Morgunblaðið - 28.09.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
3
Ur kirkju báru kistu dr. Sigurðar Nordals ráðherrarnir Geir Hallgrímsson, Ólafur Jóhannesson,
Gunnar Thoroddsen og Vilhjálmur Hjálmarsson, Guðlaugur Þorvaldsson, háskólarektor, próf.
Gylfi Þ. Gfslason, Andrés BjÖrnsson, útvarpsstjóri og dr. Jakob Benediktsson. Ljósm. Rax.
Útför dr. Sigurðar
Nordals gerð í gær
sungnir sálmarnir: Ég veit
minn ljúfur lifir og Allt eins og
blómstrið eina. Dómkirkjukór-
inn söng. Orgelleikari var
Ragnar Björnsson, sem flutti
sálmaforleik.
Rekunum var kastað í
kirkjunni. Ur kirkju báru kist-
una ráðherrarnir Geir
Hallgrimsson, Ölafur Jóhannes-
son, Gunnar Thoroddsen og Vil-
hjálmur Hjálmarsson, Guð-
laugur Þorvaldsson, háskóla-
rektor, próf. Gylfi Þ. Gislason,
Andrés Björnsson, útvarps-
stjóri og dr. Jakob Benedikts-
son.
Dr. Sigurður Nordal var jarð-
settur í kirkjugarðinum við
Suðurgötu. Ættingjar báru kist-
una þar.
Utförin fór fram á vegum
ríkisins í samráði við ættingja
hins látna.
UTFÖR dr. Sigurðar Nordals
var gerð frá Dómkirkjunni f
gær, að viðstöddum forseta Is-
lands og forsetafrú, biskupin-
um yfir fslandi og frú hans,
ráðherrum, ættingjum hins
látna og vinum. Séra Jakob
Jónsson jarðsöng.
í ræðu sinni lagði presturinn
út af orðum Mattheusarguð-
spjalls 14:52, sagði að sér hefði
komið í hug, er hann skyldi
jarðsyngja SigurðNordal fræði
maðurinn, sem bæði lærði og
kenndi og húsráðandinn, sem
ber fram gamalt og nýtt, því
Mattheus væri sá meðal
höfunda, sem varðveitti tengsl-
in við hið gamla og bar fram
gamalt og nýtt. En ritningar-
greinin, sem út af var lagt hefst
svo: Hafið þér skilið allt þetta?
Þeir segja við hann: Já. En
hann sagði við þá: Þess vegna
er sérhver fræðimaður, sem er'
orðinn lærisveinn himnaríkis,
líkur húsráðanda, sem ber fram
nýtt og gamalt úr fjársjóði sín-
um.
Sigurður Nordal hafði sjálfur
óskað eftir því, að yrði sunginn
sálmur, skyldi sunginn til enda
sálmurinn eftir sr. Hallgrim
Pétursson um dauðans óvissa
tíma, þar sem m.a. segir: Einn
vegur öllum greiðir/ inngang í
heimsins rann/ margbreyttar
lízt mér leiðir/ liggi þó út
þaðan. Honum lýkur á orðun-
um: Hvenær sem kallið kemur/
kaupir sig enginn fri/ þar læt
ég nótt, sem nemur/ neitt skal
ei kvíða því. Ef aðrir sálmar
yrðu sungnir, hafði Sigurður
óskað eftir, að þeir yrðu einnig
eftir Hallgrím Pétursson. Voru
ÍKVKYKJA 1 I-ItJA SJALli’ST^JISIiOSINU
Mikill eldur kom upp í S.jálfstæðis-
húsinu nýja við Bolholt um kl. 1 í nótt.
Kveikt hefur verið í eldfimurn efnum í lyftu
opi hússins á 1. hæð dg eldurinn breiðzt
paðan át upp á aðra hæð og hina priðju, sern
verið er að slá upp fyrir. -Stððu eldtungur
hátt í loft upp frá hásinu, er eldurinn var
sem mestur.' Slökkvistarf gekk vel og skemmd
ir ekki verulegar en slökkviliðsmenn segja
að þarna hefði orðið stðrbruni ef þakið
hefði verið komið á húsið.
Rætt um notkun gosefna
á fundi Iðnaðarsjóðsins
Attundi stjórnarfundur Norr-
æna iðnaðarsióðsins var haldinn f
Reykjavfk f gær. Var á fundinum
meðal annars fjallað um notkun
gosefna, til dæmis til bygginga,
og gáfu þeir Hörður Jónsson, Ótt-
ar Halldórsson og Þorleifur
Einarsson skýrslur um ýmsa
möguleika á notkun gosefna.
Sjóðurinn, sem stofnaður var í
fyrra, á að stuðla að betri nýtingu
starfskrafta, meðal annars með
því að styðja fjármögnun verk-
efna, sem varða iðnaðinn í tveim
eða fleiri Norðurlanda. Á þessu
starfsári einbeitir sjóðurinn sér
þó að f jórum aðalsviðum, þar sem
reynt er að ná árangri, sem hag-
nýta má f iðnaði. Eru það um-
hverfisverndartækni, tækni á
sviði heilbrigðismála, efnistækni
og samgöngu og flutningatæki.
Sjóðurinn hefur á þessu ári
veitt lán að upphæð samtals rúm-
Iega 146 milljónir ísl. króna. 12
þessara lána hafa farið til Dan-
merkur, 13 til Finnlands, 14 til
Noregs, 15 til Svfþjóðar og 4 til
íslands.
Þessi fjögur verkefni, sem
tslendingar eru aðilar að, eru f
prófunartækni eða hið svo kallaða
Nordtest verkefni, en f það hafa
10% af fjárveitingu sjóðsins far-
iö, öryggis á sjó og framtíðar
siglinga, framleiðslu á trefja-
styrktri steypu og hjálpartækjum
fyrir blinda.
Þar sem það eru aðeins fá verk-
efni, sem fullnægja þeim skilyrð-
um, að til árangurs leiði bæði á
Islandi og í a.m.k. einu Norður-
landa öðru hefur sjóðurinn
víkkað starfsemi sína gagnvart
íslandi og mun hann stuðla að
tækniaðstoð og þjónustu við
Islendinga, svo sem þjálfun
starfsliðs og örvun upplýsinga-
skipta. í framhaldi af þessari út-
víkkun hefur verið ákveðin
tækniþjónusta fyrir tréiðnaðinn
fslenzka og munu menn verða
sendir utan til þjáifunar í því
skyni, að þeir geti haldið nám-
skeið hérlendis. Þá er einnig
fyrirhugað af hálfu sjóðsins að
styrkja námskeið í verkefna-
stjórn.