Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 21 2. DEILD Einar Einarsson, hinn hávaxni leikmaður Fylkisliðsins vakti verulega athygli fyrir falleg mörk sem hann skoraði f leiknum á móti Stjörn- unni á sunnudaginn. Þarna gnæfir hann yfir Stjörnuleikmennina og I netinu hafnaði knötturinn. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. STJARNAN - FYLKIR 19:23 EKKI tókst Stjörnunni í Garðahreppi að ná stigi eða stigum út úr fyrsta leik sínum á heimavelli — íþróttahúsinu nýja í Garðahreppi, en þar fór fyrsti opinberi kappleikurinn fram á sunnudaginn. Mótstöðulið Stjörnunnar í leiknum var Árbæjarliðið Fylkir og lauk leiknum með sigri þess, 23—19, eftir að staðan hafði verið 15—8 fyrir Fylkismenn í hálfleik. Horfir því mjög óvænlega fyrir Stjörn- unni, sem ekkert stig hefur hlotið í 2. deildar keppninni til þessa, enda hefur verið svo að leikmenn liðsins hafa nánast enga aðstöðu haft til æfinga. Ber leikur liðsins þess glögglega vitni, þar sem áberandi óöryggi var í honum, og ýmiss konar klaufaskapur al- gengur. Sérstaklega var þetta áberandi í fyrri hálfleik, en þá var tæpast heil brú i leik liðsins, og Fylkismenn náðu að skora röð af ódýrum mörkum. Gerði þetta raunar út um leikinn, — sjö marka forskot var of mikið til þess að mögulegt væri að vinna það upp. Hins vegar var Stjarnan betri aðilinn í seinni hálfleiknum, og þá gerði liðið nokkrum sinnum laglega hluti, sem sanna að töluvert býr í þeim piltum sem það skipa — þeir þurfa aðeins góða aðstöðu og tíma til þess að ná þvi betur fram. Eftir rösklega 3 mínútur var staðan orðin 3—0 fyrir Fylki, um miðjan hálfleikinn 10—4, og síðan mátti sjá tölur eins og 14—6 og 15—7 á töflunni. í byrjun seinni hálfleiks náði Stjarnan sínum langbezta leikkafla, og lék þá vörnina vel i fyrsta og eina skiptið í leiknum. Tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk, og tvivegis fékk liðið tækifæri til þess að minnka hann enn meir. Um miðjan hálfleikinn var staðan svo 18—14 fyrir Fylki, en eftir það skiptust liðin nokkuð á að skora og urðu úrslitin 4 marka munur fyrir Fylki 23—19. Nafnarnir Einar Einarsson og Einar Agústsson voru langbeztu leikmenn Fylkis í þessum leik, og skoruðu þeir 14 af mörkunum 23. Sérstaklega var Einar Einarsson atkvæðamikill í fyrri hálfleiknum, áður en Stjörnuleikmenn fóru að gæta hans sérstaklega, og hafði hann t.d. skorað sex af mörkum Fylkis, þegar liðið var búið að gera 9 mörk. Sigurður Símonarson er einnig athyglisverður leikmaður í Fylkisliðinu, og Guðmundur Sveinbjörnsson komst vel frá leiknum, meðan hann fékk tíma til þess að athafna sig, en Stjörnumenn tóku hann að mestu úr umferð i seinni hálfleiknum. Hjá Stjörnunni bar mest á Gunnari Björnssyni, sem er laginn og útsjónarsamur leikmaður. Magnús Teitsson átti þarna einnig nokkuð góðan leik, svo og Guðjón Friðriksson og Jón Jörundsson. Mörk Stjörnunnar: Gunnar Björnsson 9 (5 v), Magnús Teitsson 2, Guðfinnur Sigurðsson 2, Guðjón Friðriksson 2, Jón Jörundsson 2 og Kristján Ölason 1. Mörk Fylkis: Einar Einarsson 7, Einar Agústsson 7 (4 v), Sigurð- ur