Morgunblaðið - 04.08.1974, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. ÁGUST 1974
31
Ekið var milli barnaskemmtananna f vfkingaskipi.
— Þjóðhátíð
Framhald af bls. 32
kirkjunni í tilefni 100 ára afmælis
þjóðsöngsins, þar sem m.a.
Andrés Björnsson flytur erindi
um Matthías Jochumsson og Jón
Þórarinsson, talar um Sveinbjörn
Sveinbjörnsson.
A morgun verða barnaskemmt-
anir á sömu stöðum og í gær, en
eftir hádegið verður síðdegis-
skemmtun við Arnarhól. Kvöld-
skemmtun verður síðan við Arn-
arhól um kvöldið með fjölbreyttri
skemmtidagskrá, en að henni lok-
inni verður dansað á þremur stöð-
um í miðborginni. Þar verða einn-
ig sölutjöld, þar sem á boðstólum
er ýmislegt góðgæti, eins og tfðk-
aðist hér fyrr á árum.
— Sameiginlegt
hús
Framhald af bls. 2
sókna, aukinnar hagræðingar
og menntunar. Það er rétta leið-
in til þess að fá beztu markaðina
fyrir útlutningsvörur okkar og
tryggir einnig bezt, að andvirði
útflutningsins sé varið á hag-
kvæman hátt f vörukaupum til
landsins.
Menntun — nýtt skólahús
Og fyrst að verzlunarmenntun
hefur borið hér á góma má geta
þess, að Verzlunarskóli íslands er
Verzlunarráði mikill höfðuðverk-
ur í dag, einfaldlega vegna þess,
að ásókn í skólann er svo mikil, að
þar eru nú hátt á áttunda hundr-
að nemenda. Það er óhætt að
segja, að skólinn sé of setinn. Eins
er það með námskeiðin fyrir fólk,
sem starfar að verzlun, og gagn-
fræðinga, sem sækja í þetta eins-
vetramám til viðbótar þeirri
menntun, sem þeir hafa fyrir; að-
sóknin hefur verið svo mikil, að
húsnæði hefur ekki fengizt fyrir
alla.
Aætlun um byggingu nýs skóla-
húss fyrir Verzlunarskóla íslands
liggur nú fyrir og hefur þegar
verið sótt um lóð nálægt hinum
nýja miðbæ, skammt frá veður-
stofunni nýju.
Stórafmæli
Mælifelli — 3. ágúst
BJÖRN Sigurðsson á Stóru-ökr-
um f Blönduhlfð er áttræður í
dag. Þá eiga hann og kona hans,
Sigríður Gunnarsdóttir, 55 ára
hjúskaparafmæli, en Sigríður
verður áttræð innan skamms. Þau
hafa búið á Stóru-ökrum frá 1919
og tekið mikinn þátt í félagslffi.
Þeim varð fimm barna auðið, og
eru fjögur þeirra búsett f Skaga-
firði. Þau Björn og Sigríður taka
á móti gestum í félagsheimilinu
Héðinsminni frá kl. 4 í dag.
— séra Ágúst.
— Jón
Framhald af bis. 8
ingar. Þvi hefur lengi verið haldið á
loft, að sjávarútvegur, landbúnaður
og á seinni timum iðnaður væru
höfuð- eða aðalatvinnuvegir lands-
manna. Margir hafa viljað bæta
verzlun og siglingum í þennan hóp.
En í raun er enginn atvinnuvegur
höfuðatvinnuvegur. Allir atvinnu-
vegir þurfa að vinna saman, eins og
hlekkir i keðju. Ef einn hlekkurinn er
gerður að aðalhlekk þá verða hinir
hlekkirnir veikari en hann. — Engin
keðja er sterkari en veikasti hlekkur
hennar. Umframstyrkur aðalhlekks-
ins kemur því ekki að neinu gagni.
— Nokkuð að lokum?
Ég óska öllu verzlunarfólki gleði-
legrar verzlunarmannahelgi.
— Skúli
Jóhannsson
Framhaid af bls. 2
voru 60—70 stúdentar við deild-
ina og þeir eru fleiri í ár, því að
áhugi á íslenzkunámi hefur farið
sfvaxandi frá þvf deildin var
stofnuð. Deildin hefur haft bein
áhrif til hvatningar yngri mönn-
um til að leggja fyrir sig fslenzku-
nám. Nú er einnig svo komið, að
fslenzka er orðin fastur liður í
barnaskólum á Nýja-islandi. Til
þeirrar kennslu hefur verið veitt-
ur rfflegur styrkur frá fylkis-
stjórn Manitoba og sambands-
stjórn Kanada og komið hefur i
ljós, að áhugi unga fólksins á því
áð læra málið er mjög vaxandi.
— En helzta fjöregg okkar
Vestur-íslendinga er Lögberg-
Heimskringla, biaðið, sem tengir
saman fólk af fslenzkum ættum
um öll Bandaríkin og Kanada.
Blaðið fer mjög víða og við leggj-
um mikla áherzlu á, að útgáfa
þess haldi áfram. Blaðið er gefið
út með miklu tapi, en íslenzk
stjórnvöld hafa árlega styrkt út-
gáfuna og Þjóðræknisfélagið
leggur einnig árlega fé til hennar,
en bilið er brúað með frjálsum
framlögum góðra manna. Við höf-
um aukið útbreiðslu blaðsins
nokkuð hér á Islandi fyrir til-
stuðlan okkar ágætu umboðs-
manna hér, Heimis Hannessonar
og Haralds J. Hamar.
— Frá fyrstu tíð hefur það ver-
ið aðalstefnuskrármál Þjóðrækn-
isfélagsins að efla tengslin milli
þjóðarbrotsins fyrir vestan og
heimalandsins og varðveita okkar
menningararfleifð. Það er mjög
ánægjulegt, að fjórða kynslóð ís-
lendinga vestan hafs, sem nú er
að koma til starfa, hefur ekki
minni áhuga á því starfi en hinir
eldri. Þetta gefur okkur góða von
um framtíðina. í Vesturheimi býr
fjöldi þjóðarbrota frá mörgum
löndum, en það er öruggt mái, að
ekkert þeirra er f eins nánum
tengslum við ættlandið og við,
enda má segja, að engin þjóð hafi
sýnt börnum sínum í fjarlægð
jafn mikla vinsemd og íslenzka
þjóðin hefur sýnt okkur.
— Vestur-lslendingar hafa
aldrei verið sameinaðri en nú. öll
sundrung frá fyrri tímum má
heita úr sögunni og samstarfið
innbyrðis hjá okkur 'er ágætt. Við
erum öll einhuga og samhent um
að vinna áfram að eflingu tengsl-
anna við íslenzku þjóðina.
INDKA!