Morgunblaðið - 28.09.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
Veður veldur gangna-
mönnum erfiðleikum
HVÖSS norðanátt hefur verið
undanfarið um allt land og kalt f
veðri. Snjðað hefur á láglendi á
Norðausturlandi, mjög hvasst
hefur verið á S-Austurlandi og
Austfjörðum, en kaldinn hefur
verið mestur á vestanverðu land-
inu. Á Hornafirði og Kambanesi
komst vindhraðinn upp f 9 og 10
stíg. Veðurfarið undanfarið hefur
valdið gangnamönnum margvfs-
legum örðugleikum, skemmdir
hafa orðið á bifreiðum á leið um
sandana sunnanlands vegna sand-
foks og skemmdir urðu á húsum f
Mosfellssveit.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Seyðisfirði, Sveinn Guðmunds-
son, sfmaði f gær eftirfarandi um
erfiðleika gangnamanna í Loð-
mundarfirði:
Vonzku veður hefur verið hér
undanfarna daga og hefur
Fjarðarheiði verið ófær í tvo
daga. Nú er veðrið heldur að
skána og vonumst við því til, að
vegurinn verði ruddur. Héraðs-
menn hafa verið veðurtepptir hér
og koma ekki fé sfnu upp yfir. Úr
Loðmundarfirði berast þærfregn-
ir, að gangnamenn þar eigi i mikl-
um erfiðleikum með að koma fé
sínu til Héraðs. Nú ætla þeir að
reyna að reka það yfir Hjálma-
dalsheiði, ofan í Seyðisfjörð og
upp yfir Fjarðarheiði, þegar
veður skánar. Erfiðleikar gangna-
manna eru einkum f því fólgnir,
að kindurnar eru óvanar þessari
leið, þvf að hún er þveröfugt við
það, sem vant er.
I dag ráku gangnamenn féð yfir
Fjarðará og misstu þrjár kindur,
sem drukknuðu í ánni. Hjálma-
dalsheiðin er nú valin, vegna þess
að mennirnir treysta sér ekki til
að reka ókunnugt fé yfir jökul.
Gangnamenn halda nú kyrru fyr-
ir f gangnamannakofanum í
Stakkahlið, þar sem þeir eru nú
að verða olfulausir og munu þvf
þurfa að dúsa f kuldanum á morg-
un, ef þeir komast ekki úr Loð-
mundarfirði. Gangnamennirnir
eru 8 með 1400 fjár, 19 nautgripi
og 10 hesta. Á móti þeim munu
fara 4—5 menn héðan frá
Seyðisfirði til að aðstoða þá.
Brezkur togari kærð-
ur fyrir olíumengun
Seyðisfirði — 27. september.
HAFNARVÖRÐURINN hér, Ósk-
ar Friðriksson, hefur kært til
sýslumanns skipstjórann á brezka
togaranum Kingstone Beryl H-
128 fyrir að dæla olfu f höfnina.
Einnig hafa trillueigendur kært,
að bátar þeirra séu útataðir f olfu.
Togarinn hefur verið hér í höfn
undanfarna tvo daga. I gær-
morgun tók hafnarvörður eftir
því, að olía kom f sjóinn frá
togaranum. Hann kvartaði við
skipstjórann, sem taldi að olían
kæmi ekki frá togara sínum.
Hafnarvörður sýndi honum þá,
hvar olían kom út. Hættu
Bretamir þá að dæla, en í morgun
byrjuðu þeir aftur að dæla olf-
unni í sjóinn og var þá kært til
sýslumanns, sem lét lögregluna
taka skýrslu af skipstjóranum.
Skipstjórinn hélt þvf þar fram,
að menn hans hafi verið að
hreinsa fiskilestar og sama
leiðslan liggi þar um frá fiskilest
og vélarrúmi. Þegar þeir hafi svo
verið að „lensa“, hafi olía frá vél-
inni blandast saman við.
Togarinn fór í kvöld, þegar við-
gerð á honum var lokið, en hafði
áður sett tryggingu fyrir
spjöllum, sem togarinn hefur
valdið með þessum hætti.
— Svéinn.
Hrútfirðingar eru
rafmagnslausir
STÓR hluti Hrútafjarðar hefur
verið meira og minna rafmagns-
laus frá þvf á miðvikudag, og er
ekki fyrirsjáanlegt, að íbúar f
firðinum fái úrbætur, fyrr en um
miðja næstu viku.
I samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Jónas Einarsson, kaup-
félagsstjóri á Borðeyri, að raf-
magn hefði farið af vegna bilunar
f spenni á Reykjum í Hrútafirði.
