Morgunblaðið - 01.08.1974, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. ÁGUST 1974
Þróun 874—1974:
Þáttur verzlunar
og Reykjavíkur
— í þróunarsýningunni í Laugardal
ÁTTA aðilar standa að deild
verzlunar á þróunarsýningunni f
Laugardalshöll.
Þar hefur verið leitazt við að
rekja sögu fslenzkrar verzlunar
allt frá landnámsöld og fram á
þennan dag og sýnt er, hvernig
verzlunin hefur þrðazt frá þvf að
vera nær eingöngu utanrfkis-
verzlun til þess að verða jafn
blðmleg bæði innanlands og við
útlönd og nú er.
Hér er sýnt, hvar verzlað hefur
verið á landínu og á ýmsum tfm-
um, en þegar verzlun gekk hvað
treglegast var einungis verzlað á
tfu stöðum á landinu öllu.
Það, sem mesta athygli sýning-
argesta hefur vakið í þessari
deild, er krambúð, sem sett hofur
verið upp. Hún er eins og þær
gerðust um og fyrir sfðustu alda-
mót og þar má sjá, hvernig öllu
hefur ægt saman, allt frá títu-
prjónum og næturgögnum upp í
tunnur og önnur stórvirki, en
einnig getur að Iíta margar mynd-
ir, margar hverjar stórskemmti-
legar úr ýmsum verzlunum frá
gamalli tíð.
Þá er á sýningunni fyrsta við-
skiptabók, sem færð var á ís-
lenzku, en það var verzlun Geirs
Zoöga, sem innleiddi þá nýlundu
hér á landi á 18. öld.
íslenzkur verzlunarannáll hef-
ur verið settur upp á sýningunni
og enda þótt þar sé stiklað á stóru
gefur hann gott yfirlit yfir þróun-
ina allt frá upphafi og til þessa
dags.
Vöxtur og viðgangur Reykjavík-
ur hefur alla tíð staðið í nánum
Moshe Leshen sendiherra Israels
á tslandi.
Lærði
„ÉG fór að sjá íslenzku óper-
una f gærkveldi — og sá þar
hvar Kissinger hefur fengið þá
hugmynd að halda uppi mála-
miðlunartilraunum með þvf að
vera sffellt á flugi milli deilu-
aðila — hann hefur það auðvit-
að frá Loka,“ sagði Moshe Lesh-
cn sendiherra Israels á tslandi
í samtali við blaðamenn f gær.
Þá hafði hann boðað til fundar
við sig í þvf skyni að gera grein
fyrir afstöðu Israels f deilunum
við Araba.
Hann brá hinsvegar á glens,
hvenær sem færi gafst, virtist
hafa skilið eðli Þrymskviðu og
óperu Jóns Asgeirssonar býsna
vel og haft af henni mikla
ánægju, enda þótt á honum
mætti heyra, að honum hefði
fundizt ástæða til að leggja
meiri áherzlu á ,,kímni“ verks-
ins í uppfærslunni. Ekki vildi
hann af diplómatískum ástæð-
tengslum við verzlunina, enda er
það ekki fyrr en Skúli Magnússon
og Innréttingar koma til sögunn-
ar, sem Reykjavík fer að byggjast
upp að ráði.
Umsjónarmaður deildarinnar
er Þorvarður Elfasson.
1 Reykjavíkurdeild sýngingar-
innar Þróun 874—1974 hefur ver-
ið safnað saman ýmsum munum
og minningum, sem hafa komið
við sögu Reykjavíkur.
Meðal þess, sem mesta athygli
vekur, eru tvö líkön, sem gerð
hafa verið af byggð í Reykjavfk.
Annað er af byggðinni eins og
hún var árið 1786, en þá fékk
Reykjavík kaupstaðarréttindi og
voru þá 183 íbúar á staðnum. Hitt
líkanið sýnir svo aftur byggðina
eins og hún er nú, en af þeim
húsum, sem stóðu í Reykjavík
eru nú aðeins tvö við lýði, þ.e.a.s
Assistentshúsið við Aðalstræti
þar sem Silli og Valdi verzla nú
og svo Múrinn sem kallaður var
en þar var þá tukthús staðarins
Sfðan hetur vegsemd hússins vax
ið til mikilla muna svo sem kunn
ugt er, en þar er nú m.a. skrif
stofa forseta Islands. Þetta líkan
hefur Aage Nielsen Edwin gert.
