Morgunblaðið - 28.09.1974, Page 24
GNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIO JAN SIMI: 19294
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1974
Strákarnir, sem sáu húsið springa. Guðjón Stefánsson og Hallgrfmur
Stef ánsson til vinstri.
HUSIÐ
TÆTTIST
Akureyri, 27. september —
ÍBÚÐARHtlSIÐ númer 20 við
Löngumýri og allt sem f því var
eyðilagðist gjörsamlega laust
fyrir klukkan 8 f morgun, þegar
gffurleg sprenging varð f nætur-
hitunargeymi undir fbúðinni.
Sem betur fór var húsið mann-
laust, þvf að hjðnin, sem þar
bjuggu, Sigrún Gfsladóttir og Sig-
mundur Björnsson, deildarstjóri
Vátryggingadeildar KEA, voru á
ferðalagi. Engin slys urðu á fólki
við sprenginguna, en brak úr hús-
inu flaug vfða um nágrennið,
lenti á nærliggjandi húsum og
jafnvel inn f þau, svo að mikið
tjón hlauzt af.
Öhug sló á Akureyringa i morg-
un, þegar fréttist um þessa
sprengingu, enda skammt að
minnast annarrar sprengingar
svipaðs eðlis í Kjötiðnaðarstöð
KEA í júlímánuði. Þar urðu tug-
milljóna króna skemmdir, en eng-
in slys á fólki. Næturhitun húsa
með rafmagni er algeng hér í bæ
og þvi spyrja margir í dag, hvort
vænta megi enn einnar spreng-
ingar og enn meiri eyðileggingar,
jafnvel manntjóns, hvort öryggis-
búnaði muni vera í einhverju
áfátt, hvort menn geri sér ljóst, í
hverju gallarnir séu fólgnir og
hvort eitthvað sé unnt að gera til
að koma í veg fyrir atburði af
þessu tagi eða jafnvel enn alvar-
legri atburði. Eru fleiri hús og
heimili í bráðri hættu og þar með
mannslíf? Hvað gerir öryggis-
eftirlitið? Þessara og þvílíkra
spurninga spyr maður mann.
Hjónin, sem húsið áttu, hafa
undanfarið verið á skemmtiferða-
lagi erlendis með Karlakdrnum
Geysi, en voru nýkomin til lands-
ins og ætluðu að koma heim í dag.
Þess vegna var settur straumur á
næturhitunarkerfið fyrir tveimur
dögum, svo að ibúðin yrði hlý og
notarleg, þegar þau kæmu.
Það var svo um það bil klukkan
07.55, að húsið sprakk bókstaflega
í loft upp og hrundi nærri ger-
samlega. Austur og suður útvegg-
ir standa þó að mestu uppi, en
allir sprungnir þversum og
langsum og ónýtir eins og aðrir
hlutar hússins og allt, sem i því
var. Fallegt heimili er algjörlega i
rústum og heimkoma húsráðenda
dapurlegri en orð fá lýst.
Norðurveggur hússins hrundi
yfir fólksbíl, sem stóð þar og lagði
hann saman að mestu. Bíllinn var
eign Samvinnutrygginga, nýupp-
gerður og sprautaður og ætlaður
til sölu. Múrbrot og húshlutar
þeyttust út á götuna, á næstu hús
og yfir þau og vftt og breitt um
nágrennið. Spýtnabrak, múr-
steinar og hlutar úr steyptum
veggjum og gólfum lentu inn í
nokkur hús, þó að húsið númer
22, sem stendur næst norðan við
hafi orðið verst úti, en það er
stórksemmt bæði úti og inni. Til
marks um sprengikraftinn má
nefna, að stórt flykki úr stein-
steyptu gólfi, sem var yfir vatns-
geyminum og með-neti úr 12
millimetra járni, hatði rifið sig
laust, slitið járnin eins'5og tvinna-
spotta, þeytzt upp f gegnum þak-
ið, flogið í stórum boga um 40
metra vegarlengd, skollið þar
Framhald á bls. 23.
„Höldum
áfram
að lifa”
— segir eigandi
hússins, sem
sprakk
Akureyri, 27. september —
ÞAU Sigrún Gfsladóttir og Sig-
mundur Björnsson komu heim til
Akureyrar f kvöld. Sigmundur
hafði þetta að segja um hina sér-
stæðu og erfiðu Iffsreynslu þeirra
hjóna:
„Það er ákaflega hryggilegt að
koma heím að öllu þvf f rústum,
sem skilið var við f góðu og full-
komnu lagi fyrir hálfum mánuði.
Lffsþrek manns er að nokkru f
rústum lfka. En hvað um það,
þetta voru bara dauðir hlutir og
við höldum áfram að lifa, og það
ætlum við okkur lfka að gera“.