Símonarson 4, Guðmundur Sveinbjörnsson 3, Bergur Guðjónsson 2. Dómarar voru þeir Alf Pedersen og Erling Kristiansen, og dæmdu með miklum ágætum — mun betur en maður sér oftast í 1. deildar keppninni. -stjl. WEMBLEY-STEMMNING I SKEMM- UNNI ER ÞÓR VANN KA 18:16 Það var allt eftir uppskriftinni þegar Akureyrarliðin KA og Þór mættust í Íþróttaskemmunni á Akur- eyri á föstudaginn. Það hefur verið svo undanfarin ár, þegar þessi tvö lið hafa mætzt, að Þór hefur oftast farið með sigur af hólmi, jafnvel þótt KA- liðið hafi verið talið sterkara á pappírunum. Það var einnig svo fyrir þennan leik, að KA vareina taplausa liðið ! 2. deild en Þór og Þróttur höfðu tapað tveimur stigum hvort lið. Þvi var álag á leikmönnum mik- ið. í upphafi leiksins setti þessi óstyrkur mjög mörk sin á leikinn, einkum voru KA-menn heillum horfnir. Þórsarar áttu auðvelt með að koma knettinum i netið hjá KA, en hjá KA gekk allt á afturfótunum. Það var þvi ekki að sökum að spyrja, Þór náði þegar i byrjun að gera út um leikinn. Þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður var staðan 7—3, Þór i vil, og enn átti forskotið eftir að aukast. þvi þegar blásið var til leikhlés höfðu Þórsarar skorað 12 mörk gegn 6 mörkum KA. í siðari hálfleik komu KA-menn tviefldir til leiks og skoruðu hvert markið af öðru, án þess að Þórsarar næðu að svara fyrir sig, og undrið KEFLVlKINGAR eiga það nú yf- ir höfði sér að vera vfsað úr 2. deiidar keppni Islandsmótsins í handknattleik. Á sunnudaginn gengu þeir af leikvelli, skömmu áður en leik þeirra við Þrótt átti að ljúka, tii þess að mótmæla dómgæzlunni f leiknum, og fyrir slíkt eru mjög þung viðurlög. — Við gerum okkur auðvitað grein fyrir þessu, sagði Sigurður Steindórsson, liðsstjóri Kefla- víkurliðsins, í viðtali við Morgun- blaðið í gær, — en það verður einhversstaðar að draga mörkin. Það er ekki hægt að þola enda- lausa og stöðuga áníðslu sumra dómara. Þeir verða að vera sjálf- um sér samkvæmir, það sem annað liðið kemst upp með, má ekki vera brot hjá hinu, eins og var í þessum leik. Sennilega munu dómarar leiks þessa, Ingvar Viktorsson, og Þór- ir Úlfarsson, leggja fram kæru á hendur Keflvikingum, og verður hún þá tekin fyrir I héraði. Sagði Sigurður, að Keflvikingar myndu STAÐAN Staðan f 2. deildar keppninni er nú þessi: KA 7 6 0 1 164:125 12 Þróttur 5 4 0 1 123:86 8 Þór 5 4 0 1 101:81 8 KR 6 4 0 2 118:104 6 Fylkir 7 2 0 5 120:150 4 Breiðablik 4 1 0 3 80:100 2 (BK 5 1 0 4 77:103 2 Stjarnan 5 0 0 5 95:129 0 — Golf Framhald af bls. 17 Magnús Guðmundsson, golf- og skiðamaðurinn kunni, hefir oftast Akureyringa unnið til þessara æðstu verðlauna kylfinga, eða 5 sinnum. Núverandi Islandsmeist- ari er Björgvin Þorsteinsson frá Akureyri og hefir hann sigrað í 3 skipti og á áreiðanlega eftir að láta meira af sér kveða, þvi hann er aðeins 21 árs gamall. Því er óhætt að segja að það hefir verið bjart yfir 40 ára starfssögu Golf- klúbbs Akureyrar. gerðist: Þegar 10 minútur voru til leiksloka hafði KA jafnað. 