Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 15 |llovo,uuXiTnbit» fbrötllr Þriðjudagur 14. janúar 1975 Pröll með 60 stiga forskot AUSTURRlSKA skiðadrottn- ingin Anne-Marie Pröll Moser virðist með öilu ðsigr- andi um þessar mundir og hefur náð glæsiiegri forystu í heimsbikarkeppninni f Alpa- greinum, er samtals með 161 stig, en helzti keppinautur hennar, Rosi Mittermaier frá Vestur- Þýzkalandi, hefur hlotið 101 stig. 1 sfðustu viku var keppt f bruni og svigi f heimsbikarkeppninni f Grindelwald f Sviss og á laugar- daginn I stórsvigi. t þeirri keppni sigraði Pröll nokkuð örugglega. Sagði hún sjálf eftir keppnina, að hún hefði aldrei staðið sig betur á móti en að þessu sinni og kvaðst vera bjartsýn á að henni tækist að verja heimsbikar sinn frá þvf f fyrra. 1 stórsvigskeppninni f Grindel- wald var brautin 1230 metrar og fallhæð var um 310 metrar. Tfmi Pröll var 1:20,34 mfn. Franska stúlkan Ienne Serrat varð f öðru sæti á 1:20,94 mfn. og þriðja varð Hanni Wenzel frá Liechtenstein á 1:21,54 mfn. Eftir keppnina í Grindelwald var staðan f heimsbikarkeppninni þessi: stig Anne Marie Pröll Moser, Austurrfki 161 Rosi Mittermaier, V-Þýzkalandi 101 Cindy Nelson, Bandaríkjunum 78 Fabienne Serrat, Frakklandi 72 Hanni Wenzel, Liechtenstein 66 Christa Zechmeister, V-Þýzkalandi 57 Marie-Theresa Nadig, Sviss 51 Monika Kaserer, Austurrfki 46 Wiltrud Drecel, Austurrfki 45 Danielle Debernard, Frakklandi 35 Bernadette Zurbriggen, Sviss 32 Lise-Marie Morero, Sviss 27 Birgitte Schroll, Austurrfki 25 Irene Epple, V-Þýzkalandi 24 Kathy Kreiner, Kanada 21 Þessi mynd var tekin er úrslit f kjöri „Iþróttamanns ársins 1974“ var kynnt: Fremri röð frá vinstri: Guðni Kjartansson, „Iþróttamaður ársins 1973“, Ingunn Einarsdóttir og Viðar Sfmonarson. Aftari röð frá vinstri: Óskar Jakobsson, Ómar Ulfarsson, formaður Lyftingasambandsins, Eriendur Valdimarsson, Arni Þ. Helgason og Stefán Hallgrímsson. ÁSGEIR KEPPIR UM V 0LV 0-BIKARINN ASGEIR Sigurvinsson verður fulltrúi Islands f kjöri „Iþrótta- manns Norðurlanda 1974“, en það mun fara fram á næstunni. FuII- trúi Danmerkur f þeirri kosningu verður Jesper Törring, Evrópu- meistarinn f hástökki, fulltrúi Svfa verður Ralf Edström, knatt- spyrnumaður, og fulltrúi Finna verður frjálsfþróttastúlkan Nina Holmen. Ekki er vitað hver verð- ur fulltrúi Norðmanna. Sá er hlýtur kosningu sem „íþróttamaður ársins 1974 á Norðurlöndum" fær í verðlaun einn veglegasta verðlaunagrip sem í boði er á Norðurlöndum, svokallaðan VOLVO-bikar, sem sænsku bifreiðaverksmiðjurnar gáfu, og fylgir bikar þessum álit- leg peningaupphæð, frá fyrirtæk- inu, sem varið skal til unglinga- starfs f félagi því sem viðkomandi íþróttamaður keppir fyrir. Er úrslit atkvæðagreiðslu íþróttafréttamanna voru birt i gær, las Jón Ásgeirsson upp bréf frá Velti h.f., og í því er greint frá þvi að fyrirtækið bjóði „Iþrótta- manni ársins 1974“ til Svíþjóðar, er kjör „Iþróttamanns ársins á Norðurlöndum“ verður tilkynnt. Þetta er f þriðja sinn sem VOLVO-bikarinn verður afhent- ur. 1972 hlaut sænski sundmaður- inn Gunnar Larsson bikarinn og í fyrra hlaut norski hjólreiða- maðurinn Knut Knudsen bikar- inn. Knudsen tók hins vegar ekki við bikarnum fyrr en í fyrra- haust, þar sem hann gat ekki komið þvi við að koma til sfns heimalands fyrr, vegna stöðugrar þátttöku í mótum atvinnumanna í hjólreiðum f fyrravetur og sl. sumar. • • VILJA AFSOKUNARBEIÐNI PRÁ DANSKA FORMANNINIM S.L. föstudag birtist f Morgun- blaðinu nokkur hluti þeirra um- mæla er danska dagblaðið Poli- tiken viðhafði um fslenzka körfu knattleikslandsliðið er það var f keppnisferð f Danmörku á dög- unum, þar sem þvf voru valin hín verstu orð, og illa látið af fram- komu þess, bæði á leikvelli og utan og sérstaklega fjallað um framkomu forsvarsmanna liðsins. Klammer með forystu En tveir Norðurlanda- búar eru í fremstu röð AUSTURRÍKISMAÐURINN Franz Klammer