Morgunblaðið - 28.09.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
11
Sextugsafmœli:
Jón Pálsson
póstfulltrúi
Þrír firðir skerast inn í Húna-
þing. Sá austasti heitir Húna-
fjörður, en hét upphaflega Vatna-
fjörður. samanber sveitaheitin
Vatnsdalur neðri og efri. Fyrir
botni hans eru miklar kostajarðir
að fornu og nýju til búskapar. En
áður fyrr var Iand þar miklu f jöl-
skrúðugra að gróðri, meðan upp-
hafleg gæði landsins voru óskert.
Þá var landið vaxið skógi og vfði
milli fjalls og fjöru. Kólkumýrar
og Asar voru skóglendi fagurt og
frftt. Bezta sönnun þess er Vatns-
dæla, en þar segir svo: „Síðan
sótti fiðið upp dalinn og sá þar
góða landkosti að grösum og skóg-
um. Var fagurt um að lítast. Lyfti
þá mjög brúnum manna.“
En skipti fólksins og fénaðarins
við landið, urðu hörð og bitur, en
sérstaklega fyrir botni Húna-
fjarðar. Á 12. öld var stofnsett á
Þingeyrum klaustur að alþjóð-
legri gerð. Þar var rekinn mikill
og fjölbreytilegur búskapur, er
setti bráðlega glögg merki á allt
lff og starf í húnvetnskum
sveitum. Það varð svo, áður en 12.
öldin varð öll, að kristlingar á
Þingeyrum höfðu komið ár sinni
svo fyrir borð,' að Húnvetningar
höfðu misst goðavaldið úr hérað-
inu að nokkru. En það sem verra
var, landið var eytt af gróðri af of
setnum jörðum í blómlegasta
hluta héraðsins vegna ágengni og
ásóknar hinns nýja valds í hér-
aðinu.
Þessi þróun varð söm í raun
aldanna, og á í sönnum og gildum
rökum á líðandi öld skýr mörk í
þvf, að Húnavatnssýsla er skóg-
snauðasta hérað landsins. Allt
fram á 18. öld voru leifar skóga í
Húnaþingi, en voru þá orðnir í
raun réttri aðeins aum hrísrif og
arður þeirra rifhrís til eldiviðar.
En sú var bótin í Húnaþingi og
ber á Iíðandi stund fullan arð f
raun, að landið blés þar ekki upp,
þegar skógurinn var horfinn, eins
og það gerði fyrir sunnan land.
Hin norræna íshafsveðrátta sá
fyrir því f staðviðri og hlýjum
sumrum.
ungum aldri orðið að vinna og
leggja hart að sér, því að á upp-
vaxtarárum hans var hörð lífs-
barátta í sveitum landsins. Jón er
líka mikill dugnaðar- og áhlaupa-
maður að hverju sem hann
gengur.
Hugur Jóns stóð mjög til
menntunar, en fárra var kosta völ
á æskuárum hans í þeim efnum.
Hann var við nám í Reykholti og
Hvanneyri, og að þvf loknu fór
hann til Danmerkur og kynti sér
þar búskap. En að-lokinni dvöl í
Danmörku fór hann til Noregs og
var þar í rúmt ár. Jón er mjög
hrifinn af Noregi, norskri
menningu og þó langtum fremst
af norskum búskaparháttum og
norskum ræktunarmálum. Hann
á marga vini og góða í Noregi og
hefur bundist þeim órjúfanlegum
vináttuböndum. I Noregi komst
hann í kynni við fleira, er átti
eftir að hafa mikil áhrif og^góð á
ævi hans og lífsstefnu, eins og
betur kemur fram f máli mfnu.
Að utanförinni lokinni, hóf Jón
Pálsson margskonar störf hér
heima eins og gerist og gengur.
En veturinn 1946 varð hann
starfsmaður í pósthúsinu í
Reykjavík, og hefur unnið þar
sfðan. Hann sómir sér vel í póst-
mannastéttinni, er ábyggilegur,
minnugur og sérstakíega glöggur
að leysa margþætt aðkallandi
vandamál til að koma pósti til
skila, þegar heimilisföng eru
vafasöm eða óglögg.