14—14, en KA tókst svo ekki að fylgja þess- um góða kafla eftir, og tapaði með 16 mörkum gegn 1 8. Um leikinn sem heild er það að segja, að hann telst vart hafa verið vel leikinn. en þrátt fyrir það var um mikla spennu að ræða. einkum i seinni hálfleik. Bæði var það, að áhorfendur settu mikinn svip á leik- inn, og hvöttu sina menn óspart, enda skemman sneisafull af áhorfendum, og minnti stemmningin á úrslitaleik á Wembley. Lið Þórs hefur innan sinna vé- banda marga ágæta leikmenn, eink- um er vörn liðsins sterk en sóknar- leikurinn er fremur einhæfur. Þeir þekkja sin takmórk og leika skyn- samlega. Óefað léku Þórsarar sinn bezta leik til þessa i vetur. Það sem einkum gerði þó útslagið á leikinn var að Þorbjörn Jensson virðist far- inn að finna sig aftur svo og mark- vörðurinn Tryggvi Gunnarsson, sem er gífurlega sterkur varnarmaður og haldinn miklum baráttuvilja. hann er að verða einn af lykilmönnum Þórs. KA-liðið lék þennan leik langt undir getu. Svo var að sjá að þeir tryðu þvi varla að þeim tækist að sigra Þór. Leikmennirnir voru þungir bíða átekta og sjá hvað dóm- ararnir gerðu, en kæmi frá þeim kæra myndu Keflvíkingar leggja fram gagnkæru á þá. Það er frá leiknum að segja að hann var í byrjun mjög jafn. Kefl- víkingár skoruðu fyrsta markið, Þróttur jafnaði, en aftur náði Keflavík forystu 2:1. Aftur jafn- aði Þróttur, og komst síðan yfir í 3:2, en Keflvíkingar jöfnuðu. Síðan kom kafli i leiknum þar sem Þróttarar höfðu algjöra yfir- burði og skoruðu 5 mörk án þess að IBK kæmist á blað: 8.3. Var þá fyrri hálfleikurinn hálfnaður. Það sem eftir var hálfleiksins skiptust liðin á að skora og í hálf- leik var staðan 14—H) fyrir Þrótt. I seinni hálfleik tók ÍBK að saxa á forskotið og um miðjan hálf- ieikinn var aðeins tveggja marka munur: 17—15 fyrir Þrótt. Upp úr því færðist svo mikil harka í leikinn og um leið fór að bera á mistökum hjá leikmönnum beggja liðanna og dómurunum. Skoraði IBK aðeins eitt mark það sem eftir var leiksins, gegn níu mörkum Þróttara, sem hömdu skap sitt betur og léku af meiri yfirvegun. Þegar 3 minátur voru eftir af leiknum var Steinari Jóhannssyni vikið af velli fyrir aðfinnslu og síðan Sævari Halldórssyni fyrir brot sem annar leikmaður framdi. Á sömu minútunni var svo Þor- steini Ólafssyni vikið af velli fyrir grófa tilraun til þess að ná knett- inum. Skoraði Þróttur þá mark og eftir það ætlaði Astráður að hefja leik á miðjunni, en annar dómarinn dæmdi þá á hann skref, er hann var að labba með knött- inn að miðjunni og Þrótti knöttinn. Kallaði liðsstjóri Kefl- víkinganna þá lið sitt af velli og lauk þar með leiknum. Mörk iBK skoruðu: Astráður Gunnarsson 4, Þorsteinn Ólafsson 4, Sigurbjörn Gústafsson 3, Sævar Halldórsson 3, Þorsteinn Geir- harðsson 1, Grétar Grétarsson 1. Mörk Þróttar: Halldór Braga- son 7 (2v) Friðrik Friðriksson 7 (2v), Sveinlaugur Kristjánsson 4, Björn Vilhjálmsson 3, Trausti Þorgrimsson 3, Gunnar Gunnars- son 1, Jóhann Frímannsson 1. ^ *■* V.#- V.