Morgunblaðið - 18.08.1974, Síða 13

Morgunblaðið - 18.08.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1974 13 f jöldi hrogna úr einum þorski er 2 til 3 milljónir. Arið 1972 var heildarþorskafl- inn um 236 þúsund tonn og árið 1973 um 228 þúsund tonn. Arið 1972 var meðalaldur fiskanna I aflanum 6,3 ár og 1973 5,9 ár. Sé gert ráð fyrir, að heildaraflinn þurfi að vera 232,2 þúsund tonn, þá eru í þeirri veiði 54 milljónir fiska, ef reiknað er með sex ára gömlum þorski, sem vegur 4,3 kg. Ef gert væri ráð fyrir, að 5400 hrygnur væru kreistar og 1 milljón hrogna fengjust úr hverri hrygnu, myndi nægja, að 1% hrognanna næðu að verða sex ára þorskar, til að heildaraflamagn- inu væri náð. Þetta er svo veigamikið atriði, að það þolir enga bið. Við eigum úrvals vísindamenn, sem gætu tekið þetta mál upp á arma sína. Hvernig væri að fá fiskifræðing- unum jafnmikið fjármagn í hendur og áætlað er til Seðla- bankabyggingarinnar? Eða láta fiskifræðingana bæði fá Seðla- bankabygginguna til umráða og nægilegt fjármagn til tilrauna. Það gæti leyst gjaldeyris- og efna- hagsvandamál Seðlabankans og þjóðarinnar til frambúðar. „Eigi skal gráta Björn bónda“ Allt frá 15. öld, þegar Ólöf mælti hin fleygu orð, og fram á þennan dag hefur saga þjóðarinn- ar verið samofin þeirri þrá og von að öðlast á ný óskoruð yfirráð yfir öllu hafsvæðinu kringum Island að nýju. Orð Ölafar hafa verið okkur leiðarljós hér á Islandi og verða þar til sigur hefur unnizt. Þegar áskorun okkar „50 menn- inganna" um 200 mílurnar kom fram fyrir einu ári, var það von mín og trú, að sámstaða allra stjórnmálaflokka næðist um að lýsa yfir 200 mílum á 1100 ára afmæli Islandsbyggðar. Var málið þvi þannig úr garði gert, að öllum stjórnmálaflokkunum var gefinn kostur á að standa samhuga um þetta mál. Aðeins einn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, tók málið upp á sina arma og lýsti yfir stuðningi við áskorun 50 menn- inganna, auk þeirra Bjarna Guðnasonar og Hannibals Valdi- marssonar, sem lýstu yfir stuðn- ingi við málið. Formönnum allra þingflokka var send áskorunin og þeir gátu þvf hæglega stutt málið, ef vilji hefði verið fyrir hendi. Það er staðreynd, að ef Alþingi hefði samþykkt 200 mílna yfirlýs- inguna, áður en ráðstefnan í Cara- cas hófst, hefði það létt islenzku nefndinni störf og gert henni kleift að starfa af meiri festu og öryggi en hún á möguleika á. Þeg- ar haft er f huga, að Alþingi Is- lendinga heldur 1100 ára afmæli Islandsbyggðar hátíðlegt um þess AUGLÝSilMGATEIKIMISTOFA MYIMDAMÓTA Aðalstræti 6 sími 25810 ar mundir, blundar hjá mér sú von, að fiskviðilögsagan, sem er nátengdari sögu og menningu Is- lands en nokkurt annað mál, geti átt þann heiður í vændum að sitja þar í forsæti. Við öðluðumst sjálf- stæði 1944 eftir margra alda bar- áttu við danskt vald, en við höfum ekki enn þá fengið full yfirráð yfir því hafsvæði, sem við höfum þó barizt lengur fyrir að öðlast að nýju en fyrir nokkru öðru máli. Það er trú mín, að allir flokkar geti nú verið sammála um 200 mílurnar og samþykkt þær. Þær ættu að vera boðskapur okkar til þjóða heims á 1100 ára afmælinu, og rétt viðbrögð við úrskurði al- þjóðadómstólsins f Haag. Þetta er skylda okkar við alla þá ótöldu Islendinga, sem barizt hafa fyrir yfirráðum yfir hafsvæðinu kring- um Island, allt frá þvf á 15. öld, en Englendingar hófu fyrst veiðar hér við land í óþökk landsmanna. Ólöfu húsfreyju mundi finnast bónda síns fullhefnt með þeirri samþykkt. Ég þakka öllum, sem glöddu mig með gjöfum, skeytum og heimsókn um á sextugsafmælisdeginum mlnum 9. júli síðastliðinn. Guðrún E. Jónsdóttir, Engjavegi 3, ísafirði. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem eru skemmdar eftir umferðaróhöpp.: Fiat 128 árg. 1974 Volkswagen 1 200 árg. 1972 Cortina 1600 árg. 1970 Cortina árg. 1 964 Bifreiðarnar verða til sýnis i skemmu Hagtrygg- ingar h.f. á Hvaleyrarholti, Melabraut 26, Hafnarfirði, mánudaginn 19. ágúst kl. 5 — 7 síðdegis. Tilboðum sé skilað til Hagtryggingar h.f., — Tjónadeild — Suðurlandsbraut 10, fyrir kl. 5 þann 20. ágúst. Hagtrygging. OKKAR LANDSFRÆGA AGUST ÚTSALA HEFST MANUDAGINN 19ÁGÚST OG NÚ HÖLDUM VBÐ HANA Á 2 STÖÐUM A LAUGAVEGI 37 OG 89 FÖTFRÁ KR. 5.900. PEYSUR FRÁ KR. 690 — STAKIR JAKKAR FRÁ KR. 3.500 — SKYRTUR FRÁ KR. 690.— KULDAJAKKAR FRÁ KR. 1.950.— KULDAÚLPUR FRÁ KR. 1.750. GALLABUXUR FRÁ KR. 890.— BOLIR FRÁ KR. 250 — O.FL. O.FL. GEFJUNNAR ALULLARTEPPI 2m x 1,50m FYRIR AÐEINS KR. 1.480.—. 10% AFSLATTUR AF ÖLLUM HLJÓMPLÖTUM Laugavegi 89.'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.