Jón Pálsson varð í æsku vitandi
þess, að íslenzka þjóðin þarfn-
aðist dugmikillá og traustra rækt-
unarmanna, jafnt í grasrækt og
skógrækt. Honum sveið ungum,
Framhald á bls. 22.
Skuldabréf
Hef kaupanda að skuldabréfum til 10 ára með
hæstu vöxtum.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: Skuldabréf —
9592.
íbúar í Breiðholti 1
Kirkjukór Breiðholtssafnaðar óskar eftir söng-
fólki í allar raddir.
Uppl. í síma 71672 og 72684.
Jón Pálsson er fæddur 28.
september 1914 f Sauðanesi á
Kólkumýrum. Foreldrar hans
voru hjónin Páll Jónsson bóndi
þar af Flatatunguætt í Skagafirði
og Sesselja Þórðardóttir f rá Stein-
dyrum í Svarfaðardal. Jón var
elztur 12 systkina. Þá má því
nærri geta, að hann hefur þegar á
Framsagnarnámskeið
hefst 1. okt.
Upplýsingar í síma 14839.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53, 55 og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins 1 974 á íshúsi
í Gerðahreppi talin eign Fiskiðju Suðurnesja. h.f., fer fram á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 3. okt. 1974 kl. 11. f.h. eftir kröfu Tryggingar-
stofnunnar ríkisins og Iðnaðarbanka íslands h.f.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53, 55, og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins 1974 á
Bakkastíg 8, Ytri-Njarðvik þinglesinni eign Þórarins Þórarinssonar ofl.,
fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfu Byggðasjóðs, fimmtudaginn 3.
okt. 1974 kl. 10 f.h.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53, 55 og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins 1974 á
húsgrunni á spildu úr landi Miðneshrepps við Vesturgötu, Sandgerði,
þinglesinni eign Eyjólfs Bjarnasonar, fer fram á eigninni sjálfri eftir
kröfu hdl. Garðars Garðarssonar, fimmtudaginn 3. okt. 1974 kl.
14.30.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53, 55 og 56 tbl. Lögbirtingablaðsins 1974 á
Skólavegi 10, efri hæð, Keflavik, talin eign Jóhanns Þórlindssonar, fer
fram á eigninni sjálfri eftir kröfu hrl., Skúla J. Pálmasonar, fimmtudag-
inn 3. okt. 1974 kl. 1 7.00.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53, 55 og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins 1974 á
Klapparstíg 6, Keflavík þinglesinni eign Péturs V. Helgasonar, fer fram
á eigninni sjálfri eftir kröfum Landsbanka Islands og Lögmanna,
Vesturgötu 1 7, Reykjavík fimmtudaginn 3. okt. 1 974 kl. 1 6.00.
Bæjarfógetinn i Keflavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53, 55 og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins 1974 á
Stafnesvegi 1, Sandgerði þinglesinni eign Ólafs Gíslasonar, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. okt. 1 974 kl. 1 3.30. eftir kröfum Árna
Gr: FiTtnssonar; Jóhanns Þórðarssonar; Jón N. Srgurðssonar, Guðjóns
-Steingrímssonar, Björgvins Sigurðssonar og Árna Gunnlaugssonar
hæstaréttarlögmanna.
Sýslumaður Gullbringusýslu.
Krani til sölu
Til sölu er 20 tonna Lorain kranabifreið í góðu
laqi. Hagstætt verð. Upplýsingar í síma 96-
41 162 eftir kl. 20.
Tónlistarskóli
Mosfellshrepps
tekurtil starfa 1. október n.k.
Aðalkennslugreinar: pianó, fiðla, gítar, málmblásturshljóðfæri, ásláttar-
hljóðfæri, blokkflauta og nótnalestur (undirbúningsdeild).
Umsóknum veitt móttaka í símum 20881 og 6631 9.
Skólastjóri.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, vörubifreið, pick-up
bifreiðar og pick-up bifreið með 4ra hjóla drifi
er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn
1. október kl. 1 2 — 3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.
GLÆSILEGT URVAL
AF VÖNDUÐUM OG HLÝJUM
VETRARFATNAÐI
Frá Hollandi, Belgíu, Danmörku og Bretlandi
NYTT — NYTT
KAPUR — JAKKAR
BUXNADRAGTIR
HÚFUR — TREFLAR
þcrnhard lax^al
KJÖRGARÐ/