Morgunblaðið - 28.07.1974, Side 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JtJLÍ 1974.
Málverk Gunnlaugs Schevings Landnám, sem gert er eftir klippmyndinni.
Listaverk um landnámið
Klippmyndin Öndvegissúlunum kastaS, eftir Gunnlaug Scheving.
Klippmyndin Landsýn, eftir Gunnlaug Scheving.
Vegna þjóShátlSarinnar hefur Mbl.
reynt aS afla upplýsinga um stór
listaverk, sem gerS hafa veriS um
landnámiS. í Ijós kom, aS tiltölulega
fáir listamenn hafa gert stór verk um
landnámiS. en blaSiS hefur látiS taka
myndir af þeim verkum, sem I Ijós
komu. Kann þó aS vera, aS einhver
verk, sem blaSinu er ókunnugt um,
hafi orSiS útundan.
Eftir þvl, sem næst verður komizt,
geröi Gunnlaugur Scheving listmálari
þrjár klippmyndir um landnámið fyrir
sögusýningu 1 tilefni lýðveldishátiðar-
innar 1 944. Myndirnar heita Landsýn,
Sigling og Öndvegissúlunum kastað.
Siðar gerði Gunnlaugur málverk eftir
tveim myndanna, Landsýn og Öndveg-
issúlunum kastað og hangir annað
þeirra — Landsýn, I Austurbæjarbiói,
en hin er i eigu dr. Gunnlaugs Þórðar-
sonar og hangir á heimili hans. Mynd
dr. Gunnlaugs nefnist Landnám. Klipp-
myndirnar þrjár eru nú á listasafni i
Lundi, „Arkiv för dekorativ konst”, og
mun listamaðurinn hafa látið þær af
hendi nokkrum árum eftir sögusýning-
una. Mynd er af Siglingu á öðrum stað
i blaðinu.
Jóhann Briem listmálari hefur gert
tvær myndir um landnámið og hefur
frú Vigdis Kristjánsdóttir ofið vegg-
teppi eftir báðum. Önnur myndin nefn-
ist Ingólfur tekur sér bólfestu og er í
Húsmæðraskóla Reykjavikur við Sól-
vallagötu, en teppið, sem ofið var eftir
henni, prýðir fundarsal borgarstjórnar
Reykjavikur I Skúlatúni. Var sú mynd
Jóhanns gerð i tilefni 1 75 ára afmælis
Reykjavíkur á árinu 1961. Hin mynd
Jóhanns Briem, Öndvegissúlunum
varpað, var gerð I tilefni 1 100 ára
afmæli íslandsbyggðar i ár og vinnur
frú Vigdls nú að því að vefa eftir
myndinni.
Einar Jónsson myndhöggvari gerði
hið kunna llkneski af Ingólfi Arnarsyni,
sem um árabil hefur verið borgarbúum
augnayndi á Arnarhóli, en Einar gerði
einnig aðra mynd, sem ekki er eins
kunn og nefnist Papi, fyrsti landnemi
íslands. Sú mynd var gerð i minningu
fyrsta kristna landnemans á íslandi.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari
gerði á árinu 1930 veggplatta, sem
heitir Landnámsmaðurinn og hangir i
vinnustofu hans. Þessi platti hefur
aldrei verið gefinn út, en Ásmundur
gerði hann meðan hann dvaldi f Frakk-
landi um svipað leyti og hann gerði
Alþingishátíðarplatta fyrir Frakka í til-
efni hátiðarinnar 1930. Þá gerði Ás-
mundur á árinu 1972 verkið „Friðar-
og landnámssól", sem nú er verið að
stækka.
Landsýn, málverk Gunnlaugs Scheving.