Morgunblaðið - 18.08.1974, Page 1
32SIÐUR OGLESBOK
151 tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Lítil von um friðarviðraeður
Nikósíu, Ankara, Aþenu,
Washington, Moskvu
17. ágúst — AP.
• LlTIÐ var barizt á Kýpur á
laugardagsmorgun eftir 60
klukkustunda samfellda sókn
Tyrkja, sem fært hafði þeim
þriðjung eyjarinnar. Vopnahléð,
sem samkomulag náðist um f gær-
kvöldi, var aðeins rofið af um
fjögurra klukkustunda skothrfð f
Nikósfu snemma f morgun með-
fram vesturkanti „grænu Ifnunn-
ar“ svokölluðu, sem greinir að
grfsku og tyrknesku borgarhverf-
in. Strax f morgun tóku svo grfsk-
ir Kýpurbúar, sem flúið höfðu
borgina f gær, að streyma aftur til
hennar, útvarpsstöð þeirra hvatti
helztu starfsmenn stjórnarinnar
til að snúa aftur til vinnu og
bakarf og matvöruverzlanir til að
opna að nýju. Talsmenn Samein-
uðu þjóðanna sögðu, að tveir
danskir hermenn friðargæzlu-
sveitanna hefðu farizt skömmu
eftir að vopnahléð tók gildi og
þrfr særzt, er þeir óku yfir jarð-
sprengju. AIls hafa þá fimm her-
menn S.Þ. farizt f átökunum sfð-
ustu daga og 50 særzt.
0 Grikkir hafa lýst þvf yfir, að
þeir sjái enga leið til þess að
viðræður hefjist að nýju um
framtfðarlausn á vandamálum
Kýpur. Þetta sagði Denis Cara-
yannis sendiherra Grikklands hjá
Sameinuðu þjónunum f gær, er
öryggisráðið samþykkti að skora
á alia málsaðila að setjast að
samningaborðinu f Genf að nýju.
Konstantfn Karamaniis forsætis-
ráðherra Grikkja sagði f Aþenu:
„Það væri barnaiegt að halda, að
Grikkland sé reiðubúið til þátt-
töku f viðræðum undir þeim
þrýstingi, sem núverandi staða
skapar.“
Bæði Kissinger utanríkisráð-
herra og Ford forseti Bandarfkj-
anna hafa boðizt til að miðla mál-
um og hefur því að sögn tais-
manns bandarísku stjórnarinnar
verið vel tekið af Ecevit forsætis-
ráðherra Tyrklands og Klerides
forseta Kýpur. Þessu hafa Grikkir
hins vegar hafnað með öllu. Hafa
and-bandarískar mótmælaaðgerð-
ir verið um allt Grikkland síðan f
gær og virðast Grikkir telja, að
Bandarfkjamenn hefðu getað
komið í veg fyrir hernaðaraðgerð-
ir Tyrkja ef þeir hefðu viljað.
Bandaríkin hafa mikilvægar her-
stöðvar bæði f Grikklandi og á
Tyrklandi.
Tyrkneski forsætisráðherrann
Bulent Ecevit sagði f Ankara, að
hersveitir Tyrklands hefðu náð
ætlunarverki sínu og lagt grund-
völl að sambandsriki á Kýpur með
tveimur sjálfstjórnarsvæðum,
einu fyrir grfska Kýpurbúa, öðru
fyrir tyrkneska. Er grfska þjóðar-
brotið um 520.000 manns, en það
tyrkneska 120.000 manns. Sagði
Ecevit, að Grikkir yrðu áfram á
tyrkneska svæðinu og Tyrkir á
því gríska til að tryggja öryggi
minnihlutans á hvoru svæði fyrir
sig.
Málgagn sovézka kommúnista-
flokksins, Pravda, segir f dag, að
úrsögn Grikklands úr hernaðar-
samstarfi innan Atlantshafs-
bandalagsins sanni, að aðildar-
Iönd NATO séu að missa trú á
bandalagið. „Um leið fær það við-
horf æ meiri stuðning, að banda-
lagið, sem er afkvæmi kalda
strfðsins og aðsetur herskáustu
afla hernaðarstefnu og aftur-
halds, eigi enga framtfð fyrir
sér,“ segir fréttaskýrandi Pravda,
Yuli Yakhontov, í grein sinni.
Enn fremur endurtekur hann þá
fullyrðingu Sovétmanna, að átök-
in á Kýpur hafi verið runnin und-
an rifjum NATO.
Fordí
(>•>> •
fjonnu
Washington 17. ágúst — AP.
ÞAÐ VAR f jör og dans f Hvfta
húsinu f gærkvöldi, þegar
Gerald Ford forseti hélt fyrstu
veizlu sfna til heiðurs erlend-
um þjóðhöfðingja, — Hussein
Jórdanfukonungi og Alfu
drottningu hans. Ford var
hrókur alls fagnaðar og dansað
var til miðnættis við undirleik
popphljómsveitar. „Ég
skemmti mér afskaplega vel“,
sagði Ford. „Og við munum
svo sannarlega hafa meira af
slfku“. Hann lofaði þó að mæta
til vinnu kl. 8 að morgni. Einn
af gestunum 170 sagði um
veizluna: „Þetta var eins og
nýr og ferskur gustur f Hvfta
húsinu“. Ford forseti ætlar að
leyfa sér að slappa svolftið af
yfir helgina, en hann hefur
unnið 12 tfma á dag þessa
vikuna. M.a. ætlar hann að
leika golf eftir messu á sunnu-
dag. Einnig er talið, að hann
muni fhuga útnefningu vara-
forseta.
Borgari Nixon
í bæjarstjórn?
San Clemente, Kalifornfu,
17. ágúst. — AP.
BÆJARSTJÓRNIN í strand-
bænum San Clemente, þar sem
borgari Richard M. Nixon
dvelst nú ásamt fjölskyldu
sinni, vill, að forsetinn fyrr-
verandi taki virkan þátt f mál-
um bæjarfélagsins. Er bæjar-
stjórnin að ganga frá ályktun,
þar sem Nixon er opinberlega
boðinn velkominn til San
Clemente, en hann hefur f
hyggju að búa í húsi sfnu þar
til frambúðar. A bæjar-
stjórnarfundi nýiega kom 01
orðaskipta milli tveggja
bæjarstjórnarfulltrúa um
orðalag ályktunarinnar. Eftir
nokkuð þóf sagði annar þeirra,
Patrick Lane: „Ef okkur tekst
einhvern tfma að fá hann
(Nixon) til að þrauka út einn
bæjarstjórnarfund, flyzt hann
til Key Biscayne.“ Og það má
auðvitað ekki gerast.
Lánatregða í
Bandaríkjunum
Chicago 17. ágúst — AP.
JOSEPH A. Lucas lfkar ekki
að vera synjað um bankalán.
Eftir að First National Bank of
Chicago hafði neitað að verða
við lánsumsókn hans árið
1972, skrifaði Lucas banka-
stjóranum bréf, þar sem hann
hótaði að ræna bankann.
Alrfkislögreglumenn tóku
forkunnarvel á móti honum,
þegar hann ók f hlað með
skammbyssu f hendi og
ákærðu hann fyrir tilraun til
bankaráns. Hann var dæmdur
f tveggja ára fangelsisvist, en
hélt áfram að skrifa bankan-
um og biðja um lán. Lucas var
látinn laus f júnf s.l. og lét það
verða sitt fyrsta verk að krefj-
ast 15.000 dollara láns hjá
bankanum. Eftir að hafa feng-
ið enn eina synjun greip
Framhaid á bls. 31