Náði bilunin yfir tvo hreppa —
Staðarhrepp og Bæjarhrepp svo
og Borðeyri. Reynt var að koma
rafmagninu á aftur með því að
tengja tvo minni spenna við raf-
magnskerfið, en þegar á reyndi,
þoldu þeir ekki álagið. Sagði
Jónas, að þess vegna hefði verið
ákveðið að taka upp rafmagns-
skömmtun á þessu svæði, en það
kæmi sér þó mjög illa fyrir slátur-
húsið á Borðeyri, þar sem slátrun
væri nú hafin af fullum krafti.
Kvaðst Jónas raunar hafa sótt um
undanþágu fy'rir sláturhúsið frá
þessari skömmtun, þannig að það
yrði starfhæft.
Jónas kvaðst hafa borið það
undir rafmagnsstjórann þar um
slóðir, hvort ekki mætti leysa raf-
magnsvandann í Hrútafirði með
því að fá díeselstöð til að annast
raforkuframleiðslu til bráða-
birgða, en fengið þau svör, að það
hefði þegar verið athugað og
sllkar vélar væru ekki á lausu.
Kvaðst Jónas ekki geta varizt því,
að spyrja, hvort forráðamenn
raforkumála dreifbýlisins teldu
slíkt forsvaranlegt.
Spennirinn, sem bilaði, hefur
þegar verið sendur til Reykja-
víkur til viðgerðar og er áætlað,
að viðgerð ljúki á þriðjudag. Taldi
Jónas þvl, að rafmagn yrði komið
á I Hrútafirðinum um miðja
næstu viku.
Góð aðsókn að Septem 74
SVNINGIN Septem ’74, sem nú
stendur yfir I Norræna húsinu,
hefur gengið mjög vel og hefur
aðsókn verið jöfn og góð að sögn
Valtýs Péturssonar listmálara, en
auk hans sýna verk sín Guð-
munda Andrésdóttir, Jóhannes
Jóhannesson, Karl Kvaran, Krist-
ján Davíðsson, Steinþór Sigurðs-
son og Þorvaldur Skúlason, en
gestur sýningarinnar er Sigurjón
Olafsson myndhöggvari.
Um 20 myndir hafa selzt af
þeim 60, sem eru til sölu, en alls
eru 69 verk á sýningunni, sem
lýkur n.k. sunnudagskvöld kl. 22,
en hún er opin daglega frá kl.
14—22.
Umboðsmannaskipti á Akranesi
UM ÞESSAR mundir er Jón
Bjarnason, sem verið hefur um-
boðsmaður Morgunblaðsins á
Akranesi um árabil, að láta af
þeim störfum, en við tekur Guð-
rún Valdimarsdóttir.
Jón Bjarnason og kona hans
hafa beðið Morgunblaðíð að koma
á framfæri þökkum til áskrifenda
blaðsins og annarra viðskipta-
manna á Akranesi fyrir ánægju-
leg samskipti á liðnum árum.
Um leið vill Morgunblaðið
þakka þeim hjónum vel unnin
störf I þágu blaðsins.
„Þar réð ein
mínúta úrslitumí
Rætt við húsráðanda í húsinu Langamýri 22
Ingva Rafni sagðist svo frá,
þegar hann skýrði frá atburð-
um:
„Ég var nýlega farinn að
heiman I bllnum með tvær
dætur mínar, sem voru að fara I
skólann. Þegar ég fór út I bílinn
og opnaði útvarpstækið sagði
þulurinn, að klukkuna vantaði
12 mlnútur I átta. Svo ræsti ég
bílinn og tók telpurnar upp I,
en bíllinn spólaði dálltið I
brekkunni framan við húsið
vegna hálkunnar. Telpurnar
fóru síðan úr bílnum á horni
Þórunnarstrætis og Þingvalla-
strætis og rétt á eftir heyrðu
þær sprenginguna, svo að þá
hefur klukkuna vantað örfáar
mlnútur I átta. Þá hefði mig
ekki langað til að vera að spóla
fyrir framan húsið.
Konan mln var ekki komin á
fætur og Ingvi litli sonur okkar,
sem er á fjórða árinu, var á
sveimi um húsið, þó að hann
væri ekki klæddur. Hann hafði
fengið fallegan vörubíl frá
Italíu og var nú að leika sér að
honum, fór meðal annars I stof-
una og lék sér þar á gólfinu um
stund. Hann fór svo þaðan fram
á gang, þegar ég var nýfarinn
út og lokaði vandlega á eftir
sér, sem hann leggur þó alls
ekki i vana sinn. Varla var liðin
mínúta frá því, er hann fór út
úr stofunni, þegar húsið lék á
reiðiskjálfi með ógurlegum
hávaða, svo að konan mín hélt,
að kominn væri jarðskjálfti af
hörðustu gráðu. Hún óttaðist
mest, að þakið kæmi niður,
hávaðinn þaðan var svo mikill
af öllu brakinu, sem á því
dundi. Þegar hún opnaði stofu-
dyrnar, var ömurlegt um að
litast, eins og sjá má og ægilegt
til þess að hugsa, hvað orðið
hefði, ef drengurinn hefði ekki
farið út úr stofunni á réttri
stundu. Þar réð ein mínúta
úrslitum".
