Morgunblaðið - 18.08.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. AGUST 1974
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
SÓLEY JÓNASDÓTTIR,
Melabraut 14, Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. þriðjudaginn 20. ágúst kl
10 30.
Guðni Sigfússon og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og virðingu sýnda minningu
KRISTJÁNS JÚLÍUSSONAR
loftskeytamanns.
Anna B. Óskarsdóttir,
Júlíus Kr. Ólafsson,
Óskar Kristjánsson, Emilia B. Möller,
Guðmundur S. Kristjánsson, Katrin Jónsdóttir,
og systkini hins látna.
t
MAGNÚS K. GUÐNASON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. ágúst kl.
13.30.
Þuríður Guðnadóttir.
Sölvína B.
dóttir —
F. 18. aprll 1898
D. 7. ágúst 1974.
ÞEGAR ég heyrði lát bestu vin-
konu minnar Sölvínu Konráðs-
dóttur, langaði mig til að láta í
ljós söknuð minn og tilfinningar.
Hugur minn var svo oft við
sjúkrabeð hennar á meðan hún lá
á spítalanum. Hún og eiginmaður
hennar, Pétur Björnsson, hafa í
mörg ár verið næstu nágrannar
mínir og bestu vinir, og hefi ég
svo ómetanlega margt að þakka
þeim.
Sölvína var slík kona, sem allra
vandræði vildi leysa, og öllum
hjálpa, sem bágt áttu, og get ég
persónulega sjálf borið um það.
Þegar ég var veik um tíma, alein 1
íbúð minni, kom hún til mín á
hverjum degi og vildi allt fyrir
mig gera. Þessu mun ég aldrei
gleyma, meðan ég lifi, því mér
leið mjög illa. Um hana vil ég
segja: Þar sem góðir menn fara
eru Guðs vegir. Ég vissi, að hún
vann fjölda ára á Elliheimilinu
Grund og gamla fólkið, sem hún
stundaði, elskaði hana og óskaði
henni allra blessunar fyrir alla þá
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
JÓNÍNU SCHRAM,
Gunnar Schram,
Gunnar G. Schram,
Margrét Schram,
Elísa Schram,
Helgi Hallgrímsson.
t
Móðir mín,
KRISTÍN SIGFÚSDÓTTIR
frá Syðri-Völlum,
verður jarðsungin frá Fossvogs
kirkju þriðjudaginn 20. ágúst kl.
3 e.h
Svavar Guðnason.
Konráðs-
Minning
hjálp og góðvild, sem hún sýndi
þvf á allan hátt.
A yngri árum stundaði hún ljós-
móðurstörf, því að hún var lærð
ljósmóðir.
Guðsblessun fylgi Sölvínu inn 1
eilífðina. Ég óska, að Guð styrki
eiginmann hennar, sem er líka
veikur, 1 mikilli sorg hans að
missa ástkæran maka, því að ég
vissi, að hjónaband þeirra var
náið og innilegt.
Sonum ykkar, barnabörnum og
fósturbörnum vil ég votta mína
dýpstu samúð.
Að lokum vil ég segja: Hjartans
þakklæti fyrir allt, sem Sölvína
gerði fyrir mig.
Friður Guðs og blessun fylgi
henni.
Guðlaug Olafsdóttir,
Ránargötu 7a.
Sölvfna Konráðsdóttir lést á
Borgarspítalanum 7. þ.m., og
verður jarðsungin mánudaginn
19. þ.m.kl. 1.30 e.h.
Kynslóð af kynslóð og fet fyrir
fet, en ferðinni er heitið til dauð-
ans. Ef ekki það, hvað þá? Vissu-
lega er öllu því vel fyrirkomið og
ekki síst að skilja við jarðlífið.
