Morgunblaðið - 18.08.1974, Page 17

Morgunblaðið - 18.08.1974, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974 17 Leon Jaworski Watergate-saksóknari Jaworski ræðir við fréttamenn. Það er hans að ákveða, hvort Nixon verður sak- sóttur eða ekki Jaworski fyrir utan Hæstaréttar- bygginguna. Þegar Richard Nixon, fyrrum forseti Bandarikjanna, valdi Leon Jaworski eftirmann Archibalds Cox í embætti sérlegs Watergate- saksóknara, eftir að Cox, Elliot Richardson, dómsmálaráðherra, og fleiri háttsettir embættismenn höfðu látið af störfum vegna ágreinings við forsetann í svoköll- uðum „laugardagskvölds fjölda- morðum", þá grunuðu margir for- setann um græsku. Var þvi m.a. haldið fram að eftir að hafa sett Cox af fyrir að hafa gengið af fullri hörku eftir tilhlýðilegum gögnum i málinu hjá Hvita húsinu, hafi for- setinn ætlað sér að kæfa áfram- haldandi rannsókn saksóknara- embættisins á Watergate með því að skipa i embættið leiðitaman stuðningsmann sinn Jaworski, sem á sinum tima studdi Lyndon Johnson og veitti endurkjöri Nix- ons árið 1972 fylgi sitt. Hann hafði verið valinkunnur lögmaður í hinni íhaldssömu Houstonborg i heimafylki sinu Texas, og hafði 200.000 dollara árstekjur. Óstað- festar fregnir hermdu, að John Connally, fyrrum rikisstjóri iTexas og fjármálamaður Nixons, hefði gengið frá útnefningu Jaworskis. Þessar bollaleggingar reyndust fljótlega vera út i bláinn. Hávaðalaust og með markvissum vinnubrögðum setti Jaworski skrið á rannsóknina og einbeitti sér aðeins að því að ná takmaki hennar, — að réttlætinu yrði fullnægt. Og nú þeg- ar Nixon hefur orðið að segja af sér embætti, er ákvörðunin um, hvort forsetinn fyrrverandi verði engu að síður sóttur til saka fyrir aðild slna að þessu mesta hneykslismáli bandariskrar stjórnmálasögu I hönd- um Jaworskis. Með dæmigerðri stillingu og íhygli ætlar Jaworski ekki að flana að neinu i þeim efnum, heldur kanna málið. „Haldið þið, að ég á mínum aldri fari að taka þátt í einhverju, sem kynni að eyðileggja það mannorð og orðstír, sem ég hef reynt að byggja upp gegnum árin" sagði hinn 68 ára gamli Texasbúi, er hann var spurður um viðhorf sín. Þegar í upphafi reri Jaworski öll- um árum að því að tryggja sjálfstæði sitt, — ekki sízt til að vinna traust starfsfólks síns, sem mjög var orðið tortryggið og vonsvikið vegna brott- vikningar Cox. Sú tortryggni beind- ist líka að Jaworski. Kvöldið, sem Cox var sviptur embætti, tóku starfs- menn saksóknarans niður allar per- sónulegar veggskreytingar og myndir á skrifstofunni, og þegar Jaworski var skipaður I embættið, létu þeir enn hjá llða að setja þær upp aftur. En eftir að Jaworski hafði gegnt embættinu í tvær vikur, voru myndirnar komnar á veggina að nýju. Það var talandi tákn þess, að hinn nýi saksóknari hefði sýnt, að hann hefði í hyggju að halda rann- sókninni áfram af krafti og tekizt að vinna traust starfsfólksins. En einnig var Jaworski ákveðinn I að sýna sjálfstæði sitt gagnvart Hvita húsinu Hvað eftir annað hafn- aði hann t.d. boðum Nixons um að koma til fundar við sig persónulega Flest samskipti hans og forsetaemb- ættisins fóru fram gegnum Al- exander Haig. skrifstofustjóra I Hvita húsinu. Það rann lika fljótlega upp fyrir Hvíta húsinu, að Jaworski var engu meðfærilegri en Archibald Cox. Hann var jafnvel enn beinskeyttari og óþolinmóðari, ef einhver reyndi að gera honum erfitt fyrir i starfi sinu. Gagnstætt Cox, sem lagði mik- ið upp úr löngum vangaveltum og viðræðum um lögfræðikenningar og merkingu ákveðinna lagasetninga, er Jaworski óformlegur, gengur hreint og beint til verks og keyrir hlutina áfram. Það hefur líka vakið athygli, hversu Jaworski er ná- kvæmur og gagnyrtur i tali Þá sjald- an hann kemur fram i sjónvarpsvið- tölum, slær hann öll met í hversu mörgum spurningum honum tekst að svara á hverri minútu útsending- artimans. Áður en Leon Jáworski var kallað- ur