Hitt líkanið er af Reykjavík
eins og hún er nú og þar hefur
svæðið, sem sýnt er á líkaninu af
gömlu Reykjavík, verið afmarkað
til samanburðar.
Skýringarmyndir og kort af
Reykjavík eru mikilvægur þáttur
í deildinni og er þar m.a. gerð
grein fyrir hinni nýju áætlun um
umhverfi og útivist í Reykjavík-
urborg. Er gestum sýningarinnar
gefinn kostur á að gera skriflegar
breytingartillögur þar að lútandi
og verða þær síðar afhentar borg-
aryfirvöldum til íhugunar.
Athygli vekur, að reynt hefur
verið að gera þessa deild sýning-
arinnar þannig úr garði, að ekki
væri síður gaman af henni að
hafa en gagn. Þannig hefur t.d.
verið safnað saman frásögnum af
spaugilegum atvikum í bæjarlíf-
inu svo og myndum af ýmsum
þekktum persónum, sem sett hafa
sinn svip á bæjarbraginn.
Að frumkvæði sýningarinnar
hefur verið efnt til skoðunarferða
um borgina og hafa fróðir menn
um sögu og staðhætti verið fengn-
ir til ieiðsögu. Lagt er upp frá
Laugardalshöll dag hvern k).3síð-
dcgis, en kl. korter fyrir þi jú fer
bifreið frá Gimli við Lækjargötu.
Þar sem aðsókn er miki! í þess-
ar ferðir er nauðsynlegt að
Framhald á bls. 18
V erzlun arm an n ahelgin:
Utisamkomur í Vatns-
firði og við Hrafnagil
LlTIÐ verður um útisamkomur miðnætti á sunnudag. Þrjár
Endurnar á Tjörninni
verða að fá sitt eins og
aðrir og þessar litlu
stúlkur ætluðu að sjá til
þess.
úti á landi um verzlunarmanna-
helgina að þessu sinni eftir þvf
sem næst verður komizt, en dans-
leikir verða að venju á mörgum
stöðum, þar sem ekki eru skipu-
lagðar útiskemmtanir.
Stærsta útiskemmtunin verður
að lfkindum f Vatsfirði á
hátfðarsvæðinu, þar sem Vest-
firðingar héldu þjóðhátfð sfna og
verður öll aðstaða þar hin sama
og á þjóðhátfðinni. Þá verður
bindindismannamót að Hrafna-
gili f Eyjafirði með svipuðu sniði
og f fyrra.
Ámundi Ámundason, sem
stjórnar samkomunni í Vatns-
firði, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að hátfðin hæfist kl. 15 á
föstudag og yrði slitið eftir kl. 2
hljómsveitir munu leika á
skemmtuninni og fjöldi skemmti-
krafta kemur fram. Þá geta menn
keypt sér far með víkingaskipi um
Vatnsdalsvatn. Áfengisneyzla
verður bönnuð á samkomunni.
Gunnar G. Schram
til Caracas í ágúst
I frásögn Mbl. af hafréttarráð-
stefnunni í Caracas í gær féll nið-
ur, að Gunnar G. Schram vara-
fastafulltrúi íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum mun sitja
ráðstefnuna í ágústmánuði.
Kirkjubæjarklaustur:
Nýtt rekstursform Eddu-
hótels gefur góða raun
og matsölu. Björn Vilmundarson
forstjóri Ferðaskrifstofu rfkisins
sagði f samtali við Mbl. f gær, að á
undanförnum árum hefði verið
nokkurt tap á rekstri þessa Eddu-
hótels og hefði þvf annaðhvort
orðið að hætta eða breyta rekstri
I SUMAR var rekstursformi
Edduhótelsins á Kirkjubæjar-
klaustri breytt nokkuð og um það
samið við starfsfólk hótelsins, að
það fengi f sinn hlut ákveðinn
hluta tekna hótelsins af gistingu
Kissinger af Loka?
um ganga lengra í samanburði
á Kissinger og Loka, en sagði
þann fyrrnefnda einstaklega
laginn samningamann og
bragðvísan. „Hann hefur sér-
stakt lag á að leggja sama málið
fyrir marga aðila með msimun-
andi hætti, þannig að allir megi
vel við una — enda þótt þeir
viti sjálfir mætavel, hvað hann
er að gera,“ sagði Leshen.
