Morgunblaðið - 28.09.1974, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
Kanada-
ferð 75
ÞJOÐRÆKNISFÉLÖGIN í
Reykjavík og á Akureyri hafa
ákveðið að gangast fyrir ferð vest-
ur um haf í tilefni af 100 ára
landnámsafmæli Islendinga í
Manitoba, en þar munu fara fram
fjðlþætt hátíðahöld á Gimli dag-
ana 2.—4. ágúst 1974.
Flogið verður með þotu frá
Keflavíkurflugvelli miðvikudag-
inn 30. júlí 1975 beint til Winni-
þeg. Gert er ráð fyrir að fljúga
hteim frá Winnipeg, miðvikudag-
inn 20. ágúst. Flugfargjaldið
báðar leiðir verður kr. 24.800,00
miðað við núverandi gengi og
verðlag.
Hugmyndin er að skipuleggja
sérstaka hópferð frá Winnipeg til
Vancouver, B.C., ef næg þátttaka
fæst.
Skrifstofa Þjóðræknisfélagsins
í Reykjavík verður opnuð í hús-
inu Gimli við Lækjargötu,
miðv.daginn 25. sept. n.k. og verð-
ur hún opin virka daga frá kl.
3—6 e.h. Sími 28025.
Þjóðræknifélagið á Akureyri
mun og taka við þátttökutilkynn-
ingum og mun formaður þess,
Árni Bjarnarson, veita þeim
viðtöku í bókav. Eddu, Hafnar-
stræti 100. Sími 11334.
Mikið byggt
í Sandgerði
Sandgerði 25, september. —
MJÖG mikill fjörkippur er i bygg-
ingaframkvæmdum hér, enda eru
sífelld húsnæðisvandræði, og eru
nú í byggingu á ýmsum bygginga-
stigum 44 einbýlishús. H.f.
Miðnes er að reisa nýja vinnslu-
sali við frystihúsið og er það stórt
stálgrindahús. Einnig er í bygg-
ingu ný slökkvistöð og aðstaða
fyrir slysavarnir í sama húsi.
Síðastliðið vor var byrjað að út-
hluta lóðum í skipulögðu hverfi
fyrir 50 einbýlishús. Nú er að
mestu búið að úthluta þeim lóðum
og verið að vinna að skipulagi
næsta áfanga.
I sumar var lögð oliumöl á þrjár
götur og byrjað var á gatnagerð í
nýja hverfinu. Einnig var lokið
við lagningu tveggja vfðra hol-
ræsa til sjávar.
I hafnarframkvæmdum á að
vinna hér í haust fyrir um 70
milljónir króna. Að vísu átti að
hefja þær framkvæmdir hér
síðastliðið vor, en það dróst, að
þær hæfust, þar til eftir miðjan
ágúst.
Til stóð að gera 130 metra grjót-
garð og 90 metra langa bryggju
við enda hans, en verðbólgan
hækkaði verkáætlunina það
mikið á árinu, að horfið var frá
bryggjugeröinni á þessu ári, en
þess í stað gerðir tveir grjótgarð-
ar samanlagt um 300 metra lang-
ir, og að þeim er reyndar verið að
vinna nú og vonir standa til að því
verði lokið fyrir áramót.
Öfremdarástand hefur ríkt hér
undanfarið í löggæzlumálum. Sér-
staklega á það þó við um óknytti
unglinga og hefur götulýsingin
einkum orðið fyrir barðinu á
þeim. Mjög brá til hins verra eftir
að ríkið tók við löggæzlunni af
sveitarfélaginu um síðustu ára-
mót, en þá var lögreglan hér og
víðar af Suðurnesjum sameinuð
undir eina stjórn í Keflavík. Að
sögn yfirvalda stafar þetta af
mannfæð Keflavíkurlögregl-
unnar. — Jón.
X-9
>5JOR*NINGJARNIR FLyjA KAF-
B'ATINN,, bvssubrendir'af
LOGUM FLDVÖRPUNNAR'
OG GANGUR SARDAGANS SNÝSTVt
WMM ALLT UNNIÐ FyRlR GVG Kl
KOMUM OKKUR tíURT.
'A MEBAN
T/feKIFÆRl
gefst'
UÚSKA
SMAFÚLK
i’fwirs
IF V0U STANP H£RE
TALKIN610 A 0UILPIN6,
EVERVONE 15 Ö0IN6 T0
THINK HO/m CRAZV
IS
rzzi
biWV. AT LEAST IT LI5TENS!
I 5URE CAN'T TALK TO THE
PRINCIPAL OR THE PTA OR
THE8CARP0F EPUCATlON!
AT LEA5T, (UHEN I TALK TO
THE 5CH00L 8UILDIN6,1T U5TEN5
TO WHAT I HAVE TO 5AYÍ
1/NFörrUNATELV,
KIP, l'VE
HEARD IT.
ALL BEFORE
I
í
rzrr
nTT
I
Ef þú stendur þarna og talar við
húsið, þá halda allir að þú sért
orðin klikkuð!
Hvers vegna? Húsið hlustar þð!
Ekki get ég talað við skólastjór-
ann eða fræðsluráðið eða mennta-
málaráðherrann!
Þegar ég tala við skólahúsið, þá
hlustar það þó að minnsta kosti á
mig!
Því miður, krakki, þá hef ég heyrt
þetta allt áður!
j KOTTURINN feux'