til starfa sem Watergatesaksókn- ari i Washington, var lífsmetnaði hans að mestu fullnægt Hann var algerlega sáttur við að halda áfram lögmannsstarfi sinu og eyða fritím- anum á stórum búgarði sinum við jarðyrkju og hrossarækt Jaworski er sonur lútersks prests, sem fluttist til Bandaríkjanna frá Pól- landi, en hann fæddist i Waco í Texas. Þrátt fyrir að fjölskyldan væri fátæk, tókst Leon, ásamt tveimur bræðrum sinum og systur, að basl- ast i gegnum Baylor-háskólann og þaðan tók hann lögfræðipróf árið 1 925. Fljótlega ávann hann sér svo mikinn orðstir sem leikinn málflutn- ingsmaður, að þekktasta lögfræði- fyrirtækið i Houston-Fulbright. Crooker, Freeman & Bates réð hann i þjónustu sína, og árið 1951 varð hann einn af aðaleigendum þess fyrirtækis. Þegar Jaworski var skip- aður Watergate-saksóknari, var að- eins eitt lögfræðifyrirtæki i Texas talið Fulbright, Crooker & Jaworski framar, en það var fyrirtæki John Connally, Vinson, Elkins, Searls, Connally & Smith. Árið 1971 naut Jaworski þess heiðurs að verða val- inn forseti bandaríska lögmanna- sambandsins. Á leiðinni upp á toppinn rakst Jaworski óhjákvæmilega á annan upprennandi Texasbúa, Lyndon Johnson, síðar forseta Bandarikj- anna. Tvívegis kom Jaworski John- son til hjálpar Fyrst, þegar hann hjálpaði til við vörn Johnsons, er hann var sakaður um svindl i for- kosningum til öldungadeildarinnar árið 1 948. Þar bar Johnson sigur úr býtum. Og i annan stað var Jaw- orski lögfræðingur Johnsons vegna málshöfðana, þegar reynt var að koma i veg fyrir, að hann gæti boðið sig fram til varaforseta og öldunga- deildarinnar samtimis árið 1 960. Þegar Lyndon Johnson varð for- seti, vildi hann fá Jaworski i emb- ætti dómsmálaráðherra, en þar eð hann vildi ekki eiga á hættu að vera Framhald á bls. 31 Samstaðan í varnarmálum Sérstök ástæða er til að fagna því, að íslenzku lýðræðis- flokkarnir hafa á ný náð sam- stöðu 1 varnarmálum. Þegar viðræður vinstri flokkanna um stjórnarmyndun stóðu yfir var full samstaða með Alþýðu- flokki og Framsóknarflokki í varnarmálunum, enda hefur málgagn Framsóknarflokksins lýst því yfir, að ekki sé meiri- hluti á þingi fyrir tillögum þeim, sem Einar Agústsson flutti Bandaríkjastjórn á sínum tíma. Sjónarmið Sjálfstæðis- flokksins eru í meginefnum hin sömu og nú hafa orðið ofan á 1 Framsóknarflokki og Alþýðu- flokki, þ.e.a.s. að ekki sé tíma- bært að gera landið varnarlaust heldur beri okkur að halda áfram varnarsamstarfi við Bandaríkin og Atlantshafs- bandalagsþjóðirnar. Allt frá styrjaldarlokum hafa lýðræðisflokkarnir leitazt við að halda samstöðu sinni í utan- ríkismálum, þótt hart hafi verið deilt um innanlandsmál og ýms- ir flokkar starfað saman á hverjum tíma eins og verða vill. Þetta samstarf rofnaði við myndun vinstri stjórnar 1956 og síðan aftur við myndun þeirrar yinstri stjórnar, sem nú er að láta af völdum, en ætíð ella hefur samstarf lýðræðis- flokkanna um mikilvægustu utanríkismál verið náið eins og líka skylt er. Þegar undirskriftir „Varins lands“ fóru fram á sl. vetri varð þegar I stað ljóst, að mikill meirihluti þjóðarinnar óskaði þess, að vörnum landsins yrði við haldið. Varnarmálin áttu áreiðanlega drjúgan þátt í hin- um stórglæsilega sigri, sem Sjálfstæðisflokkurinn vann í sveitarstjórnakosningunum. 1 þingkosningunum var einnig kosið um varnarmálin gagnstætt því, sem var í kosn- ingunum 1971, þegar þau naumast voru nefnd. Þó er lík- legt, að varnarmálin hafi ekki jafn mikil áhrif og þau höfðu f sveitarstjórnakosningunum. Eftir undirskriftir „Varins lands“ og hinn mikla sigur í borgarstjórnarkosningunum létti mörgum og þeir töldu sýnt, að ekki væri til það afl í ís- lenzku þjóðlifi, sem megnaði að gera landið varnarlaust og þess vegna hafa þeir ekki talið sömu þörf á því og ella að greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði í þingkosningunum. Engu að sfður