Dulspekin segir okkur, að dauð-
inn sé eins og fæðing, eða bara
flutningur úr hrörlegri íbúð í
dýrðleg salarkynni. Þau umskipti
hljóta að vera vinningur, og ekki
hvað sfst fyrir þá, sem eru ferð-
lúnir og aldnir að árum eins og
þessi mæta kona, sem við kveðj-
um á morgun.
Sölla, eins og við vinir hennar
kölluðum hana, var búin að vera í
t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma. t Mæðgurnar,
PÁLÍNA ELÍASDÓTTIR
ANNA STEFANÍA ÞORSTEINSDÓTTIR, og
Vesturbraut 11, Keflavík. JÓNÍNA INGIBJÖRG ELÍASDÓTTIR,
verður jarðsungin þriðjudaginn, 20. ágúst frá Keflavíkurkirkju, kl. 2 Laufásvegi 18,
e.h. verða jarðsettar þriðjudaginn 20. ágúst. Útförin fer fram frá Dómkirkj-
Steinþór Sveinbjörnsson, unni kl. 1 3.30. . . _ir Helgi tlíasson.
Finnur S. Steinþórsson, Margrét Hjartardóttir, Helga J. Elíasdóttir,
Hreinn Steinþórsson, Kristín Sigurvinsdóttir, Gissur Elíasson,
og barnabörn. Davlð Ásmundsson.
t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, BERNHAROS LAXDAL, t Útför GUÐRÚNAR SOFFÍU HELGADÓTTUR,
Sólheimum 23, sem lést I Landakotsspítala, 14. bm,, fer fram frá Fossvoaskirkju, mánudaginn 1 9. ágúst kl. 3 eh.
Ingibjörg Laxdal,
Þröstur Laxdal, Edda G. Laxdal, Þyri Laxdal, Trausti Rikharðsson og barnabörn. Agða Vilhelmsdóttir, Anna Jóhannesdóttir, Tómas Á Jónasson.
t Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhuq við andlát og jarðarför t Hjartans þökk fyrir sýndan hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför,
FRIÐRIKS PÁLSSONAR, BJARNA SIGURÐSSONAR
lögregluþjóns, trésmfðameistara
Fornhaga 1 3, frá Hraunsási, Njálsgötu 98.
Sérstakar þakkir færum við stárfsfélögum hans í lögreglunni, svo og Lögreglukórnum Margrét Skúladóttir Guðrún Bjarnadóttir Einar Sverrisson
Margrét Tryggvadóttir. Helga Bjarnadóttir Guðmundur Þorsteinsson
Tryggvi Páll Friðriksson, Elínbjört Jónsdóttir. Sigurður Bjarnason Ása Guðjónsdóttir
Hallfríður Bjarnadóttir, Margrét Vilborg Tryggvadóttir, Skúli Bjarnason Siguriaug Halldórsdóttir
Gunnar A. Pálsson, Einar H. Pálsson. og barnabörn.
t Aðalfundur
Innilegt þakklæti skyldmennum og vinum, sem vottuðu okkur samúð og heiðruðu minningu, Sædýrasafnsins
JÁRNGERÐAR JÓNSDÓTTUR. verður haldinn í Skiphóli, Hafnarfirði, þriðju-
Miðey, við andlát hennar og útför daginn 27. ágúst kl. 9.30.
Sérstakar þakkir til hr. Kristjáns Baldvinssonar yfirlæknis og alls Fundarefni:
hjúkrunarfólks við Sjúkrahúsið á Selfossi, fyrir aðhlynningu í lang- vinnum veikindum Venjuleg aðalfundarstörf.
Börn, stjúpbörn, fósturbörn, tengdabörn og bamabörn. Stjórnin.
mörg ár meira og minna lasin,
en hafði oftast fótavist og vann
við húsverk og handiðn, einkum
ffnni útsaum, þegar tími vannst.
