Morgunblaðið - 14.01.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975
V-
«w
forum {
world features '
Nýi forsœtisráð-
herrann í Japan
ÞAÐ má virðast ótilhlýðilegt að
ræða um það hve lengi maður geti
hangið í embætti, sem nýlega hef-
ur verið kjörinn forsætisráðherra,
en eins og ástandið er I japönsk-
um stjórnmálum þessa stundina,
virðist full ástæða til þess nú.
Eftir að stjórnmálahneyksli
hrakti Kakuei Tanaka úr embætt-
inu áður en kjörtima hans lauk, lét
Takeo Miki tilleiðast að yfirtaka
stjórnartaumana. þótt stjórnar-
flokkurinn — Frjálslyndi demó-
krataflokkurinn — ætti í miklum
erfiðleikum. Veltur það nú á því
hve vel honum tekst að endur-
heimta traust þjóðarinnar á ríkj-
andi stjórnskipulagi hvort hann
heldur áfram að hirða ráðherra-
launin að loknum þingkosningum,
sem efnt verður til einhverntima á
þessu nýbyrjaða ári. Sem dæmi
um erfiðleika hans má benda á að
þegar Miki tók við forsætisráð-
herraembættinu töldu skoðana-
kannanir að stjórnin nyti aðeins
stuðnings um 12% kjósenda, og
hafa vinsældirnar ekki fyrr verið
minni.
Þetta eru erfiðleikatimar i
Japan, og þar er þörf á styrkri
stjórn. En Miki verður að reyna að
græða klofning þann innan flokks-
ins, sem varð við afsögn Tanaka,
stöðva ásakanir stjórnarandstöð-
unnar um spillingu innan rikis-
stjórnarinnar, og takast á við
lamandi verðbólgu samfara efna-
hagslegum samdrætti, sem meðal
annars hafa leitt til þess að um
eitt þúsund fyrirtæki verða gjald
þrota að jafnaði á mánuði hverj-
um, auk þess sem atvinnuleysí er
tekið að hrjá þessa þjóð, sem hef-
ur búið við þá hefð að ráðning til
vinnu jafngildi tryggingu fyrir lifs-
tiðarstarfi.
Að fráteknum nokkrum mánuð-
um þegar hernámsstjórn Banda-
rikjanna fór með völd i Japan,
hafa ihaldsstjórnir ráðið þar rikj-
um frá þvi siðari heimsstyrjöldinni
lauk. Stjórnarandstöðuflokkarnir
fjórir, þar sem sósialistar og
kommúnistar eru nú í meirihluta,
hafa aldrei verið færir um að sam-
einast i sterkan andstöðuhóp. En
sumir þingmanna stjórnarflokks-
ins viðurkenna nú i einkasamtöl-
um að þeir óttist að dagar flokks-
ins séu taldir. Segja þeir að ef
andstaðan geti á einhvern hátt
yfirstigið innbyrðis deilumálin,
geti hún verulega dregið úr þing-
fylgi frjálslyndra demókrata og
þarmeð torveldað flokknum
stjórnarsetu. Til þess að svo verði
þurfa andstöðuflokkarnir hins-
vegar að semja frið og skipta
á milli sín framboðum i kjör-
dæmunum til að koma fram sem
ein heild gegn núverandi stjórn.
Fram til þessa hefur andstöð-
unni ekki tekizt að sameinast. Má
þar til dæmis benda á að sama dag
og Miki var kjörinn forsætisráð-
herra var efnt til aukakosninga
þar sem kjörinn var einn héraðs-
stjóri og einn þingmaður Efri
deildar fyrir kjördæmi i Norður
Japan. Flokkur Mikis vann i báð-
um kosningunum vegna
sundrungar andstöðunnar.
