Morgunblaðið - 18.08.1974, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974
ritað er...
Guð er oss hæli og styrkur”
1 Sálm. 46, 2—4 lesum við:
„Guð er oss hæli og styrkur,
örugg hjálp 1 nauðum. Fyrir
þvf hræðumst vér eigi, þðtt
jörðin haggist og f jöllin bif-
ist... Drottinn er með oss,
Jakobs Guð vort vfgi.“
Slfk er játning trúaðs
manns, sem hefur fengið að
fuilreyna trúíesti og misk-
unnsemi Guðs.
Þau tilvik eru mörg f lffi
okkar, þegar við finnum
vanmátt okkar til þess að
ieysa aðsteðjandi vanda.
Meðan allt leikur f lyndi,
hugsum við ef til vill Iftið
um slfkt. Þá finnst okkur
oft, að við komumst af f eig-
in krafti einum.
En skyndilega getum við
staðið frammi fyrir alvöru
Iffsins, þar sem mannlegum
möguleikum eru takmörk
sett. Við getum ekki meira.
Þá verður margur maðurinn
ráðvilltur og missir kjark-
inn og vonina. Gildir þá
einu, hvort um er að ræða
persónulega erfiðleika eða
einhverjar náttúruham-
farir, eldgos eða jarð-
skjálfta.
Þá reynir á trú okkar.
Guðs orð flytur okkur boðin
um, að við komumst aldrei
af f eigin mætti einum
saman. Við eigum allt okkar
komið undir náð Guðs. Ein-
mitt þess vegna vitjaði Guð
okkar f eingetnum syni sfn-
um, Jesú Kristi.
I trúnni á hann eignumst
við öryggi og fullvissu. Við
vitum, að við erum aldrei
ein. Guð skilur okkur ekki
eftir munaðarlaus. Hann
vakir yfir okkur og verndar,
hvað sem okkur kann að
mæta f Iffinu.
Gott er að eiga þetta
öryggi trúarinnar. Gott er að
mega hvfla f Guði og fela
honum allt á vald. Hann er
hin örugga hjálp f nauðum,
það hæli og styrkur, sem
aldrei bregzt.
Þetta má aldrei gleymast.
Hvað sem framtfðin kann að
bera f skauti sér okkur til
handa, þurfum við aldrei að
örvænta. Við erum falin
vernd og varðveizlu Guðs.
Þvf megum við treysta. Lær-
um þvf að leggja lff okkar og
framtfð alla f hans hönd.
Jónas Gfslason.
í klóm andans
„Því að baráttan, sem vér eig-
um í, er ekki við blóð og hold,
heldur við tignirnar og völdin, við
andaverur vonskunnar í himin- I
geimnum."
Þannig ritaði Páll postuli í bréfi
sínu til Efesusmanna. Kristinn
maður á f stöðugri baráttu gegn
því, að hinn illi nái tökum á sér.
Baráttan er ekki við hold og blóð,
heldur við andaverur vonskunn-
ar. Mörgum er illa við þá tilhugs
un, að eiga í baráttu við anda, við
eitthvað, sem er óáþreifanlegt og
ekki hægt að festa hendur á. En
hinn illi, sá sem við eigum í bar-
áttunni við, er slægur og í þessari
andlegu baráttu verðum við að
beita andlegum vopnum. Postul-
inn nefnir þessi vopn í bréfi sínu:
„Fyrir því skuluð þér taka al-
væpni Guðs, til þess að þér getið
veitt mótstöðu á hinum vonda
degi, og getið að öllu yfirunnu
staðizt."
Alvæpni Guðs. Það er búnaður-
inn. Guð útbýr þjóna sína til að
berjast trúarinnar góðu baráttu,
og því geta þeir óhræddir gengið
fram i baráttunni, þótt hörð sé.
Baráttan milli hins góða og hins
illa er oft ljós meðal heiðingja.