Hún var búin að vera tæpan hálf-
an mánuð á sjúkrahúsi, oftast sár-
þjáð, þreyði án þess að kvarta þar
til yfir lauk. Við burtför þessarar
sérstæðu konu og þau tímaskipti,
sem orðið hafa, hljóta vinir henn-
ar að leiða hugann að því, sem
einu sinni var, og fortíðin verður
eins og fögur mynd á hvítu tjaldi.
Á hlaði skilnaðar verður mér stirt
um stef og tregt tungu að hræra.
Flesta daga fylgdist ég með líð-
an hennar og degi áður en hún
lést fannst mér breyting á orðin.
Hæfilegleikinn og lífsviljinn að
vinna einhverjum gagn og láta
eitthvað gott af sér leiða voru að
mestu þorrnir en tjáning orðanna
hljómaði eins og bergmál horfinn-
ar tíðar.
Eftir að þessi góða frænka mín
og fóstursystir var burt kölluð af
þessum heimi, hefur hugur minn
reikað á gamlar æskuslóðir, minn-
ugur þess hvað þar gerðist, þvf
ævintýrin sem þar urðu oft og
einatt voru okkur báðum samofin.
Að vísu var hún sjö árum eldri en
það kom ekki í veg fyrir, að við
ættum svo margt sameiginlegt,
bæði í leik og starfi. Aldursmun-
urinn var mér mikill vinningur,
fyrir það var hún alltaf stóra syst
ir oggóðmamma.þegarvið þurfi.
Oft var gaman í blessaðri sveit-
inni okkar, Sléttuhlíðinni, eink-
um vor og sumar, þegar að náttúr-
an með öllum sínum stefjum
skartaði sfnu fegursta í ljósi og lit
— þá loftið ómaði af fagnandi
fuglasöng, næturdöggin kristall-
aðist í iðjagrænu grasi og blómin
brostu og kinkuðu kolli móti
hækkandi sól. Veturinn átti líka
sína töfra, þegar norðurljós og
mánaskin merluðu umhverfið, þá
brugðum við okkur á skauta eða
skfði, eftir því sem veður og vind-
ar sköpuðu.
Fyrir mér og heimilisfólkinu
voru Mýrar og jafnvel sveitin öll
helgur staður, líkt og fjallið
helga, Sínaí, þar sem Guð talaði
til Móse og gaf honum boðorðin
tíu.
Sölla var ætfð fyrirferðarmikil,
hvað sem hún tók sér fyrir hendur.
Það þýddi ekki fyrir neinn að
vaða uppi með óréttlæti eða taka
af henni, sem hennar var. Það var
heldur ekki holltfyrir ókunnuga,
þegar ég var lítill tappi, að kasta
að mér hnútum ef hún var ein-
hversstaðar nálæg. Þannig var
hún við alla, sem voru lítils megn-
ugir. Þeir fengu ætíð stærsta hlut-
inn. Sölla hafði yndi af því að
hjálpa og var snillingur að bera
sáttarorð í milli, að hlúa að mönn-
um eða málleysingjum, hver sem í
hlut átti, var hennar lífsönn. Það
mátti enginn drepa flugu þá varð
Sölla vond. Skap hennar á þessum
árum var mikið, en frá árdegi
ævinnar til hinstu stundar var
hjartað gulli betra. Sölla var fædd
að Ysta-Hóli, Sléttuhlíð, Skaga-
firði, dóttir hjónanna sem þar
bjuggu og síðar að Mýrum i sömu
sveit, fýonráðs Sigurðssonar og
Indfönií Sveinsdóttur, bæði Skag-
firðingar að ætt og uppruna. Þessi
elskulegu hjón, foreldrar Söllu,
voru fósturforeldrar mínir frá þvf
að ég var f jögurra ára, að ég missti
föður minn, til nítján ára aldurs.
Hvort f sínu lagi voru þau minnis-
verðar manneskjur, en ólík og
höfðust misjafnt að. Konráð var
mikill búhöldur, græddist fé á
fyrri árum og hélt vel utan um
sitt af elju og hyggjuviti, ákafur