# og hikandi allan fyrri hálfleikinn en tóku góðan sprett í hinum síðari og voru það einkum tveir menn sem þar áttu hlut að: Magnús Gauti, mark- vörður, og Geir Friðgeirsson. Við þennan sigur Þórs opnaðist deildin upp á gátt — þrjú lið hafa nú tapað tveimur stigum hvert, en þau eru Þróttur, KA og Þór en KR fylgir skammt á eftir með 4 stig töpuð. Það er því Ijóst að baráttan á toppn- um verður gífurlega hörð. Mörk Þórs: Þorbjörn Jensson 6, Aðalsteinn Sigurgeirsson 4 (2v), Árni Gunnarsson 3, Benedikt Guðmunds- son 3, Gunnar Gunnarsson 1 og Jón Sigurðsson 1. Mörk KA: Geir Friðgeirsson 5, (2v), Halldór Rafnsson 3, Ármann Sverrisson 3 (2v), Hörður Hilmars- son 2, Þorleifur Ananíasson 2 (bæði víti), Jóhann Einarsson 1. Leikinn dæmdu þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Olfert Naabye, og var frammistaða þeirra til mikillar fyrirmyndar. Tvimælalaust, bezta dómgæzla sem undirritaður hefur séð í vetur. Sigb. G. — Hörður Framhald af bls. 17 leiksmaður. Hörður er kennari að mennt og hefir starfað sem slíkur á Akureyri undanfarna þrjá vetur. Þegar hann fluttist norður gekk hann strax til liðs við K.A. og hefir leikið með þeim síðan í 2. deild. Hörður sagði að það væri sín trúa að f vetur yrði af því að K.A. ynni sér sæti í 1. deild. Liðið væri mun betra í vetur heldur en undanfarin ár. Það hefði löng- um verið höfuðverkur þeirra í K.A. að lagfæra varnarleikinn og nú hefði það tekist. Þess skal og getið að Hörður hefir leikið 15 leiki með mfl. Vals í handknattleik. Það hefir flogið fyrir að Hörður hygðist setjast að á Akureyri fyrir fullt og fast. Hann sagði að víst hefði það komið til álita, en ekkert væri fastráðið í þvf sajnbandi. Þó kvað hann talsvert miklar líkur á að svo færi. Vfst yrði það mikill fengur fyrir fþróttalíf á Akureyri ef svo ágætur fþróttamaður settist þar að. — Hudson Framhald af bls. 17 deilna okkar Sextons var sú að ég var látinn hætta að leika á miðjunni og settur á kantinn. Mér iíkaði ekki staðan á kant- inum þvf eðli mitt sem knatt- spyrnumanns er að vera ávallt þar sem mest er um að vera. Eftir þetta var ýmislegt fleira sem olli óánægju minni. Þegar ég svo fór til Stoke, var ég lengi f vafa um hvort ákvörðun mín hefði verið rétt. Til að byrja með leist mér alls ekki á borgina. En ég settist niður og hugsaði með mér til hvers ég væri hingað kominn. Þá ákvað ég að sanna Waddo og öðrum að ég væri enginn eigingjarn „playboy" og einstaklings- hyggjumaöur. Waddo var mér einnig mjög hjálpsamur. Fyrir fyrsta leik minn með Stoke sagði hann mér að leika á miðjunni og leika eins og mér þætti réttast og best. Þá fékk ég loks tækifæri til að leika knattspyrnu eins og mér sýnd- ist, en hjá Chelsea var alltaf verið að berjast við að spila einhver kerfi og það var drep- leiðinlegt. Nú árangur minn og hinna nýju félaga minna hjá Stoke varð góður f fyrra og skal verða enn betri nú f ár. Hjá Stoke er nú valinn maður f hverju rúmi. Þó held ég að ekki sé rýrð á neinn kastað þó ég segi að það að leika við hlið John Mahoney sé heiður sem fáir hljóti og ég vona að vera mfn hjá Stoke sýni að það sé verðskuldað." KEFLVIKINGAR GENGIJ AF VELLI í MÓTMÆLA- SKYNIVIÐ DÓMARANA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.