í þorpinu Dibdibe í Suður-
Eþíópfu á sér stað hin andlega
barátta. Margir þar voru haldnir
illum öndum og er það algengt
meðal múhameðstrúarmanna á
þvf svæði. Slíkt virðist ganga yfir
í bylgjum og verða sumir svo
hættulegir, að þá verður að binda.
Godama, innfæddur predikari,
þekkti vel Biblfuna. Hann vissi að
Jesús væri sterkari en andaverur
Satans. Hann bað fyrir þeim, sem
voru haldnir. Og undrið gerðist:
Þeir urðu þá þegar lausir við and-
ana. Þetta vakti gífurlegar um-
ræður — eitthvað nýtt var á ferð-
inni. Illir andar voru reknir út af
fólki í nafni Jesú. Og við slfka
atburði styrkist fólkið í trúnni.
En þessi barátta við illa anda er
ekki aðeins til meðal heiðingja,
Biblían svarar
Nokkur svör Biblíunnar til
þeirra er segja:
Það kostar svo mikið að vera
kristinn.
„Því að hvað stoðar það
manninn, að eignast allan
heiminn og fyrirgjöra sálu
sinni?“ (Markúsarguðspjall
8:36.)
„Sannlega segi ég yður, að
enginn er sá, sem hefir yfirgef-
ið heimili eða konu eða bræður
eða foreldra eða börn vegna
guðsríkisins, að hann fái það
ekki margfalt aftur á þessum
tíma og hinum komandi heimi
eilíft líf.“ (Lúkasarguðspjall
18:29—30)
„Segið því ekki áhyggjufull-
ir: Hvað eigum vér að eta? eða:
Hvað eigum vér að drekka?
eða: Hverju eigum vér að klæð-
ast? Því að eftir öllu þessu
sækjast heiðingjarnir og yðar
himneski faðir veit, að þér
þarfnist alls þessa. En leitið
fyrst ríkis hans og réttlætis, og
þá mun allt þetta veitast yður
að auki.“ (Matteusarguðspjall
6:31—33.)
„Hjarta yðar skelfist ekki;
trúið á G uð og trúið á mig. 1 húsi
föður mfns eru mörg híbýli;
væri ekki svo, myndi ég þá hafa
sagt yður, að ég færi burt að
búa yður stað? Og þegar ég er
farinn burt og hefi búið yður
stað, kem ég aftur og mun taka
yður til mín, til þess að þér séuð
og þar sem ég er.“ (Jóhannesar-
guðspjall 14:1—3)
Eg er of upptekinn af jarð-
neskum gæðum.
„Elskið ekki heiminn, ekki
heldur þá hluti, sem í heimin-
um eru. Ef einhver elskar
heiminn, þá er kærleiki til
föðursins ekki í honum. Því að
allt það sem í heiminum er,
fýsn holdsins og fýsn augnanna
og auðæfa-oflæti, það er ekki
frá föðurnum, heldur er það frá
heiminum. Og heimurinn fyrir-
ferst og fýsn hans, en sá, sem
gjörir Guðs vilja, varir að ei-
lffu.“ (I. Jóhannesar bréf
2:15—17)-
„... þar sem vér horfum ekki
á hið sýnilega, heldur hið ósýni-
lega, því að hið sýnilega er
stundlegt, en hið ósýnilega ei-
líft.“ (II. Korintubréf 4:18)
heldur og f hinum vestræna
heimi. Séra Christoher Neil-
Smith í Englandi hefur komizt í
náin kynni við illa anda. Hann
hefur margoft rekið þá út af fólki,
og segir hann nokkuð frá því í
Daily Express fyrir fáum vikum.
