Morgunblaðið - 28.09.1974, Side 1
24SIÐUR OG LESBÓK
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Bara
dauðir
hlutir”
„Þetta voru bara dauðir hlutir
og við höldum áfram að lifa og
það ætlum við okkur lfka að
gera“. Þetta voru orð Sig-
mundar Björnssonar þegar
hann kom heim til Akureyrar f
gærkvöldi og við honum blöstu
rústir f stað glæsilegs einbýlis-
húss, þar sem hann bjð ásamt
konu sinni Sigrúnu Gfsladótt-
ur. Hús þeirra og innbú allt
hreinlega tættist f sundur f
geysiöflugri ketilsprengingu
snemma f gærmorgun. Sjá
nánar bls. 2 og 24. Ljósm. Mbl.
Sverrir Pálsson.
Washington Post og Reuter:
7 6 milljónir $ vegna breyt-
inga á Keflavíkurflugvelli
Washington 27. september frá Geir Haarde
fréttamanni Mbl.
BANDARÍSK yfirvöld eru eftir öllum
sólarmerkjum að dæma hæstánægð með
samkomulag það, sem Einar Ágústsson
utanrfkisráðherra og Joseph Sisco rituðu
upphafsstafi sfna undir hér í Washing-
ton f gær. Heimildir herma. að Banda-
rfkjamenn vonist til, að samkomulagið
verði endanlega undirritað í október,
þegar fslenzka stjórnin hefur haft tíma
til að yfirfara það betur og gera grein
fyrir því.
Samkvæmt samkomulaginu er
gert ráð fyrir því, að fækkað verði
í varnarliðinu um 400 manns, að
sögn Washington Post og er hér
um að ræða menn, sem gegna
tæknilegum og stjórnunarlegum
störfum. Blaðið segir, að íslend-
ingar verði þjálfaðir til að taka
Wilson óttast klofning
London 27. september Heuter.
ROY Jenkins, innanrfkisráðherra
f stjórn Harolds Wilsons og einn
af helztu stuðningsmönnum EBE-
aðildar Bretlands, hótaði f dag að
segja af sér ráðherraembætti, ef
stjórnin tæki ákvörðun um að
segja Bretland úr EBE. Jenkins
er annar ráðherra Verkamanna-
flokksins til að gefa slfka yfir-
lýsingu, en frú Shirley Wiiliams
verðlagsmálaráðherra gaf sömu
yfirlýsingu f gær.
Yfirlýsingar þessar hafa valdið
Wilson miklum áhyggjum og ótt
ast hann nú klofning innan
Karpov vann
Sjöundu einvfgisskák þeirra
Karpovs og Kortsnojs lauk f
Moskvu Sgærkvöldi, er Kortsnoj
fór yfir tfmamörkin f 31. leik.
Kortsnoj beitti Petroffs vörn og
einkenndist skákin af tauga-
óstyrk hans og mjög ákafri tafl-
Framhald á bls. 23.
flokksins. Hann hélt í dag blaða-
mannafund f Liverpool, þar sem
hann sagði, að ágreiningurinn
innan Verkamannaflokksins
endurspeglaði ágreining lands-
manna um EBE-aðildina. Hann
hafði áður lýst því yfir, að það
væri skylda og réttur Jenkins og
frú Williams að yfirgefa ríkis-
stjórn, sem þau væru ósammála í
grundvallaratriðum. Wilson gagn-
rýndi íhaldsflokkinn harðlega
fyrir að vilja ekki hafa þjóðarat-
kvæðagreiðslu um máiið.
Edward Heath leiðtogi thalds-
flokksins var fljótur að grípa
tækifærið og sagði, að þessi
klofningur Verkamannaflokksins
hefði „sprengt í loft upp“
kosningayfirlýsingu flokksins
um, að hann mundi beita sérfyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um EBE-
aðild, ef hann sigraði i kosningun-
um. Sagði Heath, að ljóst væri, að
enginn meirihluti væri fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslunni innan
flokksins, hvað þá að Bretland
segði sig úr EBE.
