Morgunblaðið - 28.07.1974, Side 18

Morgunblaðið - 28.07.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULI 1974. Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir þjóðhátíðargesti llll Þjóðhátíð á Þingvöllum 1974 UMFERÐIN Varðandi umferðina beinir lögreglan eftirfar- andi tilmælum til fólks: 1. Jafn ökuhraði, þannig að komizt verði hjá tíðum framúrakstri. 2. Farið ekki á lélegum ökutækjum. 3. Ef óhapp hendir á leið- inni eru menn beðnir að koma bifreiðum sínum vel út á vegarkantinn eða út fyrir veg og biðja síðan fyr- ir skilaboð til næstu lög- regluvarðstöðvar. 3. Farið ekki á vörubif- reiðum til Þingvalla. Bif- reiðastæðin eru ekki gerð fyrir slík ökutæki. 4. Óheimilt er að ferðast með hjólhýsi á aðalleiðum til Þingvalla á sunnudag- inn. 5. Öll almenn bifreiða- umferð verður óheimil um þjóðgarðinn milli Þing- vallavatns og nýja Gjá- bakkavegarins. Varðstöðvar lögreglunnar verða á eftirtöldum stöð- um: 1. A mótum Þingvalla- vegar og Vesturlandsveg- ar. 2. Á Mosfellsheiði, á mót- um Þingvallavegar og Kjósarskarðsvegar. 3^ Á Þingvallaleið, á mót- um Grafningsvegar. 4. Á Þingvallavegi, móts við Kárastaðastíg (þar sem ekið var niður Almanna- gjá). 5. Á Þingvöllum, nánar tiltekið á Leirunum. 6. Á mótum Gjábakka- vegar og Sogsvegar. 7.1 Skógarhólum. 8. Á Uxahryggjaleið, við gatnamót Kaldadalsvegar og Uxahryggjavegar. Stjórnstöð löggæzlunnar verður á Þingvöllum í tjaldi við Efrivelli. Verður stjórnstöðin í fjarskipta- sambandi við lögregluvarð- stöðvar, lögreglubifreiðar og björgunar- og hjálpar- sveitir. í hverri lögreglu- varðstöð verður varðstjóri ásamt tveimur lögreglu- mönnum, bifhjól og lög- reglubifreið mönnuð lög- reglumönnum, auk tveggja aðstoðarmanna frá hjálpar- sveitum. Lögreglumenn á bifreið- um og bifhjólum annast eftirlit á vegunum og vega- þjónusta F.Í.B. verður á aðalleiðum á Þingvöllum. BIFREIÐASTÆÐI VERÐA Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM: 1. Við Kárastaði. Stæði þetta er einkum ætlað þeim, sem koma akandi yf- ir Mosfellsheiðina. Frá bif- reiðastæðinu verða fastar ferðir strætisvagna að barmi Almannagjár. 2. Við Kárastaðastíg fyr- ir ofan Almannagjá. Þeir, sem leggja á þessu stæði og á Kárastaðatúni, ganga nið- ur Almannagjá. 3. Við þjóðgarðshlið að vestanverðu. Stæðið er ætl- að þeim, sem vilja hafa bif- reiðir sínar sem næst tjald- stæði. Strætisvagnaferðir verða einnig frá þessu tjaldstæði. 4. Á leirunum beggja megin Gjábakkavegar. Stæðið er einkum ætlað þeim ökumönnum, sem koma um Sogsveg og nýja Gjábakkaveginn, og einnig þeim, sem koma akandi yf- ir Kaldadal og Uxahryggi. Ef fyrrgreind bifreiða- stæði þrjóta er bent á næg bifreiðastæði á svæði við Skógarhóla, en þaðan verða tiðar stærtisvagna- ferðir að hátíðarsvæðinu. UTVARPIÐ U pplýsingarstarf semi fyrir vegfarendur verður á eftirtöldum tímum: 1. Frá klukkan 7.00 að morgni sunnudags til kl. 10.45. 2. í hádeginu (ef ástæða þykir). 3. Frá kl. 17.10—18.30. 4. Frá kl. 19.30—20.30. Fólk er hvatt til að hafa með sér ferðaútvarp eða nota bflútvarp og hlusta á þessum tímum þannig að það geti hagnýtt sér þær upplýsingar, sem þar koma fram. STRÆTISVAGNAFERÐIR 1. Frá Reykjavík og Kópavogi á sunnudags- morguninn kl. 6.30, en á þeim tíma leggja vagnarnir af stað frá endastöðvum sínum eftir að hafa farið sínar venjulegu leiðir. Far miða verður að kaupa áður en stigið er upp í vagnana, en þeir eru seldir í Umferðarmiðstöðinni og gilda fram og til baka. 2. Langferðabflar munu halda uppi ferðum til Þing- valla frá Umferðarmiðstöð- inni frá kl. 7.00 um morg- uninn og fram eftir degi. 3. Strætisvagnaferðir frá bifreiða- og tjaldstæðum að sjálfu hátíðarsvæðinu verður haldið uppi allan daginn og eru ferðir ókeyp- is. ALMENNAR UPPLÝSINGAR 1. Þyrlur Landhelgis- gæslunnar og S.V.F.Í. verða til taks við eftirlits- og björgunarstörf. 2. Slysavarnafélag Is- lands, Flugbjörgunarsveit- in og Hjálparsveit skáta munu vinna að hjálpar- störfum og aðstoða lögregl- una við eftirlit, t.d. á hættulegum stöðum í nágrenni samkomustaðar, röðun bifreiða á stæði og slysahjálp. 3. Almenn þjónusta er fyrir hendi, s.s. veitingar, snyrting, salerni og póstur. 4. Fjölmenn sveit tjald- búðamanna frá skátunum verður á tjaldsvæðunum. 5. Áfengisneyzla er stranglega bönnuð og þeir, sem sjást með vín, verða tafarlaust fjarlægðir af svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.