---3T~?V* -wr- n ■■ * • Vtí -4- 3 —f- ■tt *? C* "vVu3 l u H tl s"' V rrí hum |v»* •*t.'*r** ” ‘v ;xr —*T' \%»' U‘j **m jhft ht.il . u. iiv Vt?> Ai «> « í'*r . í ai*»i i'uk.« ^ Art.fi U U lÍH* ‘flil/ - ti l »<Í Mrtml _________________________________________________________________ --------------------1---------................................. r ^T—; ; V... j-j:. T f 1 ' f • s T -T^*. j...«■•*..:> V c r ic> - « v? voi fí.z < Uit ^?rd<V tt’ D‘«{ ± ~n~it /U( — iit. A at — U - •* fUu «i j þ • ' .*4f c í'i 4 *loi U Í< 4 ^ *.i / r i -d—|—» # ♦-—i—»- í£k T* -*-y- -- J>t Ó. guð vors lands, ó, lands vors guð, vér lofum þitt heilaga, heilaga nafnl Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans þinir herskarar, timanna safn. Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur. ei meir: eitt eilifðar smáblóm með titrandi tár, sem tílbiSur guð sinn og deyr. íslands þúsund ár — eitt eilifSar smáblóm me8 titrandi tár, sem tilbiður gu8 sinn og deyr. Ó. gu8, 6, gu8, vér föllum fram og fórnum þér brennandi, brennandi sál, gu8 fa8ir, vor drottinn frá kyni til kyns. og vér kvökum vort helgasta mál. Vér kvökum og þökkum i þúsund ár, þvt þú ert vort einasta skjól. Vér kvökum og þökkum með titrandi tár, þvi þú tilbjóst vort forlagahjól. fslands þúsund ár voru morgunsins húmköldu. hrynjandi tár. sem hitna vi8 skinandi sól. Ó, guð vors lands, ó, lands vors gu8, vér lifum sem blaktandi. blaktandi strá. Vér deyjum, ef þú ert ei Ijós það og lif, sem að lyftir oss duftinu frá. Ó, vert þú hvem morgun vort Ijúfasta lif, vor leiStogi í daganna þraut og á kvöldin vor himneska hvild og vor hlif og vor hertogi' á þjóSlifsins braut. íslands þúsund ár verSi gróandi þjóSlif með þverrandi tár, sem þroskast á guSsrfkis braut. IJpphaf þjóðsöngsins f handriti Sveinbjörns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.