var um þessi mál kosið og nú er úr því skorið, að þjóðin vill, að hér verði varnir enn um sinn, en að sjálfsögðu er eðli- legt að endurskoða framkvæmd þeirra mála á hverjum tíma og ýmsar umbætur má þar gera, svo sem eins og aðskilnað far- þegaflugs og annarrar starf- rækslu á vellinum. Þótt svo kunni að fara, að Alþýðuflokkurinn verði utan stjórnar, en Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur í ríkis- stjórn, er sjálfsagt að hafa náið samstarf við Alþýðuflokkinn um varnarmálin og utanríkis- mál almennt og mun Sjálf- stæðisflokkurinn leggja sig fram um það. Samstaða um landhelgismál En alveg á sama hátt og lýðræðisflokkarnir eiga að starfa saman að varnarmálun- um eigá þeir að hafa nána sam- stöðu um framkvæmd land- helgismálsins og á þvf eiga heldur ekki að vera nein vand- kvæði. Nú hyllir undir það, að við vinnum lokasigur í land- helgismálum. 200 mílna efna- hagslögsaga er á næsta leiti og ekki eftir neinu að bíða að hrinda því máli fram. Ljóst er, að mikill meirihluti þjóðanna aðhyllist 200 mílna efnahags- lögsögu. Enn eru að vísu nokkr- ar deilur um framkvæmd slíkr- ar lögsögu, en engu að síður er unnt að lýsa yfir 200 mflna fisk- veiðilandhelgi. Að sjálfsögðu mundum við virða samning þann, sem vinstri stjórnin gerði við Breta og leita eftir samn- ingum við Vestur-Þjóðverja og aðra þá, sem hagsmuna hafa að gæta, þannig að rúmt ár mundi lfða þar til 200 mílurnar tækju gildi að fullu. Við yrðum lika að lýsa yfir, að við værum reiðubúnir til að ræða samkomulag um göngu- eða flökkufiskstofna, enda eru það okkar hagsmunir ekki siður en nágranna okkar, að skyn- samlegar reglur verði settar um hagnýtingu slfkra stofna. Auðvitað hugsum við ís- lendingar okkur ekki að hindra frjálsar siglingar, enda höfum við engra sérstakra hagsmuna að gæta af stórri landhelgi heldur eingöngu efnahagslög- sögunni. Við getum líka út- gjaldalaust lýst því yfir, að eftirlitsreglur okkar með skipa- ferðum og mengunarreglur verði til endurskoðunar og þurfum ekki að brjóta að baki okkur neinar brýr í því efni og þá er þess loks að gæta, að Islendingar hafa engan áhuga á þvi að hindra visindalegar rannsóknir á fiskstofnum, straumum o.s.frv. og mundu að sjálfsögðu heimila öðrum þjóðum allar skynsamlegar \aðgerðir f því efni eða beinlínrs lýsa því yfir að við mundum engin afskipti hafa af slfkum vísindarannsóknum. Ef þessara atriða er gætt við útfærslu fiskveiðitakmarkanna í 200 mílur eru engar líkur til þess, að vandkvæði mundu af hljótast. Bretar hafa þegar við okkur samkomulag. Við erum reiðubúnir til samninga við Vestur-Þjóðverja og aðra um fiskveiðar í rúmt ár, en að þeim tíma liðnum er fullvíst, að þessi mál hafa skýrzt svo á alþjóða- vettvangi að enginn getur véfengt fullan og óskoraðan rétt okkar til 200 mflna efna- hagslögsögu. Hafréttar- ráðstefnan Að vísu veit enginn með fullri vissu í dag, hvort hafrétt- arráðstefnunni muni ljúka með alþjóðlegri samþykkt um 200 mílur fyrir næsta haust, en verði svo ekki er alveg ljóst, að fjöldi strandríkja um heim allan mun helga sér 200 milurnar. Þess vegna verða 200 sjómílna fiskveiðitakmörk alþjóðleg regla, hvort sem hún verður formlega staðfest á haf- réttarráðstefnu eða verður það í framkvæmdinni hjá þorra þjóða. Stefna sú, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur markað í þessu efni, að færa skjótt út fiskveiðitakmörkin í 200 mílur, er hin eina rétta og vonandi bera allir lýðræðisflokkarnir gæfu til að standa sameinaðir um þá aðgerð. Kommúnistar reyna að þvælast fyrir því máli, því að 50 mflurnar eru trúar- atriði hjá þeim. Að vísu kveður nú nokkuð við annan tón eftir að Rússar lýstu yfir stuðningi við 200 mílna efnahagslögsögu og kannski fer meira að segja svo, að kommúnistar styðja út- færsluna í 200 mílur og er auðvitað ekki nema gott eitt um það að segja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.