Moshe Leshen, sem hefur að-
setur í Kaupmannahöfn, hefur
komið til íslands þrisvar áður
og séð þó nokkuð af landinu.
Hann er fæddur og uppalinn í
Tékkóslóvakfu og kom ekki til
Israels fyrr en árið 1948, þá
sem blaðamaður tékknesks dag-
blaðs og átti að fylgjast með
fyrstu átökum ísraels og Araba
eftir að landið varð sjálfstætt
ríki. Nokkru síðar fluttist hann
til landsins og hóf störf hjá
utanríkisþjónustu Israels.
Leshen kvaðst hafa viljað nota
tækifærið til þess að kynna Is-
lendingum sjónarmið landa
sinna I átökunum við Araba.
Það væri sér gleðiefni, að ekki
hefði orðið vart neinnar af-
stöðubreytingar íslenzkra
stjórnvalda í garð ísraels eins
og raun væri víða annars stað-
ar. „Það er ekki um að villast,"
sagði hann „að þarfir Israels og
málstaður mæta ekki sama
skilningi og áður ... en við höf-
um víst öll heyrt talað um efni,
sem heitir olía,“ bætti hann við
og hló.
Leshen rakti þá samninga,
sem gerðir hafa verið um að-
skilnað herjanna á Sínaí og I
Golanhæðum og sagði allar til-
slakanir í þessum samningum,
sem þó útilokuðu alls ekki að
styrjöld skylli aftur á, gerðar af
hálfu Israela. „Við höfum ekk-
ert fengið í staðinn fyrir þau
landsvæði, sem við höfum látið
af hendi; engir friðarsamning-
ar hafa verið gerðir og engar
tryggingar settar fyrir því, að
átökin hefjist ekki aftur hve-
nær sem er.“
Hann kvaðst lítt trúaður á, að
ísraelar fengjust til að slaka
frekar til gagnvart Sýrlending
um vegna fyrri reynslu þeirra
af árásum Sýrlendinga úr Gol-
anhæðum á samyrkjubú Isra-
ela. Á Sínai væri hugsanlegt, að
þeir fengjust til að draga herlið
sitt lengra til baka, þó yrði
Sharm E1 Sheik talsvert vanda-
mál. „Egyptar hafa áður lokað
Akabaflóa og,enda þótt lið Sam-
einuðu þjóðanna væri þar á sín-
um tíma, var það einfaldlega
kallað burt — svo að við treyst-
um illa slíku fyrirkomulagi.“
Erfiðast taldi hann þó að yrði
að semja við Jórdaníu, úr því
Framhald á bls. 18
þess. Var ákveðið að breyta
rekstrinum f þetta form til
reynslu og sagði Björn, að þetta
fyrirkomulag hefði gefið góða
raun það sem af væri sumri. Hef-
ur starfsfólkið vissa tckjutrygg-
ingu, en sfðan ákveðinn bónus
eftir þvf hvernig reksturinn geng-
ur.
Sagði Björn Vilmundarson, að
þeir hjá ferðaskrifstofunni vildu
gjarnan reyna þetta rekstursform
á fleiri stöðum næsta sumar.
Framhald á bls. 18
mm^mmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmammmmm^mmmm
Bv. Ingólfur Arn-
arson úr viðgerð
SKUTTOGARI Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, Ingólfur Arnarson,
kemur til landsins í næstu viku
eftir viðgerð í Þýzkalandi. Að
sögn Asgeirs Magnússonar for-
stjóra bæjarútgerðarinnar þurfti
að gera við lest skipsins á sama
hátt og bv. Snorra Sturlusyni og
einnig var skipið tekið í 6 mánaða
skoðun. Skipið leggur af stað
heimleiðis á mánudag og verður
væntanlega komið til landsins
fyrir lok næstu viku.