Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 5 Dr, Gunnar Sigurðsson, verkfræðingur: Vatnsnotkun mál- blendiverksmiðjunnar ÞAÐ ER furðulegt, hvað Einar Valur Ingimundarson, umhverfis- verkfræðingur, getur umhverft staðreyndum I grein sinni „Hugsanleg mengun frá málm- blendiverksmiðju", sem birtist i Morgunblaðinu þann 10. janúar s.l. Ég leiðrétti hér aðeins stað- hæfingar hans í sambandi við vatnsnotkun verksmiðjunnar. Verkfræðiþjónusta mln hefur séð um undirbúning að gerð vatns- veitu fyrir verksmiðjuna og hefur því allar upplýsingar um þarfir hennar. Það stendur því næst mér að leiðrétta fullyrðingar Einars Vals um þetta atriði. Meðal vatnsnotkun verksmiðj- unnar er áætluð 1,4 1/sek., en ekki 100 1/sek. eins og Einar Val- ur Ingimundarson heldur fram í grein sinni. Þetta vatn er notað fyrir hreinlætistæki og aðrar al- mennar þarfir. Hin mikla vatns- notkun verksmiðjunnar ásamt þeim ályktunum, sem af henni eru dregnar, eru þvl hreint hugarfóstur umhverfisverkfræð- ingsins. Eins og áður hefur margoft komið fram, er kælikerfi verk- smiðjunnar lokað. Vatnið í kæli- kerfinu er því á stöðugri hring- rás, og vatnsþörf þess nánast engin. Það skal. tekið fram, að Union Carbide hefur frá upphafi reiknað með lokuðu kælikerfi. Val á lokuðu kælikerfi i stað opins mun vera fyrst og fremst til að ráða betur við tæringu i leiðsl- um, en ekki vegna mengunar- hættu. Rétt er að taka fram, að í hinni almennu skýrslu minni um staðarval, sem kom út i ársbyrjun 1973, var gert ráð fyrir opnu kæli- kerfi og þar af leiðandi margfalt meiri vatnsnotkun. Sú skýrsla var hins vegar samin áður en samn- ingar við Union Carbide hófust og þarfir þeirra voru þekktar. Opið kælikerfi er t.d. í áburðarverk- smiðjunni, og þar er notkunin, ef ég man rétt, um 240 1/sek. Þó að meðal vatnsnotkun verk- Námskeið um þróunarverk- efni á sviði atvinnumála smiðjunnar sé aðeins 1,4 1/sek., verður að hanna vatnsveituna með tilliti til brunavarna. Er þá miðað við, að nægjanlegt vatn sé fyrir hendi til að halda um 60 1/sek. rennsli i 4 tíma. Þetta verður þvi ráðandi hönnunarfor- senda fyrir vatnsveituna en ekki meðalnotkunin. Reykjavík 11. janúar 1975. Gunnar Sigurðsson. Rækjuaflirai á Vestfjörðum Haustvertið á rækjubátum hófst á Vestfjörðum í byrjun október og lauk 4.—8. desember. Á þessu hausti stunduðu 82 bátar rækjuveiðar frá Vestfjörðum, og er það 10 bátum fleiri en síðasta haust. Heildaraflinn varð nú 1.921 lest, en var 2.096 lestir á síðasta hausti. Frá Bíldudal hafa róið 14 bátar, og var afli þeirra i desember 14 lestir. Er aflafengur þeirra á vertíðinni þá orðinn 209 lestir, en var 241 lest á sama tíma í fyrra. Frá verstöðvum við Isafjarðar- djúp hafa róið 55 bátar og var afli þeirra í desember 100 lestir. Vertíðaraflinn er þá 1.220 lestir en í fyrra gaf haustvertíðin 1.290 lestir. Frá Hólmavik og Drangsnesi hafa róið 13 bátar i haust og öfluðu þeir 61 lest i mánuðinum. Er heildaraflinn þá 492 lestir en var 565 lestir i fyrra. RANNSÓKNARÁÐ ríkisins, Stjórnunarfélag Islands og Iðnþróunarnefnd hafa í samein- ingu ákveðið að gangast fyrir námskeiðum um verkefnastjórn- un (Project management) fyrir starfslið rannsóknarstofnana og ýmissa annarra stofnana og sam- taka, sem starfa í þágu atvinnu- lifsins. Námskeiðin verða í tvennu lagi. Annars vegar verður haldið fjög- urra daga námskeið að Munaðar- Tregt hjá Vestfirð- ingum í desember GÆFTIR voru stopular i Vest- firðingaf jórðungi í desember- mánuði s.l. og tregur afli þegar gaf til róðra. Togbátarnir fengu þó dágóðan neista I kring um hátfðarnar, en fyrri hluta mánaðarins var algjör ördeyða. 