vann öruggan sig- ur í brunkeppni sem fram fór í Wengen í Sviss um helgina, og var liður í heimsbikarkeppni karla f Alpagreinum. Hefur Klammer góða forystu í stiga- keppninni, og er ekki ótrúlegt að honum takist að krækja f heims- bikarinn í ár. Fór Klammer braut- ina i Wengen af miklu öryggi, en hún var 4.187 metrar og fallhæð 1.012 metrar. Meðalhraði hans var um 90 kílómetrar á klukku- stund. Braut sú sem keppt var í hefur lítið verið notuð á undan förnum árum, en síðast þegar keppt var f henni náðist mun slak- ari tími en Klammer fór nú á. Brautarmetið þarna átti hinn frægi Karl Schranz og var það 26 sekúndum lakari tími en Austur- rfkismaðurinn náði að þessu sinni. Reyndar ber að taka það fram, að erfitt er að gera ná- kvæman samanburð, þar sem brautin er aldrei nákvæmlega eins, né aðstæður hinar sömu. Tími Klammers var 2:35,19 mín. Annar í keppninni varð hinn tvítugi Itali, Herbert Plank, á 2:38,73 mín., og þriðji varð Erik Haker frá Noregi á 2:38,85 min. Staðan í heimsbikarkeppni karla er nú þessi: Franz Klammer, Austurrfki 119 stig Pero Gros, Italiu 75 — Werner Grissmann, Austurriki 66 — Herbert Plank, Italiu 48 — Ingemar Stenmark, Svíþjóð 45 — Erik Haker, Noregi 39 — Gustavo Thoeni, Italfu 34 — Paolo di Chiesa, Italíu 33 — Sepp Walcher, Austurríki 30 — Fausto Radici, Italiu 30 — Bernhard Russi, Sviss 23 — Michael Veith, V-Þýzkalandi 23 — Rino Pietrogiovanna, ítaliu 21 — Karl Cordin, Austurríki -21. - Það sem þarna sagði var þó ekki það eina sem dönsku blöðin höfðu um fslenzka liðið að segja, þar sem eitt þeirra fjallaði m.a. um að fslenzku leikmennirnir hefðu notað tækifærið og legið f drykkjuskap á milli leikja og mikið var gert úr þvf að Körfu- knattleikssamband tslands væri stórskuldugt við FIBA — alþjóða- samband körfuknattleiksmanna. — Satt eð segja ofbauð okkur allur sá óhróður sem birtist á prenti um islenzka liðið, sagði Gylfi Kristjánssonn, einn af farar- stjórum islenzka liðsins á ferð' þessari. — Við erum þó ýmsu vanir af hendi danskra blaða- manna, bæði hvað þessari íþrótt viðkemur sem og öðrum, en svo virðist sem það séu erfiðustu stundirnar f lífi danskra íþrótta- blaðamanna, þegar Islendingar vinna sigra. Við teljum að þarna hafi hreinlega verið um „taktik" frá þeirra hendi að ræða. Það þurfti að brjóta íslenzka liðið niður, áður en það mætti þvi danska, og þetta tókst þeim bæri- lega. Eftir mjög góða leiki Islend- inga gegn Luxemburg og þó sér- staklega V-Þjóðverjum, var liðið ekki með sjálfu sér i leiknum á móti Dönum. Sem dæmi um styrk- leika V-Þjóðverja í þessari iþrótt má nefna, að þeir sigruðu nýlega í móti sem fram fór i heimalandi þeirra, en auk þeirra kepptu þar Austurríki, Holland, Sviþjóð, Danmörk og Alsír. Gylfi Kristjánsson sagði, að svo virtist sem formaður danska sam- bandsins hefði verið fljótur að gleyma þeim ummælum sínum, að hann rnyndi hugsa sig um tvisvar áður en tekið yrði á móti islenzku körfuknattleiks- fólki aftur. Varla voru Islend- ingarnir komnir heim, er bréf barst frá þessum sama manni, þar sem hann var að leita eft- ir þátttöku íslenzka kvennalands- liðsins f Polar-Cup keppninni sem fram á að fara i Danmörku i vor. — Hins vegar standa málin svo, sagði Gylfi, að það er ólíl legt að þangað verði sent lið, og er ekki víst að við heim- sækjum formanninn og blaða- mennina hans fyrr en komið hefur fram opinber afsökunar- beiðni á þeim óhróöri sem birtisl um fslenzka liðið i keppnisferð þessari. Gylfi sagði, að frásögnin um skuldir KKI við FIBA væri hreinn uppspuni. Sambandið skuldaði ekki meira til alþjóða- sambandsins en eðlilegt væri, og gæti hver sem er fengið staðfest- ingu á þvi með því að hafa sam- band við FIBA. — Það sem mestu máli skiptir, sagði Gylfi, var að Island vann sigur i mótinu i Danmörku. Við látum okkur það i léttu rúmi liggja, hvort Danir viðurkenna það eða ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.