Það má teljast heppileg ákvörð-
un fyrir frjálslynda demókrata að
kjósa Miki i embætti forsætisráð-
herra einmitt nú þegar stjórnmála-
menn stritast við að koma sér
undan þeim áburði að „allt fáist
fyrir peninga" i kosningum, en
Miki hefur áunnið sér nafnbótina
„Herra óflekkaður". Flokkurinn
fær mestan hluta kosningasjóða
sinna með rifjegum framlögum
kaupsýslumanna (,,til að verjast
kommúnistahættunni" er venju-
lega vígorðið), og þessi framlög
gera framámönnum i flokknum
kleift að kaupa fjölda atkvæða,
bæði í þingkosningum, og einnig á
Eftir Geoffrey
Murray
þriggja ára fresti þegar flokkurinn
kýs sér formann, sem einnig
verður forsætisráðherra.
Miki sagði af sér embætti vara-
forsætisráðherra i fyrrasumar til
að mótmæla klaufalegum at-
kvæðakaupum flokksbræðra
sinna við kosningar til Efri deildar-
innar, og þessi ákvörðun hans var
mjög vel séð hjá almenningi, sem
var orðinn þreyttur á peninga-
austri stjórnmálamanna i þvi skyni
að tryggja völdin.
Miklar vonir eru bundnar við
það að stjórn Mikis takist að
sneiða hjá allri spillingu. Hvort
honum tekst að koma á nokkrum
meiriháttar umbótum verður að
draga i efa enn sem komið er.
Forsætisráðherrann — sem er 67
ára og hefur setið á þingi i 37 ár
samfleytt, eða lengur en nokkur
annar — hefur jafnan haft orð
fyrir að vera friðarsinni, umbóta-
og hugsjónarmaður. En hann er
ekki nógu sterkur innan flokksins
þar sem flokkadrættir ríkja, og
stuðningur hans þar er vafasamur.
Verður hann að leggja sig fram um
að styrkja stöðu sina áður en hann
reynir að koma á nauðsynlegum
umbótum. sem koma mörgum
framámönnum illa.
Athyglisvert er að þótt mikið
hafi verið rætt um nauðsyn þess
að kveða niður klikukerfið innan
Frjálslynda demókrataf lokksins,
varð Miki að feta i fótspor fyrir-
rennara sinna og velja sér samráð-
herra i fullu samræmi við þessa
flokkadrætti.
Það eitt að Miki skuli vera
orðinn forsætisráðherra má teljast
kraftaverk. Hann hefur jafnan
borið lægra hlut i formannskosn-
ingum innan flokksins, og af þeim
fjórum frambjóðendum, sem
kepptu um sæti Tanaka, var hann
talinn óliklegastur til sigurs. Sjálf-
ur vildi Tanaka að Masayoshi
Ohira fjármálaráðherra tæki við
embætti forsætisráðherra, en
aðrir keppinautar um embættið
voru þeir Takeo Fukuda fyrrum
utanrikis- og efnahagsráðherra, og
Yasuhiro Nakasone viðskipta-
málaráðherra.
Það var vel heppnað stjórnmála-
bragð eins af eldri þingmönnum
flokksins, Etsusaburo Shiina, sem
tryggði Miki sigurinn. Fram að því
hafði Shiina ekki verið þekktur að
neinni sérstakri stjórnmála
kænsku, og eftir á að lita má vera
að einmitt það hafi auðveldað
honum bragðið. Shiina notaði sér
aðstöðu sina sem formaður
nefndar, er átti að kanna leiðir til
umbóta innan flokksins þannig að
hann yrði i nánari tengslum við
vilja þjóðarinnar (ekki hvað sizt
með þvi að gera flokkinn óháðari
stuðningi stórfyrirtækja).