— Sv.P.
Akureyri, 27. september —
HJÓNIN Sólveig Jónsdóttir og
Ingvi Rafn Jóhannsson rafvirki
búa ásamt börnum sfnum I hús-
inu númer 22 við Löngumýri.
Þau hjónin komu heim f fyrra-
kvöld úr sömu skemmtiferð til
Italfu og Sigrún og Sigmundur
voru I. Hús þeirra skemmdist
mikið við sprenginguna I
Löngumýri 20. Meðal annars
brotnaði út úr þakskeggi,
suðurveggurinn sprakk á stóru
svæði og gekk inn, þannig að
rifa myndaðist upp við loftið.
Rúður mölbrotnuðu og mikið
sér á stofuvegg gegnt suður-
gluggum eftir múrstykki, sem
komu fljúgandi inn um glugg-
ana. Gólfið var þakið múrstein-
um, steypukögglum og gler-
brotum og meðal þess, sem inn
kom um stofugluggana, voru
pottar og önnur búsáhöld úr
eldhúsi nágrannanna, stór
sleggja og um meters langur
bútur úr steypustyrktarjárni,
sem sýnilega hafði brotnað af
langri stöng.
Ingvi Rafn Jóhannesson og dóttir hans Sólveig I stofunni að
Löngumýri 22 — næsta húsi við húsið, sem sprakk.
Sofa þúsundir Akureyringa
á „sprengju” áhverri nóttu?
SOFA þúsundir Akureyringa á
sprengju á hverri nóttu? Þess-
arri spurningu var varpað að
blaðamanni Mbl. nyrðra I gær.
Og það kom I Ijós, að hundruð
húsa á Akureyri eru með sams-
konar hitunarkerfi og var f
Löngumýri 20. Þetta eru ein-
býlishús, hús fyrirtækja og
opinberar byggingar, skólar og
jafnvel sjúkrahús. Að mati
slökkviliðsstjórans á Akureyri
er auðvelt að bægja hættunni
frá með þvf að setja öryggis-
ventla á kerfin. Engar fastar
reglur eru f gíldi um hitunar-
tæki hér á landi, en eftir
sprengingarnar tvær á
Akureyri f sumar virðist full
ástæða til að setja slfkar reglur.
Tækninni fleygir stöðugt fram,
og þá er þörf strangari öryggis-
reglna.
OPINBER RANNSÓKN
„Ég fór strax á staðinn um
leið og skrifstofan fékk vitn
eskju um atburðinn", sagði
Bogi Nilsson, aðalfulltrúi
bæjarfógetans á Akureyri. „Ég
kvaddi þegar 2 menn til að
kanna orsakir sprengingar-
innar, þá Stefán Stefánsson
bæjarverkfræðing og Pétur
Bjarnason, sem einnig er verk-
fræðingur. Einnig kvaddi ég 2
menn til að meta skemmdirnar,
þá Pétur Pálmason verk-
fræðing og Gísla Ólafsson yfir-
lögregluþjón. Þetta eru sömu
menn og voru dómkvaddir til
þessara verka eftir sprenging-
una I Kjötiðnaðarstöð KEA I
sumar. Niðurstöður af könnun
þeirra eru væntanlegar á næst-
unni, en óneitanlega minnir
þessi sprenging mann mjög á
sprenginguna hjá KEA.“
HIÐ OPINBERA SETJI
REGLUR
„Ég vil sem minnst um málið
segja á þessu stigi“, sagði
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðingur við blaðamann Mbl. I
gærkvöldi, en hann er annar
dómkvaddra manna, sem
rannsaka eiga orsakir
sprengingarinnar. „Það liggur
þó ljóst fyrir, að næturhitunar-
dúnkur hefur sprungið og
valdið skemmdunum. Erlendis
eru strangar reglur um ^|fk
lokuð kerfi semþetta.en engar
hérlendis. Sprengingin nú, svo
og sú hjá KEA I sumar hljóta að
leiða til þess að hið opinbera
setji ákveðnar reglur um út-
búnað hitunartækja."
AUÐVELT AÐ BREYTA
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri á Akureyri,
veitti Mbl.greinargóðarupplýs-
Framhald á bls. 23.
Ur stofunni að Löngumýri 22 — næsta húsi við húsið sem sprakk.