Morgunblaðið - 05.09.1974, Side 11

Morgunblaðið - 05.09.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 11 Afmæliskveðja: Stefán Guðnason trygg- ingayfirlœknir sjötugur Stefán Guðnason, yfirlæknir við Tryggingastofnun ríkisins, varð sjötugur hinn 22. ágúst sl. Stefán er Austfirðingur á ætt, fæddur á Vopnafirði og ólst upp þar og síðar á Hornafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1924 og settist þá um haust- ið I læknadeild Háskóla Islands og lauk þaðan embættisprófi I febrúar 1930. Arið 1930 þá útskrifuðust aðeins 5 læknar úr læknadeild Háskóla fslands, þrír að vetri en tveir að vori. Á þessum árum lærðu íslenzkir læknar sína verk- legu læknisfræði á Landakots- spítala, en fóru síðan til Dan- merkur til framhaldsnáms, eink- um í fæðingafrædi og Stefán dvaldist í Árósum árið 1931 í þessu skyni, en einnig á fleiri deildum. Læknisstarfi Stefáns má skipta í þrjú tímabil. Hérðaslæknistímabilið er það fyrsta, því hann var héraðslæknir um 14 ára skeið, fyrst í Dala- héraði til 1937, en eftir það í Svarfdælahéraði til 1944. Á þessum árum aflaði hann sér víðtækrar starfsreynslu sem héraðslæknir og embættislæknir og þótti í hvívetna ötull i starfi og frábær embættismaður. Hann lét ekki eingöngu læknisstörfin til sín taka, heldur tók hann mikinn þátt i sveitarstjórnarmálum. Á þessum árum átti hann sæti I skólanefndum í Dölum og á Dal- vík og var í hreppsnefnd Svarf- dælahrepps og hafnarnefnd á Dalvik. Annað tímabilið í læknisferli Stefáns hefst 1944, er hann flytzt búferlum til Akureyrar og sezt þar að sem starfandi læknir, heimilislæknir, án þess að hafa embættisstörf. Á Akureyri hlóðust fljótt á Stefán mikil læknisstörf. Auk hinna almennu heimilislæknis- starfa stundaði hann sérstaklega barnalækningar og til þess að ná betri tökum á því læknissviði sigldi hann til útlanda 1935—'36 og 1955 til þess að kynna sér nýungar og starfshætti. Á þessum árum var enginn sérlærður barnalæknir á Akureyri og því nauðsynlegt, að einhver af hinum almennu læknum tæki að sér þessi störf. Stefán starfaði við heilsuverndastöðina á Akureyri að kalla frá stofnun hennar og var staðgengill héraðslæknisins á Akureyri um eins árs skeið. Það er á þessu tímabili sem sam- starf okkar Stefáns hefst, við höfðum ekki hitzt fyrr en hann kom til starfa við Tryggingastofn- un ríkisins, þar sem ég hafði hafið störf nokkrum mánuðum áður. Þessi samvinna átti eftir að endast í áratug og ég minnist þess ekki, að það hafi nokkurn tlma borið nokkurn skugga á samvinnu okkar þar. Stefán er einstakur reglumaður 1 starfi sínu sem öðru, vandvirkur og á mjög gott með að vinna með öðrum. Sú verkaskipting, sem við tók- um upp með okkur frá byrjun, var þannig, að hann annaðist sem aðalstarf athugun mála lífeyris- trygginga en ég mála slysatrygg- inga og byggðist sú skipting að sjálfsögðu á fyrri starfsreynslu okkar, þar sem hann hafði gegn- um starfsreynslu sína sem héraðs- læknir og almennur læknir mjög mikla reynslu á því sviði. Störf lækna við Tryggingastofn- un ríkisins eru eðli sínu sam- kvæmt og samkvæmt ákvörðun tryggingalaga mjög sjálfstæð, svo að samstarf þeirra innbyrðis verður að vera nánara en annarra starfsmanna og óháðara öðru starfi stofnunarinnar. Eftir að Stefán fluttist til Reykjavíkur stundaði hann ekki almenn læknisstörf, en helgaði sig embættislæknisstarfinu og áhugamálum sínum algerlega. Á árinu 1967 byrjaði hann að vinna úr þeim efniviði, sem hann dag- lega fjallaði um I Tryggingastofn- uninni, og 1969 hafði hann full- lokið við merka bók, sem hann skrifaði um þetta efni og nefnist „örorka á Islandi" eða I ensku þýðingunni „Disability in Ice- land“. Tryggingastofnun ríkisins gaf þessa bók út og er þar að finna mjög mikilsverðar heim- ildir um orsakir almennrar ör- orku hér á landi síðasta ára- tuginn. Stefán tók við starfi trygginga- Framhald á bls. 25. Til sjós og lands HIRB-FOCO Hiab-Foco kraninn hefur valdiö straumhvörfum í sjávarpiássum nágranna- þjóöanna. Einföld stjórnun, þægileg vinnuaöstaöa, ótrúleg lyftigeta og ótakmarkaöir möguleikar viö staðsetningu, einfalda alla erfiöleika við út- og uppskipun - hvort sem Hiab-Foco stendur á bryggju eöa í báti. Fullkomin varahluta og viðgerðaþjónusta. SUÐURLANDSBRAUT 16 SiMI 35200 Þau eru komin settin, sem þér hafið beðið eftir Á þessum árum lét Stefán félagsmál lækna og auk þess almenn félagsmál til sín taka eins og áður. Hann var formaður Læknafélags Akureyrar 1948—49 og I stjórn Læknafélags Norðaust- urlands. Auk þess var hann for- maður Austfirðingafélagsins á Akureyri og tók virkan þátt í annarri félagastarfsemi. Þriðja tímabilið I læknisævi Stefáns hefst síðla árs 1960, er hann var ráðinn tryggingalæknir að Tryggingastofnun ríkisins, sá fyrsti sem þessu starfi gegndi. 7T7F Simi-22900 Laugaveg 26 r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.