Morgunblaðið - 18.08.1974, Page 4
4
® 22-0 22- I
RAUÐARÁRSTÍG 3ll
V_______________—-------y
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
Bílaleiga
CAR RENTAL
Sendum
C J* 41660 - 42902
/pZ BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIONŒŒTÍ
utvarp og stereo
CASETTUTÆKI
JHíir£imI)Iat>i!>
MARGFALDAR
■111
JIlor0unI)laMt»
JHí>r£vmI)IívMt>
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR Í8. AGUST 1974
„ tíkur ”
Tvœr
Getur þetta verið fyrirsögn á
blaðagrein „Við gluggann" og á
sunnudegi?
Ja, svo sannarlega er það
ekki missýning. Hér er kannski
því miður hvorki um hunda né
hvolpa að ræða, heldur stefnur
í lífi og list — með nýtízkuleg-
um endiorða af útlendum upp-
runa. Þykir það ekki fínast og
fegurst!?
Þið hafið auðvitað öll heyrt
rætt um og talað sjálf um póli-
tfk og rómantík.
Önnur nýtur mikillar náðar
og hylli nú á dögum. Um hana á
helzt allt að snúast. Fundir eru
haldnir helzt nótt og dag — nei
nætur og daga — jafnvel mán-
uðum saman af hennar völdum,
lífstefna valdsins, auðsins.
Hún á að sameina allt frá
einni smáfylkingu í bakhúsi
eða kjallara til Araba og
ísraela, austurs og vesturs —
Brezhnevs og Nixons, Kína og
Rússlands.
Hún er til að sundra og skapa
valdagræðgi, kúgun, undirferli,
svik, eyðingar, fangelsanir,
fjöldamorð, pyndingar, styrj-
aldir og djöfulæði. Þarf svo að
vera? Sennilega ekki — en
samt er það svo.
Ekki berst svo blað í hönd, að
ekki sé þar einhver lofsöngur
eða útburðarvæl af rótum
runnið hinnar miklu „tíkur",
sem tignuð er af höfðingjum
heimsins.
„Pólitík“ segir fólkið, sem fer
af stað í kosningar. „Pólitfk"
segir fólkið, sem fylkir sér um
nasisma, fasisma, kommún-
isma, kapitalisma, marxisma,
sósfalisma og Zionisma og telur
trúarsannfæringu, samvizku og
sálarheill varða og vera þar
með — ismalaus er víst aumt að
lifa.
En því miður stefnir flest,
sem fylgir pólitfk og öllum
hennar „ismum" eða skottum, í
átt til fjandans — það er að
segja haturs, hefnda og bölv-
unar á afturfótum tíðarandans
— það er að segja „hugsjóna"
með öfugum forteiknum, svo að
öll symfónfan verður fölsk.
•
Allt sameinast í orðunum
„Dýrð handa mér,“ þar sem
mér er dregið með seim og
endurtekningu eins og „love“ í
ensku „blues“-lagi. Sjálfselska,
sjálfsdýrkun verður að öskri —
græðgi, kröfu, sem síðast berg-
málar í tómi, þar sem allt er
fallið, — farið, dautt. Pólitík —
vald — upphefð. —
Hin „tfkin“ — lifsstefna
listar — rómantík, er líka
stundum dýrkuð í afskekktum
hreysum og kotum, fjárhúsum,
fjósi, hanabjálka og kjallara-
holu. En hún leitar jafnan
himins — en gleymir jörðinni.
Hún horfir á stjörnur jafnvel í
grjóti. Hún grætur, þegar
heimur hlær. Hún á engan auð í
banka, en bara f hjörtum, sem
slá í auðmýkt og tilbeiðslu fyrir
undri tilverunnar — undrum
lffsins, sem ef til vill eru nefnd
Guð, en birtast kannski í einu
blaði á blómi, einum geisla á
hausti, einu gliti f hélu á strái,
einum kristalli í skítugri stein-
stétt við fætur gamalmennis.
Hún á ekkert — en samt
allan heiminn.
Hún er gerð eins hlægileg og
hægt er af systur sinni pólitík-
inni og aðdáendum hennar.
