Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 16
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 Einbýlishús Til sölu, glæsilegt um 140 fm einb. hús við Fagrabæ, Rvk. Fjögur svefnherb, húsbóndaherb., stofur m.m., Bílskúr, ræktuð lóð. Gæti losnað fljótlega. Möguleiki að taka íbúð upp í kaupverð. Fasteignahúsið, Bankastræti 11. Sími 27750. óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: Blaðburðarfólk: AUSTURBÆR Barónsstígur, Freyjugata 1—27, Þingholtsstræti, Sóleyjargata, Flókagata 1—45, Háteigsvegur, Laugavegur 101—171, Skúla- gata, Bergþórugata, Laufásvegur 2—57, Miðtún, Laufásvegur 58 — 79. VESTURBÆR Nýlendugata, Ránargata. ÚTHVEFI Hluti af Blesugróf, Fossvogsbelttir, Snæland, Selás, Ármúli, Laugarnesvegur 34—85, Seljahverfi, Tunguvegur. SELTJARNARNES Melabraut, Skólabraut. Upplýsingar í síma 35408. SEYÐISFJÖRÐUR Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og innheimtu Mbl. Uppl. hjá umboðsmanni og í síma 10100. ÓLAFSVÍK Frá 1. janúar sér Birgir Ingólfsson, Lindarholti 2 um dreifingu, inn- heimtu Morgunblaðsins í Ölafsvík. VÍK í MÝRDAL Frá 1. janúar tekur frú Þórdís Krist- jánsson við dreifingu og innheimtu Morgunblaðsins í Vík í Mýrdal. Norski frystitogarinn „GADUS“ Verksmiðjiiskip — Frystiskip UNDANFARIÐ hafa menn rök- rætt um hver væri munurinn á verksmiðjuskipi og frystiskipi, og hefur sitt sýnst hverjum. Ef til vill er dálítið erfitt að draga skýra markalínu milli þessara tveggja flokka skipa, sérstak- lega vegna þess, að íslend- ingar hafa vart þurft að nota þessi hugtök við eigin skipa- flota. Og vart er við því að búast að menn verði algjörlega sammála um hvað er frystiskip og hvað verksmiðjuskip. Til að menn geti áttað sig betur á þessu fékk Morgunblaðið Má Elísson fiskimálastjóra til að skilgreina þessi hugtök og fer hans skoðun á þessum málum hér á eftir. Frystiskip Eins og nafnið ber með sér eru þessi skip búin tækjum til að frysta aflann, ýmist flakaðan eða heilan fisk. Frystitogarar þróuðust frá venjulegum ísfisk- togurum, sem tóku frystitæki um borð til að heilfrysta aflann. Smám saman stækkuðu skipin og urðu sérhæfari. Þeir frystitogarar frá V-Evrópu, sem ég þekki til, eru af stærðargráð1 unni 1500—3000 rúmlestir, enda þótt til séu skip, sem eru minni en 1 500 lestir og stærri skip en 3000 rúmlestir — þau stærstu trúlega um 3.500 lest- ir. í A-Evrópu eru til enn stærri skip. Þau flokkast hins vegar fremur undir verksmiðjuskip. Vestur-evrópsk frystiskip eru yfirleitt búin fremur afkastalitl- um fiskmjölstækjum, sem ætluð eru til að vinna tilfallandi úrgang. Ég þekki ekki til frystiskipa þaðan, sem stundað gætu fisk- veiðar í bræðslu, til þess eru vinnsluafköst fiskmjölstækj- anna ekki nægileg. Þessi frystiskip eru því áþekk stórum saltfisktogurum, sem heimild hafa til veiða hér við land og útbúnir eru flatnings- vélum. Verksmiðjuskip Verksmiðjuskip hafa yfirleitt víðtækari vinnslumöguleika en hreinræktuð frystiskip. í mörg- um verksmiðjuskipum eru bæði tæki til niðursuðu og sölt- unar auk frystingar og í sumum tilfellum tæki til afkastamikillar fiskmjölsvinnslu. Til eru verksmiðjuskip i V- Evrópu, sem fiska eða vinna afla annarra skipa nær ein- göngu með lýsis- og mjölfram- leiðslu fyrir eugum. Gera má greinamun á stór- um verksmiðjuskipum um og yfir 20 þús. lestir (jafnvel yfir 40 þús. lestir, eins og Vostok), sem eingöngu vinna úr afla smærri veiðiskipa' og verk- smiðjuskipum, sem vinna úr eigin afla og einnig afla smærri skipa, sem þeim fylgja. Tveir a-þýzkir verksmiðjutogarar. Þessi mynd var tekin á Halamiðum fyrir nokkrum árum. Hjúkrunarkonur — Sjúkraliðar Sjúkrahús Vestmannaeyja óskar eftir starfsfólki frá og með 1. febrúar n.k. sem hér segir: Tveim deildarhjúkrunarkonum. Nokkrum almennum hjúkrunarkonum. Nokkrum sjúkraliðum. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona í síma 98-1 952. Stjórn Sjúkrahúss og Heilsugæzlustöðvar Vestmannaeyja. Sendill óskast á ritstjórn blaðsins frá kl. 9 —12 fh. Morgunblaðið. 21 árs stúlka með stúdentspróf óskar eftir hálfsdags vinnu frá 9—3. Hefur lokið námskeiði í teiknifræði frá H.I. Uppl. í síma 33769. Meinatæknir óskast að Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Nánari upplýsingar í síma 98-1955 og 98-1540. Stjórn SJúrahúss- og Heilsugæzlustöðvar Vestmannaeyja. nucLVsmcnR ^-»22480

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.