Morgunblaðið - 14.01.1975, Qupperneq 28
RUCIVSinCflR
#^-•22480
Offsetprentun
tímaritaprentun
litprentun
Freyjugötu 14' Sími 17667
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975
Flestar samgönguleiðir lands
ins tepptar
Fólk kemst víða ekki út úr húsum
vegna veðurs og frí gefið í skólum
□
□
Sjá fréttir á bls. 3.
□ -------------------------□
GlFURLEGUR veðurofsi hefur
verið um allt land sfðan á sunnu-
dagsmorgun. Veðrið hefur geisað
frá Snæfellsnesi, um alla Vest-
firði, allt Norðurland og Aust-
firði. Verst hefur veðrið verið á
Norður- og Austurlandi, en bezt
virðist þaö hafa verið á höfuð-
borgarsvæðinu. Ekki hafa borizt
fréttir af miklu eignatjóni í veðr-
inu, en rafmagnsskortur og ófærð
hefur þó valdið miklu tjóni. Af
þessum sökum lagðist skólahald
vfða niður í gær.
Af Norðurlandi bárust þær
Oveður
áfram
— VEÐURSPÁIN er þvf
miður ekki góð. Gert er ráð
fyrir norðanátt áfram næstu
daga og þvf fylgir talsverður
strekkingur með einhverri úr-
komu f minnsta kosti þremur
landshlutum, Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum,
sagði Knútur Knudsen veður-
fræðingur þegar við ræddum
við hann um veðrið í gær.
Knútur sagði, að hins vegar
væri gert ráð fyrir sæmilegu
veðri við Suðurströndina að
Snæfellsnesi og ekki ætti að
vcrða úrkoma frá Reykjavík
að Höfn I Hornafirði. Lægðin,
sem hefur valdið þessu mikla
óveðri, var í gær milli Færeyja
og Islands á leið í norðaustur.
Hins vegar var þá önnur lægð
á leiðinni sunnan úr Biskaya-
flóa og gert er ráð fyrir að
hennar fari að gæta í dag.
fréttir í gærkvöldi, að orkufram-
leiðsla Laxárvirkjunar væri kom-
in niður í 7—8 MGW, sem er það
minnsta sem virkjunin hefur
framleitt frá þvf að hún var
stækkuð. Hafin var skömmtun
um allt Norðurland og þegar er
auðséð að skammta verður þar
rafmagn a.m.k. f nokkra daga.
Víða hafa mjólkurbflar ekki kom-
ist leiðar sinnar, og er mjólkur-
skortur framundan ef ekki tekst
að ryðja vegi fljótlega. Ekki er þó
bjart yfir í þeim efnum, og veður-
fræðingar gera ekki ráð fyrir
batnandi veðri.
Tveir bátar hafa laskast eða
eyðilágst í óveðrinu. Á Skaga-
strönd sökk bátur í höfninni, án
þess að nokkuð fengist að gert, og
i Neskaupstað rak 8 tonna dekk-
bát uppí fjöru, og hefur ekki enn
verið hægt að ná honum út.
Snjór er víða orðinn það mikill
Framhald á bls. 35
t eldsvoðanum mikla á Reykjavíkurflugvelli f gærkvöldi tókst, þrátt fyrir mikið tjón, að bjarga miklum
verðmætum fyrir vasklega framgöngu björgunarmanna, og þar á meðal Gunnfaxa, einum af Fokkerum
•Flugfélags tslands. Var hann dreginn út úr flugskýlinu 4 elleftu stundu. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Söluverðmæti smyglvarnings-
ins nemur 23-24 milljónum kr.
Rannsókn málsins haldið áfram og jafnvel
talið að meira eigi eftir að koma í tjós
MORGUNBLAÐINU barst seint í
gærkvöldi fréttatilkynning frá
bæjarfógetaembættinu f Keflavík
um smyglmálið mikla, sem hefur
að undanförnu verið f rannsókn
hjá embættinu og Sakadómi
Reykjavfkur. Þrátt fyrir, að ein-
ungis hafi verið rannsakaður inn-
flutningur nokkurra skipverja á
fimm fslenzkum millilandaskip-
um, liggur þegar fyrir, að smygl-
að hefur verið inn í landið 3200
lítrum af 96% spiritus, 3000
fiöskum af öðrum áfengistegund-
um, yfir 1000 lengjum af vindl-
ingum og miklu magni kjötvöru.
Söluverð spiritusins hefur verið
um 5000 þúsund krónur Iftrinn,
annað áfengi hefur verið selt á
1600—2200 krónur hver flaska og
vindlingarnir á 900—1000 krónur
hver lengja. Söluverðmæti spiri-
tusins nemur þvf gróft reiknað
einum 16 milljónum, söluverð-
mæti annars áfengis 6 milljónum
og söluverðmæti vindlinganna
einni milljón. Erfitt er að áætla
söluverðmæti kjötvörunnar, en
þar er eflaust um miklar fjár-
hæðir að ræða. Heildarsöluverð-
„Björgunin mikiðafrek”
sagði Örn 0. Johnson forstjóri Flugleiða
Við ræddum við Örn Johnson, flugstjóra Flugleiða á flugvellin-
um, þegar sýnt var að eldurinn var að fjara út, en hann hafði staðið
í björgunaraðgerðum ásamt öðrum starfsmönnum félagsins.