1 desember stunduðu 34 bátar bolfiskveiðar frá Vestfjörðum, reru 27 með línu, en 7 stunduðu togveiðar. I fyrra reru einnig 27 bátar með linu í desember, en þá stunduðu 8 bátar togveiðar. Heildaraflinn í mánuðinum var 3.073 lestir, en var 4.176 lestir á sama tíma í fyrra. Afii linubát- anna var nú aðeins 1.354 lestir i 293 róðrum eða 4.62 lestir að meðaltali I róðri, en í fyrra var desemberafli linubátanna 2.257 lestir i 383 róðrum eða 5.89 lestir að meðaltali í róðri. Aflahæsti linubáturinn í mánuðinum var Sólrún frá Bolungarvík með 93,4 lestir i 15 róðrum, en í fyrra var Hafrún frá Bolungarvík aflahæsti línubátur- inn með 154.8 lestir í 17 róðrum. Af togbátum var Guðbjörg frá Isafirði aflahæst með 305.1 lest, en í fyrra var Guðbjartur frá Isa- firði aflahæstur í desember með 345.6 lestir. Heildaraflinn á þessari haust- vertið ér nokkru lakari en í fyrra. Eru það ógæftirnar í desember, sem valda þessum samdrætti. Heildaraflinn á timabilinu október/desember varð nú 9.749 lestir, en var 10.673 lestir á sama tímabili I fyrra. Aflahæsti línu- báturinn á haustvertíðinni var Víkingur 3. frá Isafirði með 353.4 lestir í 68 róðrum, en í fyrra var Hugrún frá Bolungarvík aflahæst á haustvertíðinni með 359.9 lestir í 62 róðrum. nesi fyrir starfsmenn stofnana, fyrirtækja og stjórnvalda, er meira eða minna sjálfstætt vinna að úrlausnum verkefna. Hins vegar verður eins dags námskeið á Hótel Esju fyrir stjórnarmenn og forstjóra, er vilja kynnast nýj- ustu aðferðum og tækni við kerfisbundna verkefnastjórnun. Námskeiðin verða haldin dag- ana 20.—24. janúar 1975 og leið- beinendur verða sérfræðingar á þessu sviði frá Norðurlöndunum. Námskeiðin eru byggð á þeirri reynslu, sem fengist hefur af eftirmenntunarnámskeiðum, sem haldin hafa verið við Norska rannsóknaráðið á sviði náttúru- vísinda og hjá tæknifræðinga- félaginu danska I Kaupmanna- höfn. Kennslugögn námskeiðsins eru einnig frá þessum aðilum. Þessar tvær stofnanir hafa lengi haft samvinnu á sviði verkefna- stjórnunar, sem notuð er bæði i Noregi og Danmörku. Norræni iðnaðarsjóðurinn (Nordisk Indu- strifond), sem settur var á stofn að tilhlutan Norræna ráðsins á s.l. ári, hefur samþykkt að greiða hinn erlenda kostnað af nám- skeiðshaldi þessu. Markmið náskeiðanna er: — Að gefa þátttakendum betri innsýn i þá tækni og þær aðferðir, er beita má við kerfisbundnar úr- lausnir verkefna, sem miða að rannsóknum og þróunar- og þjónustustarfi í þágu atvinnuveg- anna. — Að treysta tengslin og auka samvinnu milli þeirra, er starfa að þróunarverkefnum við islensk- ar stofnanir og atvinnufyrirtæki, þar sem slik störf eru unnin. — Að tryggja betri forgangs- röðun og stjórnun verkefna, sem greidd eru af opinberu fé. — Að hefja undirbúning að út- gáfu íslenskrar handbókar í verk- efnaúrvinnslu (verkefnastjórnun og verkefnaskipulagningu). A námskeiðunum, sem skiptast í stutta fyrirlestra og hópvinnu, verður fjallað um þau fjölmörgu atriði, sem snerta störf þeirra, sem vinna við verkefnastjórnun, s.s. skipulag, áætlanagerð, stjórn- un verkefna, mótun starfshópa og starfsaðferða þeirra, mat á gildi verkefna og forgangsröðun, persónuleg tengsl i hópvinnu o.fl. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Stjórnunarfélagsins í sima 82930, K0BENHAVN 3V1-9f2 DEN SKANDINAVISKE BVGGEVAREUDSTIUJNG Helgarferð til Kaupmannahafnar á sýninguna „Byggingar fyrir billjónir" 31. janúar n.k. Gisting á IMPERIAL hóteli, mogunverður inni- falinn. Heilsdags skoðunarferð um Kaupmannahöfn og nágrenni þar sem m.a. verða skoðaðar ýmsar byggingar. Hádegisverður innifalinn. Verð frá kr. 31.700. Leitið upplýsinga og fáið sýningarskrá. Austurstræti 1 7, simar 26611 og 20100. REYKJAVIKURDEILD Rauða Kross íslands Öldugötu 4, pósthólf 872, Póstgíró: 91000. NYRSIMI: 2-82-22 rekstur sjúkrabifreiða — útlán sjúkrarúma — kennsla í skyndihjálp og hjúkrun í heimahúsum — sölubúðir í sjúkrahúsum — bókaútlán í sjúkrahúsum — sumardvalaheimili barna — sjúkravinaþjónusta — smámiðahappdrætti — minningakort. Reykvíkingar styrkið starfsemi deildarinnar, gerist félagar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.