Nixon ber
líklega
ekki vitni
Long Beach, Kalifornía
27. september AP.
LÆKNAR Nixons, fyrrum
Bandarfkjaforseta, sögðu f til-
kynningu f dag, að forsetinn
hefði tekið vel við sér f með-
ferð þeirri, sem hann hefur
fengið vegna blóðtappans f
hægra lunga.
Nixon var lagður f sjúkrahús
sl. mánudag, og er gert ráð
fyrir, að hann verði þar fram í
lok næstu viku. Blóðtappi
þessi er hættulegur og getur
valdið bráðum bana, ef hann
nær að berast að hjartanu.
Fær Nixon bæði töflur og
vökva f æð, sem vinna að þvi að
leysa blóðtappann upp.
Nú er allt útlit fyrir, að
vegna heilsu sinnar verði
Nixon ekki kallaður til að bera
vitni í réttarhöldunum yfir
John Erlichman fyrrum ráð-
gjafa hans, sem hefjast í Was-
hington á þriðjudag. Jaworsky
Framhald á bls. 23.
við þessum störfum. Þá segir
blaðið, að Bandankjamenn hafi
samþykkt að verja 60 milljónum
dollara (7 milljörðum 122 milljón-
um isl. króna) til breytinga, sem
leiða af aðskilnaði almennrar
flugstarfsemi og starfsemi vam-
arliðsins, sem samþykkt var i
samkomulaginu.
Þá segir í fréttaskeyti, sem Mbl.
barst frá Reuter-fréttastofunni,
að kostnaðurinn við þær 468 íbúð-
ir, sem Bandaríkjamenn hafa fall-
izt á að reisa innan flugvallar-
svæðisins, þannig að allir vamar-
liðsmenn, sem nú búa utan þess,
geti femgið ibúðir innan vallarins,
nemi 16 milljónum dollara (eða
1,9 milljaðri ísl. króna). Skv.
þessu er kostnaðurinn samtals 9
milljarðar fsl. króna fyrir Banda-
ríkjastjórn.
Einar Ágústsson utanrfkisráð-
herra sagði í samtali í gær, að
mjög fljótlega yrði byrjað að
þjálfa Islendinga í fyrrnefnd
störf og undirbúa framkvæmdir
þær, sem frá hefur verið skýrt.
Utfærsla Norðmanna:
Ahyggjur hjá Bret-
um og V-Þjóðverjum
London og Bonn
27. september AP — NTB.
SAMTÖK brezkra togaraeigenda
svo og vestur-þýzka sjávarútvegs-
ráóuneytið lýstu f dag yfir
áhyggjum sfnum vegna yfirlýs-
ingar norsku stjórnarinnar, um
að hún mundi færa fiskveiðilög-
sögu Norðmanna úr f 50 sjómflur
á næsta ári og vernda ákveðin
svæði utan tólf mflnanna nú á
næstunni.
Talsmaður v-þýzka sjávarút-
vegsráðuneytisins sagði, að V-
Þjóðverjar veiddu milli 50—100
þúsund lestir af fiski árlega und-
an ströndum Noregs og þvf gæti
útfærsla norsku fiskveiðilögsög-
unnar i 50 mílur haft alvarlegar
afleiðingar fyrir v-þýzkan sjávar-
útveg. Sagði talsmaðurinn, að v-
þýzka stjórnin óskaði eftir við-
ræðum við norsku stjórniria um
þessi mál.
Talsmenn samtaka brezkra tog-
araeigenda sögðu í dag, að sam-
tökin væru reiðubúin til viðræðna
við Norðmenn um aðgerðir til að
vernda þorskstofninn undan Nor-
egsströndum og lýstu þeirri von
sinni, að yfirlýsing norsku stjórn-
arinnar væri vísbending um, að
hún vildi leysa fiskiveiðivanda-
mál landsmanna með alþjóðleg-
um viðræðum, en ekki einhliða
útfærslu.