Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 24

Morgunblaðið - 14.01.1975, Síða 24
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 Draumar og spádómar W'Ril Kaflar úr Laxdælu dóttur Ásgeirs. Hann tekur því máli líklega, því að hann var vitur maður og kunni að sjá, hversu sæmilega þeim er boðið. Kálfur er þessa máls mjög flýtandi. Hrefna veitir og eigi afsvör fyrir sína hönd, og bað hún föður sinn ráða. Er nú þessu máli á leið snúið og vottum bundið. Ekki lætur Kjartan sér annað líka en að brúðkaupið sé í Hjarðarholti. Þeir Ásgeir og Kálfur mæla ekki þessu í mót. Er nú ákveðin brúðkaupsstefna í Hjarðarholti, þá er fimm vikur eru af sumri. Láta þeir Kjartan og Ólafur þá stofna til veislu mikillar. Komu þeir norðan Ásgeir og Kálfur að ákveðinni stefnu og Guðmundur og Hallur, og höfðu þeir allir saman sex tugi manna. Þeir Kjartan höfðu og mikið fjölmenni fyrir. Var sú veisla ágæt, því að viku var að boðinu setið. Kjartan gaf Hrefnu að línfé moturinn, og var sú gjöf allfræg, því að enginn var þar svo vitur eða stórauðugur, að slíka gersemi hefði séð eða átt. En það er hygginna manna frásögn, að átta aurum gulls væri ofið í moturinn. Kjartan var og svo kátur að boðinu, að hann skemmti þar hverjum manni í tali sínu og sagði frá ferðum sínum. En þá er boðinu var slitið, valdi Kjartan góðar gjafir Guðmundi og Halli og öðru stórmenni. Fengu þeir feðgar mikinn orðstír af þessari veislu. Tókust góðar ástir með þeim Kjartani og Hrefnu. (Laxdæla, kap. 45). DRÁTTHAGI BLÝANTURINN Ungi strætisvagninn Einu sinni var lítill strætisvagn sem var búinn í stórri verksmiðju sem hét Volvo (en það nafn). En svo var hann tekinn frá mömmu sinni (verksmiðj- unni) og fluttur með stóru skipi sem hét Selfoss til Islands, þar sem einhverjir karlar tóku hann og sprautuðu gulan. Og gula strætisvagninum varð svo afskaplega heitt að hann fann svitann leka af sér, nei afsakið, hann fann málninguna leka af sér og kitlaði alveg afskap- lega í maganum og svo var málað framan á hann 3. NES-HÁALEITI. Nú bjóst hann við að hann yrði látinn keyra út um allar trissur á fullri ferð. Svona yrði þá ævi hans: keyra-stopp keyra-stopp taka uppí fólk. En hann hafði nú ekki alveg rétt fyrir sér, ekki fullkomlega. Hann þurfti að vísu að keyra stopp en hann var notaður í að keyra beljum, Ijónum og indíánum (með stríðsaxir), en ekki voru allar ferðir slysalausar því að einu sinni keyrði hann niður belju og hlaut þungar fjársektir sem hann borgaði með aftursætunum úr sér. En síðasta ferðin hans var verst því að hann keyrði á ög för f klessu. En hann fór ekki á verkstæði nei, nei, fjarri því, hann fór beinustu leið í ruslatunnuna. Því þessi strætó var bara leikfangastrætó á gólfinu hjá litlum strák. Magnús Ragnarsson (11 ára) 1 FERDilVIAIMD ÍTkÍlofgunkQffinu Farewell to a trawler that made history... Þegar fyrsti nýsköp- unartogari íslendinga, Ingólfur Arnarson, sem svo var skírður Hjör- leifur, kvaddi og hélt suður til Spánar, til niðurrifs, í nóvember- mánuði síðastl. birti blaðið The Daily Mail í Hull — The Hull Daily Mail eins og blaðið er kallað í heimabæ sínum, minningarorð um togar- ann í dálkunum: Dock- land Diary, sem einn af blaðamönnunum, Robert Wellings, stýrir. Fyrirsögnin hér að ofan er úr The Hull Daily Mail-greininni um togar- ann. Fullyrða má að það sé einstakt fyrirbæri, að grein sem þessi birtist í erlendu blaði, en þar er saga Ingólfs allýtarlega rakin eins og gert var á sínum tíma hér í blöð- unum og að auki minnt á hið mikla ævintýri I kringum furðufuglinn Dawson, auk þess sem undirstrikað er að tog- arinn hafi verið hinn fyrsti í heiminum sem búinn var radar. Blessaður vertu; ég hef þekkt hann síðan hann var svona hár. En<jurtaki þetta sig, mun ég aldrei stíga mínum fæti hér inn aftur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.