Morgunblaðið - 05.09.1974, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.09.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 19 Minning: Kristín Pálsdóttir Að áliðnu sumri 1917 fæddist sæmdarhjónunum Þóru Sigurðar- dóttur og Páli Einarssyni sjó- manni, dóttir, sem hlaut nafnið Kristfn. Þá bjuggu þau að Vega- mótum í Garði. Þóra og Páll voru bæði borin og barnfædd á Reykja- nesskaganum, hún að Vatnagarði í Gerðahreppi, en hann að Bæjar- skerjum á Miðnesi. Foreldrar Kristínar fluttu heimili sitt til Reykjavíkur, þegar hún var 7 ára, og ólst hún þar upp með þrem bræðrum. Kynni mín af Kristínu Pálsdótt- ur og hennar heimili í rúma þrjá tugi ára hafa sannfært mig um, að æska hennar og þroskaskeið í for- eldrahúsum hafa mótazt af þeim þáttum, sem gera einstaklinginn hæfastan til að takast á við marg- breytileik lífsins. Háttvísi, hóg- værð og reglusemi er gott vega- nesti út í lífið. Glaðværð, góðlát- leg glettni, góðsemi og trygglyndi stuðla að farsæld, þegar saman fer fölskvalaus virðing og traust á höfundi tilverunnar. Alla lífsgöngu sfna var Kristín í náinni sambúð við hið síkvika haf. Hún var fædd við kamb sæ- barinna hnullunga, þar sem haf- rótið mylur storð, en lognaldan gjálfrar við stina og vaggar þang blöðkum í lítilli vör. Forfeður hennar og margir frændur sóttu sjó. Sumir komu ekki aftur f vör- ina. Faðirinn var eftirsóttur í skiprúm vegna atgervis og heiðar- leika. Eiginmaðurinn, Bjartur Guðmundsson vélstjóri, hefur lengst af verið yfirmaður í véla- rými á togurum og sonurinn, Páll Þór, hefur þegar öðlazt nokkra reynslu í störfum á hafi úti. Kristín nam af móður sinni þann mikilsverða lærdóm, sem felst í æðruleysi og rósemd, eig- indum sem hafa verið aðall sjó- mannskonunnar á Islandi í þús- und ár og nærzt hafa af reynslu kynslóðanna í fullvissunni um mátt og gildi einlægrar fyrirbæn- ar um handleiðslu og vernd al- mættisins. Kristínu varð snemma ljós nytsemi þessa lærdóms og því meir sem árin liðu og atburðirnir í lífinu urðu margbreytilegri. Henni lærðist einnig, að nátengd þessum eigindum er þakkláts- semi. Og víst var mikið að þakka; æskuheimilinu, foreldrum og bræðrum, ótalda gleði- og fagnað- ardaga, þegar eiginmaðurinn var í leyfi frá hafinu og fyrir dreng- inn þeirra, umhyggju, ástúð og umburðarlyndi þeirra, þegar skuggarnir urðu langir vegna langvarandi sjúkdómsörðugleika hennar. Kristfn mat að verðleikum þetta haldgóða veganesti frá móður sinni, sem nú, með rúm 80 ár á herðum, má sjá á bak enn einum ástvina sinna. En gifta þeirra var og mikil, enda einstaklega kært með þeim. Fáir munu þeir dagar sem þær ekki ræddust við, þótt langt væri milli heimilanna. Svo var einnig seinasta daginn, af- mælisdag Kristínar 29. ágúst, rétt örskömmu fyrir andlát hennar. Kristín og Bjartur stofnuðu til hjúskapar árið 1940 og áttu heim- ili hér f Hafnarfirði f 14 ár. Héðan fóru þau til Reykjavíkur og áttu nú heima að Hvassaleiti 93. Bjartur var á sjónum öll styrj- aldarárin. Ljóst er, að þá reyndi mjög á rósemi og trúnaðartraust hinnar ungu húsmóður. Hún fegr- aði og prýddi heimili þeirra og bjó þar allt til fagnaðar honum, er hann kæmi heim næst, þegar eftir að fley hans lagði úr höfn. Aldrei sást ótta bregða yfir svip hennar eða æðruorð á vör. Þó vissum við, sem vorum svo gæfusöm að eign- Minning: Kristinn Hafliðason F. 18. sept. 1915 D. 26. ágúst 1974 Hann Kristinn er dáinn. Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. Þótt andlát hans hefði ekki átt að koma að óvörum vegna mikilla og langra veikinda, þá er það nú svo, að við erum víst aldrei viðbúin að mæta þeim kalda gesti, sem við köllum dauða. f Kristinn var fæddur í Reykja- vík 18. sept. 1915. Foreldrar hans voru Ingveldur Gunnlaugsdóttir og Hafliði Hjartarson. Ætt Kristins er mér ekki kunn, en Ingveldi móður hans kynntist ég lítillega og man hana sem merka höfðingskonu. Það var ekki langt á milli mæðginanna, því að Ing- veldur lézt fyrr á þessu ári. Kristinn var glæsimenni á sfn- um beztu árum, hann var mikill hagleiksmaður, allt lék í höndum hans, snyrtimenni var hann svo af bar. Hann var vel gefinn og léttur i lund. Mesta gæfuspor Kristins var, er hann kvæntist 29. sept. 1945 æskuvinkonu minni önnu Margréti Guðmundsdóttur frá Naustvík f Árneshreppi á Strönd- um, þeirri elskulegu konu, er síðan hefur staðið við hlið hans sem blessandi engill, alltaf tilbú- in að bera smyrsl á sárin. Enga konu hef ég þekkt, sem betur hefur hlúð að sjúkum manni sín- um. Attu þau sex börn, sem öll lifa, 3 dætur