Blöð og fjölmiðlar, dómarar og
gagnrýnendur gera og gefa orð
og griði, sem eiga að veita
brautargengi börnum, sem
hylla rómantík. En það eru
orð, sem verka sem rógur og
minjagriðir — heiðursþing,
sem líkjast hestum með glóandi
hundshaus eða lampa, sem
aldrei bæri annað en mýraljós.
Ömar, orð, litir og línur, sem
gjört er í auðmýkt og tilbeiðslu
með rómantík og leiðarljósi, er
yfirleitt að engu haft, þangað
til skapendur, mótendur og
uggbyggjendur í orðsins list,
tónstörfum og litrófi, eru löngu
komnir undir græna torfu. Þá
gæti einhver hafið þá til skýj-
anna, ef ekki með öðru en að
grafa upp einkamál þeirra,
ágalla og yfirsjónir, mistök og
við
gluggann
eftirsr Árelius Nielsson
vammir, helzt til að hækka
sjálfan sig f sessi.
Rómantík, sem lituð er af ætt-
jarðarást, átthagaást — yfir-
leitt af ást á einu eða öðru, er
tróðin undir fótum, tekin til
gamans á mannamótum, hæðzt
að tárum hennar, brotizt inn í
helgidóma hennar, hrækt í
andlit hennar — og síðan kross-
fest fyrir augum fjöldans,
múgsins, sem æpir sálarlaus:
„Meira brauð, meiri leikir."
„Hvað höfum við að gera með
konung sannleikans?"
En rómantíkin, sem er í eðli
sínu sjálf fegurð lífsins — eða
draumur barnshjartans um
unað og frið ofar öllum hásæt-
um valdsins, sem pólitíkin hleð-
ur upp, rómantfkin rís upp
aftur með hverju vori. Hún er
nefnilega draumur Guðs —
sjálft lífsins tré.
„Hvernig sem fella það
farið er að,
þeir fá því ei grandað
né eyðilagt það.“
Vantar skrifstofumann
á verkstæði. Uppl. hjá skrifstofustjóra.
BRITIBH P STEF
jjps^
LEYLAPJD IBLANO
P. STEFÁNSSON HF.
Hverfisgata 103, Reykjavík, Island. Sími 26911
PÓSTUR OG SÍM
Laus staða hjá Rekstursdei/d —
Vestmannaeyjar
— staða loftskeytamanns eða símritara við
loftskeytastöðina.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri Pósts og
síma Vestmannaeyjum.
Sumarútsala
Kápur, dragtirog stakir jakkar.
50% afsláttur.
Kápu- og dömubúdin
Laugavegi 46.
Hestamenn
Þeir, sem geta bent á villur í sýningarskrá
landsmótsins 1974 á Vindheimamelum, t.d.
nafnaskekkjur, rangar ættfærslur, aldur, o.fl.,
vinsamlega hafi samband strax við Harald
Þórarinsson, Hóli II, Eyjafirði, sími um Munka-
þverá eða við undirritaðann.
Skrifstofustúlkur
Óskum að ráða skrifstofustúlkur til starfa í
ávísanaskiptum nú þegar. Reynsla í vélritun
nauðsynleg. Hafið samband við starfsmanna-
stjóra kl. 9 —10 f.h. III. hæð Landsbankahús-
inu.
Seðlabanki íslands
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem
sendu mér blóm, skeyti og gjafir á 75. ára
afmæli mínu 1. ágúst sl. Sérstaklega þakka ég
Ekkjufellshjónum og öðru frændfólki, höfðing-
legar og ógleymanlegar móttökur.
Kær kveðja frá okkur hjónunum, með ósk um
bjarta framtíð.
Guðmundur Jónsson
Skarðsh/íð 31 B.
Akureyri.
Þorkell Bjarnason,
hrossaræktarráðunautur.
... G. T. Búðin H/F
fn¥\ -Jjr fjí lí 1 . r--"""- Jf auglýsir
Þessir vinsælu hjólhýsa- speglar komnir aftur, einnig 50 mm dráttarkúl- ur og skálar, Ijósatengi 7 spóla 7 strengja Ijósakapl-
ar o.fl.
pi i' - G. T. Búðin H/F
Hí/. Ármúla 22. Sími — 37140.
LESIIl
ij®
DRGIECn
tm
iiít'.ml