Til að koma í veg fyrir kosningar
innan flokksins. sem gætu valdið
alvarlegum klofningi. tókst Shiina
að fá samþykki flokksforingjanna
fyrir þvi að hann reyndi með mála-
miðlun að ná samstöðu um ein-
hvern einn frambjóðendanna fjög-
urra. Enginn bjóst við þvi að þetta
tækist, og þá sizt þeir Tanaka og
Ohira — sem vissu að þeir áttu
meirihluta vísan ef til kosninga
kæmi. En þeir voru reiðubúnir að
biða brosandi átekta meðan gamli
maðurinn reyndi að komast hjá
kosningum, sem allir vissu að var
útilokað. Þegar þeir Tanaka og
Öhira vöknuðu loks upp við vond-
an draum. var þegar orðið of seint
fyrir þá að gripa í taumana. Fyrst
tókst Shiina að dæma Nakasone
úr leik með þvi að benda á að
hann væri aðeins 56 ára og þess-
vegna of ungur, enda hefði hann
tækifæri til að fá embættið næst
þegar kosið væri. Svo flýtti Shiina
sér að tilkynna opinberlega út-
nefningu Mikis, og Fukuda sam-
þykkti strax þá ráðstöfun (bersýni-
lega i þeirri trú að hann fengi að
deila raunverulegum völdum með
flokksbróður sinum). Þar sem Tan-
aka og Ohira höfðu i upphafi
viðurkennt nauðsyn þess að reyna
að forðast klofning innan flokks-
ins, gátu þeir ekkert annað gert
þegar hér var komið sögu en sam-
þykkja skipan Mikis i embættið.
Þegar á allt er litið er hér vart
um traustan grundvöll að ræða
fyrir mann. sem ætlar að reyna að
stjórna Japan á þessum erfiðu
timum.
Takeo Miki
300 lítra Westinghouse neyzluvatnshitakútur sem nýr til sölu. Upplýsirigar í síma (91)661 13. Bílkrani óskast ^ Vinsamlega sendið upplýsingar um verð og ástand merkt: „bílkrani — 71 20", til afgr. Mbl.
Húsasmiðameistari getur bætt við sig inni- og útiverk- efnum. Smíðal Idhúsinnréttingar, skápa o.fl. Uppl. í sima 30391. Ervaskurinn stíflaður? Tek stíflur úr handlaugum, baðkörum og niðurföllum. Baldur Kristiansen, pípulagningarmeistari. Simi 19131.
Skattframtöl Veiti aðstoð við skattframtöl. Pantið tima sem fyrst. Haukur Bjarnason hdl. Bankastræti 6. Simar 1 5528 og 26675. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin hf., sími 33603.
Óskum eftir að taka á leigu um það bil 70 fm húsnæði fyrir hágreiðslustarfsemi. Upplýsingar í sima 41 358. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN27 Sími 25891.
Bólstrun Tek bólstruð húsgögn í klæðn- ingu. Fast verðtilboð ef óskað er. Bólstv. Bjarna Guðmundssonar, Laugarnesvegi 52, sími 32023, 71538. M iðstöðvarkatlór Góðir notaðir miðstöðvarkatlar til sölu ásamt brennara og öðrum fylgihlutum. Lágt verð. Uppl. í slma 91-40736.
Útsala á hannyrðavörum Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut. íbúð óskast Ungur maður utan af landi óskar eftir lítilli íbúð eða herb. strax. Uppl. í síma 19991 milli kl. 5 — 7.
KAUPMENN
KAUPFÉLÖG
FISKBOLLUR
FISKBÚÐINGUR
GRÆNAR BAUNIR
GULR. & GRÆNAR BAUNIR
BLANDAÐ GRÆNMETI
RAUÐRÓFUR
LIFRARKÆFA
AGÚRKUSALAT
SAXAÐUR SJÓLAX
SARDÍNUR í OLÍU OG TÓMAT
SÍLDARFLÖK í OLIU OG TÓMAT
FYRIRLIGGJANDI
Niðursuðuverksmiðjan
Ora h.f.
Simar 41 995-6.
SÉRVERSLUN
MED
SVÍNAKJÖT
Heildsala — Smásala
SÍLD & FISKUR
Bergstaóastræti 37 sími 24447