— Sv.P.
Gjöreyðilagðist
Við ketilsprenginguna f
Löngumýri 20 hrundi norður-
gafl hússins yfir Skodabifreið
og gjöreyðilagðist hún eins og
sjá má. Bifreiðin var f eigu
Samvinnutrygginga, nýupp-
gerð og átti að fara á bflasölu f
næstu viku. Ljósm. Mbl. Sv. P.
Lyftist upp og féll
syo saman
Rætt við tvo sjónarvotta að
sprengingunni á Akureyri
Akureyri, 27. september.
FRÉTTAMAÐUR Mbl. náði tali
af tveimur sjónarvottum af at-
burðunum f morgun, báðum 15
ára. Hallgrfmí Stefánssyni,
Kringlumýri 2 og Guðjóni Stef-
ánssyni, Ásvegi 21. Hallgrfmur
iýsti þvf, sem fyrir augu hans bar
þannig:
„Ég ætlaði að fara að leggja af
stað f skólann. Ég var kominn
fram í forstofu og var að hugsa
um, hvort ég ætti að fara á skóm
eða stígvélum. Ég opnaði þá dyrn-
ar og leit út til að athuga færðina.
en þá sá ég hvar húsið handan við
götuna bókstaflega lyftist upp,
mér sýndist eina 3 eða 4 metra, og
féll svo saman. Mikill rykmökkur
þyrlaðist upp og steig ógurlega
hátt upp í loftið, en barst svo til
suðurs yfir næstu hús.
— Ég trúði alls ekki mínum
eigin augum, þegar ég sá húsið
fara. Það var búið að vera kyrrt á
sínum stað öll þessi ár og staðið
þar rólegt fyrir augunum á mér.
En ég fór strax í símann og til-
kynnti lögreglunni um þetta. Það
var á tali hjá þeim fyrst, en í
næstu tilraun svöruðu þeir. Þeir
voru svo komnir eftir 2 eða 3
mínútur."
Guðjón Stefánsson sagðist hafa
verið I herbergi Stefáns bróður
síns, sem sat við skrifborð sitt og
horfði út um gluggann.
„Við bræðurnir vorum að tala
saman, þegar Stefán sá húsið
springa. Ég leit út í þeirri andrá,
Framhald á bls. 23.
ÍBA o g Víkingur
dæmd í 3. deild?
— STJÖRN Knattspyrnusam-
bands Islands hefur ekkert dóms-
vald. Það eru aðrir aðiiar innan
knattspyrnuhreyfingarinnar, sem
til þess hafa verið kjörnir, sem
hafa það, og þeir hafa fellt sinn
úrskurð. Þeim úrskurði ber að
hlýta, hvort sem mönnum Ifkar
betur eða ver. Um þetta atriði er
stjórn KSt öll sammála og mun
standa og falla með þeirri ákvörð-
un sinni að hafa ekki afskipti af
þeim dómum, sem löglega eru
upp kveðnir.
Þannig fórust Ellert B. Schram,
formanni KSI, orð á fundi með
fréttamönnum í gærdag, er hann
kynnt afstöðu KSl-stjórnarinnar
til þeirrar ákvörðunar
Knattspyrnufélagsins Víkings og
Iþróttabandalags Akureyrar að
koma ekki til leiks þess, sem boð-
aður hefur verið í dag í Keflavík
— leik, sem á að skera úr um,
hvort liðið heldur sæti sfnu í 1.
deild.
Bæði liðin, sem þarna eiga hlut
að máli, Víkingur og IBA, hafa
sent KSI símskeyti, þar sem þau
skýra frá þvf, að þau muni ekki
koma til leiksins, þar sem lögbrot
hafi verið framið i Islandsmóti 1.
deildar og það látið óátalið af KSI.
Fjallaði stjórn KSl um málið á
fundi sínum i fyrrakvöld og
kynnti síðan liðunum afstöðu sína
I gær, en bæði liðin reyndust ófá-
anleg til þess að breyta afstöðu
sinni. Kjarninn í afstöðu KSI til
málsins kemur fram í þeim orð-
um, sem höfð eru eftir Ellert B.
Schram hér á undan, og telur
stjórn KSl, að komi liðin ekki til
leiksins, þá hafi þau firrt sig rétti
til þess að taka frekar þátt í 1.
deildar keppninni að ári. Mun því
lið Hauka, sem varð í öðru sæti í
2. deild í sumar taka sæti í 1.
deild, en á þessu stigi málsins
vildu talsmenn KSl ekki tjá sig
endanlega um það, hvort lið Vík-
ings og IBA fengju að leika f 2.
Framhald á bls. 22.