og 3 syni. Ég hef verið heimagangur á þvf heimili í tæp 30 ár og alltaf mætt sama bjarta brosinu. Kristinn elskaði dýr og blóm sem og þau bæði. Eitt sinn var garðurinn við heimili þeirra einn sá fegursti hér í borg. Vinátta okkar önnu er orðin löng, á hana hefur aldrei fallið skuggi og mun ekki meðan báðar lifum, minningarnar eru þvf margar og sumar þeirra eru um góðu hjónin á Bústaðavegi 59. Ég bið önnu og börnum hennar allrar blessunar Guðs styrks í sorg. Hinn látna kveð ég með kærri þökk, blessuð veri minning hans. Inga. Til sölu Scania Vabis vörubifreið árg. 1965 3ja öxla með túrbínuvél. Uppl. gefur Vilhjálmur Ólafsson í síma 50575 eftir 6 á kvöldin. Svavar Martin Svav- arsson - Minningarorð ast þau hjón að vinum, hvar hug- ur hennar dvaldi. Jafnan bar heimilið ljósan vott um þroskaðan smekk húsmóður- innar og oft hefur þar verið gest- kvæmt endagottaðveraþar gest- ur. Húsmóðirin var vissulega vanda sínum vaxin og naut sín vel sem gestgjafi. Mannblendin var hún og kunni vel að meta glaða mannfundi. Skoðanir hennar voru fastmótaðar og hún lét ógjarnan hlut sinn. Hún var trú- kona mikil en flíkaði ekki, fremur en öðru því, sem var henni mikils- vert. Hún var hjálpsöm og bóngóð og tryggð hennar einstök, það sannreyndum við hjónin og börn- in okkar þráfaldlega og þökkum nú af einlægni. Vonir Kristínar höfðu jafnan verið þær, að geta verið sem allra lengst innan veggja síns fagra heimilis og í umsjá feðganna, sem áttu hug hennar allan. Þessar vonir rættust. Hún andaðist á leið í sjúkrahús. Ferð Kristínar Pálsdóttur á strönd eilffðar er hafin. Góður guð láti sitt eilífa ljós lýsa henni. Aldurhniginni móður Kristinar, bræðrum hennar og venzlafólki, syni og eiginmanni vottum við innilegustu samúð. Sigurgeir Guðmundsson. F. 23. september 1962. D. 28. ágúst 1974 Mig setti hljóðan þegar ég frétti hið sviplega dauðsfall Svavars Martins Svavarssonar. Það getur ekki verið, það getur ekki hafa gerzt. En hversu erum við lítils megn- ug gagnvart guði, sem alla kallar til sín. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir þá miklu ánægju og hjálp- semi, sem Svavar Martin hefur sýnt mér, um leið og ég samhrygg- ist foreldrum, systkinum og leik- félögum hans. Allir sem kynntust Svavari munu minnast hans sem drengs- ins, er hafði heiðarleik, hjálpsemi og kurteisi að aðalsmerki sínu. Helztu áhugamál Svavars voru á sviði íþrótta, einkum hafði hann áhuga á judo, glfmu og skák. Þrátt fyrir mjög ungan aldur var hann orðinn mjög liðtækur á þeim svið- um. Við, sem til þekktum, höfðum mikla trú á því, að i framtíðinni mundi Svavar vera einn af fremstu íþróttamönnum okkar, en skyndilega hefur ljós slokkn- að, en minning um góðan og efni- legan dreng mun lifa að eilífu. Vinur. „Nálægð þin vakti bjartar sveifl- ur“. Jóhannes úr Kötlum. Svavar Martin fæddist 23. sept. 1962, sonur Kristínar Ingibjargar Hafsteinsdóttur og Svavars Mart- ins Carlsens; yngstur 5 systkina. Hann ólst upp, heilbrigður og táp- mikill drengur á hlýju og traustu heimili foreldra sinn og systkina og undir handarjaðri ömmu, unz hann lézt skyndilega af slysförum 28. ágúst s.l. Ég vil votta öllum ástvinum hans dýpstu samúð mfna. 11 ára drengur er orðinn heil- mikill karl í tilverunni. Hann er stór þáttur í lffi foreldra og systk- ina, frændfólks og vina. Hann er sjálfstæður einstaklingur, sem gerir vefnað lífsins einum þætti ríkari. Þegar hann hverfur skyndilega af sjónarsviðinu, er stórt skarð opið eftir. Við andlát þessa drengs verður mér sú ósk efst í huga, að böli slysa mætti einhvern tíma linna. Eitt aðaleinkenni Svavars var brosið. Þetta hlýja, góða og glettna bros, sem breiddist yfir andlitið af minnsta tilefni og Ijómaði í bláum augum hans und- ir hrokknu, rauðu hári. Hann var þroskamikill til lfkama og sálar og hefði eflaust orðið góður íþrótta- maður eins og faðir hans og bræð- ur; hafði reyndar stigið fyrstu skrefin á þeirri braut. En umfram allt bar hann í sér fyrirheit þess, að hann yrði góður maður. Fari sæll minn ungi vinur og frændi. Elsa. Gleymiö ekki að endurnýja Nú fer skólatíminn í hönd, — rétti tíminn til að endurnýja skólavörurnar. Nýjar og fallegar skólavörur lífga upp ó nömið og gera það skemmtilegra strax fró byrjun. Þess vegna bjóðum við nú meira úrval af líflegum vörum fyrir framhaldsskólanemendur en nokkru sinni óður. Komið og skoðið úrvalið — komið og endurnýjið. CS33n>- Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 Laugavegi 178

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.