Við spurðum hann fyrst hvað hann teldi tjónið vera mikið, en
hann kvað ekki hægt að áætla það fyrr en öll kurl væru komin til
grafar en það væri mikið.
□
□
Sjá miðopnu
-□
-□
„Starfsmenn, sem voru í
suðurviðbyggingunni þegar
eldurinn kom upp, telja, að
kviknað hafi i út frá rafmagns-
leiðslu,“ svaraði Örn aðspurður
um líkleg eldsupptök, „en
þessir starfsmenn munu hafa
fundið reykjarlykt um það leyti
sem eldsins varð vart.
Það sem var til húsa í þessum
mannvirkjum sem brunnu var
aðstaða fyrir skoðun bæði
Fokkervélanna og Boeingþot-
anna. Flugskýlið sjálft var upp-
hitað og í því voru Fokker
Friendship-vélin Gunnfaxi og
lítil vél, TF-RÓS, sem var áður í
eigu Flugþjónustunnar, en nú í
eigu Fí. Gunnfaxi var í skoðun
og stóð vélin upphækkuð á
tékkum, en hjólin voru þó á
henni og réð það úrslitum að
hægt var að bjarga henni,
þegar menn höfðu brotizt inn i
reykkófið til þess. Þá voru
vinnupallar einnig í kringum
vélina og þurfti að fjarlægja þá
í reykjarmekki þar sem varla
sáust handa skil. Báðum þess-
um vélum var bjargað og einnig
einum þotuhreyfli og tveimur
varamótorum af Fokkervélum.
Björgun þessara verðmæta var
mikið afrek eins og kringum-
stæður voru og tókst vegna
mikillar djörfungar þeirra
björgunarmanna sem réðust til
inngöngu í flugskýlið, en þar
var mikil sprengihætta eins og
sýndi sig skömmu eftir að
vélunum hafði verið náð út og
björgunarmenn urðu að yfir-
gefa skýlið.
I byggingunni sunnan við
flugskýlið, en hún var áföst því,
var aðalverkstæðið til húsa á
neðri hæðinni og allur vara-
hlutalager Fí, en á efri hæðinni
var mælitækjaverkstæði, radíó-
verkstæði, skipulagsdeild og
innkaupadeild, sem var nýflutt
þangað inn. 1 vióbyggingunni
norðan megin var m.a. Skoðun-
ardeild, en þar náðist að bjarga
líklega stærstum hlutanum af
skoðunarskýrslum félagsins og
dagbókum yfir flugvélarnar.
Er það ákaflega þýðingarmikið.
Þá var einnig í þessari bygg-
ingu eldhús og matstofa fyrir
80 manns, trésmíðaverkstæði
og verkfræðideild.
Þotumótorinn sem var bjarg-
að með snarræði, kom til lands-
Framhald á bls. 35
mæti þessa smygls, sem er að
mestu frá árinu 1974, nemur þvf
a.m.k. 23—24 milljónum króna.
Sakadómur Reykjavfkur mun
halda áfram rannsókn þessa
mikla smyglmáls, og kann þá
ýmislegt fleira að koma í ljós.
Mbl. er kunnugt um, að f sumum
tilfellum mun ekki hafa fallið úr
sú hálfsmánaðar ferð, að skipin
kæmu ekki með smygl til lands-
ins og hefur þctta smygl gefið
skipverjunum góðar tekjur. Inn-
kaupsVerð á hverjum lítra f Hol-
landi, þar sem hann var að mestu
keyptur af höndlurum, sem komu
um borð í skipin, mun vera 300
krónur lítrinn, en söluverðið hér
heima 5000 krónur sem fyrr
segir. Kaupverð þess magns sem
t.d. Mánafoss var með í síðustu
ferð, og fannst lagt við stjóra útaf
Gróttu, en það voru um 300 Iftrar,
er því 90 þúsund krónur en sölu-
verðmæti 1500 þúsund. Hagnað-
urinn er þvf mikill. Rannsókn
smyglmálsins leiddi í ljós, að hér
var ekki um smyglhring að ræða,
heldur nokkra smyglhópa, mis-
munandi stóra. Rannsóknin hófst
upphaflega vegna þess, að einn
þáttur Geirfinnsmálsins tengdist
þessu smyglmáli, en á þessu stigi
bendir ekkert til þess, að Geir-
finnur sjálfur hafi verið tengdur
málinu. Rannsókn málsins hefur
verið mjög umfangsmikil og
margir verið yfirheyrðir. Sex
menn sitja enn f gæzluvarðhaldi
vegna þess. Húsleit hefur verið
gerð á f jórum stöðum. Sögusagnir
hafa vcrið á kreiki um, að veit-
ingahús á Reykjavfkursvæðinu
séu tengd málinu, en ekkert hef-
ur komið fram sem bendir til
þess: ^
Hér'fer á eftir fréttatilkynning-
in frá bæjarfógetaembættinu i
Keflavfk. Hún er birt i heild:
Framhald á bls. 35