Morgunblaðið - 28.07.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLl 1974.
17
LandnófnsmaBurinn. eftir Ásmund Sveinsson.
FriBar- og landnámssól eftir Aamund Sveinsson.
Papi. Fyrsti landnemi fslands. eftir Einar Jónsson
Öndvegissúlunum varpaB. eftir Jóhann Briem
Séra
Skarp-
héðinn
Pétursson
- Kveðja
F. 11. október 1918
D. 5.júlf 1974.
.Dáinn, horfinn!" — Harma-
fregn!
Hvernig gat þetta skeð? —
Glaður, gamansamur, heilbrigður,
ljúfur að vanda fór séra Skarp-
héðinn Pétursson að heiman frá
sér þann 5. júlí síðastliðinn;
þurfti að skreppa á bílnum sínum
út á Höfn, og litla sonardóttirin
fékk að fara með. — Engan grun-
aði, að hann væri að leggja upp í
sína hinztu för. — En stundin var
komin — enginn má sköpum
renna. Hann ók f flýti sínu fari
heim „i höfn á friðaríandi.“ — Og
litla stúlkan, afabarnið, sem hann
unni og dekraði við, lá meidd og
hrædd f beigluðum bílnum, er að
var komið, hún er nú úr allri
hættu í sjúkrahúsi, þar sem allt,
sem í mannlegu valdi stendur, er
fyrir hana gert.
Það er ef til vill að bera í bakka-
fullan lækinn að bæta við það,
sem þegar hefur verið skrifað um
séra Skarphéðinn látinn, en mig
langar þó að senda honum fáein
kveðjuorð nú að leiðarlokum.
Séra Skarphéðinn var eins og
kunnugt er sonur Péturs Zophaní-
assonar ættfræðings og konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur. Voru þau
hjón alþekkt að gáfum og mann-
kostum. Svo var um fleiri ætt-
menn hans. Mér er í barnsminni,
hve hlýjan hug faðir minn bar til
séra Zophaníasar i Viðvík í Skaga-
firði, afa Skarphéðins, og taldi
hann sérstakan mannkostamann.
Ljóð á ég f fórum mínum, er faðir
minn orti um séra Zophanías lát-
inn.
Séra Skarphéðinn náði kosn-
ingu í Stafafells-, Bjarnaness- og
Hafnar-sóknum árið 1959, nýút-
skrifaður guðfræðingur, og vígð-
ist þangað þá um haustið. Hér var
hann sfðan starfandi prestur til
dauðadags. öllum mátti það ljóst
vera, að ekki hefði hann farið út í
guðfræðinám og prestsskap um
fertugt, nema djúpstæð trúarþörf
og trúaröryggi stæði að baki.
Kirkjulegar athafnir hans urðu
og mótaðar af öruggu trausti á
Guðs Orði og fullkominni vissu
um mikilvægi kristinna lífsvið-
horfa og trú á Kristi:
Séra Skarphéðinn var mikilúð-
ugur persónuleiki, stór og mynd-
arlegur maður, sem sómdi sér vel
f prestsskrúða fyrir altari og í
stól. Hann hafði góða rödd og var
ræðumaður góður. Sfðasta þjón-
usta hans í Stafafellskirkju var
ferming, skírn og aitarisganga, —
hátíðleg stund og ógleymanleg öll-
um viðstöddum. Næsta kirkjuat-
höfn séra Skarphéðins var í Hafn-
arkirkju þann 17. júní síðastlið-
inn, er þeir prestarnir í Austur-
Skaftafellssýslu, séra Fjalar á
Kálfafellsstað og hann, héldu þar
hátíðarmessu í upphafi og tilefni
af landnámshátfð sýslubúa. Fjöl-
Framhald á bls. 39
Ingólfur tekur sér bóltastu, eftir Jóhann Briem.
Ingólfur Amarson. eftir Einar Jónsson.