Hann var eitt sinn kallaður í fang-
elsi til að tala við tvo „Hell’s
Angels" — vítisengla. Fangelsis-
vörðurinn bað hann að koma og
reka út af þeim illa anda. Þeir
voru ákærðir fyrir morðtilraunir
og ógnanir. Ástæðan fyrir því, að
þeir báðu um viðtal var sú, að þeir
höfðu verið viðriðnir black-magic
og höfðu gefizt djöflinum á vald
til að vinna öðrum tjón. Þeir voru
nú hræddir um, að þeir hefðu
ekki stjórn á sér, er þeim yrði
hleypt úr fangelsinu og mundu
e.t.v. myrða einhvern. Þegar
presturinn hafði beðið með þeim
varð mikil breyting á og þeir urðu
eins og nýir menn.
Kvikmyndin The Exorcist fjall-
ar um það á ægilegan hátt, hvern-
ig 12 ára stúlka er haldin illum
anda. Aðvaranir hafa komið frá
mörgum kirkjunnar mönnum.
Billy Graham hefur sagt: „Sjáið
hana ekki. Að vera haldinn illum
anda er ekki heimatilbúið. Það er
raunveruleiki.“
I
En myndin hefur vakið mikla
athygli. Fólk bíður klukkutímum
saman eftir miðum, en flestir
koma frá sýningunni með nei-
kvæða dóma. Leigubílstjóri f
Vancouver segisthafaekiðfólki
sem virtist andlega bilað eftir að
hafa séð hluta myndarinnar.
Fólki verður flökurt og margir
falla í yfirlið. 1 Chicago staðhæfa
sálfræðingar, að menn hafi verið
settir á geðveikrahæli. Þeir segja,
að engin leið sé að komast hjá að
verða fyrir alvarlega skaðlegum
áhrifum.
Vel menntað fólk I upphafi
þessarar aldar hélt fram að
andar, sem herjuðu á fólk, væri
aðeins hjátrú eða geðveila. Marg-
ir trúa þvf heldur ekki í dag, að til
sé neitt, sem heitir illir andar,
fólk brosir að þeim, sem heldur
sliku fram. En hvernig ætli það
fólk útskýri ráðþrot geðlækna,
þegar þeir meðhöndla haldið fólk.
Sr. Christopher Neil-Smith hefur
tekið við fólki, sem geðlæknar
hafa ekki getað læknað, og hann
hefur séð strax, að um illa anda
væri að ræða. Hann rekur þá út af
fólkinu f nafni Jesús Krists.
Eitt af fyrstu verkum Jesú var
að reka út illa anda af manni í
Kapernaum. Nýja testamentið
gerir skýran greinarmun á geð-
veiki, lfkamlegum veikindum og
illum öndum f fólki. Jesús sagði
líka, að lærisveinar sínir myndu
reka út illa anda í sínu nafni og
það hafa þeir lfka gert. Baráttan
við andaverur vonzkunnar stend-
ur enn yfir, hvað sem líður skýr-
ingum ýmissa sérfræðinga. Það er
því undarlegt, að á þessari upp-
lýstu öld tækninnnar séu menn að
leika sér að hættu. Margir gera
sér reyndar ekki grein fyrir því,
en vara verður við hvers konar
kukli, spádómum og öðru, sem
miðar að þvf að ná valdi yfir fólki.
Nauðsynlegt er að þekkja óvin
okkar, en: snúum okkur til
Krists og gerumst þjónar hans,
sem lagði lff sitt í sölurnar til
lausnargjalds fyrir marga.
Daily Express
Decision Magazine
Húsbyggjendur —
Einangrunarplast
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið með stutt-
um fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆMT VERÐ, GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Borgarplast HF,
Borgarnesi.
Sími 93-7370.
f/Skjótum
skyttunni í skil"
Sýning Félags íslenzkra
opin daglega kl. 14—22 í
Hafnarstræti 3.
vefnaðarkennara er
iítcai A lÍTQJII h
UluflLfl Kven-, karlmanna- og UlðALA Alls konar skór. Og
barnaskór. Þér gerið enn er það öruggt að
örugglega góð kaup. þér gerið góð kaup.
Skóv. Pélups Andréssonar. Laugavegi17. Skóv. Framnesvegi 2.